Alþýðublaðið - 06.07.1985, Síða 2
o
u
Laugardagur 6. júl( 1985
'SUNNUPAGSLEIÐAPI' . , '
1000 litlir bankastjórar
F lestlr' serí» komnir eru til vits og ára, hafa orð-
ið þeirrar reynslu aðnjótandi að ganga á fund
bankastjórati! þessaðbiðjaúm lán.Til þessað
v náfundi sUkrahÖfðingjaverðuralmúginn að fá.
frí úrvinnu, mæta jafnvel fyriropnun bankans
og hima úti I kulda og trekki til þess að geta
skrifað nafn sitt í viðtaisbeiðnabókina. Banka-
stjórarnir eru hlns vegar ekkert til viðtals fyrr
en um tíuleytið.
N Nýlega þurfti einn húsbyggjandinn að leita á
náðir bankarts sfns til þess að biöja um lán að
upphæð sjötlu þúsund krónur I 4 mánuði til
þess að hann gæti staðið f skilum með sfn mál
þar til hann fengi afgreitt húsnæðisstjórnar-
lánið sítt. Bankastjórinn að vanda valdsmann-
leguryflrheyrði viðskiptavininn f bakog fyrirog
afgreiddi hann sfðan með fimmtfu þúsund
§ króna láni. Þvl miðurekki meir. Sami banki aug-
lýsirhins vegarsjálfan sigtbæði innanlands og
utan fyrir milijónir króna á ári. Auglýsingarnar
eru gjarnan f þvf formi, að sýnd eru skrföandi
börn, sem sumir túlka á þann veg, að það sé
kurteisleg vlsbending til vióskiptavinanna um
þdð, hvernig eigf að haga sér fyrir framan
bankastjórann. Bankinn f^kk Ifka sérstaka við-
urkenningu frá sjónvarpinu fyrir huggulegar.
auglýsingar.
H in skpfjalausa samkeppni bankanna undan-
farið um viðskiptavini hefur haft það f för með
sér, að menn geta gengið inn f.hvaða búð sem
er og keypt sér hljómflutningstækí, húsgögn
eða jafnvel bfla og skrifaö undir skuldabréf fyr-
ír stærstum hluta kaupverðsins upp á tugi eða
hundruð þúsunda króna. Andvirði skuldabréfs-
ins er síðan komið inn á reikping viðkomandi
verslunar daginn eftir. Ástæðan fyrir þessu er
sú, að bankamir hafa komið upp svokölluðu
þvl, að bankinn kaupi skuldabréf fyrir tvöfalda
þá upphæð sem er á bundna reikningnum. Síð-
an má auka kvótann með þvf að fá lánaðar
bankabækur hjá vinum og vandamönnum og
festa á bundna reikninginn. I skýrslum bank-
ans eru þessi skuldabréfakaup sfðan köllnð
lán til verslunar.
Það eru þannig komnir upp 1000 litiir banka-
stjórar ufn allt land. Til þess að bankarnfr geti
sfðan staðið við skuldbindingar sfnar sam-
kvæmt kvótasamningunum verða þeir að taka
lán f útlöndum. Það er þvf ekkert skrýtið þó
helmingúrinn af veltufé bankanna sé erlent.
Þeir hafa misst stjórn á útlánum sfnum I hend-
ur annarra. Þetta kerfi býður upp áóheftan inn-
flutning og gffurlegan viðskiptahaíla. Þegar
efnahagsástandið er eins dapurt og það er f
dag ættu afborgunarkjör verslunarinnar því
ekki að viðgangast nema hún geti sjálf staðið
undir greiðslufresti til viðskiptavinanna, en
gangi ekki sjálfkrafa í tóma sjóði bankanna.
Ijúfum leik við laxana f dýrustu laxveiðiám
landsins á kostnað almennings.
—B.P.
kvótakerfi. Búnaðarbankinn tekur til dæmis
5% af andvirði bréfsins og lætur inn á bundna
bók. Viöskíptavinurinn á sfðan sjálfkrafa rétt á
En meðan litlu bankastjórarnir ráða útlánun-
um geta hinir stóru dundað sér áhyggjulausir f
Bœklingur frá
Ferðamálaráði:
• •
Oryggi í há-
lendisferðum
Út er kominn á vegum Ferða-
málaráðs bæklingur á fjórum
tungumálum, ensku, þýsku, norsku
og frönsku, þar sem fjallað er um
margvísleg atriði, sem erlendir
ferðamenn þurfa að hafa í huga
varðandi ferðalög hér á landi og þá
einkum á hálendinum. í bæklingn-
um, sem er 32 bls., eru ráðleggingar
um ferðalög á hálendinu, nauðsyn-
legan útbúnað og öryggisráðstafan-
ir, auk Ieiðbeininga um umgengni
og íslenskt náttúrufar.
