Alþýðublaðið - 18.01.1985, Page 2

Alþýðublaðið - 18.01.1985, Page 2
2 Föstudagur 18. janúar 1985 ■ RITSTJÓRNARGREIN ' .. ....... Valdabaráttan í Valhöll I ritstjórnargrein Alþýöublaösins (gærvarfar- ið um þaö orðum hvernig formaöur Sjálfstæö- isflokksins og fylgismenn hygðust haga þar- áttunni gegn þaulsetnum ráðherrum flokksins. Er greinilegt að leggja á til atlögu á landsfundi flokksins (vor. Þorsteinn Pálsson ætlar að láta ráðherrana gjalda fyrir það að hafa ekki staðið uþpfyrirsérog sínum, þegar (trekaö hefureftir verið leitað. Það er og fyrirliggjandi að formað- ur flokksins hefur Morgunblaðið aó baki sér í þessari baráttuaðferð. Málflutningur blaðsins upp á síðkastið sýnir það og sannar. En það er fleira I pokahorninu. Hernaðar- tæknin er greinilega sú, til þess að ná taki á ráðherrum Sjálfstæðisflokksins, að þá verður um leiðaðhefjaófrægingarherferðgegn Fram- sóknarflokknum og rikisstjórninni allri. Þor- steinn Pálsson og Morgunblaðið hafa þegar lagt til atlögu gegn Alexander Stefánssyni og hugmyndum hans um stóreignaskatt til fjár- mögnunar húsnæðislánakerfisins. Þá hefur Jón Helgason einnig fengið glósurnar frá blaðafulltrúanum og málgagninu vegna kjarn- fóðurskattsins. Og nú á að hefja skothríð að forsætisráðherra. I Morgunblaðinu ( gær er greint frá nokkrum hugmyndum forsætisráöherra, sem ku vera liö- ur ( endurskoðun stjórnarstefnunnar. Blaðið segir allar þessar tillögur Steingríms miða að skattahækkunum og bætir við, að mikil áhersla sé lögð á að þessar hugmyndir leki ekki út. Og heimildarmenn Morgunblaðsins úr þingflokki sjálfstæðismanna, þá mjög senni- lega Þorsteinsmenn, segja mikilvægt, sam- kvæmt frétt blaðsins, að ekki leki út um þessar hugmyndir forsætisráðherra; svo fráleitar séu þær. En þessirsömu heimildarmenn hikasamt ekki um leiðaðlekaöllum pakkanum ( Morgun- blaðið, og þávæntanlegatil að grafaundan for- sætisráðherra og ríkisstjórninni allri. Það er fyrirliggjandi að Þorsteinn Pálsson er að safnaí sarpinn fyrir landsfund, þarsem taka á ráðherra flokksins upp á hnakkadrambinu til opinberrar hirtingar. Formaður flokksins tínir saman og leggur drög að nokkrum ágreinings- málum milli stjórnarflokkanna, sem unnt verð- ur að brjóta á, þegar sjálfstæðismenn telja réttatímann til stjórnarslita. Allt bendirtil þess að formaðurSjálfstæðisflokksins bjóði lands- fundarfulltrúum upp á tvo valkosti: 1. Skipt verði um ráðherra. 2. Stjórnin fari frá og mynd- uð ný eða boöað til nýrra kosninga. En ekki er sopið kálið þótt í ausuna sé kom- ið, þvl ráðherragengi Sjálfstæðisflokksins hef- urveriðogersterkt I stofnunum flokksins. Það er t. a. m. ijóst af viðbrögðum ráðherra sjálf- stæðismanna við kjarnfóðurskattinn hans Jóns Helgasonar, að þar á að ná sáttum, en ekki reka málið öfugt ofan I framsóknarmenn, eins og Þorsteinn Pálsson hefur viljað. Ráð- herrar Sjálfstæðisflokksins eru ekkert á þeim buxunum að láta blaðafulltrúa flokksins segja sér fyrir verkum og þykjast eiga