Alþýðublaðið - 02.11.1985, Síða 2

Alþýðublaðið - 02.11.1985, Síða 2
2 p-RITSTJÓRNARGREIN Er ekki mál að linni, Steingrímur? A íslandi ríkir nú neyóarástand. Ótrúlegur fiöldi sinni, heldur einnig andvirði ótalinna yfirvinnu- fólks hefur þegar tapað öllum eignum sinum og verður óhjákvæmilega gerður upp á næstu mánuð- um eða árum. Þetta neyðarástand er svo alvarlegs eðlis að ef það væru fyrirtækin en ekki heimilin í landinu sem ættu i þessum erfiðleikum, væri trú- lega þegar búið að gripa hraustlega í taumana. Lögbirtingablaðið, sem að meginstofni birtir aug- lýsingarum nauðungaruppboð áeignum venjulegra launþega, er rétt að segja orðið að dagblaði. Á fimmtudaginn birtust þar 43 auglýsingar um gjald- þrotaskipti, þar af var um einstaklinga að ræða í 38 tilvikum. Þetta fólk stendur uppi algerlega eigna- laust, f mörgum tilvikum eftir aö hafa slitið sér út i yfirvinnu árum saman til að eignast þak yfir höf uðið. Þess eru dæmi að fólk hafi selt skuldlitlar eða jafn- vel skuldlausar eignir til að kaupa sér stærra hús- næði, en orðið að kyngja því fáeinum árum síðarað missa íbúðir sínar á nauðungarboð og standa uppi með skuld á bakinu þegar búió var að selja ibúðina. Þetta fólk hefur ekki aðeins tapað skuldlausri eign stunda. Sundrun fjölskyldna, sálræn vandamál og jafnvel sjálfsvig fólks, sem hrakið hefur veriö út i ystu myrkur örvæntingar og vonleysis, má rekja beina leið til þessa neyðarástands. Orsök neyðarinnar er öllum ofur Ijós og daglega á vörum flestra landsmanna. Orsökin er kjaraskerðing slðustu ára og hið ógnvekjandi bil sem hún hefur skapað milli launakjara og lánskjara. Allir hafa vitaó um þetta lengi. Sennilega er varla til sá þegn þessa þjóðfélags sem ekki er meðvitaöur um þetta ástand. Sá stjórnmálamaður er hetdur ekki til, sem ekki gerir sér fullljóst aö misgengi launa og lána hefur valdiö i þjóðfélaginu ægilegu vandamáli. Þetta mál hefur verið rætt innan þings og utan og það hefurverið rætt innan rikisstjórnarinnar. Hins vegar hefur ekkert verið gert. eir menn sem stjórna þessu þjóðfélagi verða aö gera sér grein fyrir þvl aö málið er ekki lengur á þvi stigi aö hægt sé að halda áfram að ræða það. Tími aðgeröanna er kominn, reyndar fyrir löngu og fyrir þá 38 einstaklinga sem gerðir hafa verið upp sam- kvæmt auglýsingum i Lögbirtingablaði er það þegar orðið of seint. Það er líka orðið of seint fyrir þá fjöl- mörgu sem hafa veriö hraktir á vergang með börnin sín að afloknu nauðungaruppboði. Hetta mál er löngu komið af umræðustigi. Neyðar- ástand hefur þegar skapast, því gjaldþrot heimil- anna er ekki lengur spásögn heldur rammasta al- vara. Máliðerekki lenguráþví stigi að stjórnmálamenn geti leyft sér aö hafa mismunandi skoðanir á því hvernig beri að leysa vandann, eða þrasa um það hverjum neyðarástandið sé að kenna. Það skiptir nefnilega ekki máli lengur. Paö er ríkisstjórn íslands sem ber ábyrgð á því að þetta vandamál verði leyst þegar í