Alþýðublaðið - 04.05.1985, Blaðsíða 3
Laugardagur 4. mal 1985
3
l|l Útboð
Tilboð óskast í að grafaog fjarlægja jarðveg á lóð
Seljahlíðar við Hjallasel í Reykjavlk fyrir bygging-
ardeild. Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri
Fríkirkjuvegi 3 Reykjavik gegn kr. 1.000,- skila-
tryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað
þriðjudaginn 7. maí 1985 kl. 15.00 e.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Frá menntamálaráðuneytinu
Laus staða
Laus er til umsóknar kennarastaða I viðskipta-
greinum við Fjölbrautaskólann á Akranesi.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og
fyrri störf sendist menntamálaráðuneytinu,
Hverfisgötu 6, fyrir 25. maí.
Menntamálaráðuneytið.
Aðalfundur
Verkakvennafélagsins
Framsóknar
verður haldinn I Hreyfilshúsinu sunnudaginn 12.
maí kl. 14.
Fundarefni:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Sýnið skírteini við innganginn.
Stjórnin
Verðkönnun á
einkatölvum
Tölvuþjónusta sveitarfélaga óskar eftir upplýs-
ingum um einkatölvur og annan búnað fyrir sveit-
arfélög, stofnanirog fyrirtæki þeirra. Þettaergert
með það fyrir augum að ná samkomulagi við ein-
hvern söluaðila til að lækka kostnað fyrir einstök
sveitarfélög og fá fram samræmingu I tölvubún-
aði.
Miðað er við, að vélbúnaður geti nýtt þann hug-
búnað, sem nú er verið að semja fyrir Tölvuþjón-
ustu sveitarfélaga auk ritvinnslu, töflureiknis og
verkfræðilegra útreikninga. Reiknað skal með, að
afhending 50 véla með mismunandi fylgibúnaði
fari fram á 2 árum.
Gögn verða afhent frá og með mánudegi 6. maí á
skrifstofu Sambands íslenzkra sveitarfélaga að
Háaleitisbraut 11, 3. hæð.
Skýringarfundur verður haldinn 7. maí 1985 kl.
15.00 I húsakynnum Sambands íslenzkra sveitar-
félaga, Háaleitisbraut 11, Reykjavík, 4. hæð.
F.h. Tölvuþjónustu sveitarfélaga
Logi Kristjánsson
ST. JÓSEFSSPITALI
Landakoti
Lausar stöður:
Hjúkrunarfræðingaróskast til starfa við eftirtald-
ar deildir:
Svæfingardeild
Lyflækningadeildir
Handlækningardeildir
Barnadeild
Göngudeild (Gastro) dagvinna
Einnig vantar hjúkrunarfræðinga til sumarafleys-
inga. Sjúkraliðar óskast til starfa við:
Handlækningadeild
Skurðstofu (dagvinna)
Umsóknir ásamt upþlýsingum um nám og fyrri
störf sendist hjúkrunarforstjóra sem veitir nánari
upplýsingar I slma 19600 frá kl. 11—12 og 13—14
alla virka daga.
Reykjavfk 3.05.1985
Skrifstofa Hjúkrunarforstjóra.
Mezzoforte
gera það gott
Einsog fram hefur komið í frétt-
um að undanförnu er hljómsveitin
Mezzoforte nú á hljómleikum í
Evrópu. Nú þegar hefur hljóm-
sveitin haldið nokkra tónleika í
Þýskalandi og hvarvetna hlotið
dúndrandi viðtökur. Mezzoforte
kemur fram í 14 borgum í Þýska-
landi, auk þess að halda tónleika í
Austurríki, Hollandi, Frakklandi,
Belgíu og nú rétt í þessu var Spánn
að bætast í hópinn. Hefur Mezzo-
forte verið boðið að koma fram í
TV 3 sjónvarpsstöðinni í Barcelona
þann 7. maí og leika þrjú lög, en
þessi stöð þjónar öllu Catelonía-
svæðinu. Síðan mun hljómsveitin
koma fram í spænska ríkisútvarp-
inu í Madrid þann 9. maí í vinsæl-
asta tónlistarþætti Spánar. Einnig
leikur hljómsveitin á tvennum
hljómleikum í Barcelona og Mad-
rid.
Að tónleikaförinni lokinni halda
strákarnir í Mezzoforte aftur til
Englands. Þar verður hafist handa
við að hljóðrita lagið This Is The
Night sem mun koma út á tveggja
laga plötu um allan heim í sumar.
Söngvarinn Weston Foster mun að-
stoða Mezzoforte í þessu lagi, en
hann er núna með þeim í hljóm-
Ieikaförinni.
Meðlimir Mezzoforte hafa nú
þekkst boð bresku ríkisútvarps-
stöðvarinnar BBC um að gera 20
mínútna útvarpsprógram sem síðan
verður sent út um allt Stóra-Bret1
land. Mezzoforte er reyndar mjög í
hávegum höfð á rásum BBC-út-
varpsins og eru lög hljómsveitar-
innar mjög mikið notuð í ólíkustu
þáttum stöðvarinnar. Sem dæmi
um þetta má nefna, að tveir vinsæl-
ustu þáttagerðarmenn BBC 1, þeir
Steve Wright og Bruno Brooks,
nota tvö laga Mezzoforte sem kynn-
ingarlög þátta sinna. Steve notar
lagið Surprise og Bruno notar Take
Off. Aukinheldur er lagið Rockall
jafnan notað þegar Top 40 lagalist-
inn er talinn niður á hverjum
sunnudegi. Síðast en ekki síst þá er
lagið Garden Party kynningarlag í
þættinum 6 O’Clock Show sem sent
er út á föstudögum kl. 6.00. Af
þessari upptalningu má gera sér ör-
Iitla grein fyrir þeim sessi sem tón-
list Mezzoforte skipar meðal
breskra tónlistarunnenda. Enn
mætti halda áfram að telja upp þá
þætti í dönskum, norskum, þýsk-
um, portúgölskum, ítölskum,
frönskum, belgískum, hollenskum
og japönskum útvarpsstöðvum sem
hafa tónlist Mezzoforte í hávegum,
en slíkt væri aðeins til að æra óstöð-
ugan.
