Alþýðublaðið - 16.03.1984, Blaðsíða 1

Alþýðublaðið - 16.03.1984, Blaðsíða 1
Forsendur lánsfjárlaga gersamlega brostnar ráð fyrir 400-500 milljónum á inn- lendum lánamarkaði í stað 800 milljóna eins og lánsfjárlög gerðu ráð fyrir. Lánsfjárlögin eru því gersamlega óraunhæf og allar for- sendur brostnar: „Það er því bæði rangt og háska- legt að afgreiða lagafrumvarpið óbreytt og eins og ekkert hafi í skor- ist. Það vekur falskar vonir, allar áætlanir einstakra stofnana og fyrirtækja verða á röngum forsend- um og allur eftirleikur verður þeim mun erfiðari. Þá hefur komið fram í nefndinni að ríkisstjórnin áformar nú þegar stórfelldar erlendar lántökur um- fram lánsfjárlög. Hefur ekki verið gert ráð fyrir þeim lántökum i tengslum við afgreiðslu þessa þing- máls. Hér má nefna lántöku vegna atvinnuveganna, lausaskulda land- búnaðarins og lánsfjár handa sjá- varútveginum. Eins og frumvarpið til lánsfjár- laga og lánsfjáráætlun liggja nú fyrir verður sú áætlun m.a. dregin að ætlunin sé að stórskerða öll húsnæðislán á þessu ári og við það verður alls ekki unað. Þess vegna birtir minni hl. hér á eftir sérstaka greinargerð um húsnæðismál sem dæmi um einn meginþátt lánsfjár- áætlunar" yfirdrátta og fleira. Þá má nefna útgjöld sem áformað var að lækka, hjá almannatryggingum 300 millj- ónir, hjá Lánasjóði námsmanna 100 milljónir, vegna niðurgreiðslna á raforku og útflutningsbóta, alls eru þetta um 600 milljónir króna. í nefndaráliti minnihluta fjár- hags- og viðskiptanefndar neðri deildar alþingis um lánsfjárlögin sem Kjartan Jóhannsson, Guð- mundur Einarsson, Svavar Gests- son og Guðrún Agnarsdóttir standa að, kemur fram að einungis er gert 28 milljón króna styrkur til Flugleiða Föstudagur 16. mars 1984 54. tbl. 65. árg. Ríkisstjórnin stendur enn á gati og engar tillögur koma fram hjá fjármálaráðherra þó verkstjóri ríkisstjórnarinnar, Steingrímur Hermannsson forsætisráðherra, reki á eftir Alberti og gefi þar með ótvírætt í skyn að sá sé nú ekki bein- línis duglegur til verka. Eins og fram hefur komið er útlit fyrir 1845 milljóna halla á fjárlög- um 1984 í stað 6 milljóna króna í plús. Útgjöld ríkissjóðs voru van- reiknuð um rúma 2 milljarða, en á móti kemur tekjuhækkun upp á 427 milljónir. 500-600 milljónir vantar til að endar nái saman vegna útgjalda hjá almannatryggingum, sýslumönnum, bæjarfógetum, grunnskólum og fleira, áður óþekkt útgjöld upp 500-600 milljónir hafa komið í ljós, t.d. vegna loðnudeild- ar Verðjöfnunarsjóðs, útgjöld vegna Straumsvíkurhafnar, vegna „Nýi“ vísitölugrund- völlurinn þegar úreltur! Neyslukönnun á þriggja ára fresti og neysla lágtekjuhópa sérstaklega sundurgreindar eru kröfur stjórnarandstöðunnar. Bæði Flugleiðir og Cargolux munu fá niðurfelld lendingargjöld á íslandi vegna Norður-Atlants- hafsflugsins svonefnda. Sú upp- hæð mun sennilega nema 27,7 milljónum króna til Flugleiða, þ.e. frá októberbyrjun 1983 ársloka 1984. Að því er Cargolux varðar, þá eru aðeins áætlaðar 50 lendingar á Keflavíkurflugvelli á umræddu tímabili, þannig að þeirri upphæð, sem af því fyrirtæki er aflétt með þessum hætti, mun sennilega vera á bilinu 1,1 - 1,4, milljónir króna. Það liggur og fyrir að Luxem- burgarar munu veita Flugleiðum undanþágu frá greiðslu farþega Húsnæðismálakafli lánsfjár- lagaáætlunar ríkisstjórnarinnar er sá vettvangur hinnar misheppn- uðu fjármálastefnu stjórnarinnar sem kann að bitna á hvað flestum landsmönnum. Hvert sem litið er