Alþýðublaðið - 08.11.1984, Síða 4
Útgcfandi: BlaA h.f.
Stjórnmálaritstjóri og ábm.: Guómundur Árni Stcfánsson.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson og Halldóra Jónsdóttir.
Auglýsingar: Eva Guðmundsdóttir.
Ritstjórn og auglýsingar eru að Ármúla 38, Rvík, 3. hæð.
Sími:81866.
Setning og umbrot: Alprent h.f., Ármúla 38.
Fimmtudagur 8. nóvember 1984 Prentun: Blaðaprent, Síðumúla 12.
alþýðu-
Lifnorj
Áskriftarsíminn
er 81866
Albert svarar fyrirspurnum Jóns Baldvins um söluskatt:
Undanþágur kosta
ríkissjóð 8—9 milljarða
Nýlega lagði Jón Baldvin
Hannibalsson frain á Alþingi
fyrirspurnir til Alberts Guð-
mundssonar fjármálaráðherra
um tckjutap ríkissjóðs vegna
undanþága frá söluskatti.
Albert hefur nú lagt fram „drög
að svari“ við fyrirspurnum
Jóns, sem voru í eftirfarandi
fjórum liðum:
1. Hver yrði áætlaður tekjuauki
ríkissjóðs ef söluskattur (óbreytt
álagningarhlutfall) yrði lagður á
allar þær vörur (tollskrárnúmer)
og þjónustu sem nú eru lögum
samkvæmt án söluskatts?
2. Hver yrði áætlaður tekjuauki
ríkissjóðs ef allar undanþágur
frá söluskatti á annars skatts-
skylda vöru og þjónustu yrðu af-
numdar?
3. Hver gæti tekjuauki ríkissjóðs
orðið, að mati fjármálaráðherra,
vegna bættrar innheimtu sölu-
skatts ef allar undanþágur sam-
kvæmt lögum, heimildum og
reglugerðum yrðu afnumdar?
4. Hvað mætti þá lækka núverandi
söluskattsálagningu mikið, ef
miðað er við að halda tekjum
ríkissjóðs af söluskatti óbreytt-
um frá því sem nú er, til þess að
lækka vöruverð?
Svar fjármálaráðherra er sem hér
segir (millifyrirsagnir blaðsins):
„Undanþágur frá hinni almennu
söluskattskyidu eru ákaflega marg-
þættar og verður að telja fráleitt að
unnt sé eða skynsamlegt að afnema
þær með öllu. Þannig er söluskatt-
urinn almennt bundinn við síðasta
stig viðskipta og sala á vörum því
skattfrjáls til aðila sem kaupir vör-
ur til að selja þær aftur í atvinnu-
skyni eða sem efni í vöru sem hann
hefir atvinnu af að framleiða eða
selja. Þetta skattfrelsi endursölu-
vöru væri fráleitt að afnema enda
myndi söluskatturinn þá hlaðast
margfaldur upp í vöruverði. Önnur
undanþága sem útilokað sýnist að
afnema er undanþága við vörusölu
úr landi. Væri skattur lagður á sölu
útflutningsvara okkar væri fótun-
um gersamlega kippt undan sam-
keppnisaðstöðu íslenskrar fram-
leiðslu erlendis enda alþjóðleg regla
að neysluskattar leggjast ekki á út-
flutningsvörur.
Ég vil því leyfa mér að skilja fyrir-
spurn háttvirts þingntanns þannig
að átt sé við tekjuauka af niðurfell-
ingu annarra undanþága en þeirra
er að framan greinir.
Fyrsti liður fyrirspurnarinnar
hljóðar svo: Hver yrði áætlaður
tekjuauki ríkissjóðs ef söluskattur
(óbreytt álagningarhlutfall) yrði
lagður á allar þær vörur (tollskrár-
númer) og þjónustu sem nú eru lög-
um skv. án söluskatts?
Annar fyrirspurnarliðurinn er
svohljóðandi: Hver yrði áætlaður
tekjuauki ríkissjóðs ef allar undan-
þágur frá söluskatti á annars skatt-
skylda vöru og þjónustu yrðu af-
numdar? Ekki er fullljóst hver
munurinn er á þessum spurningum,
en Iíklega munu þær beinast að því
að sundurliða tekjuáhrif af brott-
fellingu undanþága milli þeirra
undanþága annars vegar sem bein-
línis eru lögbundnar og annarra
undanþága hins vegar.
Þessi skipting milli undanþága
skv. lögum og annarra undanþága
er fjarri því að vera skýr. Allar
undanþágur frá söluskatti byggjast
á lögum eða í heimildum í lögum.
Sumar vörur eru beinlínis undan-
þegnar söluskatti i lögum og und-
anþágan þar nokkuð skýrt afmörk-
uð t.d. tilbúinn áburður, annar en í
smásöluumbúðum. í reglugerð er
þessi undanþága endur tekin með
þeirri skýringu þó^að með smá-
söluumbúðum sé átt við að hver
sölueining fari ekki yfir 5 kg.
