Alþýðublaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 13. desember 1985
■ RITSTJ ÓRNARGREI ..............—
Nauðsyn eflingar þróunar-
aðstoðar íslendinga
Hjálparstofnun kirkjunnarhefur nú hafiö hina
árlegu jólasöfnun til hjálpar bágstöddu fólki í
fjarlægum löndum. Að þessu sinni verður saf n-
að fé til aðstoðar flóttamönnum frá Afganist-
an, sem dvelja í flóttamannabúðum í Pakistan,
og til að reisaog rekaheimili fyrirmunaðarlaus
börn I Eþíópíu. Og verkefnin eru enn fleiri inn-
anlands og utan.
Hjálparstofnunin og Rauði Krossinn hafa á
undanförnum árum unnið mikið og gott starf i
svokölluöum þróunarlöndum. Þessar stofnan-
ir hafa bætt mjög hlut íslendinga í þróunarað-
stoðinni, en hið opinbera framlag þjóðarinnar
hefurenn ekki náð því marki þjóðartekna, sem
aðildarríki Sameinuðu þjóðanna stefna nú að.
Hin frjálsu framlög íslendinga til þróunar-
verkefna hafa verið ótrúlega mikil. Ef miðað er
við höfðatöluna frægu er framlag á hvern íbúa
á ísiandi með því hæsta sem gerist I heimin-
um. Viðbrögð íslendinga til hjálpar bágstödd-
um þjóðum eru þeim til mikils sóma, og hefur
vlða vakið athygli.
Opinber þróunaraðstoð íslendinga hefur á
undanförnum árum verið bundin við einstök af-
mörkuð verkefni. Má í því sambandi nefna fisk-
veiðiverkefni á Grænhöfðaeyjum. En framlög
af opinberri hálfu hafa verið mjög takmörkuð,
og hafa störf Þróunarsamvinnustofnunar ís-
lands mjög mótast af fjárskorti.
w
A Alþingi íslendinga kemur þróunaraðstoð
sjaldan til umræðu, og skortir talsvert á að
stefna hafi verið mótuð í þeim málum. Framlög
til þróunarmála á fjárlögum hafa iðulega verið
skorin niður, og eru þau ekki í neinu samræmi
við framlög annarra Norðurlanda. En frjáls
samtök eins og Hjálparstofnun kirkjunnar og
Rauði Krossinn hafatalsvert bætt úrþvl metn-
aðarleysi, sem hér ríkir af opinberri hálfu í
þessum málaflokki.
Söfnun Hjálparstofnunar til aðstoðar við
flóttamenn frá Afganistan er vel við hæfi.
Barátta Afgana gegn sovéska hernum og
heimsvaldastefnu kommúnista hefur kostað
miklar fórnir. Miskunnarleysi sovéskra hersins
og grimmdarlegar baráttuaðferðir hafa valdið
miklu mannfalli í röðum þjóðfrelsishreyfingar
Afgana og milljónir manna hafa flúið land.
Þetta fólk býr við erfiðar aðstæður I Pakistan,
og er mikils virði að geta rétt því hjálparhönd.
— Þá er ekki síður mikilvægt það verkefni, að
reisa og reka búið fyrir munaðarlaus börn í
Eþíópíu. Eftir hungursneyðina hafafjölskyldur
flosnað upp, foreldrar dáið og munaðarleys-
ingjum hefur fjölgað gífurlega. íslenska hjúkr-
unarfólkið, sem starfaði í Eþíópíu annaðist
stóra hópa af munaðariausum börnum, og er
nauðsynlegt að framhald geti orðið á þvi starfi.
Mnnars eru verkefnin nær óteljandi; mestur
vandinn að velja og hafna. Meðal annars af
þeirri ástæðu væri mikils virði, að móta heild-
arstefnu I öllu hjálparstarfi íslendinga til að
tryggja að fjármagnið nýttist sem best. Aukið
samstarf Þróunarsamvinnustofnunar og Is-
lenskra hjálparstofnana er tlmabært.
Islendingar hafa sýnt og sannað að þeir eru
mikils megnugir á þessu sviði. Þeir búa yfir
þekkingu og reynslu, sem geturverið þróunar-
löndunum mjög dýrmæt.
Útvarpsrekstur launþegasamtakanna:
Tveir valkostir kynntir
verkalýðsfélögunum
Aó undanförnu hafa l'arið fram
(alsverðar umræður um hugsanlcg-
an úlvarpsrekstur Alþýðusam-
bands íslands í samvinnu við önnur
launþegasamtök og jafnvel SÍS.
Síðustu vikur hafa litlar fréttir bor-
ist af þessu máli.
Á fundi miðstjórnar ASÍ í jok
síðasta mánaðar var afstaða ASI til
málsins rædd. Fjölmiðlanefnd
lagði fram tvo valkosti til athugun-
ar og ákvað miðstjórnin að kanna
hug vcrkalýðsfélaga á höfuðborg-
arsvæðinu til þátttöku í slíkum
rekstri. Hugmyndir fjölmiðla-
nefndarinnar fara hér á eftir:
Fyrsti valkostur
Hlutafé félagsins verði 3.000.000,-
og skiptist þannig.
