Alþýðublaðið - 27.10.1984, Side 2
2
Laugardagur 27. október 1984
r-RITSTJORNARGREIN'
Hverjir hafa notið
skattalækkana?
ökattalækkunarleiöin, sem svo er nefnd, er
ekki ný af nálinni hjá núverandi ríkisstjórn.
Skattar hafa verið lækkaðir á síðustu misser-
um. Ekki á launafólki, því þar hefur skattbyrðin
aukist til mikilla muna, eins og fóik finnur á-
þreifanlega fyrir. En atvinnureksturinn f land-
inu hefur notið þess að skattar hafa verið lækk-
aðir. Eigendur vaxtatekna hafa notið skatta-
lækkunar. Kaupmáttureignamannahefurverið
aukinn með hækkun frádráttar og eignar-
skattsprósentan sjálf hefur sömuleiðis verið
lækkuð. Þá var arðskattur lækkaður, fjölgað
hefur verið undanþágum og eftirgjöfum af
söluskattinum fyrir góðvini fjármálaráðherra.
Það er talið að þessar gjafir rfkisstjórnarinnar
til handa stóreignamönnum og mönnum í arð-
bærum fyrirtækjarekstri hafi kostað ríkissjóð
meira en 3 milljarða króna.
Nú er talaö um að létta sköttum af launafólki
upp á rúman 1 milljarð, en á móti komi hækkun
óbeinna neysluskatta eða niðurskurður á fé-
lagslegri þjónustu. Þetta er nú allt það sem
rfkisstjórnin hefur boðið fólki upp á. Saman-
burðurinn á skattafvilnunum handa þeim sem
digru sjóðina eiga og aftur þvf sem launafólki
er nú boðið upp á, er ekki beinlfnis þeim síðar-
nefndu í hag.
Það er einnig rétt að minna á hin gífurlegu
skattsvik sem eiga sér stað í þjóðfélaginu og
skipta fleiri milljörðum króna. Allir vita, að það
erekki almennt launafólksem læturhjálíðaað
greiöa opinberu gjöldin — það verður að
greiða sinn hluta refjalaust á réttum tíma og
gerir það.
Ástæða er til að fólk hafi þessar staðreyndir
f huga nú þegar stjórnvöld fara mikinn og þykj-
ast vera að bjóða launamönnum gull og græna
skóga með skattalækkunum.
Og hitt má heldur ekki gleymast að á sama
tíma og stóreignamönnum og fyrirtækjum f
landinu voru veittar skattaívilnanir f stórum
stíl, þájókst skattbyrðin á launafólki stórlega;
6,5% hækkun beinna skatta, 10% hækkun
skattbyrðarinnar vegna óbeinna skatta og um
3—4% vegna hækkunar á opinberri þjónustu.
Skattalækkunartilboð ríkisstjórnarinnar gerir
lítt meira en taka til baka þá hækkun sem hún
hefur þegar á sínum stutta valdatfma lagt á.
herðar launafólks.
Alþýðublaðið er ekki með þessu að afneita
þeirri leið til kjarabóta, sem nefnd hefur verið
skattalækkunarleiðin. Hins vegar vill blaðið
undirstrika þá skoðun sfna, að það verði hik-
laust að skattleggja þá aðila, sem peninga
hafa. Það er forkastanlegt að láta þá sem meira
mega sín, sleppa að mestu við að greiða sitt til
samneyslunnar. Sömuleiðis er sú „kjarabót"
með „skattalækkunarleiðinni“ dýru verði
keypt, ef það á einfaldlega að breyta innheimt-
unni með því að fara úr beinum sköttum í ó-
beina, eða þá að skera harkalega niöur félags-
lega þjónustu í landinu.
Við gerð kjarasamninga verðursamhiiða ítar-
iegri umfjöllun um hugsanlegar leiðir til kjara-
bóta f gegnum skattalækkanir að skoða lækk-
un vaxta, aðgerðir í húsnæðismálum, takmörk-
un áhækkunum áverði opinberrarþjónustu og
búvara og aðrar félagslegar aðgerðir. Þá er og
brýnt að þegarverði gert átak til að spornavið
skattsvikum f þjóðfélaginu. Það gengurekki að
milljaröar og aftur milljarðar týnist í því neðan-
jarðarhagkerfi, sem hér hefur myndast. Fólkið
í landinu, á heimtingu á því að þessir peningar
komi fram í dagsljósið og verði nýttiröllum al-
menningi til hagsbóta. — GÁS
Alþýðuflokksfélag
Reykjavíkur
Kosning fulltrúa Alþýöuflokksfélags Reykjavíkur á 42.
flokksþing Alþýðuflokksins fer fram ( Félagsheimili
jafnaðarmanna, Hverfisgötu 8—10, kl. 2—6 siðdegis,
laugardaginn 3. nóvember og sunnudaginn 4. nóvem-
ber 1984.
Tillögur uppstillingarnefndarliggjaframmi áskrifstofu
Alþýðuflokksins til kl. 5 sfðdegis, 31. október n.k.
Stjórn AFR
Borgarmálaráð
Alþýðuflokksins
Fundur I Borgarmálaráði Alþýðuflokksins í Reykjavík
verður haldinn á venjulegum stað að Austurstræti 16
efstu hæð n.k. þriðjudag 30. okt. kl. 17.
Vinsamlegast mætið stundvíslega. Formadur
1000 manns 1
um tvær milljónir séu á leiðinni frá
Svíþjóð, en það eru peningar, sem
verkalýðsfélögin þar hafa safnað til
að styðja baráttu BSRB-manna.
Auk þess munu einhverjar fleiri
gjafir á leiðinni, en Ingibjörg vildi
ekki tjá sig um þetta. Sagðist ekki
vilja tala um það fyrr en þau hefðu
þessa fjármuni í höndunum.
Að lokum hvetur Alþýðublaðið
alla þá sem eru aflögufærir að
styðja baráttu BSRB með því að
borga inn á ávísanareikning nr.
46952, í Alþýðubankanum Lauga-
vegi 31.
Frá Félagsmiðstöð
jafnaðarmanna
í Reykjavík
Fundur á laugardag 27. okt. kl. 13.15.
Umræðuefni: Flokksþingið 16. nóvember.
Við hvetjum sem flesta flokksfélaga i Reykjavík til að
mæta.
Þingmenn Aiþýðufiokksins
í Reykjavík
Drögum vel úr ferð
við blindhæðir og brýr.
GÓÐAFERÐ!
UMFERÐAR
'RÁÐ
A*\ TRYGGING GEGN
\W UERDBOLGU
Á sex mánaða fresti er óhreyfð innstæða borin saman við
ávöxtun verðtryggðra reikninga með 6.5% vöxtum og
hagstæðari kjörin látin gilda. Slík tryggingersérstaklega
mikilvæg í ótryggu ástandi þjóðmála.
Sparisjóðurinn í Keflavík, — Sparisjóður Kópavogs, — Sparisjóður Mýrasýslu, — Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, — Sparisjóður vélstjóra.