Oskýr mörk
í öðrum ákvæðum er ráðherra
ætlað meira svigrúm til skilgrein-
inga. Þannig segir t.d. i 8. tölulið 7.
gr. söluskattslaga, að undanþegin
söluskatti séu lækninga- lögfræði-
þjónusta og önnur hliðstæð þjón-
usta, eftir því sem ráðherra ákveð-
ur. Með 10. töluliði 14. gr. sölu-
skattsreglugerðar hefur ráðherra
ákveðið hvaða þjónusta teljist hlið-
stæð við þá sem upp er talin í laga-
greininni þ.á.m. þjónusta endur-
skoðenda. Telja menn að flokka
eigi undanþágu endurskoðunar-
þjónustu undir undanþágu skv.
lögum eða aðrar undanþágur? Enn
óskýrari verða mörkin milli undan-
þága skv. lögum og annarra undan-
þága ef litið er á ýmsar hinna veiga-
mestu undanþága. í bráðabirgða-
lögum nr. 96/1978 frá 8. september
1978, 6. gr. segir að fjármálaráð-
herra sé heimilt að fella niður sölu-
skatt af matvörum. Sama dag er
gefin út breyting á reglugerð um
söluskatt þar sem heimildin er nýtt
og nær öll matvæli undanþegin
söluskatti. Þessi undanþágu-
heimild er síðan staðfest af Alþingi
sbr. 6. gr. 1. nr. 121/1978. Sama
verður uppi á teningnum varðandi
niðurfellingu söluskatts af vélum til
samkeppnisiðnaðar. Þar hefur á
undanförnum árum verið i 6. gr.
fjárlaga ákvæði er heimilar ríkis-
stjórninni að fella niður söluskatt
af vélum þessum og fela fjármála-
ráðuneytinu að setja reglur um
framkvæmd ákvæðisins. A grund-
velli þessa ákvæðis hafa síðan verið
settar almennar reglur um niður-
fellingu eða endurgreiðslu sölu-
skatts af vélum og tækjum til sam-
keppnisiðnaðar
Tekjur gætu tvofaldast
Á grundvelli framansagðs tel ég
óraunhæft að sundurliða undan-
þágur á þann hátt sem fyrirspyrj-
andi virðist gera og mun því svara
tveimur fyrstu liðunum í einu lagi.
Miðað við að allar vörur (aðrar en
endursöluvörur, hráefni og útflutn-
ingsvörur) og öll þjónusta yrði sölu-
skattskyld myndi skattstofn sölu-
skatts lauslega áætlað tvöfaldast.
Brúttó-tekjuauki ríkissjóðs yrði því
nálægt 9 milljörðum króna á árinu
1985 miðað við forsendur fjárlaga-
frumvarps og að enginn hluti tekju-
aukans renni i jöfnunarsjóð sveitar-
félaga. Hér er miðað við að sölu-
skattur leggist m.a. á aðföng sam-
neyslunnar og opinberar fram-
kvæmdir þannig að u.þ.b. 10°7o af
Albert telur láta
nærri að 12% sölu-
skattur án undan-
þágu skilaði ríkis-
sjóði svipuðum
tekjum og núver-
andi skattkerfi.
tekjuaukanum verði aftur beinn út-
gjaldaauki fyrir hið opinbera.
Hreinn tekjuauki gæti þvi verið ná-
lægt 8 milljörðum króna.
Ég vil taka það skýrt fram að í
þessum útreikningi er við það mið-
að að söluskattur leggist á alla
þjónustu þ.á.m. heilbrigðisþjón-
ustu og ýmsa félagslega þjónustu.
Þá er miðað við að allar undanþág-
ur falli niður sem ætlað hefur verið
að styrkja samkeppnisaðstöðu ís-
lenskra fyrirtækja svo sem í sam-
keppnisiðnaðarvélum, skipum og
flugvélum. Skattskyldusviðið er því
geysilega víðtækt, víðtækara en
þekkist í nokkrum grannlöndum
okkar og mun víðtækara en gert var
ráð fyrir í virðisaukaskattsfrum-
varpinu. Þessar tölur ber því frekar
að líta á sem fræðilega athugun en
raunhæfan möguleika á tekjuauka
ríkissjóðs.
Spurning um skattsvik
I þriðja lið fyrirspurnarinnar er
spurt hvaða mat fjármálaráðherra
hafi á tekjuaukningu ríkissjóðs
vegna bættrar innheimtu söluskatts
ef allar undanþágur skv. lögum og
reglugerðum yrðu afnumdar. Þessu
er því til að svara að ákaflega erfitt
er að leggja tölulegt mat á þessi
áhrif. Er reyndar starfandi nefnd til
könnunar á umfangi skattsvika í
samræmi við þingsályktunartillögu
sem samþykkt var á sl. vori. Vil ég
geyma mér fullyrðingar um þessi
efni þar til niðurstaðan af störfum
þeirrar nefndar liggur fyrir.
