Tíminn - 01.03.1967, Blaðsíða 16
50. tbl. — Miðvikudagur 1. marz 1967. — 51. árg.
FRAMKVÆMDASTJÓRA-
SKIPTI HJÁ SAMBANDINU
Stjórn Sambands ísl. samvinnu
félaga hefur ráðið Hjalta Pálsson
sem framkvæmdastjóra Innflutn-
ingsdeildar, eftir fráfall Ilegla
Erlendur Einarsson í áramótagrein í Samvinnunni:
Endurreisn íslenzkra fram-
leiðslutækja er stærsta
mál okkar islendinga í dag
Fyrsta hefti Samvinaunnnr iSfi'?
er nýkom'.ð út, vanda'1 og fjel-
breytt svo sem vandi er til. Þar
ritar .orstjóri Sambandsins, Er-
lendur Emarsson, ára.ní^ igiein,
Leiðangur til
Oanmarkshavn
hefur tafizt
þar sem h<inn rekur v’ðburði lið-
ins írs í viðskiptalífi þjóðirip.nar
og gerir grein fyrir þeím ábtifein,
sem hann telur þá hafa a störf
og aðstöðu samvinnubreyfing-
arinnar. Ferstjórinn segir ineðal
annars: „Endurreisn íslenzkra
framleiðslufyrirtækja er slærsfa
mál íslendinga í dag. Það liggur
við, að fyrirtækjunum hafi verið
drekkt í verðbólguflóðinu. í þessu
sambandi má þó ekki btanda sam-
Framhald á bls. 14.
Hjalti Palsson
Sigurður Markússon
Tækjakönnun ríkisútvarpsins bar góðan árangur:
Þorsteinssonar framkvæmdastj»ra
sem lézt 19. þ.m.
Hjalti Pálsson fæddist 1. nóv.
1922 á Hólum í Hjaltadal, sonur
hjónanna Páls Zóphoníassonar
skólastjóra þar og siðar búnaðar-
málastjóra og alþingismanns og
Guðrúnar Hannesdóttur, Hjalti
lauk gagnfræðaprófi í Eeykjavík
1938 og búfræðinámi á Hólum
1941. Síðan stundaði hann nám í
landbúnaðarverkfræði við háskóla
Norður-Dakota í Bandaríkjunum
1943 til 1945 og við hásfcóla Iowa-
ríkis 1945 til 1947 og lauk þar
prófi það ár. Hann var fulltrúi
í Véladeild SJS 1948 til 1949 og
framkvæmdastjóri Dráttavéla h.f.
1949 til 1960. Við framkvæmda-
stjórn Véladeildar SÍS tók hann
1952 og hefir gegnt því starfi síð-
an. í framkvæmdastjórn SÍS hgfur
Hjalti Pálsson átt sæti síð-
an 195'5. Hann hefir átt sæti í
stjórn Dráttavéla h.f. 1955 til 1962
og í stjórn Osta- og smjörsöl-
unnar, Tollvörugeymslunnar h. f.
og DESA h.f. frá stofnun þessara
fyrirtækja. Hann hefur átt sæti í
viðskiptanefndum hvað eftir ann-
að og í Umferðamálanefnd póst-
og símamálastjórnarinnar í nokk-
ur ár. Hjalti Pálsson er kvæntur
Ingigerði Karlsdóttur.
Framhald á bls. 14.
KJ-Reykjavík, þriðjudag.
Nokkur seinkun hefur orðið á
að skíðið sem Flugfélagið á von
á frá Bandaríkjunum, og setja á
undir Douglas flugvélina er fljúga
á til Danmarkshavn, komi til lands
ins. Seinkar þetta því leiðang-
inurn sem fara á norður til Dan-
markshavn og athuga Glófaxa, er
laskaðist þar í fyrri viku.
Sveinn Sæmundsson blaðafull-
trúi Flugfélagsins tjáði Tímanum í
dag að skíðið undir vélina væri
væntanlegt í kvöld, og yrði strax
í fyrramálið hafist handa um að
koma því undir vélina. Þrátt fyrir
Framhald á bls. 14.
2-3 þúsund sfónvarpsvið-
tæki bættust við skrána
FE-Reykjavík. þriðjudag.
- Skattskýrslunum, sem sendar
voru út um áramótin, fylgdu eyðu
blöð frá Ríkisútvarpinu og var far
ið fram á það, að fólk gerði grein
fyrir sjónvarps- og útvarpstækja-
eign sinni. Samkvæmt upplýsingum
Axels Ólafssonar innheimtustjóra
Ríkisútvarpsins, þá virðist fólk
hafa tekið tækjakönnuninni mjög
vel, og liafa mörg sjónvarpstæki
bætzt við á skrár útvarpsins. End
anleg tala er ekki fengin enn,
vegna þess að skýrsluvélar bafa
ekki skilað skýrslunum, en Axel
sagðist reikna með, að ekki færri
en 2000 tii 3000 tæki hcfðu bætzt
á skrár útvarpsins við þessa
könnun.
