Tíminn - 19.02.1967, Blaðsíða 9
SCNNUDAGUR 19. febrúar 1963.
TÍIWINW
er opin á þriSjudögum og föstudög
um frá kl 3—5 simi 19282.
if Bókasafn Dagsbrúnar, Lindargötu
9, 4. hæð til hægri. SafniS er opið á
tímabilinu 15. sept. til 15. maí sem
hér segir: Föstudaga kl. 8—10 e. b.
Laugardaga kL 4—7 e. h. Sunnu-
daga kL 4—7 e. h.
Bókasafn Sálarrannsóknaféiags ts-
lands, GarSastræti 8, er oþiS á miS
vikudögum, kl. 5,30 — 7. e. h.
Tæknlbókasafn IMSl — Sklpholt)
37. — Opið alla virka daga frá kl.
13 — 19 nema laugardaga frá 13 —
15. (1 Júni 1. okt iokað á Iaugar
dögum).
Bókasafn Seltjarnarness er opið
mánudaga kL 17.15 — 19.00 og 20
—22. Miðvikudaga kL 17,15—19.00.
Föstudaga kL 17,15—19.00 og 20—
22
Tæknibókasafn I.M.S.Í. Skip-
holti 37, 3. hæð, er opiS alla virka
daga kl. 13—19 nema laugardaga
kl. 13—15 (lokaS á laugardögum
15. mai — 1. okt.l
Tekið á móti
tilkynningum
f dagbókina
kl. 10—12
SJÓNVARP
Sunnudagur 19. febr. 1967'
Kl. 16.00 Helgistund
Kl. 16,20 Stundin okkar.
Þáttur fyrir börnin í umsjá
Hinriks Bjamasonar.
f þættinum verður að þessu sinni
m. a. samleikur á fiðlu og píanó.
Kolbrún og Helga Óskarsdætur
leika. Hulda Kunólfsdóttir segir
sögu og 'börn úr Breiðagerðis-
skóla flytja 1. þátt leikritsins
„Runki ráðagóði".
Kl. 17,15 Fréttir
Kl. 17,25 Erlend málefni.
Tunglferðaáætlun Bandaríkjanna.
Kl. 17,45 Denni dæmalausi
Aðalhlutverkið leikur Jay North.
íslenzkan texta gerði Dóra Haf-
steinsdóttir.
Kl. 18,10 íþróttir.
Mánudagur 20. febrúar 1967
Ki. 20,00 Fréttir |
Kl. 20,30 Harðjaxlinn
Þessi þáttur nefnist „Séð frá
sumarhúsinu". Aðalhlutv. John
Drake, leikur Patrick McGoohan.
Goohan.
íslenzkan texta gerði Þráinn
Bertelsson.
Kl. 20,55 Öld konunganna
Leikrit eftir 'William Shakespeare,
búin til flutnings fyrir sjónvarp.
Þeir þættir, sem áður hafa verið
sýndir, voru byggðir á leikritinu
Ríkharður n. Þessi þáttur nefn
ist „Uppreisn að norðan" og er
í rauninni 1. og 2. þáttur úr
fyrra leikriti Shakespeare's um
Hinrik konung IV. Söguþráður
inn í stuttu máli: Hin fyrirhug
aða krossferð Hinriks IV fer
skyndilega út um þúfur, þegar
uppreisn verður heima fyrir. Hin
ir þrír fyrrverandi bandamenn
hans fyrir norðan, þ. e. hin vold-
uga Percy ætt, Northumberland,
sonur hans, Harry „Hotspur“ og
bróðir hans, Worcester, eru ó-
ánægðir með lítilfjörlega um-
bun eftir að hafa stutt hinn nýja
konung til valda. í Lundúnum
veldur hinn ungi Prins af Wales
föður sinum gremju, er hann
blandar geði við félaga af lægri
stigum, meðal þeirra hinn vamb-
síða riddara, Sir John Falstaff.
Þótt prinsinn hafi i hyggju að
láta fylgifiska sína lönd og leið
einn góðan veðurdag og breyta
líferni sinu, finhst honum tiltæki
þeirra frestandi. Grímuklæddir.
stöðva prinsinn og félagar sak-
lausa ferðamenn og ræna að
næturþeli við Gadshill í Kent.
Ævar R. Kvaran flytur inngangs
orð. Kl. 22,15 Dagskrárlok.
35
ar hún laut ofan að honum, og
það fóru bvaladrættir um andlit
hans, en í augum hans mátti lesa
sambland af reiði, þrjózkia og
þr-eytu. Varir hans opnuðuist.
—■ Hypjaðu þig þurt og láttu
mig í friði.
í þetta sinn var það augljóst,
að það var Lucie sem hann á-
varpaði þannig. Síðan fóru kippir
um hann. Höfuð hans féll ofan á
koddann, og hann hreyfði sig ekki
framar.
Biglotte snerti andlit hans,
rannsakaði augun og sagði hljóm-
laust:
— Hann er dáinn.
Hún leit bvasst á Lucie.
—• Hann et dáinn, og það er
þér að kenna, að hann skriftaði
ekki og fékk sakramentið. Nú
tekur þvi varla að signa hann.