Upplag þessa öryggisbæklings er 70
þús. eintök. Honum verður dreift til
Launadeild
fjármálaráðuneytisins
óskar aö ráða starfsfólk til launaútreiknings, tölvu-
skráningar, undirbúnings skýrsluvélavinnslu og frá-
gangsstarfa.
Vélritunarkunnátta er ekki nauðsynleg.
Laun samkvæmt kjarasamningum fjármálaráöherra,
BSRB og Félags starfsmanna stjórnarráðsins.
Umsóknir er greini menntun og fyrri störf sendist
launadeildinni fyrir 12. júlí. Umsóknareyðublöö fást
hjá launadeild.
Launadeild fjármálaráðuneytisins
Sölvhólsgötu 7
Útboð
Tilboð óskast í endurbyggingu Þingholtsstrætis 25 fyr-
ir byggingardeild Borgarverkfræðings, þ.e. aö skipta
um allt bárujárn og tréverk utan á húsinu. Hreinsa og
lagfæra hleðslu ( kjallara, hlaða reykháfa og rlfa viö-
byggingu. Endurbygging skal taka mið af B-friðun pg
verðagerðarstrangarkröfurtil efnis og vinnugæða. Út-
boðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3
Reykjavik gegn kr. 2.000,- skilatryggingu. Tilboðin verða
opnuð ásamastað miðvikudaginn 17. júli nok. kl. 11 f.h.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvogi 3 — Simi 25800
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Umsóknarfrestur til 25. júfi.
Fjölbrautaskólinn í Breiðholti, kennarastaða i mat-
vælafræöi.
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, kennarastööur i
þýsku, stærðfræði, félagsfræði og raungreinum.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja, kennarastaða í tölvufræði.
Upplýsingar um menntun og fyrri störf sendist mennta-
málaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 101 Reykjavík.
Menntamálaráðuneytið,
5. júli 1985.
erlendra ferðamanna við komu
þeirra hingað til lands, hvort sem
ICELANI) ÍOIÍRIST ItO.VRl)
t^tfOAVFOCR .* - fui tU'VKJAVIk
þeir koma flugleiðis um Keflavikur-
flugvöll eða sjóleiðis til Seyðisfjarð-
ar. Jafnframt mun hann liggja
frammi á ferðaskrifstofum, skrif-
stofum flugfélga, gistihúsum, bíla-
leigum og þá einkum þeim sem
leigja bíla til fjallaferða, og hjá öðr-
um aðilum sem erlendir ferðamenn
eiga skipti við.
Jafnframt þessu hefur Ferðamála-
ráð látið prenta sérstakt spjald, þar
sem vakin er athygli á öryggisbækl-
ingnum og ferðamenn hvattir til
þess að verða sér úti um hann, hygg-
ist þeir ferðast um hálendið.
Þessi bæklingur er árangur af fund-
um, sem Ferðamálaráð efndi til í
vetur með ýmsum aðilum, þar sem
fjallað var um öryggismál með til-
liti til erlendra ferðamanna og þá
einkum vegna ferðalaga þeirra um
hálendið. Vegna landshátta og veð-
•urfars hér á landi steðja ýmsar
hættur að ferðamönnum í fjalla-
ferðum hér eins og dæmin sanna.
Með útgáfu þessa bæklings vill
Ferðamálaráð auka þekkingu er-
lendra ferðamanna á aðstæðum hér
og draga þar með úr hættu á
óhöppum og slysum, sem oft verða
vegna þess að menn leggja illa búnir
í ferðir um hálendið og bregðast
ekki rétt við, ef út af ber.
Forsætisráðherra:
Samstarf Islands
og Grænlands
I því skyni að stuðla að auknu atriði er snerta fiskveiðar og fisk-
samstarfi milli íslands og Græn- vinnslu.
Það er því von Ferðamálaráðs, að
þessi bæklingur verði til þess að
auka öryggi erlendra ferðamanna í
ferðum um hálendið.
Háskólafyrirlestur
Olof Lagercrantz
um bókmenntir
Sænski rithöfundurinn og bók-
menntafræðingurinn dr. Olof Lag-
ercrantz, flytur opinberan fyrirlest-
ur í boði heimspekideildar Háskóla
íslands mánudaginn 8. júli 1985 kl.
17.15 í stofu 101 í Odda, hinu nýja
hugvísindahúsi Háskólans.
Fyrirlesturinn nefnist „Om kon-
sten att lása och skriva“, og verður
fluttur á sænsku.
