Tíminn - 30.05.1967, Blaðsíða 11
ÞRHMtroAGTm 30. mai 1967
TÍMINN
n
HAFNBANN
Framhald af bls. 2.
blandaði sér í deiluna, viS hlið
ísraéls. Þrátt fyrir íþessi orð
Nassers, segja stjómmálafréttarit-
arar, að afstaða Egypta sé óbreytt,
þeir vilji aðeins undirstrika, að
eftirliti um Tiran-sundið, innsigl
inguna í Akabaflóa, verði haldið
áfram óbreyttu.
Nasser sagði í þingræðu í dag,
að nann hefði fengið vilyrði
Kosygins, forsætisráðherra Sovét-
ríkjanna fyrir þvi, að Sovétríkin
myndu standa við hlið Egypta i
hugs^nlegu striði við ísrael.
Hersveitir frá olíuríkinu Kuwait,
komu í dag til Egyptalands og frá
Aden 'berast þær fregnir, að Egypt
ar hafi kallað mikinn herafla heim
frá Jemen og verði hann sendur
beint til landamærana á Sínaí-
skaga
Þeir kanaddsku hermenn, sem
eru i gæzlusveitum S.þ. verða nú
fluttir í skyndi brott, samkvæmt
kröfu Egypta. Verður sennilega
komið upp loftbrú milli Gaza og
Kanada á morgun.
Stjóm íraks skoraði í dag ó for-
svarsmenn olíufélaga í landinu,
að flytja ekki olíu til þeirra landa,
sem styðja andstæðinga Araba.
Samtimis var því hótað að hætt
yrði öllu samstarfi við erlend skipa
félög, sem létu flytja hergögn og
þá fyrst og fremst olíu til ísrael.
Þau skip, sem reyndu að rjúfa
hafnbann Egypta á Akaba-flóa
yrðu sett ó svartan lista.
Forsætisráðherra Sýrlands, You
seff Zeyen, hótaði þvi í dag, að
eyðilagðar yrðu allar olíuleiðslur
og kveikt í olíunni, ef einhver vest
ræn ríkja aðstoðuðu ísraelsmenn
í hugsanlegum vopnaviðskiptum
við Araba.
Mótið nær hámarki sínu á
sunnudaginn, en þá verður sýnd
tveggj,a tíma litmynd með íslenzk
um skýringartexta. Myndin heitir:
„Guð getur ekki farið með lygi“-
Vottar Jehóva bjóða alla vel-
komna á mótið.
ÍSL. AMERÍSKA FÉL.
Framhald al Lis. 2
stjómmálum og á árunum 1963—
67 var hann ríkisstjóri Minnesota,
en hafði verið vararíkisstjóri
(1955—63). Er hann þekktur ræðu
maður og ge.fst félögum á fund
inum ágætt tækifæri til a kynnast
honum og skoðunum hans.
Ennfremur verður sýnd kvik-
mynd um Minnesota.
Félagar eru hvattir til að sækja
fundinn og taka með sér gesti.
(Fréttatilkynning frá ísl.-amer-
íska félaginu).
NÁTTÚRUGRIPASYNING
Framhald af bls. 2.
saanan. Mest ber þarna á alls
konar steinum, sem^ ekki er
óeðlilegt í landi sem íslandi. Á
sýningunni er einnig mikið af
steingervingum.Þá er þar mikið
safn sk'elja og kuðunga, ís-
lenzkra og erlendra, krabbar
og sj'aldgæifir fiskar, sem
geymdir eru í fomnalíni. Eng
ar jurrtir eru sýndar nema
nokkrar tegundir ísl. sjiávar
gróðurs. Lifandi fiskar em í
tveim kerjum. Eru íslenzkir
fiskar í öðru en útlendir í
hinu.
Eins og áður er sagt ber
mest á steinategundum á sýn-
inigunni.. Margir þeirra eru
mjög fallegir og aðrir hafa
einkum til síns ágætis að vera
sjaldgæfir. Sumir steinanna
eru sMpaðir og nokkrir þeirra
greiiptir í skartgripi.
Sýningin, sem er í kjallara
hússins, verður opin daglega
kl. 2—10 til 5. júní n. k.