Þegar Pazanna kom inn, mætti
hún lækninum, sem var kominn
til þess að rannsaka dánanorsök-
ina.
— Ég er hræddur um, að því
sé lokið, ungfrú Altefer. Hann
kom snöggvast til meðvitundar, áð
ur er hann dó. Við höifum séð,
að það kemur stundum fyrir.
Pazanna starði á föður sinn.
Eftir dauðasíríðið hafði færzt ró
ytfir andlit hans. Það var næstum
eins og hann væri lifandi. Milli
augnanna var aðeins örlitil
hrukka. Hún stafaði atf erfiðleik-
um liðinnar ævi, en hún truflaði
friðinn, sem hvíldi yfir ásjónu
hans.
Pazanna var hrygg, vegna þess
að hún hafði ekki komið fyrr.
Hver veit, nema faðir hennar
hefði sagt eitthvað annað en þessi
ónotalegu orð. Hann mundi ef til
vill hafa látið í ljós einhverja
mannlcgri tilfinningu, þó að hann
hafði ekki gert það fyrr. Hann
hefði ef til vill sýnt einhver merki
um ást, sem hann hafði aldrei
viljað kannast við. Og nú var of
seint að komast að raun um hvort
hann hafði átt hana til.
Hún fór upp til þess að hitta
föðurbróður sinn. Hann lá endi-
langur ofan á rúminu. Hún tók
þegjandi í hönd hans.
— Ég veit það, sagði Ohristo
plhore lágt. — Gamli maðurinn
er dauður.
Klukknahljómur barzt inn um
opinn gluggann. Gamli maðurinn
lyfti hendinni.
— Hlustaðu, þeir eru að
hringja klukkunum fyrir hann.
Veslings Christophe. Ég veit, að
okkur þótti mjög vænt hvom
um annan, en nú gerir það ekki
lengur til. Þetta var mest í nös-
unum á okkur. Þetta er tómt fá-
nýti, ef þetur er að gáð. Við er-
um óttalegir kjánar, sem skiljum
ekkert, fyrr en við stöndum
frammi fyrir dauðanum.
Ohristophore forðaðist að líta
framan í Pazönnu og síðast lok-
aði hann augunum. Honum fannst
hann allt í einu vera orðinn mjög
þreyttur, mjög dapur og mjög
gamali. Hann benti (henni að fara.
Pazönnu hafði ekki dottið í hug,
að hann yrði svona hryggur. Ég
hélt að hann> hafði viðbjóð á föð-
ur mínum, hugsaði hún með sér.
En hann syrgir hann meira en
ég.
Það var búið að klæða Ohristo-
phe í fötin sín og leggja hann
ofan á rúmið. Hann lá þarna, eins
og hann væri nýkominn úr sam-
bvæmi, en hetfði sofnað. Blóm
hö'fðu verið sett á borðið vtfgt
vatn og logandi kerti. Það hafði
verið sent eftir mönnum til’ þess
að vaka yfir honum, en á meðan
sat Ohrétien hjá líki frænda síns.
Hann stóð rétt hjá rúminu, og
svipur hans lýsti samblandi af
ótta og fyrirlitningu. Pazanna
varð undrandi.
—■ Hvað ertu að gera þarna úti
í faomi? Komdu nær rúminu.
Þetta er föðurbróðir þinn. Þú ætt
ir að biðja fyrir sál hans. Hann
er dáinn. Veiztu ekki, hvað það
þýðir?
— Hann er ekki dáinn. Hann
ris upp og slær mig.
—■ Komdu hingað og haltu í
höndina á mér. Horfðu nú á
hann. Hann er sofandi. Hann
hreyfir sig ekki. Hann getur
hvorki talað né hreyft sig fram-
ar. Krjúptu nú hérna og farðu
með bæn.
Chrétien gerði eins og honum
var sagt og fór með fáein rugl-
ingsleg orð.
Pazanna fór inn í skrifstofuna.
Hún var orðinn framkvæmdar-
stjóri merskireitanna. Hún var
loksins orðin sinn eiginn hús-
Ibóndi, en hún gladdist ekki yfir
því, þó að henni tækist um stund
að sökkva sér niður í starf sitt
og hrinda frá sér hugsuninni um
föður sinn, sem lá í næsta her-
bergi. Hún huggaði sig við það,
að merskireiitirnir ættu eftir að
bera mikinn arf og síðan tók hún
að skrifa fáein bréf. Eftir fáaínar
mínútur hætti hún því og hlust-
aði. Út úr næsta herbergi bárust
einkennileg hljóð. Það heyrðust
þung högg og óp.
Hún hratt upp hurðinni og þaut
inn, en henni brá svo, þegar hún
sá, hvað var á seiði, að hún varð
að styðja sig við dyrastafinn.
Chrétien var þúinn að umturna
öllu á borðinu og fleygja blóm-
unum út í horn. Hann stóð bog-
inn yfir rúminu, lét skammirnar
dynja á líkinu og löðrungaði það
um leið til þess að gefa orðum
sínum áfaerzlu. Það heyrðust smell
ir, þegar hann sló hinn látna í
andlitið.