Einkaskólar 1
6. Eftir hvaða reglum verða nem-
endur teknir inn í Tjarnarskóla
ef umsækjendur reynast verða
fleiri en 100 talsins?
7. Hvaða samráð hefur verið haft
við skólastjóra Vesturbæjar-
skóla og forstöðumann Náms-
flokka Reykjavíkur?
8. Verða kennarar Tjarnarskóla
aðilar að stéttarsamtökum
kennara?
9.Verða önnur sveitarfélög tolluð
vegna aðkomubarna í Tjarnar-
skóla líkt og nú er gert varðandi
aðkomuunglinga í reykvískum
framhaldsskólum?
10. Verður sálfræðiþjónusta inni-
falin í skólagjaldi Tjarnarskóla
eða verður foreldrum gerður
sérstakur reikningur fyrir
henni?“
lands á sviði fiskveiðimála, fisk-
vinnslumála, hafrannsókna, við-
skipta- og samgöngumála og land-
búnaðarmála hefur ríkisstjórnin
skipað nefnd.
I nefndinni eiga sæti Árni Kol-
beinsson, Þórhallur Ásgeirsson,
Ólafur S. Valdimarsson, Svein-
björn Dagfinnsson, Páll Flygenr-
ing, allt ráðuneytisstjórar, svo og
Pétur Thorsteinsson sendiherra,
sem er formaður nefndarinnar.
Landsstjórn Grænlands hefur til
athugunar að skipa sams konar
samstarfsnefnd, en fyrst um sinn
mun gagnaðilinn í Grænlandi verða
framkvæmdastjóri heimastjórnar
Grænlands, John E. Jensen.
Meðal þeirra mála sem munu sér-
staklega koma til athugunar í sam-
starfi íslands og Grænlands eru
ráðstafanir til verndar og nýtingar
sameiginlegra fiskistofna, hafrann-
sóknir og önnur mál sem Iúta að
fiskveiðum, svo sem vísindalegar
rannsóknir á fiskistofnum, mark-
aðsmál sjávarafurða og tæknileg
Biskup á Rangárvöllum
Biskup Islands, herra Pétur Sig-
urgeirsson, mun vísitera flesta söfn-
uði og kirkjur Rangárvallaprófasts-
dæmis dagana 7.—17. júlí nk. Mun
biskup taka þátt i guðsþjónustum í
kirkjunum og eiga fundi með sókn-
arnefnd og sóknarpresti í hverjum
söfnuði. Dagskrá visitasíu biskups
verður sem hér segir: 6. júlí Stóra-
Dalskirkja kl. 17.00 Fundur með
sóknarnefnd. 7. júlí Ásólfsskála-
kirkja kl. 10.30 Fundur með sókn-
arnefnd og kl. 13.00 Guðsþjónusta.
Eyvindarhólakirkja kl. 17.00 Guðs-
þjónusta og síðan fundur með
sóknarnefnd 8. júlí Krosskirkja kl.
10.30 Fundur með sóknarnefnd kl.
14.00 Guðsþjónusta. Voömúla-
staðakapella kl. 17.00 fundur með
forstöðunefnd 9. júlí Akureyjar-
kirkja kl. 10.30 fundur með sóknar-
nefnd kl. 14.00 guðsþjónusta. 12.
júlí Breiðabólstaðarkirkja kl. 14.00
guðsþjónusta. Fundur með sóknar-
nefnd á eftir. 13. júlí Hliðarenda-
kirkja kl. 14.00 guðsþjónusta og
síðan fundur með sóknarnefnd.
Stórólfshvolskirkja kl. 20.30 fund-
ur með sóknarnefnd. 14. júlí Stór-
ólfhvolskirkja kl. 14.00 guðsþjón-
usta. Oddakirkja kl. 17.00 guðs-
þjónusta og síðan fundur með
sóknarnefnd. 15. júlí Keldnakirkja
kl. 14.00 guðsþjónusta og síðan
fundur með sóknarnefnd. Elli-
heimilin að Lundi og Kirkjuhvoli
Heimsókn síðdegis. 16. júlí Mar-
teinstungukirkja kl. 10.30 fundur
með sóknarnefnd. kl. 14.00 guðs-
þjónusta. Hagakirkja kl. 17.00
guðsþjónusta og síðan fundur með
sóknarnefnd. 17. júlí Skarðskirkja
kl. 14.00 guðsþjónusta og fundur
með sóknarnefnd á eftir.
Prófastur Rangæinga, sr. Sváfnir
Sveinbjarnarson á Breiðabólstað,
biskupsfrúin, Sólveig Ásgeirsdóttir
og sr. Magnús Guðjónsson bisk-
upsritari verða í för með biskupi á
yfirreið hans.