Hjálparsveitir skáta
Stórhapp
drætti
„Vel búnar hjálparsveitir veita ör-
yggi” er yfirskrift stórhappdrættis
hjálparsveita skáta, er nú stendur
sem hæst. Happdrættismiðar með
viðfestum gíróseðlum hafa verið
sendir landsmönnum.
í meira en 50 ár hafa hjálparsveit-
ir skáta unnið óeigingjarnt sjálf-
boðastarf sem á sér fáar, ef nokkrar
hliðstæður. Allan ársins hring,
hvenær sólarhrings sem er, eru
hundruð félaga í fjölda hjálpar-
sveita víðsvegar um landið, ávallt
viðbúnir til leitar- og björgunar-
starfa. Þúsundir landsmanna hafa
notið þjónustu og aðstoðar hjálp-
arsveitanna og margir þeirra væru
ekki til frásagnar nú, ef björgunar-
starfs hjálparsveitanna hefði ekki
notið við.
Þótt félagar sveitanna vinni störf
sín í sjálfboðavinnu, kostar rekstur-
inn stórfé árlega. Mest af því er
sjálfsaflafé, aðeins lítill hluti er
framlag opinberra aðila.
Vinningarnir eru:
15 bifreiðar, Fiat Uno 45 S hver að
verðmæti kr. 280.000r 40 mynd-
bandstæki, Sharp VC 481 hvert að
verðmæti kr. 44.900r 40 örbylgju-
ofnar, Sharp R-6200 hver að verð-
mæti kr. 17.600.
Dregið verður í stórhappdrætt-
inu þann 9. maí n.k.
Húsnæðisstofnun ríkisins
Tæknideild Laugavegi 77 R Simi28500
Útboó
Eyrarbakkahreppur
Stjórn verkamannabústaða, Eyrarbakkahreppi,
óskar eftir tilboðum í byggingu tveggja einbýlis-
húsa 65 m2, 324 m3.
Húsin verða byggð viðTúngötu, Eyrarbakka, og
skal skila fullfrágengnum 31. okt. 1986.
Afhending útboðsgagna er á sveitarstjórnar-
skrifstofu Eyrarbakkahrepps og hjá tæknideild
Húsnæðisstofnunar rlkisins frá þriðjudeginum 7.
maí nk.; gegn kr. 10.000.- skilatryggingu.
Tilboðum skal skila á sömu staði, eigi síðar en
miðvikudaginn 29. mal nk. kl. 11.00 og verða þau
opnuð af viðstöddum bjóðendum.
F.h. Stjórnar verkamannabústaða,
tæknideild Húsnæðisstofnunar rikisins.
Dvöl í
orlofshúsum Iðju
Iðjufélagar, sem óska eftir að dvelja I orlofshús-
um félagsins I Svignaskarði, sumarið 1985, verða
að hafa sótt um hús eigi slðar en föstudaginn 17.
mal.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofu fé-
lagsins Skólavörðustlg-16.
Dregið verður úr umsóknum á skrifstofu félags-
ins 20. maí kl. 16.00 og hafa umsækjendur rétt til
aö vera viðstaddir.
Þeir félagar, sem dvalið hafa I húsunum á 3 und-
anförnum árum, koma aðeins til greina ef ekki er
full bókað.
Leigugjald verður kr. 2.500.00 á viku.
Sjúkrasjóður Iðju hefur eitt hús til ráðstöfunar
handa Iðjufélögum, sem eru frávinnu vegna veik-
indaeða fötlunar, og verður það endurgjaldslaust
gegn framvísun læknisvottorðs.
Stjórn Iðju
ÍH
Fjórðungssjúkrahúsið
á Akureyri
Stöður yfirfélagsráðgjafa og deildarfélagsráð-
gjafa við Geðdeild og aðrar deildir Fjórðungs-
sjúkrahússinsáAkureyri.eru lausartil umsóknar.
Umsóknirmeð upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist framkvæmdastjóra sjúkrahússins.
Umsóknum sé skilað inn fyrir 31.05.1985.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Laus staða
í viðskiptadeild Háskóla íslands er laus til um-
sóknar staða lektors með kennsluskyldu á sviði
stærðfræði, hagrannsókna og skyldra greina.
Gert er ráð fyrir að stöðunni verði ráðstafað frá
1. júll n.k.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkis-
ins.
Umsóknir ásamt rækilegri skýrslu um vlsinda-
störf umsækjenda, ritsmlðar og rannsóknir, svo
og námsferil og störf, skulu sendar menntamála-
ráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavlk, og
skulu þær hafa borist fyrir 1. júnl 1985.
Menntamálaráöuneytið, 26. apríl 1985.