Tíminn - 07.06.1967, Page 5

Tíminn - 07.06.1967, Page 5
MIÐVIKUOAGUH 7. júní 1967 VETTVANGUR TIMINN ÆSKUNNAR Ungir rnenn í baráttusætum íí9!íSfií NÁ ÞEIR KOSNINGU? Steingrímur Ilermannsson i Jónas Jónsson í 3. sæti á lista Framsóknarflokks- í 4. sæti á lista Framsóknarflokks- ins í Vestfjarðakjördæmi. |ins í Norðurlandskjördæmi eystra Svarið er í ykkar hendi9 ungu kjósendur Steingrímur Hermannsson: Við kosningamar 11. júni n. k. munu náíægt því 12000 æskttmenn «g konur neyta kosningaréttar sins í fyrsta siim. Þetta er mynd- arlegur hópur og reiðubúinn að taka við og varðveita sinn dýr- mæta arf, sjáMstætt land, menn- ingn þess, sögu og tungu. Við fs- lendingar þurfum ekki að kvíða framtíðinni, ef við búum unga fólkinu viðunandi starfsgrundvöll. Á næstu árum biða unga fólk- inu margar örlagarikar ákvarðan- ir. að mun stofna beimili, velja lífsstarf, ákveða framtíðarbúsetu og eðlilega vill það einnig eign- ast sitt eigið húsnæði. Unga fólk- ið hlýtur því að kanna vel grund- völlinn allan, eins og hann er í dag, og vanda vel með atkvæði sínu í kosningunum, val þeirrar stefnu, sem það vill að fylgt verði á næstu árum. í þessum fáu orðum er ekki unnt að kryfja til mergjar stefn- ur stjórnmálaflokkanna í þjóðmál um. Öllum má þó vera ljóst, að verðbólgan, sem fylgt hefur í kjöl far stefnu ríkisstjórnarinnar í efnahags- og fjármálum, hefur kippt fótum undan okkar aðalat- vinnuvegum. Ilinn ungi sjómaður komst seint á sfld og frystihúsin eiga I stór- kostlegum erfiðleikum. Ungur bóndi ræður varla við þá miklu fjárfestingu, sem' nauð- synleg er nú tfl þess að stækka búið og búa honum og fjölskyldu lians sæmileg lífskjör. Iðnfyrirtækin loka hvert af öðru vegna fjárhagserfiðleika. íhúðarkostnaður hefur meira en tvöfaldazt á undanförnum ár- um. Á meðan þetta gerist heldur rík isstjórnin að sér liöndum og forð- ast að vinna skipulega að efna- hags- og atvinnumáium. Það eru kölluð liöft. Þó er vafasamt, að þjóðin hafi nokkru sinni áður kynnzt verri liöftum en fjármagns höftum núverandi ríkisstjórnar. Framsóknarflokkurinn, hins veg ar, vill aukið samstarf ríkisvalds- ins, atvinnufyrirtækja og einstakl inga í hverju byggðarlagi. Hann vill með slíku samstarfi gera fram kvæmdaáætlanir, sem miða að skipulegri byggðaþróun í öllum greinum þjóðlífsins. Þannig vilj- um við skapa öryggi stað þeirr- ar óvissu, sem nú ríkir, og dug- miklum einstaklingum frelsi til þess að beita atorku sinni og hug myndaflugi í hinni stöðugu bar- áttu þjóðarinnar fyrir bættum lífskjörum. Ég vil leggja áherzlu á, að ung- ir kjósendur kynni sér sem bezt stefnu Framsóknarflokksins, störf lians og sögu. Framsóknarflokk- urinn er ekki aðcins stærsti flokkurinn í sveitum landsins, lieldur einnig annar stærsti flokk- urinn í þéttbýlinu. Framsóknar- flokkurinn hefur tekið við hlnt- verki Alþýðuflokksins á meðal vinstrimanna í bæjum, síðan sá flokkur gekk íhaldinu á hönd. Framsóknarflokkurinn gengur samhentur og sterkur til kosning- anna og er eina öfluga stjórnar- andstaðan