Ljóst er þó að niðurfelling á ýms-
um núverandi undanþáguliðum
einkum á undanþágum einstakra
vörutegunda mun stórbæta mögu-
leika til söluskattseftirlits. Ekki eru
þó allar undanþágur þessu marki
brenndar.Niðurfelling sumra þeirra
myndi leiða til fjölgunar skatt-
skyldra aðila og þar með aukinnar
þarfar á eftirliti.
Allt niður í 12%
í fjórða Iið er spurt hvað mætti
lækka núverandi söluskattsálagn-
ingu mikið ef miðað er við að halda
tekjum ríkissjóðs af söluskatti
Framhald á bls. 3
t
MOLAR
>
Hvaða ráðherrar?
Víst er að fréttir á Norðurlöndun-
um þóttu ansi ýktar margar hverj-
ar af verkfalli BSRB. Fróðlegt
væri að vita nánar t.d. um það
sem Aktuelt segir um lögreglu-
þjónana við þingsetninguna 10.
október. í því blaði birtist frétt
hinn 13. október þar sem segir að
lögregluþjónar í Reykjavík væru
sáraóánægðir með framkomu
ríkisstjórnarinnar í verkfallinu:
„Óánægjan kom upp á yfirborð-
ið, þegar það sýndi sig vera mjög
erfitt fyrir stjórnendur lögregl-
unnar að manna heiðursvörð, sem
samkvæmt hefðum stendur og
heilsar að hermannasið fyrir
framan Alþingi við þingsetning-
una. Lögregluþjónarnir voru
samkvæmt heimildum á þeirri
skoðun að það væri fyrir neðan
virðingu þeirra að sýna nokkrum
ráðherranna sinna virðingu á
þennan hátt. Þeir lögregluþjónar
sem að lokum fengust til að taka
þátt í heiðursverðinum undir-
strikuðu, að það væri einungis
forsetans og Alþingis vegna að
þeir létu tilleiðast, segja heimild-
irnar;*
Lesendum er látið eftir að giska á
hverjir þessir „nokkrir ráðherrar“
eru.
Albert og verslunin
Á sínum tíma ætlaði Albert virki-
lega að drífa í því að leggja niður
sérstakan skatt á verslunar- og
skrifstofuhúsnæði. Atvinnu-
rekendum í Verzlunarráðinu finnst
hægt ganga og í nýju (brostnu) fjár-
lagafrumvarpi segir: „Við núver-
andi aðstæður þykir ekki fært að
leggja niður (skattinn) og er áform-
um í því efni enn skotið á frest.“ í
krónum talið á þessi skattur að
hækka úr 68 milljónum í 85 millj-
ónir næsta ár.
•
Launamismunur
í nýjasta hefti Veru er fjallað um
launamismun kynja. Kemur í Ijós
til að mynda að í Sambandi ís-
lenskra bankamanna, þar sem kon-
ur eru 68*% félaga, hafa karlmenn
tæplega 20% hærri meðallaun. í
Verzlunarmannafélagi Reykjavík-
ur, þar sem konur eru sömuleiðis
um 68% félaga, er launamismunur-
inn um 18% karlmönnum í hag.
Hjá BSRB, þar sem konur eru
61.4% félaga, var engarupplýsingar
að fá um launamismuninn. 1 Iðju,
þar sem konur eru 57% félaga,
reyndist launamismunurinn vera
tæplega 18%.
I þessum samtökum er það gegn-
umgangandi að konur eru í minni-
hluta í aðalstjórnum, trúnaðar-
mannaráðum og samninganefnd-
um.
•
Nefnd vill sofna
AIls staðar er verið að setja nefndir
á laggirnar og það gildir ekkert síð-
ur við um Kópavogskaupstað en
önnur svæði. Fimmtudaginn 18.
október var haldinn fundur í svo-
kallaðri Miðbæjarnefnd í Kópa-
vogi. í fundargerð stendur:
Eftir umræðu nefndarinnar um
stöðu og störf nefndarinnar gerði
hún einróma eftirfarandi sam-
þykkt:
„Þar sem tillögur nefndarinnar
hafa nánast engan hljómgrunn
fengið og áhugi bæjaryfirvalda á
áframhaldandi uppbyggingu mið-
bæjarins virðist takmarkaður,
leggjum við til við bæjarstjórn að
nefndin verði lögð niður.“
„Bæjarstjórn samþykkti eftir
síðustu bæjarstjórnarkosningar að
setja umrædda nefnd á laggirnar.
Þeirri samþykkt bæjarstjórnar hef-
ur ekki verið breytt ennþá. Það er
ekki í verkahring einstakra nefnda
að leggja sjálfa sig niður, en hins
vegar verða einstakir nefndarmenn
að gera það upp við sig, hver og
einn, hvort þeir segja af sér nefnd-
arstörfum eður ei. Bæjarráð væntir
svara fyrir næsta bæjarráðsfund
30. okt. nk.“
Því miður kunnum við ekki enn að
greina frá framvindu þessa máls.