Alþýðublaðið - 18.12.1984, Side 2

Alþýðublaðið - 18.12.1984, Side 2
2 Þriðjudagur 18. desember 1984 p—RITSTJÓRNARGREIN I flóði jólabókanna Jólabókafióðið er skollið á. Að visu eru titlarn- ir færri nú en oft áður, en hinn venjulegi bóka- kaupandi verður ekki svo mjög var við þá stað- reynd, því eftir sem áður er úrvalið geysilegt. Bækur við flestra hæfi. Það kennir margra grasa meðal þeirra hundr- uða bóka sem nýveriö hafa komið út. Eins og fyrri daginn er verulegur þungi á útgáfu ævi- sagna og viðtalsbóka við nafntogaða menn og konur. Reynslan hefur sýnt að slíkar bækur seljast vel; fyrir þeim bókmenntum er mikill og almennur áhugi hérlendis. Bækur af þessu tagi eru m.a. bók Guðmundar Kjærnested skip- herra, frásagnir Eysteins Jónssonar fyrrum stjórnmálaleiðtoga, viðtalsbók við húsf reyjuna á Gljúfrasteini, opinská bók Jón G. Sólness, upprifjanir Alfreðs Elíassonar Loftleiðafor- stjóra og svo mætti lengi telja. Fyrstu sölutöl- urnar sýna að þessar tegundir bóka ætla að seljast einna best nú um þessi jói eins og verið hefur undanfarin fjöldamörg ár. M inna fer fyrir frumsömdum skáldsögum ís- lenskra höfunda nú en oft áöur. Ef til viil er ástæðan sú að gengi (slenskra skáldsagna hefur verið misjafnt og aðeins fáir vel þekktir höfundar náð umtalsverðri sölu. Það er augljóst að þegar harðnar á dalnum hjá bókaútgefendum, þáeru fyrst skornar nið- ur þær tegundir af bókum sem ólíklegt er að hljóti umtalsverðasölu. Hitt er þó staðreynd að þetta gerir þaö að verkum að breiddin á bóka- markaðnum verðurekki hin samaog fyrr. Flest- ir höggva í sama knérunn; fækka hinum sér- hæfðari titium, sem sumir hverjir seljast að- eins í þrönga hópa, en leggja aðalþungann á þær tegundir bóka sem njóta almannahylli og breiös áhugahóps. Astæðaertil að vekjaathygli áeinni nýútkom- inni bók, sem á margan hátt stingur ( stúf v.ið hinar venjulegu svokölluðu jólabækur. Er hér átt við bókina, Verkfallsátök og fjölmiðiafár, en þar er fjallað um nýafstaðna atburði; nefnilega hið ianga og atburðaríka verkfali opinberra starfsmanna. Eins og flestir muna eru aðeins nokkrar vikur frá þvi verkfalli BSRB lauk. Strax að þvi afloknu fóru tveir blaðamenn, Jón Guðni Kristjánsson og Baldur Kristjánsson, ( gang með bók þá er hér um ræðir. Bókina unnu þeir á einum mánuði. í Verkfallsátökum og fjöl- miðlafári er farið nákvæmlega ofan I saumana áverkfalli BSRB, undanfara þess og niðurstöð- um mála. Höfundar reyna að skyggnast á bak við svið atburðanna og varpa nýju og nákvæm- ara Ijósi á ýmislegt það er henti i verkfaliinu. Bækur af þessu tagi eru svotil óþekktar hér- lendis, en algengar víða erlendis. Það ber að fagna útkomu þessarar bókar. í fyrsta lagi er hér verið að festastórpólitískaatburði á spjöld sögunnar með afdráttariausari hætti en verið hefði ella. Frásagnirdagblaðaog ríkisfjölmiðla af stóratburðum vilja gleymast þegar frá líður, enda þessir fjölmiðlar fyrst og fremst miðlar dagsins í dag. Bókin stenst hins vegar tímans tönn. í annan stað gefst aukið tækifæri til gagnasöfnunar og rannsókna við bókaskrif, heldur en við dagblaðaskrif, sem unnin eru í timapressu. Höfundar þessarar umræddu bók- ar, Verkfallsátaka og fjölmiðlafárs, hafa og enda leitaö víða fanga við heimildasöfnun. Bókin er ekki samsafn blaðafrétta, heldur al- vöru rannsóknarblaðamennska. Mættum við fá meira af bókum af þessu tagi í framtíðinni. Þvi hefur stundum verið haldið fram að bókin séáundanhaldi í nútimaþjóðfélagi. Nýjarþarf- ir séu fram komnar, s.s. eins og videó. Víst hef- ur bókin átt i vök að verjast, en engin gild rök hafa fram komið til stuðnings þeim staðhæf- ingum, að bókaþjóðin sé eða ætli að hætta lestri góðra bóka. — GÁS. Jólasveinarall JC JC-Hafnarfjörður hefur frá árinu 1981 gengist fyrir svokölluðu jóla- sveinaralli og svo mun einnig verða í ár. Jólasveinarnir fara um bæinn á vörubílspöllum, syngjandi kátir og hressir í bragði ásamt hljómsveit- inni Frílyst og harmonikkuleikara. Jólasveinarnir munu stoppa fyrir framan hinar ýmsu verslanir í firð- inum og taka lagið og aðstoða fólk við jólainnkaupin. Jólasveinarnir munu verða í miðbænum kl. 16.15 og kl. 16.30 mun björgunarsveit Fiskakletts standa fyrir flugelda- sýningu, eins og venja hefur verið sl. ár. llppákoma þessi er orðin fastur liður í jólastemmningu Hafnfirð- inga og gert mikla lukku hjá yngra sem eldra fólki. í ár verður jóla- sveinarallið laugardagana 15. og 22. desember. Jólaverslun 1 betur eða verr“, sagði einn víð- mælandi Alþýðublaðsins. „Þú get- ur ekki hætt að gefa jólagjafir, þótt fjármálin standi illa. Ekki étur þú soðinn fisk á aðfangadag þótt tómahljóð sé í buddunni. Hitt er ljóst að fólk veltir hverri krónu á milli handanna. Það verður maður áþreifanlega var við, því meira er spurt um verð á vörum en áður gerðist. Fólk leitar að ódýrasta kostinum". Dr. Charles Francis Potter ÁRIN ÞÖGLU ÍÆVI JESÚ Dr. Cliarles Francis Potter Árin þögiu í ævi Jesú Öldum saman hafa unnendur biblíunnar velt fyrir sér þeirri spurningu hvar Jesús hafi verið og hvaö hann hafi haft fyrir stafni hin svonefndu „átján þöglu ár“ i ævi sinni, frá tólf ára aldri til þrítugs. Hiö mikla handritasafn, bókasafn Essena, sem fannst í Kúmran hellunum viö Dauöahaf 1945 og næstu ár á eftir, hefur loks gefiö svar viö þessari spurningu. Þaö veröur æ Ijósara, eftir því sem rannsóknum handritanna miðar áfram, aö Jesús hefur á þessum árum setiö viö hinn mikla menntabrunn sem bókasafn Essena var og haft náin kynni af háþróuöu samfélagi þeirra. Glöggt má greina náinn skyldleika meö kenningum Jesú og Essena, jafnvel oröalagiö í boðskap Jesú ber ótvíræöan essenskan svip. Fágaö og fagurt verk. Póbaútgáfan |)jóifóaga Barnagaman Tekurðu vel eftir? Þessar myndir eru líkar, en ef þú gætir vel að, sérðu samt sex atriði- sem ekld eru eins á þeim. Geturðu fundið þau?

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.