Alþýðublaðið - 17.07.1984, Blaðsíða 2
2
Þriðjudagur 17. júlí 1984
RITSTJÓRNARGREIN ....... ■ ...
Auka ber þróunaraðstoð
Oameinuðu þjóðirnar hafa sett iðnríkjum
heimsins það markmið að þau greiði 1% af
þjóðartekjum sínum til þróunaraðstoðar. Er þá
reiknað með frjálsum framlögum félagasam-
taka og einstaklinga. Fram að þessu hafa að-
eins fimm iðnríki náð fyrrgreindu markmiði.
Þau eru Holland, Svíþjóð, Noregur, Frakkland
og Danmörk.
Hlutur íslands í þessum efnum er aftur á móti
skammarlega lítill. Undanfarin ár hef ur f ramlag
íslenska ríkisins veriðábilinu 0,05% —- 0,06%.
í ár slagar framlagiö hins vegar upp í 0,1% og
er ástæða þeirra hækkunar smíði skipsins
Fengs, sem íbúum Grænhöfðaeyja var færður.
Staðreyndin er sú að ekkert af iðnríkjum
heimsins greiðir jafnlítið til þróunaraðstoðar
og íslendingar. Framlög íslenska ríkisins eru
svo lág, að á opinberum skýrslum um þessi
mál, eru íslendingar ekki hafðir með.
*
I viðtali Alþýðublaðsins við Gunnlaug Stefáns-
son fræðslufulltrúa hjá Hjálparstofnun kirkj-
unnar, sem ásamt Rauða krossinum, hefur ver-
ið einkar athafnasöm í vlðtæku hjálparstarfi,
kom fram að framiag Hjálparstofnunar kirkj-
unnareitt sértil þróunarhjálpar, hefði ásfðasta
ári verið meira en framlag ríkisins. Þróunarað-
stoð Hjálparstofnunar er fjármögnuó með
frjálsum framlögum gefenda.
Gunnlaugur Stefánsson sagði í nefndu Al-
þýðublaðsviðtali, að starfsmenn Hjálparstofn-
unarfyndu rfkan vilja meðal fólks um að þróun-
araðstoð yrði aukin. Hins vegar vantaði raun-
hæfan vilja hjá stjórnmálamönnum. Þeir létu
vingjarnleg orð falla í garð þróunaraðstoðar, en
verkin vantaói þegar á reyndi; framlag ríkisins
væri áfram jafnlítið og fyrr.
Alþýðuflokkurinn hefurlagt áþað rlkaáherslu
að þróunarríkin verði studd í baráttu sinni fyrir
efnahagslegu og pólitísku sjálfstæði. Til að
þeim markmiðum megi ná, þá er þörf aukinnar
þróunaraðstoðar. í stefnuskrá Alþýðuflokksins
segir að við ísiendingar eigum að taka mjög
vaxandi þátt í þróunarhjálp og sem fyrst eigi að
ná því markmiði Sameinuðu þjóðanna um að
1% þjóðartekna renni til hjálpar við þróunar-
rlkin. Einnig hefur Aiþýðuflokkurinn lagt á það
áherslu að framlagi íslendinga verði einkum
beint til framkvæmda, þar sem við höfum af
sérstakri reynslu að miðla. Bygging Fengs og
aðstoð við Grænhöfðaeyjar er einmitt gott
dæmi um slíkt.
Alþýðublaðið er þeirrar skoðunar að hið opin-
beraeigi að mótastefnu til nokkurraára, í þess-
um efnum, þar sem lögð verði drög að því að
framiög hins opinbera til þróunarhjálpar verði
stórhækkuð og að 1 % markinu verði náð innan
langs tíma.
- GÁS.
Tilkynníng
til símnotenda
Aðfaranótt miðvikudagsins 18. júlí n.k. verður tek-
in í notkun ný sex stafa sjálfvirk símstöð á Seltj-
arnarnesi. Þá breytast símanúmerin þar á þann
hátt að talan 6 kemurfyrirframan gömlu númerin.
Þar með hefur Símaskráin 1984 að fullu tekið
gildi.
Póst og
símamálastofnunin
Verkamannafélagið
Dagsbrún
Félagsfundur verður haldinn í Iðnó, miðvikudag-
inn 18. júlí kl. 20.30.
Fundarefni:
Heimild til stjórnar og trúnaðarmannaráðs til að
segja upp launaliðum kjarasamninga.
Félagar hvattir til að fjölmenna.
Stjórnin
Atvinna
Laus er til umsóknar staöa forstööumanns á barna-
heimilinu á Dalvik.
Umsóknarfrestur til 15. ágúst nk.
Einnig er laus til umsóknar hálf staöa viö barnagæslu.
Fóstrumenntun æskileg.
Umsóknarfrestur til 1. ágúst nk.
Upplýsingar veita fvrir hönd félagsmálaráós Kristín
Gestsdóttir sími 96-61323 og Þóra Bósa Geirsdóttir
sími 96-61411.
Umsóknum skal skila á skrifstofu Dalvíkurbæjar.
Félagsmálaráö Dalvíkur
Laus staða
Staða ritara hjá Vita- og hafnarmálaskrifstofunni
er laus til umsóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist til stofnunarinnar fyrir 23. júlí.
Vita- og hafnarmálaskrifstofan
Seljavegi 32
s. 27733.
Kennara vantar
Kennara vantar aö Grunnskólanum í Sandgerði. Upp-
lýsingar gefa skólastjóri i síma 92-7436, formaður
skólanefndar í síma 92-7647 og Fræðsluskrifstofa
Reykjanesumdæmis I síma 91-54011.