Þau sem eiga gripi á sýniug
unni eru: Björn Halldórsson,
Pétur Pétursson, Jón Bogason,
Jtón Björnsson, _ Aðalbjörg
Zophaníasdóttir, Ólaffur Bjöm,
Marteinn Davíðsson, Heiðbjörk
Pétursdtóttir, Páimi Þorsteins
son, Þorsteinn Úiffar Bjiömsson,
Bjami Guðmundsson og Arn-
björg Jónsdióttir.
VOTTAR JEHOVA
Framhald af bls. 2
að um 100 manns mun koma frá
Reykjavík, nágrenni og Suðurnesj
um og munu þeir flestir koma á
eigin farartækjum.
Tilgangur mótsins er að veita
aukna þekkingu á Biblíunni og
verða margar ræður og sýnikennsl
ur sýndar til þess að skýra og
sýna, hvernig Biblían veitir hag
kvæmar leiðbeiningar fyrir okkar
kynslóð. Mótið mun líka gefa Akur
eyringum sérstakt tækifæri til
þess að kynnast skoðunum Votta
Jehóva og sýna þeim, hvernig
„Bók Bókanna“ fræðir okkur um
frmatíðina-
UPPBÆTUR
Framhais aí bls. 1.
fyrir íslenzkt þjóðarbú er öllum
landsmönnum vel ljós. Þar á sér
stað mikil verðmætasköpun vegna
vinnslu sjávaraflans í matvæli,
sem fullnægja kröfum nútíma
neytendamarkaða- Hraðfrystiiðnað
urinn hefur veitt jafnasta atvinnu
og er, ásamt sjávarútvegnum, und
irstaða atvinnuuppbyggingar í
fjölmörgum sjávarplássum lands-
ins. í hraðfrystiiðnaðinum og fiski
flotanum, sem annast hráefnisöfl
un vegna hans, liggur bundið mik
fjármagn. Árlegur útílutningur
hraðfrystr,a sjávarafurða er um
Vi af heildarútflutningsverðmæti
þjóðarinnar.
Alþjóð er vel kunnugt um, að
erfiðleikar þeir, sem steðjuðu að
hraðfrystiiðnaðinum í byrjun
þessa árs, stöfuðu af minnkandi
hráefni, auknum innlendum til-
kostnaði og lækkuðum verðum á
erlendum mörkuðum. Erfiðleikar
þessir voru það miklir, að hrað
frystihúsin í heild hefðu komizt
í þrot, hefði ekkert verið aðhafzt
Með lögum um ráðstafanir vegna
sjávarútvegsins, sem m. a.
fela í sér, að hið opinbera ábyrgist
greiðslu allt að 75% af verðfalli
hraðfrysts fisks, stóðu vonir til,
að unnt yrði að fleyta hraðfrysti
iðnaðinum yfir erfiðleikana um
sinn. — Misheppnuð vetrarvertíð
hefur gert þá von að engu, að
áfram verði haldið án frekari að-
gerða.
Til þess að eðlilegur rekstur og
nauðsynlegur þróttur skapist á ný
í íslenzkum hraðfrystiiðnaði, verð
ur ekki hjá því komizt að hið
fyrsta verði framkvæmt algjört
endurmat á rekstraraðstöðu hrað
frystihúsanna. í því efni telja hrað
frystihúsaeigendur, að um eftirfar
andi leiðir sé að velja:
★ Að gengið sé rétt skráð eða
nauðsynlegar uppbætur greidtdar
til að tryggja rckstrargrundvöllinn.
★ Að tryggja heri aukna hrá-
efnisöflun með hækkun fiskverðs
til útgerðarinnar til þess að aukinn
áhugi vakni á þorskveiðum.
★ Að markaðsaðstaða íslend-
inga sé sem víðast tryggð og hags
munir hraðfrystiiðnaðarins eigi
fyrir borð bornir í milliríkjasamn
ingum.
★ Að lánamál hraðfrystihús-
anna verði endurskoðuð hið allra
fyrsta, með það fyrir augum, að
í þeim efnum búi íslenzkur hrað
frystiiðnaður við sambærileg kjör
og erlcndir keppinauatr.