í dag. Það er sannfæring mín, að fátt sé nauðsynlegra þeim ungum mönnum og konum, sem ekki njóta einhverra sérréttinda í þjóð félaginu, en að breytt sé um stefnu. Þetta verður aðeins gert með því að styðja Framsóknar- flokkinn i kosningunum 11. júni næstkomandi. Jónas Jónsson: Nýtum sjálfir gæii landsins Ég vil sérstaklega biðja unga fólkið í landinu að hugleiða það, hve rík þjóð og farsæl við íslend ingar í raun og veru erum, og get- um orðið, ef vel er á öllum málum haldið. Auðæfi okkar byggjast á mögu- leikum landsins. Lítil þjóð í stóru landi er rfk. Við eigum dalina og undirlead- ið, með gróðurmoldinni, hinar miklu víðáttur óræktaðs lands, sem teygja sig milli fjalls og fjöru. Við getum grætt upp mest af auðnunum á láglendinu. Við eigum afréttirnar og ailt hálend- ið, sem auk þess að verða nytjað til beitar verður eftirsótt tfl úti- lífs og ferðalaga. Við eigum árnar, vötnin öll og sjávarlónin, með nær óþrjótandi möguleika til fjölþættrar fiskirækt ar, til skemmtivciða og til mat- vælaframleiðslu. Fallorka ánna er mikii, og livcrirnir búa yfir orku og efnum, sem alit verður nýtt þegar liugkvæmni og þckkingu verður beitt. Síðast en ekki sízt eigum við sjóinn kringum landið, landgrunn ið þar sem hafsstraumar mætast og frjóvga vatnið, svo að óvíða eru bctri fiskimið í liciminum. í fjörðunum verður bráðum tekin upp bein fiskirækt! Ég vil líka minna á að það er ekki í neinni órafjarlægð að allt þetta Iilýtur að verða hagnýtt að meira eða minna leyti. Eins og við öll vitum er nú þegar mikill fæðuskortur í hciminum %—Vi mannkynsins sveltur eða býr við efnaskort. Bilið á milli ríku og fátæku þjóðanna er enn geigvæn lega breitt, en það vcrður brúað, við það er eina friðarvon mann- kynsins bundin. Þá verður gæðun um jafnar skipt, á milil þjóðanna eins og tekizt hefur að jafna lífs kjör fólksins innan menningarland anna. Það verður öllum til hag- sæLðar. Talið er af mörgum að hámarksfólksfjölda verði náð í heiminum um eða eftir miðja næstu öld. Vonandi verðum við íslendingar menn til að nýta öll gæði Iands okkar og þurfum ckki að láta þau í hendurnar á öðrum. En til þess þurfum við að Iáta liendur standa fram úr ermum. Við þörfnumst umfram alit þckk ingar á ÖLLUM sviðum: í VERK- LEGUM efnum, í LÍFEÐLIS- og NÁTTÚFRÆÐI til að gera nátt úru landsins okkur undirgefna, í FÉLAGSFRÆÐI og hvers konar ANDLEGUM EFNUM. Ég livet unga fólkið til að leita sér sem alira beztrar menntunar, innanlands eða utan, hvern á sfnn áhugasviði. Hún verður að vera sá trausti grundvöllnr sem við byggjum framtíð þjóðfélagsins á. Unga fólkið verður að hafa á- ræðni til að ráðast f erfíð verk efni. Það má ekki láta úrtölu mennina, sem að undanförnu hafa setið hér að völdum draga úr séi hug og dug. — Þeir draga í efa að við séum réttumegin við mörk hins byggilega heims og telja okk ur of smáa til að lifa hér sjálf- stæðu menningarþjóðfélagi. Þeir Frannhald á bls. 11. UNGT FÓLK VILL UNGA ALÞENGISMENN

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.