Tíminn - 21.06.1967, Blaðsíða 7
MÐVIKUDAGUR 21. júní 1967
Eyjólfur Jónsson
16. júní s.l. var til grafar bor-
inn að Vallarnesi Eyjólfur Jóns-
son bóndi, Höfða Völlum, en
h>anin landiaðisit í Sjúkraskýlinu að
Egilsstöðum eftir fárra daga legu
þar.
Eyjólf.ur 'Var fæddair að Hall-
bjarnarstöðum í Skriðdal árið
1878 og voru foreldrar hans
hjónin Vilborg Jionsdótlir og Jón
Jónsson. Því miður kann ég ekki
að rekja ættir þeirra nema Ihvað
Vilborg var anstfirzk, an Jón
ættaður úr Skaftafellsisýslu. Börn
þeirra ihjóna voru alls 11 talsins
og hétu: Jón Björgvin, síðar bóndi
að Vtaði, Bjami, búsettur á
Reyðarfirði, Björg, ljósmóðir á
Reyðarfirði, Sigurborg, búsett í
Reýkjajvík, Halldór, búsettur á
Reyðartfirði. Önnur syistkini
Eiyjólfs þau Benedilkt, Jónas,
Hólmtfríður, Einar og Aðaiheiður
bju'ggu alla tíð saiman og var
Eyjölfur talinn fyrir búi þeirra.
Einis og sjá má var þetta stór
isystkinahópur.
Árið 1906 brugðu foreldrar
þeirra búi, og tófk þá Eyjólfur
við ásamt nokkrum systkina sinna
Á Hallbjarnarstöðum ibjuggiu þau
til ársins 1911 en fluttu síðan að
Mjóanesi jf Vallabreppi og þar
stóð bú þeirra til ársins 1924, er
þau keyptu jörðina Höfða í sömu
sveit.
Höfði á Völlum er fögur jörð
og jatfnframt góð bújörð. llbúðar-
húsið stendur ihátt í böfðanum
suðvestanvert og nýtur skjóls frá
hærri kolli fyrir norðaustan átt,
sem allir Héraðsbúar þekikja
glöggt. Útsýn -af hlaðinu er fögur,
því að þaðan blasir við stór hluti
Vallahrepps, Skriðdals, Fljótsdals
og Fellahrepps. Sé á Höfðakoll
sjálfan gengið víkkar útsýnið enn
því að þá sézt til Egilsstaðakaup-
túns og nágrennis ásamt geysi-
víðum 'fjallabring. Tún þessarar
jarðar er nú bæði stórt og í góðri
rækt.
Hér að framan hef ég nefnt
nöfn foreldra Eyjólfs og systkina,
svo og þá staði, sem hann stiikl-
aði um á lífsleiðinni. Eyjólfur
heitinn var um flest lánsmaður
í lífi sínu og átti heimili, sem
virðingar naut með sanni. Á
Höfða var gestkvæmt mjög og
gott þangað heim að sækja, þau
systkinin voru glaðvær. og gest-
risin.
Sérstök reglusemi ríkti á heim-
ilinu, og allt hirt vel, enda var
búið jafnan afurðagott og fjár-
hagur góður. Það þarf mikinn
félagismálaþroska til svona sam
vinniuibús, svo að ekki finnist
hnökirar á, en systkinin voru
óvenjulega samhent, og villtust
ekiki í mating um verk dagsins,
enda var það þeim lán.
Um Eyjólf vin minn vildi ég
ennfremur segja þetta: Hann var
skemmtilegur maður, og ógleym-
anlegt var að heyra hann halda
ræður á tfundum eða í fagnaði
Hann talaði afdráltarlaust, og
þorði að láta allt flakka, enda
vakti málflutningur hans jafnan
kátínu áheyrenda, en hún skapast,
þegar kjarnl og hnyttni fara
saman.
Sem næsti nágranni Eyjóltfs
minnist óg hans, þegar hann
heimsótti mig líka, þegar hann
var að gæta kinda sinna á Höfða-
seli, en einna minnisstæðastir
rerða mér útreiðartúrarnir með
honum og Þorsteini Jónssyni,
fyrrum kaupfélagsstjóra á Reyðar-
firði.