Öðru hvoru á liðnum áratugum
hefur hraðfrystiiðnaðurinn eins og
ýmsar aðrar atvinnugreinar , átt
við erfiðleika að striða vegna inn-
anlandsþenslu og erfiða markaðs
aðstæðna erlendis, sem hafa dreg
ið úr framleiðslumöguleikum og
arðbæri, en jafnan eftir að nauð
synlegar leiðréttingar hafa verið
gerðar á rekstrargrundvelli þessa
mikilvæga atvinnuvegar, hvort sem
er fyrir tilverkan gengisbreytingar
eða uppbóta, hefur hraðfrystiiðn
aðurinn fljótlega náð sér á strik
og stóraukið afköst sín og fram
leiðslu. Samtímis hefur grundvöll
urinn fyrir rekstur þorskveiðiflot
ans styrkzt og atvinna stóraukizt
í sjávarplássum með þar af leið
andi framhaldsverkunum inn í allt
atvinnulífið. Það yrði þjóðarógæfa,
ef íslenzkum hraðfrystiiðnaði
hnignaði og afleiðingar ófyrirsjá
anlegar fyrir mörg sjávarpláss.
Hraðfrystihúsaeigendur vilja því
á þessum erfiðu tímamótum brýna
fyrir forráðamönnum þjóðarinnar,
að vanmeta ekki mikilvægi hrað
frystiiðnaðarins, og að þeir beiti
sér fyrir nauðsynlegum ráðstöfun
um til að tryggja áframhaldandi
rekstur og uppbyggingu þessa at-
vinnuvegar.“
ÞETTA VILL . . . .
Framhals af bls. 1.
keppnishæfni þeirra, fjöl-
breytni og hagkvæmari verka-
skiptingu.
fk Stefnt verð: að því, að ís-
lendingar smíði sem flest skip
sín sjálfir og annist skipavið-
gerðir sínar.
★ Haldið verði áfram upp-
bvggingu stærri iðnaðar, sem
haíinn var með byggingu Áburð
ar- og Sementsverksmiðju, og
sé stefnan sú, að fslendingar
sjálfir eigi og reki slík fyrir-
tæki, en þó geti komið til greina
— ef sérstaklega stendur á, —
að ieita samstarfs við erleut
fjármagn um byggingu ein-
s+akra fyrirtækja, samkvæmt
sérstökum lögum og samningi
nverju sinni, en þó án allra
serhlunnmda, og slíkur rekstur
iúti í einu og öllu íslenzkuru
Iögum, og þess sé vel gætt, að
ölík erlend fjárfesting verði
aldrei nema mjög lítill hluti sf
heildarfjárfestingu þjóðarina.
ar.
★ ftarleg rannsókn sé gerð
á mögulelkum til stofnunar
nýrra iðngreina og efld hvers
konar rannsókna -og tilrauna-
starfsemi í iðnaði og komið á
hagkvæmari ráðunautastarf-
semi.
★ Sérstök áherzla verði lögð
á aukna tækn: og framleiðni
í byggingaiðnaði er miði að
lækkun byggingarkostnaðar.
Lækkaðir verði tollar á iðnaðar
vélum til þess að auka sam-
keppnishæfni, ig hráefni til
iðnaðar verði jafnan Iægra toll
uð en fullunnin va'ra.
it Unnið verði skipulega að
hagkvæmri uppbyggingu og
dreifingu iðnaðar um landið,
og komið á fót ríkisstofnun,
sem stuðli að uppbyggingu nið-
ursuðuiðnaðar fyrir sjávar-
vörur.
LEIKSTJÓRAR
Framhald af bls. 2
haldið er hérlendis.
Á sunnudag fóru þátttakendur í
ferðalag til Þingvalla og Gullfoss-
Á Þingvöllum flutti dr. Einar Ól-
afur Sveinsson fyrirlestur um stað
inn og rakti sögu hans í stórum
dráttum. Myndin ei tekin af
nokkrum leikstjóranna á Þingvöll
um.
EFTA og EBE
Framhals ai bis 1
hvað fyrir forsætisráðherranum
vaki:
Það er í fyrsta lagi að ná því
sem hann kallar „viðhlítandi samn
ingum“ um aðild að EFTA. Þeir,
sem pekkja ferii núv. stjórnar í
utanrikismálum, gera sér vel ljóst,
að það yrðu harðir kostir, sem
hún teldi ekki viðhlítandi!
Það er í öðru lagi, að aðildin
að EhTA verði áfangi inn í Efna-
hag<r-andalagið eða eins og ráð-
herranii o,-ðar það, yrði til að „auð
velda okkur að ná nauðsynlegum
samningum við Efnaihagsbandalag
ið á seinni stigum“.
