Alþýðublaðið - 14.08.1984, Side 3
Þriðjudagur 14. ágúst 1984
3
Sjálfsbjörg mót-
mælir niðurskurði
22. þing Sjálfsbjargar l.s.f. var
haldið í Sjálfsbjargarhúsinu, dag-
ana 8rlO. júní s.l. Þingsetning var
venju fremur hátíðleg þar sem
minnst var 25 ára afmælis samtak-
anna er stofnuð voru 4. júní 1959.
Af því tilefni tók forseti íslands,
Vigdís Finnbogadóttir, á móti þing-
fulltrúum að Bessastöðum. Aðal-
umræðuefni þingsins var lífeyris-
og tryggingamál og höfðu þeir Ing-
ólfur Ingólfsson, félagsfræðingur
og Hrafn Magnússon, fram-
kvæmdastjóri almennra lífeyris-
sjóða, þar framsögu. Mörg önnur
hagsmunamál fatlaðra voru einnig
á dagskrá og fylgja hér helstu álykt-
anir:
22. þing Sjálfsbjargar l.s.f. mót-
mælir harðlega þeim niðurskurði á
Framkvæmdasjóði fatlaðra, sem
nemur meira en helmingi lögboð-
innargreiðslu úrsjóðnum. Samtök-
in höfðu vænst mikils af hinum
nýju lögum um málefni fatlaðra, og
harma því mjög þessa skerðingu
sjóðsins þegar á fyrsta ári eftir gild-
istöku laganna. Þetta hefur ekki
aðeins í för með sér mikinn drátt á
þeim framkvæmdum sem þegar eru
hafnar, heldur kemur algjörlega í
veg fyrir möguleika á nauðsynleg-
um nýframkvæmdum.
Þingið harmar afgreiðslu Al-
þingis á „Búsetamálinu“, þar sem
þar hefðu opnast góðar leiðir fyrir
fatlaða í húsnæðismálum. Jafn-
framt beinir þingið því til lands-
sambandsstjórnar að hún fylgist
náið með framvindu „Búseta“ og
taki jafnvel upp viðræður við for-
•"m—mmmmmmmmmm—mm—mmmmmmmmmmm—mmmmmmmmmmmm
Stúdentaráð
mótmælir
Fundurinn fordæmir þá aðför
menntamálaráðherra að SÍNE, að
fella niður skylduaðild að samtök-
unum. Með þessu er vegið að fjár-
hagsgrundvelli samtakanna, og til-
gangurinn sá einn að veikja sam-
tökin, og baráttu þeirra.
Góða
skapið má
ekki gleymast
heima undir
nokkrum kring-
umstæðum.
svarsmenn „Búseta“ um hvort og
hvernig hægt sé að tryggja fötluð-
um húsnæði á sem viðráðanlegust-
um kjörum.
Þingið beinir þeim tilmælum til
svæðisstjórna, að þær hvetji sveit-
arfélög og atvinnurekendur til að
stofna til nýiðnaðar sem tæki mið
af vaxandi þörfum fyrir ný atvinnu-
tækifæri handa fólki með skerta
starfsorku. Þingið bendir á þá leið
í þessu sambandi að sveitarfélög
veiti atvinnurekendum fyrirgreiðslu
hvað lóðamál og aðra þjónustu á
vegum sveitarfélagsins varðar, gegn
því að stofnandi fyrirtækisins
skuldbindi sig til að veita ákveðnu
hlutfalli af fötluðu fólki atvinnu í
fyrirtækinu. Þessi fyrirtæki yrðu
að öðru leyti óvernduð og í þeim
ynnu saman jöfnum höndum fatl-
aðir og ófatlaðir. Þingið bendir á þá
tilraun í þessa veru sem Öryrkja-
deild ráðningarskrifstofu Reykja-
víkurborgar, Vinnumiðlun Kópa-
vogs og fleiri aðilar eru að gera í
þessa átt á Reykjavíkursvæðinu.
í framkvæmdastjórn til næstu
tveggja ára voru kjörin: Formaður:
Theodór A. Jónsson, Seltjarnar-
nesi. Varaformaður: Jóhann Pétur
Sveinsson, Reykjavík. Ritari:
Kristín Jónsdóttir, Reykjavík.
Gjaldkeri: Vikar Davíðsson,
Reykjavík. Meðstjórnandi: Valdi-
mar Pétursson, Akureyri. Vara-
menn: Guðmundur Hjaltason,
Akureyri, Valgerður Guðjónsdótt-
ir, Grindavík og Helga Axelsdóttir,
Neskaupstað. Ólöf Ríkarðsdóttir
og Sigursveinn D. Kristinsson, sem
átt höfðu sæti í framkvæmdastjórn
gáfu ekki kost á sér til endurkjörs.
Pílagrímaflutningar og umboð
fyrir KLM hjá Arnarflugi
Arnarflug hefur tekið á leigu
tvær farþegaþotur af gerðinni Boe-
ing 707 til að annast pílagríma-
flutninga milli Líbýu og Sádi-
Arabíu á komandi vikum. Önnur
vélin er frá breska flugfélaginu
British Caledonian, en hin frá
portúgalska flugfélaginu TAP Air
Portugal. Flugvélarnar bera 189
farþega hvor.
