Alþýðublaðið - 26.11.1985, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 26. nóvember 1985
3
Iðnaðarmenn mótmæla
niðurskurði og vörugjaldi
Framkvæmdastjórn Landssam-
bands iðnaðarmanna hefur lýst
mikilli óánægju með ýmsan niður-
skurð, sem nú er fyrirhugaður á
fjáriögum. Þá hefur Landssam-
bandið mótmælt harðlega fyrirætl-
unum um vörugjald. Samþykkt,
sem framkvæmdastjórnin gerði ný-
lega, fer hér á eftir:
Fjármálaráðherra hefur nýverið
lýst þeirri stefnu; sem hann hyggst
fylgja á næstunni í fjármálum ríkis-
sjóðs. Af þessu tilefni vill fram-
kvæmdastjórn Landssambands
iðnaðarmanna koma á framfæri
eftirfarandi athugasemdum:
1. Landssamband iðnaðarmanna
telur áform fjármálaráðherra
um nokkurn niðurskurð á ríkis-
útgjöldum og erlendum lántök-
um virðingarverð, þótt vart geti
þau talist nema mjög lítið skref
í baráttu við sífellda útþenslu
ríkisbáknsins.
2. Landssamband iðnaðarmanna
lýsir hins vegar vonbrigðum sín-
um yfir, að þessi niðurskurður
skuli látinn bitna verulega á
framkvæmdum, þrátt fyrir fyr-
irsjáanlegan samdrátt í ýmsum
atvinnugreinum, þar sem áhrif-
anna gætir hvað mest.
3. Meðal þess, sem ætlunin er að
skera niður, eru framlög til vöru-
Styrkir til háskólanáms í Svíþjóð
Sænsk stjórnvöld bjóða fram styrk handa íslendingi til
háskólanáms í Svíþjóð námsárið 1986—87. Styrkfjár-
hæð er 3.510 s.kr. á mánuði I 8 mánuði. — Jafnframt
bjóða sænsk stjórnvöld fram þrjá styrki handa íslend-
ingum til vísindalegs sérnáms í Svlþjóð á háskólaárinu
1986—87. Styrkirnireru til 8 mánaðadvalaren skipting
( styrki til skemmri tima kemur einnig til greina.
Umsóknum um framangreinda styrki skal komið til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 101 Reykja-
vfk fyrir 15. janúar n.k. og fylgi staðfest afrit próf-
sklrteina ásamt meðmælum. — Sérstök umsóknar-
eyðublöð fást i ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytiö
22. nóvember 1985.
Orðsending
til atvinnurekenda frá
félagsmálaráðuneytinu
Að gefnu tilefni vill ráðuneytið hér með vekja at-
hygli atvinnurekenda á ákvæði 55. gr. laga nr. 13
10. apríl 1979 um stjórn efnahagsmála o.fl., en þar
segir að atvinnurekendum sé skylt að tilkynna
Vinnumálaskrifstofu félagsmálaráðuneytisins og
viðkomandi verkalýðsfélagi með tveggja mánaða
fyrirvara ráðgerðan samdrátt eða aðrar þær varan-
legar breytingar í rekstri, er leiða til uppsagnar
fjögurra starfsmanna eða fleiri.
Félagsmálaráðuneytið 22. nóvember 1985.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝDUFLOKKSINS
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna í Reykjavík.
Aðalfundur.
Verður haldinn fimmtudaginn 28. nóvember kl.
20.30 í félagsmiðstöð jafnaðarmanna Hverfis-
götu 8—10.
A dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Fulltrúar fjölmennið.
Stjórnin.
Aðalfundur
Alþýðuflokksfélags
Kópavogs
verður haldinn f Hamraborg 14, þriðjudaginn 10.
desember 1985 kl. 20.30.
Venjuleg aðalfundarstörf.
Stjórnin.
Starfsmaður
Félög ungra jafnaðarmanna á höfuðborgarsvæðinu
óskaeftirað ráðahiðallrafyrstaungan starfsmann í lif-
andi og fjölbreytt hlutastörf. Sveigjanlegur vinnutlmi
en miðað við ca 8—10 tlma á viku.
Upplýsingar gefur Friðrik Guðmundsson f sfma 81866.
þróunar- og markaðsdeildar
Iðnlánasjóðs. Landssamband
iðnaðarmanna bendir á, að ráð-
stöfunarfé sjóðsins er þegar það
takmarkað, að hann getur ekki
sinnt á viðunandi hátt álitlegum
verkefnum iðnfyrirtækja á sviði
vöruþróunar og útflutningstil-
rauna. í þessum niðurskurði á
framlögum til sjóðsins felst því
þversögn við þá yfirlýstu stefnu
ríkisstjórnarinnar, að hvetja til
nýsköpunar í atvinnulífinu.
4. Áformaðar breytingar á tollskrá
eru í meginatriðum til bóta.
Framkvæmdastjórn Landssam-
bands iðnaðarmanna mótmælir
hins vegar harðlega ráðagerðum
um stórfellda aukningu á skatt-
heimtu í formi nýs vörugjalds.