Það er í þriðja lagi að verða
aukaaðili í Efnatoagsbandalaginu,
og því útilokar forsætisráðherrann
í ummælum sínum enga aðild aðr,a
en „fullkomna aðild“.
Ríki geta gerzt aðilar að Efna-
hagsbandalaginu með tvennum
ihætti Þau geta gerzt fullgildir
aðili,- eða fulkomnir aðilar eins
og Bjarúi orðar það. Slikri aðild
fylgja allar skyldur og öll rétt-
indi. Slík aðild mun ekki að sinni
veitt nema fáum útvöldum ríkjum,
sem m.a. eru komin langt í iðn-
þróun. Þau ríki, sem ekki fá að
geras* fullkomnir aðilar, geta
gerzt aukaaðilar. Þau eru undan-
þegin sumum skyldum bandalags
ins og hafa líka minni réttindi,
t.d. engin áhrif varðandi stjórn
og stefnu bandalagsins.
Aukaaðildinni fylgja þó flestar
efnahagslegar skyldur, eins og
gagnkvæm réttindi til atvinnu-
reksturs og atvinnu, kaup á fast
eignum og hafalítil eða liatfalaus
innflutningur iðnaðarvara.
Þegar rætt var hér um efnahags
banualagsmálin fyrir fjórum ár-
um, kom það margoft í ljós, að
stjórnarflokkarnir stefndu að
aukaaðild. M. a. lýsti mið-
stjórn Alþýðuflokksins sig slíkri
aðil-i fylgjandi.
Það er bersýnilegt af framþn-
Igreindum ummælum forsætisráð-
herra. að þennan þráð hefur rikis-
stjórnin tekið upp aftur.
Allar líkur benda til, að ísland
verði að taka afstöðu til þessara
mála á næsta kjörtímabili. EFTA-
löndin munu fylgja Bretlandi inn
í Efnatoagsbandalagið? ýmist sem
fullkomnir aðilar eða aukaaðilar,
og EFTA leggjast niður. ísland
verður þ£ að ákveða, hvort það
á að fylgja þeim eftir,. eins og
stjórnarflokkarnir vilja, eða gera
viðskiptasamning við Efnahags-
bandalagið, eins og .Framsóknar-
flokkurinn vill.
11. júní getur þvi orðið sein-
asti dagurinn, sem kjósendur fá
til að ráða úrslitum þessa máls.
Þetta þarf.hver einasti kjósandi
að gera sér ljóst og láta afstöðu
sína koma greinilega i ljós við
kjörborðjð.
A VlÐAVANGI
Framhald ai bls 8
segir kirkjumálaráðtoerrann.
Vafalaust mælir Jóhann svo
fyrir munn allra viðreisnarráð
herranna, en það er ekki víst
að þjóðinni finnisit árangurinn
jafn heillandi, og af því að Jó-
hann grunar það, það, rekur
hann upp neyðarópið og birtir
með því hina svörtu mynd af
sjálfum sér og Drangey.
Bifreiðastjóri
Karl eða kona getur fengið starf nú Þegar við
skeytaútsendingu ritsímans. • Upplýsingar í
síma 22079.
RITSÍMASTJÓRI
Tilkynnlng
Athygli skal vakin á 137. ug 138. grein Brunamála-
samþykktar fyrir Reykiavík um sölu á eldfimum
vökvum. Undir þessar reglur heyrir sala á
fIjótandi gasi (própan, bútan, o.s.frv.). Allir þeir,
sem annast sölu á slíku verða að hafa leyfi bruna
málastjórnar.
Reykjavík, 29. maí 1967
Slökkviliðsstjórinn í Reykjavík.
OPINBERT UPPBOÐ
verður haldið að Efri-Sýrtæk, laugardaginn 3. júní
kl. 13, þar selt búshlutir af mörgu tagi, svo sem:
mjaltavél og mjólkurbrúsar, bátur nýr með mótor,
Þakjárn, hestajárn með fleiru.
HREPPSTJÓRINN.
Frá borgardómaraembættinu
Skrifstofur borgardómaraembættisins verða lok-
aðar vegna flutnings 30. ug 31. maí Verða opnaðar
í Túngötu 14, fimmtudaginn 1 júní n.k.
Yfirborgardómarinn í -Reykjavík.