Tíminn - 10.06.1967, Síða 16
• Hinn stórglæsilegi kosningafundur B-listans í Reykjavík í Háskólabíói á fimmtu-
dagskvöld sannaði, svo ekki verður lengur dregið í efa, hina miklu sókn, sem Fram-
sóknarflokkurinn hefur verið í undanfarið og hve mikinn hljómgrunn stefna Framsókn-
arflokksins á nú með þjóðinni.
• Þessi fundur má þó ekki verða til þess að menn slaki á klónni í kosningasókn-
inni heldur á hann að verða til þess að tvíefla starfið og auka sigurvonirnar.
• Það er vegið að Framsóknarflokknum í þessum kosningum úr öllum áttum. And-
stöðuflokkarnir hafa sameinazt um þann áróður gegn Framsóknarflokknum að hann
hafi litla möguleika á að vinna þingsæti.
• Þeir eyddu ekki svo miklu púðri á Framsóknarflokkinn, ef andstæðingarnir tryðu
þessum málflutningi sjálfir og kosningabaráttan öll sannar einmitt hið gagnstæða að
Framsóknarflokkurinn á nú meiri möguleika til mikils sigurs en nokkru sinn fyrr, ef
allir stuðningsmenn vinna ósleitilega þar til kjörfundi lýkur á sunnudagskvöld.
• Því heitum við á alla þá, sem vilja gera sigur B-listans sem mestan um fand alft,
að duga nú vel og leggja hönd á plóginn annaðhvort sem sjálfboðaliðar við kosninga-
starfið eða með persónulegum viðtölum.
• Þessar kosningar eru örlagaríkar. Núverandi ríkisstjórn hefur sett íslenzkt fram-
tak í óæðra sæti og látið víkja fyrir erlendum auðfélögum. Það er kosið um það,
hvort íslenzkir atvinnuvegir og íslenzkt framtak eigi aftur að skipa öndvegið í íslenzku
• Núverandi stjórnarflokkar hafi á prjónum áform um inngöngu í efnahagsbanda-
lög, þótt allir hljóti að sjá, ða jafn fámenn þjóð og íslendingar eru, verður að fara
með sérstakri gát í þeim málum og um hana geti ekki gilt hið sama í þessum efnum
og tugmilljónaþjóðir því afsal fullveldisréttinda íslands, þótt í litlu sé, getur þýtt glat-
að efnahagslegt og þjóðernislegt sjálfstæði.
• I þessum kosningum kýs æskan því um rétt sinn til framtíðarinnar sem sjálf-
stæðir íslendingar.
• Ef ríkisstjórnin heldur velli í þessum kosningum mun hún líta á það sem traust
á þeirri stefnu, sem hún hefur fylgt og herða á og framkvæma áform sín í efnahags-
bandalagsmálunum. Þess vegna sameinast þeir, sem sjá hætturnar fram undan, um að
fella þessa ríkisstjórn ráðleysis og undanhalds, sem snúið hefur velgengni góðæris
í vandræði ..viðreisnar“ ________________________'__________________J