Vörugjald er í eðli sínu afar
órökræn skattheimta, þar sem
það leggst á suma vöruflokka en
aðra ekki og hefur þannig óeðli-
leg áhrif á neysluval almennings
og samkeppnisstöðu hlutaðeig-
andi framleiðenda. Þannig er
t.d. óviðunandi, ef leggja á vöru-
gjald á brauðmeti, sem er viður-
kennd hollustuvara, en jafn-
framt verði flest önnur matvæli
án vörugjalds hér eftir sem hing-
að til.
Landssamband iðnaðarmanna
minnir á samþykktir 41. Iðnþings
íslendinga, sem haldið var nýlega,
en þar kom m.a. fram, að við end-
urskoðun á óbeinum sköttum ríkis-
sjóðs væri nauðsynlegt að líta á þá
skatta í heild sinni, til þess að skatt-
heimtan getir orðið rökræn og
sanngjörn. í þessu felst m.a., að
breytingar á tollskrá, sem m.a. fela
eindregið í sér að dregið verði úr
mismunum milli atvinnugreina,
missa marks, ef þeim fylgir stór-
felld hækkun vörugjalds, sem
leggst á sumar vörur en aðrar ekki.
Málm- og skipa
smíða sambandið
ályktar:
Bankakerfið
er ófreskja
„Fundurinn telur, að ein af
stærstu ástæðunum fyrir því hvern-
ig komið er í vaxtamálum hús-
byggjenda og húskaupenda sé sú
staðreynd að bankakerfið er orðið
mikil ófreskja sem tekur til sín gíf-
urlegt fjármagn sem síðan fer í
beinan rekstrarkostanð."
Þessi ályktun var samþykkt á
sambandsstjórnarfundi Málm- og
skipasmíðasambandsins, sem hald-
inn var 15. og 16. þessa mánaðar.
Jólakort
samtaka
sykursjúkra
Samtök sykursjúkra á íslandi
hafa gefið út jólakort, sem eru til
sölu á skrifstofu samtakanna í
Reykjavík að Hverfisgötu 76, en
siminn er 23770 og í Söluturninum
Bræðraborgarstíg 29. Til sölu, auk
kortanna, eru bæði kerti og jóla-
pappír. Skrifstofa samtakanna er
opin á mánudögum kl. 17.00—
19.00.
Á þessu jólakorti Samtaka syk-
ursjúkra er mynd eftir málverki
Gísla Sigurðssonar, myndlistar-
manns og umsjónarmanns Lesbók-
ar Morgunblaðsins. Myndin er
máluð við ljóð Snorra Hjartar-
sonar, HAUST. Jólakveðjur á fjór-
um tungumálum eru á kortinu og
merkt er greinilega að þau séu seld
tii ágóða fyrir Samtök sykursjúkra
á íslandi.
Fjölbrautaskólinn
í Breiðholti
Umsóknir um skólavist í Dagskóla F.B. á vorönn
1986 skulu hafa borist skrifstofu skólans Austur-
bergi 5, fyrir 1. desember n.k.
Nýjar umsóknir um Kvöldskóla F.B. (öldunga-
deild) á vorönn 1986 skulu berast skrifstofu skól-
ans fyrir sama tíma.
Staðfesta skal fyrri umsóknir væntanlegra ný-
nema með símskeyti eða símtali við skrifstofu
F.B. sími 75600
Ath. þetta er siðasta innritunarvikan.
Skólameistari.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd Hita-
veitu Reykjavíkur, óskar eftir tilboöi I eftirfarandi:
1. Aðveituæð að kyndistöð við Réttarháls.
Tilboðin verða opnuð fimmtudaginn 5. desember n.k.
kl. 11.
2. Geymar á Öskjuhlíð holræsa og vatnslagnir.
Tilboðin verða opnuð miðvikudaginn 4. desember n.k.
kl. 11.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3. Reykjavík, gegn kr. 10.000.- skilatryggingu fyrir hvert
verk fyrir sig.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvogi 3 — Simi 25800
Happdrætti
Alþýðuflokksins
i p^ ';v-ípísí~«HörT'i: —I i
)'[. I l l ILI ‘. ~ |
1.-12. vinningur:
Fullkomin SHARP VC-481
myndbandstæki frá
Hljómbæ að verðmæti
43.900.- hvert
Heildarverðmæti
vinninga kr. 526.800.-.
Fjöldi miða 20.000.
Miðaverð kr. 150.-
Upplýsingar um vinninga
í síma 29244.
Vinninga skal vitja innan
eins árs.
Dregið 10. des. ’85.
SHARP
Alþýðuflokkurinn efnir nú til happdrættis. Dregið verður
10. desember n.k. og eru vinningar 10 myndbandstæki af
gerðinni Sharp VC-481. Heildarverðmæti vinninga er rösk-
lega 526 þúsund krónur, og er fjöldi miða 20 þúsund.
Alþýðuflokkurinn er nú að treysta innviði sína, auka út-
gáfu- ogfrœðslustarfog virkjafélaga sína til starfa. Tilgang-
urinn með happdrœttinu er auðvitað sá, að afla fjár til þess-
ara verka.
Fyrirfram eru fœrðar þakkir öllum þeim, sem taka þátt í
þessu happdrœtti, og styðja um leið baráttu jafnaðarmanna
fyrir betra og réttlátara þjóðfélagi.