Pílagrímaflutningarnir hefjast
18. ágúst n.k. og stendur fyrri lotan
til 31. ágúst, en sú síðari frá 17.
september til 1. október. Fluttir
verða um 18 þúsund farþegar og er
þetta umfangsmesta pílagrímaflug
Arnarflugs til þessa. Rúmlega 40
starfsmenn annast þetta verkefni af
hálfu Arnarflugs, áhafnir verða að
mestu leyti íslenskar og flugvirkjar
og stöðvarmenn allir íslenskir.
þetta umboð var undirritaður í síð-
ustu viku og eru meginverkefnin,
sem Arnarflug sér um á íslandi fyr-
ir KLM á sviði sölu- og kynningar-
mála. Arnarflug hefur frá upphafi
áætlunarflugsins til Hollands ann-
ast sölu á farseðlum og farmflutn-
ingum KLM og nýta félögin sam-
eiginlega CORDA-þjónustutölv-
una til farskráningar og upplýs-
ingamiðlunar. Nú verður sölustarf-
semi fyrir hönd KLM aukin á ís-
landi og einnig er í undirbúningi
auglýsinga- og kynningarstarf um
þjónustu KLM.
Tveir af yfirmönnum KLM á
sviði sölumála í Evrópu eru vænt-
anlegir til íslands 14. ágúst n.k. til
viðræðna við Arnarflug um sölu-
og kynningarmál.
Arnarflug hefur líka tekið við
aðalumboði fyrir hollenska flugfé-
lagið KLM á íslandi frá 15. ágúst
n.k., að ósk hollenska félagsins.
Samningur milli félaganna um
KLM er elsta starfandi áætlunar-
flugfélag heimsins. Starfsmenn fé-
lagsins eru yfir 17 þúsund talsins og
félagið rekur rúmlega 50 þotur og
flýgur til um 120 staða í 75 löndum.
Rafmagnsveitur ríkisins
óska aö ráða:
A. Skrifstofumann (símavörð) í Reykjavík í hálft
starf.
B. Skrifstofumann á skrifstofur Rafmagnsveitn-
anna í Borgarnesi í hálft starf.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun, ald-
ur og fyrri störf sendist starfsmannastjóra.
Rafmagnsveitur ríkisins,
Laugavegi 118, 105 Reykjavík
Menningarstofnun
Bandaríkjanna
tilkynnir breytt símanúmer. Fráog með þriðjudeg-
inum 14. ágúst verða símanúmer okkar sem hér
segir:
Skrifstofa 621020
Bókasafn 621022
Lausar stöður
í stærðfræði og fag-
greinum rafiðna
Umsóknarfrestur um áður auglýstar kennarastöður í stærð-
fræði og faggreinum rafiðnavið Fjölbrautaskóla Suðurnesja
í Keflavík framlengisf til 18. ágúst n.k.
Upplýsingar eru veittar á skrifstofu skólans i síma 92-3100.
Menntamálaráðuneytið
Reiknistofa bankanna
óskar eftir að ráða
Kerfisfræðinga/forritara
til starfa.
Æskileg menntun: háskólanám í tölvufræði, við-
skiptafræði eða stærðfræði, eða starfsreynsla.
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst 1984.
Reiknistofa bankanna, Digranesvegi 5,
Kópavogi, s. 44422
Kennara vantar
að grunnskóla Súðavlkur.
Helstu kennslugreinar: Eðlis- og efnafræði,
smíðakennsla.
Upplýsingar gefur formaður skólanefndar I síma
94-4954.
Skólanefnd
Tilkynning til
söluskattsgreiðenda
Athygli söluskattsgreiðenda skal vakin á því, að
gjalddagi söluskatts fyrir júlímánuð er 15. ágúst.
Ber þá að skila skattinum til innheimtumanna
ríkissjóðs ásamt söluskattsskýrslu I þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Tilkynning til
launaskattsgreiðenda
Athygli launaskattsgreiðenda skal vakin á því að
gjalddagi launaskatts fyrir mánuðina júni og júlí
er 15. ágúst n.k. Launaskatt ber launagreiðanda
að greiðatil innheimtumannaríkissjóðs, í Reykja-
vík tollstjóra, og afhenda um leið launaskatts-
skýrslu í þríriti.
Fjármálaráðuneytið.
Kennara vantar
KennaravantaraðGrunnskólanum í Sandgerði til
almennrar kennslu. Húsnæði fyrir hendi. Uþþlýs-
ingar gefa formaður skólanefndar, Helga Karls-
dóttir í síma 92-7647 og fræðslustjóri Reykjanes-
umdæmis í síma 91-54011.
Skólanefnd.
Kennarastöður
við Grunnskólann Hofsósi. Kennslugreinar:
Kennsla yngri barna, enska og handmennt, gott
húsnæði í boði. Nánari upplýsingar gefa skóla-
stjóri i sima 95-6386 og formaður skólanefndar í
síma 95-6400 eða 95-6374.
Skólastjóri.