í þessum kafla koma stórar og smáar skekkjur í Ijós. Gert var ráð fyrir því að skyidu- sparnaður skilaði inn 45 milljón- — í formi niðurfellingar á lendingargjöldum vegna N-Atlants- hafsflugsins skatts og lendingargjalda á árinu 1984. í nefndaráliti minnihluta fjár- hags- og viðskiptanefndar neðri deildar vegna lánsfjárlaga er að finna fylgiskjal þar sem finna má ofangreindar upplýsingar. Þar er um króna. í greinargerð Hús- næðisstofnunar kemur hins vegar í ljós að fyrstu tölur bendi til þess að hann sé neikvæður um 30 milljónir. Þarna skakkar um 75 millj. króna frá lánsfjáráætlun. Atvinnuleysistryggingasjóður hefur undanfarin ár lánað Byggingasjóði ríkisins verulega fjármuni samkvæmt lögum. Þessi einnig bráðabirgðauppgjör frá Flugleiðum um afkomu N — Atlantshafsflugsins á síðasta ári og er áætlað að tapið á þeirri rútu félagsins verði um 3,9 milljónir dollara, eða um 117 milljónir króna á síðasta ári. Þá er þess einnig getið, að í bráðabirgðauppgjörinu sé ekki að finna endurgreidd gjöld á íslandi, sem tilheyra árinu 1983, að upphæð 950 þúsund dollara (um 28 milljón- ir íslenskra króna). Það mun vera hluti af umsömdum styrk hins opinbera til félagsins, sem gengið var frá þegar erfiðleikar Flugleiða voru sem mestir á N — Atlants- hafsrútunni. þáttur hefur brugðist og má gera ráð fyrir því að þarna vanti í raun 115 milljónir króna. I lánsfjáráætluninni er gert ráð fyrir 525 milljónum frá lifeyris- sjóðunum. Raunhæfara er að telja að þaðan komi aðeins 400 milljónir og því vantar hér enn 125 milljónir króna. í lánsfjáráætlun er gert ráð Frumvarp ríkisstjórnarinnar um nýjan vísitölugrundvöll fram- færslukostnaðar og skipan Kaup- lagsnefndar er sem kunnugt er á fleygiferð á þingi. Sigríður Dúna Kristmundsdóttir, Ragnar Arnalds fyrir sérstakri fjáröflun að upp- hæð 200 milljónir króna. Þar sem útlit er fyrir að innlend lánsfjár- öflun fari úr 800 í 4-500 milljónir er augljóst að það kemur niður á húsnæðislánakerfinu. Hér er því um að ræða óvissuþátt upp á 200 milljónir. Þannig mætti lengi telja hvern- ig illa horfir fyrir í húsnæðismála- kerfinu vegna óraunhæfra fjár- laga og lánsfjárlaga fjármálaráð- herra og ríkisstjórnarinnar. Nán- ar verður gerð grein fyrir hús- næðismálunum í blaðinu á morg- un. og Eiður Guðnason hafa skilað minnihlutaáliti fjárhags- og við- skiptanefndar í efri deild. Þar kem- ur fram að enda þótt leiða megi lík- um að því að „nýi“ vísitölugrund- völlurinn sé nær því að mæla með- alneyslu landsmanna en hinn gamli, þá sé alls óvíst hversu réttur þessi grundvöllur er, enda byggður á 6 ára gamalli neyslukönnun. Telur minnihluti nefndarinnar því nauðsynlegt að hafist verði handa nú þegar við gerð nýrrar neyslukönnunar eins fljótt og auðið Framhald á bls. 3 Oraunhæf fjármálastefna er að rústa húsnæðismálakerfið! Olga í Starfsmanna- félagi Hafnarfjarðar Stjórn Starfsmannafélags Hafn- arfjarðarbæjar hyggst í dag bera undir atkvæði samkomulag við bæjarsjóð. Vekur þetta furðu fjölmargra félagsmanna, þar eð engin umræða hefur farið fram um samkomulagið og hefur komið fram megn óá- nægja vegna þessa. Félagsmenn starfsmannafélagsins eru um 180 talsins. Ekki síst vekur það furðu að auk þess sem enginn fundur hefur verið haldinn um tnálið þá hefur á það verið bent að talning þessara at- kvæða á ekki að fara fram fyrr en eftir atkvæðagreiðslu BSRB 20. mars. Því sé nægur tími til um- ræðna.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.