stað. Sú ábyrgð er ekki lengurópersónuleg eða fjarlæg, því harmleikir fjölskyldnanna sem verið er að sjúga síðustu blóð- dropana úr þessa dagana eru ekki ópersónulegir. Þeir eru helkaldur raunveruleiki þess fólks sem I þeim lendirog nistandi sárir. Þess vegna er ábyrgðin persónuleg og hún hvílir á Steingrími Hermannssyni, vegna þess að hann er æðsti ráðamaður þessarar þjóðar. I því sambandi skiptir ekki framarmáli hverkann aðeigasökáneyð- arástandinu Þ essa ábyrgð verður forsætisráðherrann að axla. J.D. PÓST- OG SÍMAMÁLASTOFNUNIN óskar aö ráöa Verkamenn við lagningu jarösíma á stór-Reykjavíkursvæðiö. Nánari upplýsingar verða veittar í síma 26000. ST. JÓSEFSSPÍTALI Landakoti Lausar stöður Hjúkrunarfræðingar óskast á Lyflækningadeildir l-Aog ll-A. Handlækninga- deildir l-B og ll-B. Barnadeild, Skurðdeild, Svæfinga- deild og Gjörgæsludeild. Boðið er upp á aðlögunar- kennslu fyrstu vikurnar. Sjúkraliðar óskast á allar vaktir á eftirtöldum deildum. I-A og ll-A Lyflækningadeildum. I-B, ll-B og lll-B Handlækningadeildum. Fastar vaktir koma til greina. Umsóknir ásamt upplýsingum um nám og fyrri störf sendist Hjúkrunarforstjóra, sem veitir allar nánari upp- lýsingar í síma 19600—220—300, alla virka daga. Fóstra óskast á dagheimilið Brekkukot (börn á aldrinum 3—6 ára). Starfsmaður óskast á skóladagheimili (börn á aldrinum 6—9 ára). Upplýsingar í sima 19600—250—260 milli kl. 9:00 og 16:00. Konur og karlar óskast til ræstinga. Upplýsingar veitir ræstingastjóri í síma 19600—259. Reykjavík 31.10.1985. A Lóðaúthlutun Fyrirhuguð er úthlutun lóða í nýju hverfi í suðurhlið Digranesháls í Kópavogi. í hverfinu eráætlað að byggja megi rúmlega600 íbúðir við göturnar Álfhólsveg, Alfa- heiði, Fagrahjalla, Heiðarhjalla, Hliðarhjalla, Lækjar- hjalla, Skógarhjalla og Trönuhjalla. í fyrstaáfangaverðurúthlutað sem hérsegir: Lóðum fyrir 15 hús með 1—2 ibúðum við Álfhólsveg og Álfa- heiði; Lóðum fyrir 25 einbýlishús við Álfaheiöi; 5 lóðum fyrir hús í þyrpingu við Alfaheiði með 5—8 íbúðum í þyrpingu, sérbýli og sambýli, samanlagt 29—34 íbúðir. Úthlutað er alls lóðum fyrir 69—89 íbúðir. Skipulagsuppdrættir eru til sýnis á skrifstofu bæjar- verkfræóings Kópavogs, Fannborg 2, 3. hæð, virka daga milli kl. 9:30 og 15:00. Umsóknareyðublöð ásamt skilmálum og skýringum fást á sama stað. Umsóknar- frestur er til mánudagsins 25. nóv. n.k. Kynningarfundir verða haldnir um skipulag í Suður- hlíðum. A. Miðvikudaginn 6. nóv. kl. 20.30 i Þingholtsskóla. B. Laugardaginn 9. nóv. kl. 14 í Digranesi íþróttahúsinu v/Skálaheiði. Bæjarverkfræðingur. Kolbeinsey 1 hlut Fiskiðjusamlagsins, um 5 mill- jónum frá Húsavíkurbæ, um 5 mill- jónum frá Kaupfélaginu og síðan um 5 milljónum frá verkalýðsfélag- inu og öðrum, meðal annars starfs- mönnum samlagsins. Hlutur verka- lýðsfélagsins og starfsmannanna yrði þá ca. 16.7% og rætt um að starfsmaður úr samlaginu tæki sæti í stjórn hlutafélagsins. Að sögn heimildarmanna