Alþýðublaðið - 16.03.1984, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 16.03.1984, Blaðsíða 4
alþýðu- ■ H hT'JT'M Föstudagur 16. mars 1984 Útgefandi: Alþýðuflokkurinn. Stjórnmálaritstjóri og ábm. Guðmundur Árni Stefánsson. Blaðamaður: Friðrik Þór Guðmundsson. Gjaldkeri: Halldóra Jónsdóttir. Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Reykjavík, simi 81866. Setning og umbrot: Álprent hf. Ármúla 38. Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12. I Áskriftarsíminn er 81866 Danska stjórnin styrkir dagblaðaútgáfu: Það er langtum víðar en á íslandi að útgáfa dagblaða og annarra blaða er styrkt af almannafé. Þykir það nauðsynlegt til að styrkja og tryggja frjálsa skoðanamyndun í þjóðfélaginu og koma í veg fyrir algjöra einokun fjársterkara afla í fjölmiðlaheiminum. Hægri öflin, sem í flestum lönd- um búa yfir hvað mestum blaða- kosti, hafa þó ævinlega haft horn í síðu þessara mála og vilja að aug- lýsendur og fjármagnið ráði algjör- lega ferðinni. Nú nýlega mælti t.a.m. Poul Schlúter forsætisráð- herra Danmerkur fyrir tillögu í danska þinginu, þar sem gert er ráð Ríkisstyrkur upp á 14 danskar milljónir fyrir þvi að stuðningur til blaðaút- gáfu frá hinu opinbera lækki úr 22 milljónum danskra króna í 14 millj- ónir. Hins vegar vill Schlúter ekki ganga svo langt að skera algjörlega á stuðning af þessu tagi. í tillögu Schlúter er gert ráð fyrir að þessi upphæð fari m.a. í að styðja uppbyggingu og endurbætur hjá þeim blöðum sem þegar eru fyr- ir hendi og einnig að hluti upp- hæðarinnar fari til að styrkja nýjar útgáfur. Þessi mál hafa á stundum verið umdeild hér á landi, en mikill meiri- hluti þingmanna hefur þó álitið að tryggja verði eftir fremsta megni að upplýsingamiðlun verði ekki alfar- ið á hendi örfárra aðila, sem allir eru á hægri væng íslenskra stjórn- mála. Þess vegna hefur ákveðinni Framhald á bls. 2 „Vargar völdin í Alþýðublaðinu 22. febrúar sl. birtist vísukorn sem kunningi blaðsins SÞE hafði sent, en í annarri visunni kom fram orð- skekkja er gerði merkingu hennar kolranga. Hér birtist vísan aftur og nokkrar aðrar sem SÞE hefur verið svo vænn að senda okkur. Ekki batnar íhaldið Afturábak og út á hlið, anga sína krabbar glenna. En ekki batnar íhaldið, út um borð hjá Denna. ísfilm hf. ísfilm var stofnað, enginn fær séð hver eignast þar feitastan bita. Fallega gert af Flugleidum að setja budduna sina undir lekann á ríkiskassanum ... girnast Þó láðist að taka þann langskásta með, sá lagt gat fram grjótnógan hita. Grjónagrautur Matarleysi er mesta þraut, mögnuð af grunnfærninni. Þá étur Denni grjónagraut, góðan hjá Eddu sinni. Vargar. Vargar girnast völdin há, vegsemd hlýtur sá sterki. Og grimmasti ránfugl sem ísland á, er þeirra skjaldarmerki. MOLAR Forsetaframbjóðandinn Margir muna vafalaust eftir þessu glæsimenni. Ef ekki, þá skal upp- lýst, að hér fer enginn annar en fyrrverandi forsetaframbjóðandi í Frakklandi, trúðurinn Coluche. Eins og menn muna bauð hann sig fram í forsetakosningunum í Frakklandi 1981, þegar Mitter- rand og Estaing börðust og hion fyrrnefndi hafði betur. Að vísu dró Coluche sig í hlé áður en til kosninganna sjálfra kom, en á tímabili var hann einkar virkur í kosningabaráttunni og varð vel ágengt; hlaut í skoðanakönnun- um heil 10% atkvæða. Á meðfylgjandi mynd má sjá Coluche í kosningamundering- unni, þegar sú uppákoma stóð sem hæst. Skyldi nokkurn undra þótt forsetaframboð hans hafi vakið athygli í Frakklandi og heiminum öllum? TIL UMHUGSUNAR Vilja kjósendur einveldi ráð- villts íhaldsflokks yfir sig? Fyrir 55 árum sáu íhaldssamir stjórnmálamenn, atvinnurekend- ur og embættismenn að eitthvað yrði að gera til að stemma stigu við uppgangi verkamanna og bænda. Þessar undirokuðu stéttir virtust ekki sætta sig lengur við óþolandi kjör, hverfandi atvinnu- öryggi, réttindaleysi og slæman aðbúnað. Þá höfðu í þrettán ár verið við lýði flokkar verkalýðs og bænda. Atvinnurekendavaldið og já- bræður þeirra úr hópi stjórnmála- manna og embættismanna, höfðu verið klofnir vegna and- stæðra hagsmuna. Útgerðarauð- valdið og verslunarauðvaldið höfðu ekki getað tekið ótvírætt saman, nema í almennri afstöðu um að skipan þjóðfélagsins