— Þetta er mátulegt á þig. Þú
ert vondur maður. Þú slóst mig,
og nú skaltu fá það borgað.
' Og hann sló líkið aftur. Það var
átakanleg sjón.
Fazanna greip fyrir munniníi
BÆNDUR &
SVEITAFÉLÖG
Nú er rét.ti tíminn til að gera kaup á
vinnuvélum.
Vér bjóðum yður BOBCAT vinnuvélar
með drif á öllum hjólum, —
einnig með gröfu og ámokstursskóflu og
húsi.
LEITIÐ UPPLÝSINGA
T. HANNESSON & CO. HF.
Brautarholti 20. — Sími 15935
til þess að hæla niður skelfingar-
ópið. Hún hélt niðri í sér andan-
um.
Það kom snöggvast á Ohrétien.
Reiddur hnefinn stöðvaðist. Siðan
réðzt hann aftur á lífið. Pazanna
hljóp til hans, þreif í hann og
dró hann burt frá líkinu.
— Hann er vondur maður,
Paza. Þér er óhætt að trúa mér.
Ég er að berja hann, af því að
hann harði mig. Ég er líka karl-
maður.
Þegar hann leit á Pazönnu va'ð
henni ekki um sel. Augun í honum
voru blóðhlaupin, eins og þegar
hann lenti í illdeilum við Cleo-
phas.
Hann rak upp hlátur og sleit
sig af henni.
Hann hljóp froðufellar.di eins
og vitfyrringur að rúminu og
fór aftur að berja Mkið.
Það fór hrollur um Pazönnu.
Höggin nístu sál hennar. Grát-
andi þreif hún aftur í Chrétien,
dró hann með valdi fram að dyr-
ÚTVARPIÐ
Sunnudagur 19. febrúar
9.10 Veðurfregnir. 9.25 Morgun-
11.00 Messa i Nes-
í dag
tónleikar.
kirkju.
Prestur: Séra
Franik M.
Halldórsson. Organleikari: Jón
ísleifsson. 12.15 Hádegiaútvarp
13,15 Úr sögu nitjándu ald-
ar. 14.00 Miðdegistónleikar. 15.35
Færeysk guðsþjónusta. 16.00 Veð
urfregnir. Endurteldð efni. 17.00
Bamatími: Anna Snorradóttir
kynnir. 18.05 Stundarikorn með
Rakhmaninoff. Boris Christoff
syngur fáein lög. 18.20 Veður-
fregnir. 18.30 Tilkynningar. 18.
55 Dagskrá kvöldsins og veður
fregnir. 19.00 Fréttir 19.20 Veður
fregnir. 19.20 Tilkynningar. 19.
30 Kvæði kvöldsins Sigvaldi
Hjálmarsson vehir kvæðin og
flytur 19.40 Sónata eftir Wilhelm
Fridemann Bach. 19.50 Skálda-
uppreisn á páskum Gunnar Berg
mann flytur fyrra erindi sitt úr
íriandsför, og fylgir því írsk tón
Iist. 20.25 Miðaldakvæði og tón
Iist við þau. 20.45 Á víðavangi
Ámi Waag talar um griðland ís-
lenzkrar náttúm í framtíðinni.
21.00 Fréttir, íþróttaspjall og
veðurfregnir. 21.30 Á hraðbergi
Þáttur spaugvitringa og gesta
þeirra í útvarpssaL Pétur Pétprs
son kynnir. 22.25 Danslög. 23.25
Fréttir í stuttu máli. Dagskrárlok.
Mánudagur 20. febrúar
7.00 Morgunútvarp 12.00 Hádegis
útvarp 13.15 Búnaðarþáttur 14.00
Við vinnuna. 14.40 Við, sem
heima sitj-
rnorgun
um. 15.00
Miðdegis-
útvarp 16.00 Síðdegisútvarp 17.00
Fréttir. 17.20 Þingfréttir 17.40
Börnin skrifa. Séra Bjarni Sig-
urðsson á Mosfelli les bréf frá
börnum og talar við þau um efni
bréfanna. 18.00 Tilkynningar. 18.
55 Dagskrá kvöldsins og veður-
fregnir. 19.00 Fréttir 19.20 Til-
kynningar. 19.30 Um daginn og
veginn. Ásmundur Einarsson lög-
fræðingur talar. 19.50 „Þú sæla
heimsins svala lind“ Gömlu lög-
in. 20.15 Á rökstólum: Hvað er
að gerast í Kina? Tómas Karls
son blaðamaður stjórnar umræð
um fjögurra manna; 21.00 Fréttir
og veðurfregnir. 21.30 Lestur
Passíusálma (25) 21.40 íslenzkt
mál Ásgeir Biöndai Magnússon
cand. mag. flytur þáttinn. 22.00
Kvöldsagan: „Litbrigði jarðarinn-
ar“ eftir Ól. Jóh. Sigurðsson. (6)
22.20 Hljómplötusafnið. 23,10
Fréttir í stuttu máli. Bridgeþátt
ur Hjalti Elíasson flytur. 23.40
Dagskráriok.