Alþýðublaðið - 02.04.1985, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 2. aprll 1985
3
Jafnréttisnefndir á höfuðborgarsvœðinu
Samstarf í lok
kyennaáratugs
Jafnréttisnefndir Reykjavíkur,
Kópavogs og Hafnarfjarðar vinna
sameiginlega að gerð fræðsluefnis
um jafnréttismál fyrir grunnskóla í
tilefni loka Kvennaáratugsins.
Nefndirnar gangast fyrir samn-
ingu fræðsluefnis um náms- og
starfsval fyrir nemendur á grunn-
skólastigi með tilliti til jafnréttis
kynjanna. Höfundar texta eru
Gerður G. Óskarsdóttir, æfinga-
stjóri í uppeldis- og kennslufræð-
um í Félagsvísindadeild Háskóla ís-
lands og Sigríður Jónsdóttir, náms-
í skrifstofu Jafnréttisráðs að
Laugavegi 116 við undirritun
samnings um gerð fræðsluefnis
um jafnréttismál. Frá vinstri talið:
Hjálmdís Hafsteinsdóttir, for-
maður Jafnréttisnefndar Kópa-
vogs, Valgerður Sigurðardóttir,
formaður Jafnréttisnefndar
Hafnarfjarðar og Ásthildur Ól-
afsdóttir, fulltrúi þeirrar nefndar,
Björg Einarsdóttir, formaður
Jafnréttisnefndar Reykjavikur,
Sigríður Jónsdóttir og Gerður G.
Óskarsdóttir, höfundar fræðslu-
efnisins.
Ljósm — Jóhannes Long.
stjóri í yngri barnakennslu í Skóla-
þróunardeild menntamálaráðu-
neytis.
Af hálfu jafnréttisnefndanna sáu
um undirbúning að tillögum um
gerð fræðsluéfnisins þær Guðrún
Sigríður Vilhjálmsdóttir, þjóð-
félagsfræðingur og Kristín H.
Tryggvadóttir, námsstjóri í
Fræðsluskrifstofu Reykjanessum-
dæmis.
Námsgagnastofnun og Jafnrétt-
isráð eru samstarfsaðilar jafnréttis-
nefndanna að þessu verkefni og
skal ráðið láta yfirfara handrit áður
en það fer til frekari úrvinnslu hjá
Námsgagnastofnun. Þeir sem
kunna að hafa áhuga á að fylgjast
með efni fræðslubæklingsins á
undirbúningsstigi geta haft sam-
band við skrifstofu Jafnréttisráðs í
því skyni.
Háskólinn:
Rektorskjör
í dag
Kjör rektors Háskóla íslands fer
fram í dag en nýkjörinn rektor tek-
ur við störfum með byrjun næsta
háskólaárs.
Rektor er kjörinn til þriggja ára í
senn, og eru skipaðir prófessorar
einir kjörgengir.
Atkvæðisrétt eiga prófessorar,
dósentar og lektorar og allir þeir,
sem fastráðnir eru eða settir til fulls
starfs við háskólann og stofnanir
hans og hafa háskólapróf.
Þá eiga allir stúdentar, sem skrá-
settir eru í Háskóla íslands tveim
mánuðum á undan rektorskjöri, at-
kvæðisrétt. Greidd atkvæði stúd-
enta gilda sem einn þriðji hluti
greiddra atkvæða alls.
Á kjörskrá verða því um 330
kennarar og aðrir starfsmenn en
um 4.370 stúdentar, eða samtals um
4.700 manns.
Kosningarnar fara fram í aðal-
byggingu Háskóla íslands (hátíðar-
sal) og stendur kjörfundur kl.
9—18.
Barðstrendingar:
Skírdagsskemmtun
Kvennadeild Barðstrendingafé-
lagsins vill minna á skírdags-
skemmtunina sem haldin verður
fyrir eldri Barðstrendinga í Domus
Medica á skírdag og hefst hún kl.
14.
Könnun 1
fylgi flokksins vera undir 10%. Að
öðru leyti eru niðurstöðurnar nú
mjög líkar niðurstöðunum í síðustu
skoðanakönnun NT, Bandalag
jafnaðarmanna og Alþýðubanda-
lag örlítið á niðurleið, en Sjálfstæð-
isflokkur og Kvennalisti örlítið á
uppleið eftir þessum vísbendingum
að dæma. Enn sem fyrr er megin
niðurstaðan því sú, að Alþýðu-
flokkurinn er næst stærsti stjórn-
málaflokkurinn, með fylgi einhvers
staðar á bilinu 20—25%.
AðaEindur
Iðnaðarbanka íslands hf. árið 1985 verður
haldinn í Súlnasal Hótel Sögu kl. 14:00,
föstudaginn 12. apríl 1985.