Al- þýðublaðsins eru miklar vonir bundnar við að hið nýja félag geti eignast Kolbeinsey af Fiskveiða- sjóði, en aftur á móti þyrfti verðið að vera viðráðanlegt og upphæðin þátilgreindsem 120 milljónir króna eða þar um bil, að hámarki. Það þarf vart að árétta hversu mikið hagsmunamál hér er á ferð-- inni fyrir bæjarbúa. Um 200 manns vinna hjá Fiskiðjusamlaginu og staðan þannig, að allir kvótar eru búnir og útlit fyrir fjöldaatvinnu- leysi upp úr miðjum nóvember. Stærsti hluthafinn í útgerðarfé- laginu Höfða, sem átti Kolbeinsey, er Fiskiðjusamlagið, með 48.6% hlutafjár. Síðan kemur Húsavíkur- kaupstaður með 25% og svo Kaup- félagið með 13%. Stærstan hlut í Fiskiðjusamlag- inu á Kaupfélagið, 48.9%, en síðan Húsavíkurbær með 28.9% og svo Samvinnufélag útvegsmanna og sjómanna með 2.2%. Félagsstarf Alþýðuflokksins Grindavík Fundur um stödu þjóðmála. Fundur veröur haldinn um stöðu þjóðmála í Festi Grinda- vík kl. 4 sunnudaginn 3. nóv. Kjartan og Karl Steinar hafa framsögu. Alþýðuflokksfélagið. Keflavík Fundur um stöðu þjóðmála. Fundur verður haldinn um stöðu þjóðmála í Bárunni Hring- braut 106, Keflavík kl. 20.30 mánudaginn 4. nóv. Kjartan og Karl Steinar hafa framsögu. Alþýðuflokksfélagið. m 1AUSAR SIÖÐUR HJÁ IM) REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtal- inna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamning- um. • Ritari óskast í unglingadeild fjölskyldudeild- ar, Tryggvagötu 12. Upplýsingar eru veittar hjá Guðrúnu Kristins- dóttur í síma 25500. Umsóknum ber að skila til starfsmannahalds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9,6. hæð, á sérstökum umsóknareyðublöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00, mánudaginn 11. nóvember 1985. LAUSAR STOÐUR HJA J REYKJAVÍKURBORG Reykjavíkurborg vill ráöa starfsfólk til eftirtalinna starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum. • Forstöðumaður viö dagheimiliö Laugaborg v/Leirulæk frá áramótum. • Fóstrur og starfsmenn við dagh./leik- skóla, Rofaborg, nýtt heimili í Árbæ. Fóstrustöður allan daginn, starfs- fóiksstöður eftir hádegi, skilastööur í 4 tíma seinni part dags. — dagh. Laugaborg v/Leirulæk. — dagh./leiksk. Ösp, Asparfelli 10. — dagh. Hamraborg v/Grænuhlíö. — dagh. Völvuborg v/Völvufell. — leiksk. Holtaborg, Sólheimum 21. — dagh. Suðurborg v/Suöurhóla. — dagh./leiksk. Grandaborg v/Boða- granda. — dagh./leiksk. Hraunborg v/Hraun- berg. Einnig vantar fóstrur, þroskaþjálfa eöa annað starfsfólk meö uppeldis- lega menntun til þess aö sinna börn- um meö sérþarfir. Upplýsingar veita framkvæmdastjóri og umsjónarfóstrur á skrifstofu dag- vistar í síma 27277 og forstöðumenn viðkomandi heimila. Umsókn ber aö skila til starfsmanna- halds Reykjavíkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæö á sérstökum umsóknareyðu- blöðum sem þar fást, fyrir kl. 16.00 föstu- daginn 15. nóvember 1985. t

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.