Axel sagði, að yfirleitt hefði ver
ið talið, að um 14.000 sjónvarps
tæki væru í notkun, og myndi sú
, tala ekki hafa verið fjarri lagi,
og sýndi tækjakönnunin það. Fólk
hefði tekið körinuninni mjög vel,
enda hefði Ríkisútvarpið ekkert
gert til þess að reyna að afla sér
upplýsinga um það, hvernig tækin
eru tilkomin, og ekki yrði farið
Framhald á bls 14.
Gegnum-akstur í Ár-
bæjarhverfi bannaður
KJ—Reykjavík, þriðjudag.
f dag tóku gildi all umfangs-
miklar breytingar á tilhögun
umferðarinnar fyrir ofan Ár-
túnsbrekku við Reykjavík, og
er aðalbreytingin í þvi fólgin
að nú er ekki ekið í gegnum
Árbæjarhverfið (Selásinn) þeg
ar komið er til bæjarins, eða
farið úr honum, heldur er ekið
eftir nýjum vegi er liggur norð
an við Árbæjarhverfið og niður
á Vesturlandsveg töluvert aust
an við gömlu gatnamótin. Er
full ástæða til að benda öku-
mönnum á þessa nýju breyt-
ingu, að þeir megi ekki beygja
til hægri eftir gamla veginum
eftir að komið er upp á brún
Ártúnsbrekku, og þegar komið
er i bæinn, er ekki ekið í gegn
um Árbæjarhverfíð, heldur eft
ir nýja veginum fyrir norðan.
Hér fer á eftir fréttatilkynn
ing frá gatnamálastjóra Reykja
vikurborgar varðandi þessa
breytingu:
,í dag tóku gildi breytingar
þær á umferð um Rofabæ,
Höfðabakka og Bæjarháls, sem
auglýstar hafa verið og sam-
þykktar af borgarráði, sam-
kvæmt tillögu umferðarnefndar
Reykjavíkur.
Tekinn er í notkun nýr vegur,
Bæjarháls, sem lagður hefur
verið samhliða og norðan við
háspennulínu við Hraunbæ og
cengir Höfðabakki Bæjarháls
idð Vesturlandsveg. Er því ætl
azt til, að öll sú umferð, sem
fer um Suðurlandsveg, fari eftir
Bæjarhálsi, í stað Rofabæjar
áður.
Þa hefur Rofabæ verið lokað
vestan Rauðavatns og einstefnu
akstur verið settur á til vest-
urs frá Árbæ, til þess að hindra
gegnumakstur, þannig að Rofa
Framhald á bls. 15.
Hér er uppdráttur af svæðinu þar sem breytingar á umferð við Árbæjarhverfið hafa farið fram. Svarta svera striklð merkir nýju vsgina sem
teknir hafa verið i notkun.
FUNDUR UM
LANDBÚNAÐ
Stúdentafélag Háskóla íslands
efnir til almenns umræðufundar
annað kvöld, fimmtudaginn 2.
marz, um landbúnaðinn, að Hótel
Borg, og hefst fundnrinn klukkan
20.30.
Frummælendur: Þorsteinn Sig-
urðsson frá Vatnsleysi, formaður
Búnaðarfélags íslands, og Gunnar
Guðbjaitíson, formaður Stétti: -
sambands bænda. Öllum er heimill
aðgangur að fundiuum. en að
framsöguvæðum lokniun verða al-
mennar umræður.
Stúdei'il'élagið
Þorsteinn Gunnar
Kiósarsýsla
Aðalfundur Framsóknarfélags
Kjósarsýslu og FUF í Kjósarsýslu
verður haldinn að Hlégarði fimmtu
daginn 2. marz kl. 9. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa, verða kosn
ir fulltrúar á 14. flokksþing Fram
sóknarflokksins. Jón Skaftason og
Björn Sveinbjörnsson mæta á fund
inum. Stjórnirnar.
H«ínvetninsar
Félag Framsóknarmanna i Aust-
ur-Húnavatnssýslu heldur almenn
an félagsfund í félagsheimilinu á
Blönduósi föstudaginn 3. marz n.
k. Fundurinn hefst kl. 8,30 e. h.
Fundarefni: 1. i Félagsmálefni. 2.
Kosnir.gar fulltrúa á flokksþing.
Jón Kjartansson og Björn Páls
son mæta á fundinum. —
Stjórnin.