ýmis tromp I þakhöndinni. Verðurfróðlegt að fylgjast meðopinberum og leynilegum átökum kynslóðanna I Sjálfstæðis- flokknum næstu vikurog mánuöi, þarsem tak- ast á Þorsteinn Pálsson og Friðrik Sóphusson ásamt fyigismönnum og þeir gamalgrónu I ráð- herraliðinu, sem viðurkennaað meiraog minna leyti að ríkisstjórnin sé komin að fótum fram, en geta þó ekki hugsaö tii þess að leyfa ungu frjálshyggjupostulunum að vaða uppi I flokkn- um. Það sé þvl illskárra að halda ástandinu eins og það er, fremur en opna frjálshyggjunni greiða leið um alla ranghala valdakerfisins i flokknum. Valdabaráttan I Valhöll verður skæð á næstu vikum og mánuðum. —GÁS. Kaupmenn mótmæla Á fundi Samstarfsráðs Félags ísl. stórkaupmanna, Kaupmannasam- taka íslands og Verzlunarráðs Is- lands 16. janúar 1985 var eftirfar- andi ályktun samþykkt: Félag ísl. stórkaupmanna, Kaup- mannasamtök íslands og Verzlun- arráð íslands mótmæla þeim hug- myndum, sem fram hafa komið um að leggja viðskiptaráðuneytið niður sem sjálfstætt ráðuneyti. Samtökin telja að viðskiptaráðuneytið gegni mikilvægu hlutverki fyrir utanríkis- verslunina og aðrar greinar við- skipta í landinu. Mikilvægi þess sem sjálfstæðs fagráðuneytis hefur aldrei verið meiri en nú vegna þeirra gagngeru umbóta, sem unnið er að á sviði verðlags- og peningamál og varða hag neytenda og sparifjáreig- enda jafnt sem hag fyrirtækja í verslun og viðskiptum. Á mölinni mætumst með bros á vör — ef bensíngjöfin er tempruð. MEINHORNIÐ Hér er rd og hér er friður, hdrna var rnér stungið niður. *> En Þorsteinn á bágt og bartnar sér, * á bdlakafi undir roér. > Ber hann mig á öxlum sér. ■k' ' Krafla 1 enn væri allt mjög óljóst með þessi viðskipti og núna væru eng- ar viðræður um málið á ferðinni. Hinsvegar hefði Sverrir Hermannsson lýst því yfir sl. sumar að hann væri mjög áfram um að koma þessu í kring. Það sem væri nú verið að gera í mál- inu, væri það að iðnaðarráðu- neytið væri að kanna afstöðu eigenda Landsvirkjunar og þeirra sem standa að Kröflu og hefði ráðherra beitt sér fyrir því að þess- ir aðilar tækju upp ntálið sín á milli. Einsog á framansögðu sést þá er Landsvirkjun ekkert mjög áfjáð í kaupin nema að gengið sé þannig frá þeim að þeir séu tryggðir í bak og fyrir að enginn kostnaður falli á þá. Láir það þeim enginn, því Kröfluævintýrið var vitlausasta fjárfesting sem um getur. Að sögn kunnugra er orku- framleiðslan enn mjög misjöfn því stöðugt þarf að vera að hreinsa þær borholur sem fyrir eru, en það er mjög tímafrekt og kostnaðarsamt. Auk þess þarf eina til tvær borholur á svæðinu til viðbótar til að ná fullum af- köstum virkjunarinnar. Slíkar Ármúla 38— Simi 81866 Tökum að okkur hverskonar verkefni í setningu, umbrot og plötugerð, svo sem: Blöð í dagblaðaformi Tímarit Bœkur o.m.fl. Ármúla 38 —: Sími 81866 framkvæmdir eru einnig mjög dýrar og vafasamt að þær borgi sig miðað við hið mikla óöryggi sem virkjunin býr við. Alþýðublaðið reyndi að ná sambandi við Sverri