Skólnefnd
Stórfellt
rekstrartap hjá
vinnslustöðvum
Þann 6. júlí sl. var haldinn aðal-
fundur í Félagi rækju- og hörpu-
diskframleiðenda. Á fundinn
mættu fulltrúar frá 19 framleiðend-
um. Formaður Félagsins er Eyjólfur
Þorkelsson, Bíldudal.
Á fundinum var samþykkt harð-
orð ályktun til stjórnvalda. Álykt-
nnin fer hér á eftir:
„Aðalfundur Félags rækju- og
hörpudiskframleiðenda, haldinn 6.
júlí 1984, lýsir undrun sinni yfir síð-
ustu verðákvörðun meirihluta yfir-
nefndar verðlagsráðs á rækju og
hörpudiski, sem leiðir af sér stórfellt
rekstrartap hjá vinnslustöðvum.
Alvarlegur samdráttur í sölu og
verðhrun hefur átt sér stað og af því
leitt verulega birgðasöfnun, sem
orðin er margfalt meiri en nokkru
sinni áður.
Með áframhaldandi rekstri mun
það leiða til rekstrarstöðvunar inn-
an tíðar.
Fyrir því samþykkir fundurinn að
beina því til félagsmanna sinna að
hætta móttöku á rækju 10. ágúst
n.k. og hefja ekki móttöku á hörpu-
diski, nema leiðrétting hafi fengist
á rekstrargrundvelli hvað varðar
hráefnisverð og útflutningsgjöld.
Fundurinn beinir þeirri eindregnu
áskorun til sjávarútvegsráðherra, að
hann beiti sér fyrir niðurfellingu út-
flutningsgjalda á rækju og hörpu-
diski á framleiðslu 1 júní til 30.
september n.k.“
Tökum áö okkur
hverskonar
verkefni
í setningu,
umbrot og
plötugerð, svo
sem:
Blöð í dagblaðaformi
Tímarit
Bœkur
o.m.fl.
Ármúla 38 —
Sími 81866
Minning
Jón Sigurðsson
I gær var til moldar borinn Jón
Sigurðsson fyrrverandi forseti Sjó-
mannasambands íslands. Með
honum er genginn merkur verka-
lýðsleiðtogi og sannur jafnaðar-
maður, sem um langt skeið var i for-
ystusveit Alþýðuflokksins.
Leiðir okkar Jóns lágu fyrst sam-
an árið 1949. Jón var þá leiðbein-
andi á fræðslunámskeiði Félags
ungra jafnaðarmanna í Reykjavík.
Jón var góður leiðbeinandi. Við
ungu mennirnir, sem sóttum nám-
skeiðið hjá honum, drukkum í okk-
ur þann mikla fróðleik, er hann
miðlaði okkur um verkalýðsmál og
jafnaðarstefnu.
Síðan störfuðum við í sama húsi
um langt skeið, þ.e. Alþýðuhúsinu
við Hverfisgötu, Jón sem fram-
kvæmdastjóri ASI á efstu hæð
hússins og tíður gestur á skrifstofu
Sjómannafélags Reykjavíkur í Al-
þýðuhúsinu, þar sem hann gegndi
margháttuðum trúnaðarstörfum,
en ég var þá blaðamaður við Al-
þýðublaðið í næsta nábýli við Sjó-
mannafélagið. Það var alltaf gott
að leita til Jóns á þessum árum. Og
samstarf var þá náið milli Alþýðu-
blaðsins og verkalýðshreyfingar-
innar.
bað átti síðar fyrir okkur að
liggja að starfa saman í marga ára-
tugi í Alþýðuflokknum, í flokks-
stjórn, framkvæmdastjórn og á
flokksþingum Alþýðuflokksins.
Jón var ætíð duglegur og skeleggur,
hvar sem hann kom við sögu. Það
var engin lognmolla í kringum
hann. Hann sagði ætíð skoðanir
sinar hispurslaust, hvort sem það
kom mönnum vel eða illa. Hann var
greindur, fljótur að greina aðal-
atriði frá aukaatriðum, rökfastur,
ágætur ræðumaður og mikill mála-
fylgjumaður. Slíkir menn veljast til
forystu og trúnaðarstarfa, enda fór
það svo, að störfin hlóðust á Jón.
En aldrei kvartaði hann. Jón var
einn þeirra manna, sem vildi hafa
mikið að starfa.
Aðrir hafa rakið ítarlega störf
Jóns Sigurðssonar í verkalýðshreyf-
ingunni og Alþýðuflokknum. Það
verður því ekki endurtekið hér.
Ég vil aðeins þakka Jóni sam-
fylgdina. Mér þótti mjög ánægju-
legt að starfa með Jóni. Skoðanir
okkar fóru mjög oft saman í Al-
þýðuflokknum, enda þótt við störf-
uðum hvor á sínum vettvangi.
Verkalýðshreyfingin og Alþýðu-
flokkurinn hafa misst góðan tals-
mann, góðan liðsmann, þar sem
Jón Sigurðsson var.
Ég votta eftirlifandi eiginkonu
Jóns og dóttur, samúð mína vegna
fráfalls hans og aðstandendum öll-
um.
Drottinn blessi minningu hans.
Björgvin Guðmundsson.
Lausar kennarastöður
Vopnafjarðarskóli
óskar eftir að ráða
íþróttakennara
Einnig vantar kennara í almenna kennslu.
Upplýsingar gefur skólastjóri í síma
97-3218.
Kennarar
kennara vantar að Dalvíkurskóla.
Æskilegar kennslugreinar eru fþróttir og kennsla yngri
barna. Upplýsingar gefur skólastjóri I síma 96-61491
eftir kl. 19.
Skólastjóri