Því vinir, ihross og hestaskál,
huganum jaínan lyfta.
Og ógleym®nlegar voru hinar
mörgu ánægjustundir á heimili
hans.
Geta verð ég þess, að á þessu
heimili ihafa mörg ungmenni dval-
ið lengri eða skemmri tíma við
nám og sumardvöl. Einar, bróðir
Eyjólfs var um langt skeið barna-
kennari hreppsins og einnig veitti’
hann tilsögn utan þess. Eitt
þessara barna var Aðalsteinn
Bjarnason bróðursonur Eyjólfs.
Ifann liefur verið á þessu heimili
frá æskuárum sínum og í dag
er jhann styrkasta stoð þess.
í fjariægð set ég þessar ' línur
saman fyrir hönd okkar Helgu
konu minnar. með þökk fyrir
liðna tíð. Ég - 1 Eyjólf hafa verið
glöggan mann, sem án fyrir-
hafnar féikk tvær glæsijarðir
Vallahrepps. Hann fór vel með
fénað sinn og fjármuni og var
rausnarmaður heim að sækja.
Leggst nú sæll til hvíldar,
elzti íibúi Valiahrepps.
Benedikt Sigfússon.
tiet‘holt> 6
Hús BelgjagerSarinnari
Fasteisnasalan
Laugavegi 56
«
Hörður (lunnarss.
söiumaður
Sími 15057
Húsgagnaverkstæði
til söiu
Húsgagnaverkstæðið Álrrur, Ármúla 10, er til sölu.
Verkstæðið er fullum gangi. Föst viðskiptasam-
bönd geta fylgl Upplýstngar í síma 81315.
OSTAKYNNING HIÁ SÍS
ÞÓTTI TAKAST MJÖG VEL
Ui. 1 ^
Erla kynnir áhugasömum húsmæðrum notkun ostanna.
(Tímamynd GE)
FB-Reykjavík, miðvikudag.
SÍb í Austurstræti efndi til
ostakynningar í dag, annaðist Erla
Björnsdóttir matreiðslukennari
kynninguna, sem hófst kl. 9 í
morgun og stóð fram til kl. 6 þeg
ar verzluninni var lokað. Fjöldi
fólks fylgdist með ostakynning-
unni, bragðaði á þvi sem á boð
stólum var, og virtust allir mjög
ánægðir.
Erla sagði okkur, að kynntir
væru ostar frá Osta- og smjör
sölunni, sérstaklega tvær teg-
undir, sem eru heldur nýjar á
markaðinum, Pilsitter — og Amb
assador-ostar. Sagði Erla, að marg
ir hefðu hcyrl um þessa osta, en
ekki reynt þá fyrr en í dag. Einn
ig kynnti hún hina venjulegu
mjólkurosta 30% og 45% og sniur
osta með mismunandi bragði.
Sérstaka athygli vakti tilreidd
ur smurostur, sem Erla hafði
sprautað ofan á keskökur og
fylgir hér uppskriftin að þess
um rétti:
1 dós sterkur smurostur
1 meðalstór laukur
rjómi ef vill
Laukurinn rifinn á fínu rif-
járni, blandað saman við ostinn
síðas* rjómanum hrært út í.
Þessu má sprauta með rjóma
sprautu á ýmiss konar kex.
Gráðostur var með í kynning
unni, en konur létu í ljós óskir
um að fá að vita, hvernig hægt
væri að notfæra sér gráðost, sem
hefði harðnað um of, og saaði
Erla. að auðvelt væri að gera
það. Gott væri að hræra hinn
harðnaða gráðost út með smjöri,
setja hann síðan . plastdós, eða
aðrar lokaðar umbúðir, og geyma
hann þannig i ísskápnum, þá væri
hægt að grípa til hans hvenær sem
væri, og hann væri alltaf jafn-
mjúkur. Með því að hræra gráð
ostinn út með smjöri er hægt að
sprauta honum ofan á kex, eins
og sTnurofstinum hér að framan.
Ekki mun vera i ráði að kynna
ost aftur í SÍS, en líklegt er að
annars konar vörukynningar verði