skyldi miðast við eignarréttinn óg einka- framtakið. En nú var ógnun stéttaflokkanna orðin slík að i- haldið varð að snúa bökum sam- an. Þingmenn íhaldsflokksins og Frjálslynda fiokksins komu sam- an og stofnuðu Sjálfstæðisflokk- inn. Vissulega tóku að styðja flokk- inn verkamenn og bændur. En öflugustu stuðningsmennirnir voru eignamenn, hagsmunasam- tök þeirra, embættismenn og millistétt. Frá upphafi var aðstaða flokksins mun betri en hinna flokkanna, hann átti fylgi að fagna og sterk ítök þar sem slíkt skipti megin máli. Þar sem fjár- magnið var, í ríkisbönkunum, í Háskólanum, í dómskerfinu o.s.frv. Þrátt fyrir sameininguna er ljóst að ávallt hefur ríkt togstreita innan flokksins. Frá upphafi deildu útgerðarmennirnir við verslunarmennina um gengismál- in. Síðan hafa ótaldar krísur herj- að á flokkinn, fljótlega eftir stofnunina missti flokkurinn lið yfir til nasista og reyndar hafði flokkurinn við þá samvinnu í kosningum. Upp úr 1940 fór að gæta mikillar óánægju innan verslunarauðvaldsins sem endaði með því að stofnaður var Þjóð- veldisflokkurinn. Enn sauð upp úr þegar verslunarauðvaldið opin- beraði óánægju sína með flokks- agann og ríkisumsvifin og þá var Lýðveldisflokkurinn stofnaður 1953. Ágreiningurinn og hagsmunaá- rekstrarnir hin síðari ár eru mönn- um svo í fersku minni að ekki þarf að rifja upp í löngu máli. Gunn- arsar.nur hefur slegist við Geirs- arm og Albertsarmur slegist við hvað sem fyrir kann að hafa verið. Menn hafa hrósað og menn hafa rakkað niður leiftursóknarstefnu. Um þessar mundir er Albertsarm- urinn í heilögu stríði við flokks- eigendaveldið. Og hvernig tekur svo flokksfor- ystan í afstöðu hinna almennu stuðningsmanna þegar þeir fá vinsamlegast að tjá sig? Fyrir því eru ágæt dæmi. T.d. nú fyrir nokkrum árum við prófkiör flokksins í feykjavík. Þá fengu prófkjörsþátttakendur, auk þess að raða frambjóðendum, að svara þremur spurningum ef rétt er munað. Ein þeirra laut að Aronskunni svo kölluðu. Hvort Varnarliðið ætti að taka þátt í kostnaði við vegagerð, brúargerð og þess háttar. Drjúgur meirihluti prófkjörs- þátttakenda greiddi atkvæði með Aronskunni, hinn almenni stuðn- ingsmaður flokksins var því með- mæltur að fram kæmi framlag Varnarliðsins til þessara fram- kvæmda. Ætla skyldi að flokks- Framhald á bls. 2 Hver borgar hvað í tekjuskatt? Jóhanna Sigurðardóttir hefur lagt fram fyrirspurn til Alberts Guömundssonar fjármálaráherra um innheimtu tekjuskatts. Spyr Jóhanna Albert hverju inn- heimtur tekjuskattur á árinu 1983 hafi numið og hvernig hann hafi skipst á eftirtalda aðila: einstakl- inga, einstaklinga með atvinnu- rekstur, hlutafélög, samvinnufélög og sameignarfélög. Þá spyr Jóhanna hversu margir greiddu tekjuskatt á árinu 1983 samkvæmt sömu sundurliðun og hér að ofan og hver hafi verið fjöldi skattskyldra aðila, sundurgreint á sama hátt. „Sannleiksást“ eða ólæsi! Tíminn gaumgæfir í fyrradag niðurstöður skoðanakönnunar DV, og er voðalega hreint undr- andi á því, að Framsóknarflokk- urinn skuli ekki bæta við sig meira fylgi. Svo kemst blaðið að þeirri niðurstöðu, að stjórnarand- stöðuflokkarnir tapi fylgi, nema kvennaframboðið. Ekki tekst okkur að lesa þessa niðurstöðu út úr könnuninni. Alþýðuflokkur- inn einn stjórnarandstöðuflokka bætir við sig fylgi frá því í októ- ber-könnun; úr 8,2% í 9,4%. Kvennalistinn fer hins vegar úr 7,2% í 4,9%, eða tapar 2,3%.- Annað hvort er hér á ferðinni dæmigerður Framsóknar-sann- leikur eða bara hreint og klárt ólæsi. Úrklippurnar segja alla söguna. Athyglisvert er að stjórnarandstöðuflokkarnir tapa fylgi, nema helst kvennaframboðið, sem stendur svo gott sem í stað. En stjórnarandstað- an hefur ekki verið svo beysin að von sé til að hún veki traust kjósenda. Ef aöeins eru teknir þeir, sem tóku afstöðu, verða niðurstöðurnar þessar: Til samanburðar eru niðurstöður skoðanakönnunar DV í október og úrslit síðustu þingkosninga: Nú I okt. Kosn. Alþýðuflokkur 9,4% 8,2% 11,7% Framsóknarflokkur 17,0% 14,8% 19,0% Bandalag jafnaðarm. 2,7% 3,7% 7,3% Sjálfstæðisfl. 51,1% 47,9% 39,2% Alþýðubandalag 14,9% 18,0% 17,3% Samtök um kvennal. 4,9% 7,2% 5,5%

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.