Hermanns- son, iðnaðarráðherra, til að grennslast fyrir um stöðu þessara mála nú, en Sverrir var erlendis, nánar tiltekið í Frakklandi með samráðherra sínum Alberti Guðmundssyni, i orkusöluleið- angri og ekki væntanlegur til landsins fyrr en i vikulokin. Tvöfaldar 1 hvern. í Hafnarfirði eru nefndirnar tvískiptar, fyrir hvern fund í stærri nefndum fæst 3,5% af téðum launaflokki eða 834 kr. og 2,5% í smærri nefndum eða 596 kr., en formenn nefnda fá 50% ofan á þetta. Ekki tókst að afla sambærilegra upplýsinga á borgarskrifstofunum en samkvæmt því sem fram kemur í Þjóðviljanum í gær eru fastalaun borgarfulltrúa um 18 þúsund krón- ur og bæjarráðsmenn fá ofan á það um 27 þúsund krónur. Fundarseta í helstu nefndum gefur af sér á bilinu 3.186-7.434 kr. Auðsjáanlega mun hærri tekjur en í nágrannabyggðar- lögunum, enda sjálfsagt eitthvað meira umfangs starfið. I Garðabæ mun svipað fyrirkomulag ríkja og í Kópavogi, en þó ívið lægri við- miðunartölur. Setjum upp dæmi: Borgar- eða bæjarstjórnarfulltrúi, sem á sæti í einni stórri nefnd, formaður annarr- ar minni og situr í enn annarri af minni sortinni. I Reykjavík fengi slíkur fulltrúi um það bil 34 þúsund kr., í Kópavogi fengi hann um það bil 18 þúsund kr. en í Hafnarfirði aðeins 12.500 kr. Annað dæmi: Borgar- eða bæjarstjórnarfulltrúi, sem einnig á sæti í borgar- eða bæjarráði og situr í samsvarandi nefndum og hér að ofan er talið. í Reykjavík fengi slík- ur fulltrúi um það bil 60 þúsund kr., - Kópavogi um 29 þúsund og í Hafnarfirði um það bil 23.500 kr. VMSÍ______________________l_ Afleiðing þessa ástands er sú að þrautþjálfað fiskverkunarfólk sæk- ir í vaxandi mæli burt úr fiskiðnað- inum og leitar sér að öruggara starfi. Einnig hefur víða úti á lands- byggðinni komið til þess að fólk flyst burt af þessum sökum. Eigi að halda jafnvægi í byggð landsins og varðveita þá þekkingu, sem þetta fólk hefur á starfinu, verður ástandið að gerbreytast. Svæðisskipulag Suðurnesja Samband sveitarfélaga á Suöurnesjum og Skipulags- stjórn ríkisins vilja ráöa mann til að vinna að svæðis- skipulagi fyrir Suðurnes. Nauösynlegt er að starfsmaðurinn hafi sérmenntun í skipulagsfræðum eða haldgóða reynslu á því sviði. Samband sveitarfélaga á Suðurnesjum mun útvega starfsaðstöðu á Suðurnesjum. Ráðningartiminn verður tvö ár eftir nánara samkomu- lagi og verður hugsanlega framlengdur síðar. Frestur til að skila umsóknum ásamt meðmælum og ýtarlegum upplýsingum um nám og fyrri störf ertil 10. febrúar nk. Umsóknir skal senda til Skipulagsstjóra rikisins Borgartúni 7, Reykjavík. Nánari upplýsingar veita eftirtaldir: Skipulagsstjóri rfkisins, Zóphónías Pálsson, Borgar- túni 7, Reykjavlk, slmi 91-29344 og Eiríkur Alexanders- son framkvæmdastjóri Sambands sveitarfélaga á Suðurnesjum, Brekkustlg 36 Njarðvlk, slmi 92-3788. F.h. S.S.S. og Skipulags rlkisins Eirikur Alexandersson, frkvstj. Zóphónías Pálsson, skipulagsstjóri.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.