Alþýðublaðið - 15.12.1984, Blaðsíða 3
Laugardagur 15. desember 1984
3
Sigurður V. Ingólfsson, bifvélavirki, er formaður
kjördæmisráðs Alþýðuflokksins í Norðurlandskjör-
dæmi eystra auk þess sem hann er formaður fulltrúaráðs
Alþýðuflokksfélaganna á Akureyri. Alþýðublaðið sneri
sér til Sigurðar til að forvitnast um starfsemi kjördæm-
isráðsins og flokksfélaganna á Akureyri.
starfsemina, en þar sem kjördæm-
isráðið hefur enga tekjumöguleika,
eru því settar ákveðnar skorður fyr-
ir starfseminni. Sagði Sigurður að
þessu þyrfti að breyta, svo kjör-
dæmisráðið geti stuðlað að aukn-
um tengslum félagsmánna innan
kjördæmisins. Öll slík starfsemi
hlýtur að efla flokkinn.
Enn hefur ekki verið tekin nein
ákvörðun um hvert næsta skref
verður en stjórnin hefur fullan hug
á að finna lausn á þessu svo kjör-
dæmisráðið geti orðið virkari
tengiliður milli almennra flokks-
manna, hvar sem er í kjördæminu.
Sagði Sigurður að sú hugmynd
hefði komið frarn að N-eystra og
-vestra héldu sameiginlegt kjör-
dæmisþing, þar sem unnið yrði að
sameiginlegum stjórnmálaályktun-
um. Væri hugmyndin að halda
tveggja daga þing í einhverjum
heimavistarskóla og þinga þar um
stjórnmálaástandið í landinu. Ef
þessi hugmynd kemst í fram-
kvæmd, sem vonandi verður, mun
það auka tengsl og félagsstarf
flokksmanna milli héraða.
veturinn, kl. 1.30 annan hvern
sunnudag á Strandgötu 9. Þessir
fundir eru opnir öllum. Sagði Sig-
urður að sér fyndist vanta meiri við-
leitni hjá flokknum að leita til
þeirra, sem ekki sækja sjálfkrafa
fundi félagsins.
Óskar Alfreðsson er formaður
félagsins og getur fólk snúið sér til
hans ef það hefur áhuga á að starfa
með Alþýðuflokknum.
Jafnréttissinninn er
ekki hagsmunapólitíkus.
Að lokum sagði Sigurður V.
Sigurður V Ingólfsson, um flokksstarfið:
Kvíði ekki framtíðinni
sameinist fólk um
jafnaðarmanna
kjörorð
Kjördæmisráð.
Sigurður sagðist bara hafa verið
formaður kjördæmisráðsins í
nokkra mánuði og væri hann því
ekki enn búinn að kynnast starfinu
til hlítar.
Kjördæmisráðið er apparat, sem
samanstendur af öllum flokksfé-
lögum í kjördæminu, sem er heimil
þátttaka á kjördæmisþingum, sem
stilla upp listum í forystu kjördæm-
isráðs. Það eru þrír menn í stjórn
kjördæmisráðsins, en hlutverk þess
er fyrst og fremst að sjá um upp-
stillingu á lista til alþingiskosninga,
auk þess sem það hefur yfirumsjón
með allri starfseminni í kringum
kosningar.
Þetta er meginstarf kjördæmis-
ráðsins í dag en mikill hugur er í
núverandi stjórn þess að víkka út
Fulltrúaráð Alþýðu-
flokksfélaganna.
Á Akureyri starfa tvö Alþýðu-
flokksfélög, Alþýðuflokksfélag
Akureyrar og Kvenfélag Alþýðu-
flokksins. Félag ungra jafnaðar-
manna er ekki lengur formlega
starfandi en mikið hefur verið rætt
að koma því á fót aftur. Sagði
Sigurður að það vantaði tilfinnan-
lega áherslu hjá flokknum að ná til
unga fólksins og fá það til að starfa
að framgangi jafnaðarstefnunnar.
Kvenfélag Alþýðuflokksins er
aftur á móti mjög virkt. Innan þess
starfa nú um fimmtíu konur og hef-
ur þeim fjölgað um tíu núna í haust.
Er töluverð drift í því félagi og
konurnar alltaf tilbúnar að taka til
hendinni ef á þarf að halda. Áslaug
Einarsdóttir er formaður Kvenfé-
lags Alþýðuflokksins og hefur verið
það síðan 1975.
Starfsemin hjá Alþýðuflokks-
félagi Akureyrar er fyrst og fremst
fólgin í bæjarmálafundum, sem eru
haldnir hálfs mánaðarlega yfir
Sigurður V. lngólfsson.
Ingólfsson, að Alþýðuflokksfélag
ar væru opnir fyrir öllum nýjum
hugmyndum í sambandi við flokks-
starfið. „Okkar hugsjón er að efla
flokksstarfið með þvi að fá fólk til
síarfa.
Sá sem hugsar um jafnrétti og
bræðralag er kannski ekki hags-
munapólitíkus fyrir sjálfan sig og
sína og því stendur félagsstarfsemin
hjá okkur kannski ekki eins vel að
vígi og margra annarra. Fyrir mina
parta finnst mér að fari flokkurinn
eftir þessum þrem kjörorðum —
frelsi, jafnrétti, bræðralag, þá sé
ekki hægt að hugsa sér neitt já-
kvæðara flokksstarf hvað varðar
kaup og kjör almennings. Ef fólkið
sameinast um þessi kjörorð kvíði ég
ekki framtíðinni“
Barnagaman
Þetta er ekki létt
Aumingja krakkamir á myndinni, þeir vita ekkert hvemig þeir eiga að
fara að. — Það á að raða þessum 9 tölum í reitina svo að sama talan
komi út, hvort sem þú leggur þær saman lóðrétt í hverjum dálld eða
lárétt í hverri línu og úr einu horninu í annað. Heldurðu, að þú getir
þetta?
Laus staða
Staða bifreiöaeftirlitsmanns við Bifreiðaeftirlit rlkisins
í Reykjavík er laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rfkisins.
Umsóknir berist Bifreiöaeftirliti ríkisins, Bíldshöfða 8,
fyrir 15. janúar nk. á þar til gerðum eyðublöðum, sem
stofnunin lætur (té.
Reykjavík, 13. des. 1984.
Bifreiðaeftirlit ríkisins.
Frá menntamálaráðuneytinu
Laus staöa
Staða skólameistara Fjölbrautaskólans á Akranesi er
hér með auglýst laus til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Starfið verðurveittfrál.júní 1985. Umsóknirásamt ítar-
legum upplýsingum um námsferil og störf skulu hafa
borist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101
Reykjavík, fyrir 31. janúar 1985.
Menntamálaráðuneytið
14. desember 1984.
Rafmagnsveitur
ríkisins
auglýsa laust til umsóknar starf skrifstofumanns.
Verslunarskóla- eða sambærileg menntun áskilin.
Umsóknirergreini menntun, aldurog fyrri störf sendist
deildarstjóra starfsmannahalds fyrir 29. desember
1984.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavík