Alþýðublaðið - 06.07.1985, Síða 4
Áskriftarsíminn
er 81866
Alþýöublaðið, Ármúla 38, 3. hæð, 108 Reykjavik., Sími: 81866
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórn: Friðrik Þór Guðmundsson (ábm.) og Sigurður Á. Friðþjófsson.
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson.
Skrifstofa: Helgi Gunnlaugsson, Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsd.
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38.
Prentun: Blaðaprent hf, Síðumúla 12.
Laugardagur 6. júll 1985
Afmœliskveðja:
Eggert G. Þorsteinsson 60 ára
Eggert G. Þorsteinsson forstjóri
Tryggingastofnunar ríkisins er sex-
tugur í dag.
A þessurh merku tímamótum í
lífi hans er mér efst í huga hlýjar
óskir og þakkir til trausts vinar og
samherja. Ég minnist þess að löngu
áður en starfsvettvangur minn varð
stjórnmálin og ég átti þess kost að
kynnast Eggerti persónulega, þá
var oft á hann minnst í fjölskyldu
minni. Þær umræður báru þess vott
að rætt var um mann sem mikils var
metinn og sem traust og virðing var
borin fyrir.
Kynni mín af Eggert hafa verið á
sömu lund. Fyrst og fremst heiðar-
leiki og hlýr og einlægur persónu-
leiki samfara leiftrandi kímnigáfu.
— í störfum sínum og baráttu fyrir
hugsjónum jafnaðarstefnunnar er
hann fastur fyrir og fylginn sér og
umfram allt skarpur að greina
kjarnann frá hisminu og ráðhollur
þeim sem til hans leita. Þar miðlar
hann af glöggskyggni og alkunnri
ljúfmennsku ásamt langri lífs-
reynslu á vettvangi stjórnmála og
verkalýðshreyfingar í baráttunni
fyrir bættum kjörum alþýðunnar.
Þó hér verði ekki í stuttri afmæl-
iskveðju getið nema að litlu leyti
fjölbreytts og giftudrjúgs starfsfer-
ils Eggerts, þá dylst engum að lífs-
hlaup hans hefur alltaf verið sam-
ofið hugsjónum og baráttumálum
jafnaðarstefnunnar og verkalýðs-
hreyfingarinnar.
Ungur að árum tók hann virkan
þátt í verkalýðsbaráttunni m.a. sem
formaður Múrarafélags Reykjavík-
ur um fimm ára skeið auk þess sem
honum voru falin ýmis trúnaðar-
störf innan Alþýðusambands ís-
lands.
A löngum ferli Eggerts innan Al-
þýðuflokksins hafa honum verið
falin margvísleg trúnaðarstörf.
M.a. var hann form.FUJ 1948—50
og síðar SUJ. Alþingismaður frá
1953—1978 eða um 25 ára skeið og
sjávarútvegs- og félagsmálaráð-
herra var hann á árunum 1965—
1971.
Eggert var framkvæmdastjóri
Sfyrktarfélags lamaðra og fatlaðra
1972—1979. í því starfi vann hann
að verkefnum sem honum eru
hjartfólgin — bættri stöðu og hag
þeirra sem höllum fæti standa.
Ekki er að efa að það starf ásamt
giftudrjúgu og farsælu starfi í þágu
jafnaðarstefnunnar og bættra
kjara íslenskrar alþýðu í rúma fjóra
áratugi hefur orðið Eggerti gott
vegarnesti í ábyrgðarmikið og erfitt
starf sem forstjóri Tryggingastofn-
unar ríkisins.
Þó Eggert sé ekki lengur í sviðs-
ljósi stjórnmálanna, þá er hann
einn af traustustu liðsmönnum í
bakvarðasveit flokksins. — Traust-
ur, ráðhollur og einlægur sem
endranær hvar og hvenær sem fjall-
að er um stefnu og baráttumál jafn-
aðarstefnunnar. — Hugsjónir jafn-
aðarstefnunnar eiga of sterk itök í
Eggerti G. Þorseinssyni til að annar
starfsvettvangur breyti þar ein-
hverju um.
Á merkum tímamótum í lífi Egg-
erts er mér ljúft fyrir hönd Alþýðu-
flokksins að senda honum og fjöl-
skyldu hans hugheilar hamingju-
óskir með þakklæti fyrir mikil og
óeigingjörn störf í þágu jafnaðar-
stefnunnar.
Megi jafnaðarstefnan njóta
starfskrafta hans sem lengst.
Jóhanna Sigurðardóttir.
HALASTJARNAN HALLEY
Slœmur fyrirboði eða gefur hún okkur svör við
spurningum um uppruna lífs og sólkerfisins?
Nú í haust birtist jarðarbúum gam-
alkunm r gestur. Kemur hann i
heimsókn á 'im það bil 76 ára fresti.
Ekki er beint hægt að segja að hann
hafi verið jarðarbúum aufúsugest-
ur fyrr á öldum, því mörgum stóð
mikil ógn af honum. Nú bíða menn
hinsvegar í eftirvæntingu eftir að fá
að berja þennan gest augum. Vís-
indamenn út um allan heim hafa
búið sig undir komu hans og
eru bæði Evrópumenn, Sovétmenn
og Bandaríkjamenn með mót-
tökusveit tilbúna. Gesturinn er eng-
inn annar en Halley halastjarna og
verða sendar eldflaugar á loft til að
geta skoðað fyrirbærið í návígi.
Halastjörnur hafa ætíð heillað
menn. Áður fyrr var hún álitin fyr-
irboði slæmra tíðinda. Nú rann-
saka vísindamenn hana í þeirri von
að verða einhvers vísari um upphaf
sólkerfanna.
Halastjörnur er bara hægt að sjá
nokkru sinnum á lífsferlinum, en
hafi fólk sæmilega sjónauka er
möguleiki að sjá halastjörnur um
tíu sinnum á ári. Það er þó ekki
nema á 76 ára fresti að halastjarna
sést jafn greinilega og nú í lok ársins
og upphafi næsta.
Halley ferðast í sporöskjulaga
braut um sólu og síðast þegar hún
sást frá jörðu var árið 1910.
Þegar hún birtist síðast árið 1910
var fólk enn uggandi yfir komu
hennar. Þá var upplýst að jörðin
myndi fara í gegnum gasskýið sem
myndar halann á Halley. Þrátt fyrir
að vísindamenn fullyrtu að engin
hætta væri á ferðinni, greip um sig
ótti víða í Evrópu. Gasgrímur og
halastjörnupillur seldust grimmt.
En vitaskuld gerðist ekkert hættu-
legt.
í þjóðtrú margra landa eru hala-
stjörnur taldar boða slæma at-
burði. Oft var talið að i kjölfar
halastjörnunnar kæmi stríð, hung-
ursneyð eða plágur.
Það var á 18. öld sem enski
stjörnufræðingurinn Edmund
Halley, sem halastjarnan heitir eft-
ir, kom með tilgátu um hringsól
halastjörnunnar í sólkerfinu. Taldi
hann samkvæmt kenningu New-
tons, sem þá var nýkomin fram, að
aðdráttaraflið stjórnaði gangi
stjörnunnar. Hann kom með þá til-
gátu að halastjörnurnar sem hefðu
sést árin 1531, 1607 og 1682, væru
ein og sama stjarnan, sem birtist á
76 ára fresti. Hann spáði því að hún
birtist aftur árið 1758 og það gekk
eftir. Þá var hann látinn og hala-
stjarnan var skýrð í höfuðið á hon-
um. Halley hefur ekkert með hala
að gera.
Sé horfið aftur í söguna er hægt
að rekja feril Halleys halastjörn-
unnar aftur til ársins 1058 f.Kr.
Vitaskuld er hún þó miklu eldri
sjálfsagt ármilljarða gömul.
1066 e. Kr. sást halastjarnan af
Normöndum og var hún talin fyrir-
boði þess að þeir ættu að gera inn-
rás í England. Halastjarnan er líka
mynduð á Bayeux-teppinu, sem var
ofið á þessum árum.
En hvaðan koma halastjörnur og
hvernig eru þær samansettar.
Árið 1950 kom J. Ort með þá til-
gátu að halastjörnur væru ættaðar
úr rykbeltum í mikilli fjarlægð frá
sólinni. Af og til gerist það að hala-
stjarna kemur inn í sólkerfið vegna
aðdráttarafls þess. Auk þess er sú
tilgáta uppi að kjarni halastjörn-
unnar sé svipað samsettur og snjó-
bolti. Báðar þessar kenningar eru
taldar réttar.
Vitneskjan um halastjörnur er
talin mjög mikilvæg. Er álitið að
halastjarnan geti gefið vísbending-
ar um forsögu sólkerfisins og jafn-
vel hvernig lif hafi kviknað, því í
ljós hefur komið að í þeim eru líf-
ræn efni.
Er sú tilgáta til að líf á jörðinni
hafi kviknað þannig að halastjarna
hrapaði niður á jörðina og smitaði
hana af lífi.
Ellefta apríl 1986 verður minnst
fjarlægð milli jarðar og Halley.
Mánuði fyrr hefur geimfarið
Giotto, sem Evrópuþjóðir standa
að, átt stefnumót við halastjörnuna
og vonast menn til að við verðum
margs vísari um sólkerfið og lífið
að þessu stefnumóti loknu.
Byggt á grein í Arbetet.
MOLAR
Smáþjóð
Það er auðvitað ekki af tilefnis-
lausu að við íslendingar erum sí
og æ að japla á því að við séum
smáþjóð og leitum gjarnan á náð-
ir höfðatölunnar margþvældu til
að gera okkur stærri, helst stærst
og best í hinu og þessu.
Um þessar mundir erum við um
242 þúsund, þessi litla fjölskylda
sem hreiðrað hefur um sig á
veðrasamri Atlantshafsey við jað-
ar Norður-heimsskautsbaugsins.
Ekki nema um það bil 0.00006%
mannkynsins.
Skakkaföll
Þjóðin hefur orðið fyrir miklum
skakkaföllum í gegnum aldirnar,
enda harðbýlt land. Við vorum
orðin yfir 50 þúsund þegar
átjánda öldin hélt innreið sína,
nánar tiltekið 1703. Sú öld reynd-
ist okkur afar þung í skauti, þó
einkum einstök ár hennar. Frá
1703—1734 fækkaði okkur um
nær 7 þúsund og vorum orðin
tæplega 43.400. Náðum svo að
fjölga okkur upp í 48.800 árið
1751, en þá tók við erfiðleikatíma-
bil og okkur fækkaði niður í
42.800 árið 1759. Urðum næstum
50 þúsund árið 1778, en þá fækk-
aði okkur hrikalega og það um
heil 21.5% á þremur árum eða frá
1783—1786, er við vorum orðin
aðeins 38.363. Árið 1803, hundr-
að árum eftir fyrsta manntalið,
vorum við orðin tæplega 47 þús-
und og 48.600 árið 1810, en fórum
síðan niður í 47.333 árið 1816. Eft-
ir það hefur okkur fjölgað hægt
og bítandi utan einstök ár, t.d.
þegar okkur fækkaði um 2% árið
1846 og yfir 3% milli 1886 og
1888. Það var reyndar síðasta árið
sem okkur hefur beinlínis fækkað
og kominn tími til.
• ■
Þessi öld
í upphafi þessarar aldar skriðum
við yfir 80 þúsund íbúa markið og
urðum lOOþúsundárið 1925. 1950
vorum við tæplega 145 þúsund og
næstu árin fjölgaði okkur nokk-
uð ört, ca 2% að meðaltali á ári,
vorum orðin 200 þúsund árið
1968. Síðan hefur hægst á fólks-
4tÉ Jb
fjölguninni milli ára, oftast rétt
rúmlega 1% og á 15 árum fórum
við upp í 240 þúsund. Verðum
með sama hraða um 290 þúsund
þegar 21. öldin hefst. Kannski
verðum við orðin hálf milljón
þegar sú öld er hálfnuð og máske
milljón þegar henni lýkur. Ef hún
þá kemur á annað borð.
Iðandi af lífi
En það iðar allt af lífi á þessari
harðbýlu ey á vorum tímum. Og
allt er afstætt, blessaður sé Ein-
stein. Smáþjóð eins og ísland
gjörsigrar stórveldi eins og Bret-
land í landhelgisstríðum og lætur
sér fátt um finnast. Stolt og djarf-
huga sækjum við fram, að vísu
sokkin upp að maga í erlendum
skuldum, allir rammar brotnir.
Fólk vinnur fram eftir öllu til að
hafa í sig og á, það er þorri lands-
manna. Stórhuga ríkisstjórn
snarlækkar launin og gefur fyrir-
tækjunum milljarða króna og
skattaívilnanir í þokkabót. Á Al-
þingi er púlað og stritað. Þar eru
hinar stórkostlegustu ákvarðanir
teknar þegar langt er liðið nætur.
Virkjanir hérna og þarna, vegir
þarna og hérna o.s.frv. Árangur-
inn er sá að það er búið að skipta
þjóðinni í tvennt, í þá sem hafa
það gott og þá sem hafa það skítt.
Börn annarrar þjóðarinnar eiga
að fara í „líflegan og skemmtileg-
an“ einkaskóla, börn hinnar
þjóðarinnar í leiðinlegu ríkisskól-
ana. Hinir öldruðu annarrar
þjóðarinnar mynda biðraðir, hin-
ir öldruðu hinnar þjóðarinnar
byggja ellihallir. Þarna á milli er
verðbólgukynslóðin, sem kveikti
verðbólgubál og stal sparifé for-
eldra sinna til að koma sér upp
íbúðum. Nú er sama kynslóð að
stela af börnum sínum og meina
þeim að eignast „þak yfir höfuð-
ið.“
Hjá smáþjóðinni ísland gerast
sem sagt heimssögulegir atburðir.