Á dagskrá fundarins eru aðalfundarstörf
samkvæmt ákvæðum 18. gr. samþykkta
bankans.
Aðgöngumiðar að fundinum verða af-
hentir hluthöfum eða umboðsmönnum
þeirra í aðalbanka að Lækjargötu 12, 3.
hæð, dagana 3.,9.,10. og 11. apríl.
Reikningar bankans fyrir árið 1984, ásamt
tillögurri þeim sem fyrir fundinum liggja,
verða hluthöfum til sýnis á sama stað.
Reykjavík 25. febrúar 1985.
Bankaráð
IÐNAÐARBANKA ÍSLANDS HF.
Iðnaðarbankinn
Frá menntamátaráðuneytinu
Lausar stöður
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum.
Staða skólameistara er laus til umsóknar og veitist frá
1. ágúst næstkomandi.
Fjölbrautaskólinn í Garöabæ.
Við nýstofnaðan fjölbrautaskóla f Garðabæ eru lausar
til umsóknar kennarastöður I eftirtöldum greinum:
íslensku, dönsku, ensku, frönsku, þýsku, stæðrfræði,
efnafræði, Kffræði, sögu og félagsfræði, viðskipta-
greinum og (þróttum.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 1. maf
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið,
29. mars 1985.
Verðkönnun
Innkaupastofnun Reykjavfkurborgar f. h. íþróttaráðs
Reykjavfkur, óskar eftir tilboðum f eftirtalin áhöld og
tæki fyrir frjálsfþróttavöllinn f Laugardal:
Stangarstökks-uppistöður.
Grindur 64 stk.
Kringlur 2 kg, 1,75 kg, 1,5 kg og 1 kg.
Kúlur 7,26 kg, 6,25 kg, 5,5 kg og 4 kg.
Sleggjur 7,26 kg, 6,25 kg, 5,5 kg og 4 kg.
3—4 gerðir af sleggjuhandföngum.
Rásblokkir 12 stk. og vagna undir hlaupagrindur.
Tilkynningatöflur.
Hástökkspúða 3x5 metrar.
Stökkrár fyrir há- og stangarstökk 10x10 stk.
Hindrunarhlaupsbúkka 4 stk.
Kastbúr fyrir sleggju.
Nánari upplýsingargefurBaldur Jónsson I slma33527.
Tilboðin þurfa að hafa borist á skrifstofu Innkaupa-
stofnunar Reykjavfkurborgar fyrir 12. aprll nk.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Listskreytingasjóður
ríkisins
Listskreytingasjóöur rfkisins starfar samkvæmt lögum
nr. 34/1982 og er ætlað að stuðla að fegrun opinberra
bygginga með listaverkum. Verksvið sjóðsins tekur til
bygginga, sem rikissjóður fjármagnar að nokkru eða
öllu leyti. Með listskreytingu erátt við hvers konar fasta
og lausa listmuni, svo sem veggskreytingar innan húss
og utan, höggmyndir, málverk, veggábreiður og hvers
konar listræna fegrun. Skal leitast við að dreifa verkefn-
um miili listgreina, þannig að f hverri byggingu séu
fleiri en ein tegund listskreytinga.
Þegarákveðið hefur verið að reisa mannvirki sem lögin
um Listskreytingasjóð rfkisins taka til, ber arkitekt
mannvirkisins og bygginganefnd sem hlut á að máli að
hafa samband við stjórn Listskreytingasjóðs, þannig
að byggingin verði frá öndverðu hönnuð með þær list-
skreytingarf hugasem ráðlegarteljast. Heimilt ereinn-
ig að verja fé úr sjóðnum til listskreytingar bygginga
sem þegar eru fullbyggðar.
Umsóknum um framlög úr Listskreytingasjóði skal
beint til stjórnar Listskreytingasjóðs rlkisins, mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavfk. Æski-
legt er, að umsóknir vegna framlaga 1985 berist fyrir 1.
september nk.
Reykjavfk, 27. mars 1985.
Stjórn Listskreytingasjóðs ríkisins.
Hjúkrunarfræðingar
Eftirtaldar stöður hjúkrunarfræðinga við heilsugæslu-
stöðvar eru lausar til umsóknar:
1. Við Heilsugæslustöð Þórshafnar. Staðan er laus
nú þegar.
2. Hálf staða við Heilsugæslustöðina á Hofsósi.
Staðan er laus nú þegar.
3. Við HeilsugæslustöðinaáHellu. Staöanerveitt frá
1. júnf 1985.
4. Við Heilsugæslustöð Suðurnesja, Keflavfk. Staöan
er veitt frá 1. júní 1985.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf við hjúkrun sendist heilbrigðis-og tryggingamála-
ráðuneytinu fyrir 1. maf 1985.
Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið,
25. mars 1985.