Fulltrúar fiskvinnslunnar í land-
inu lögðu fram í fyrradag tillögur
um brýnustu úrbætur til leiðrétt-
ingar á rekstrarskilyrðum fisk-
vinnslunnar. Þetta gerðist á fundi
með sjávarútvegsráðherra og full-
trúum annarra ráðherra.
Halldór Ásgrímsson, sjávarút-
vegsráöherra, kvaðst myndu leggja
þessar tillögur fyrir ríkisstjórnina,
en þær eru eftirfarandi:
Fiskvinnslan stendur frammi fyr-
ir svo brýnum vanda að nú þegar
verður að hefjast handa um að
bæta rekstrarskilyrði hennar. Sam-
tök fiskvinnslunnar ætla að nú sé
8%—9% tap á frystingu og tap hef-
ur verið á söltun á þessu ári. Vegna
þessarar alvarlegu stöðu telur fisk-
vinnslan að gripa verði til eftirfar-
andi aðgerða:
1. Viðskiptahallinn, hin geigvæn-
lega skuldasöfnun þjóðarinnar og
tapreksturinn í sjávarútvegi sýna að
gengi krónunnar er rangt skráð og í
ASI/MKA 20% 600,000,
BSKB 10% 300,000,
KKSÍ 7% 210,000,
BHM 7% 210,000,
SÍB 7% 210,000,
KBM 5% 150,000,
Samtals: 56% 1,680.000,
Aðildarfcl. ASÍ 15% 450,000,
Önnur aóildarfél 10% 300,000,
Aðrir aðilar 19% 580,000,
Samtals: 100% 3,000,000,
Heimilt verði að auka hlutaféð í
5—6,000,000^ með aðild SÍS.
í stofnskrá félagsins verði gert
ráð fyrir að það geti haft á hendi all
víðtæka fjöímiðlastarfsemi. Fyrsta
verkefni þess verði að stofna og
raun þegar fallið. Við nauðsynlega
leiðréttingu á gengi krónunnar
verður að grípa til allra mögulegra
ráðstafana til þess að slíkt leiði til
varanlegra breytinga á hlutföllum
milli tekna og kostnaðar í sjávarút-
vegi. Hér skiptir fyrst og fremst
máli að stöðva innstreymi af er-
lendu lánsfé og beita ströngu að-
haldi í peninga- og lánsfjármálum.
2. Leitað verði allra mögulegra leiða
til lækkunar á fjármagnskostnaði
og leiðréttingar á starfsaðferðum
og álögum bankanna. Frá 30. júní
sl. hefur bandaríkjadollar lækkað
um 7%—8% gagnvart SDR og um
10°7o—11% frá síðustu áramótum.
Samkvæmt lauslegri athugun hefur
fiskvinnslan tapað 300—400 mill-
jónum króna á þessu misgengi. í
ljósi þess að fiskvinnslan setti þegar
við kerfisbreytingu afurðalánanna
1984 fram þá kröfu að þau mætti
taka í fleiri myntum en SDR, þá fer
fiskvinnslan fram á það að bank-
arnir endurgreiði henni nú það
reka grenndarútvarp tyrir Reykja-
víkursvæðið.
Hlutverk félagsins verði jafn-
framt að veita hugsanlegum smá-
stöðvum sem verkalýðsfélög eiga
aðila að, þjónustu sina. Hér getur
verið um að ræða ráðgjöf, fram-
leiðslu og dreifingu efnis og hugs-
anlega eignaraðild síðar ef hagnað-
ur yrði af rekstrinum. Honum
mætti þá ráðstafa til fjárfestinga I
slíkum stöðvum.
Annar valkostur
Stofnað verði hlutafélag með
2,000,000r kr. hlutafé, sem skiptist
þannig. ASÍ/MKA 32 % 640,000r
BSRB 20,5% 410,000r
KKSÍ 12,5% 250,000r
BHM 12,5% 250,000r
SÍB 12,5% 250,000r
KBM 10,5% 200,000,
Samtals: 100% 2,000,000r
Félagið yrði fjárfestingar- og
þjónustufélag í fjölmiðlum. Heim-
ilt verði að auka hlutafé félagsins
gengistap sem hún hefur orðið að
þola vegna seinagangs bankanna í
þessu máli.
3. Fiskvinnslunni verði framvegis
endurgreidd uppsöfnun á sölu-
skatti, þ.e. að núverandi fyrirkomu-
lagi verði breytt og í stað þess að
þetta fjármagn renni til Aflatrygg-
ingasjóðs verði um beinar endur-
greiðslur að ræða til fiskvinnslufyr-
irtækjanna. Þetta verði bundið í
löggjöf.
4. Áætlanir um fjármagnskostnað í
opinberum áætlunum um rekstrar-
skilyrði fiskvinnslunnar verði end-
urskoðaðar og þessi kostnaður
færður til samræmis við raunveru-
leikann. Athuganir á vegum fisk-
vinnslufyrirtækjanna benda til þess
að fjármagnskostnaður sé vanmet-
inn um 5% af tekjum.
5. Þegar verði hafist handa um að
heimila fiskvinnslunni að annast
afurðalánaviðskiptin án milligöngu
viðskiptabankanna.
um 1—2,000,000r með aðild SIS.
Fyrsta verkefni þess yrði að beita
sér fyrir stofnun og rekstri grennd-
arútvarps í Reykjavík. Um það yrði
stofnað sérstakt hlutafélag.
Hlutafé í félaginu um grenndar-
útvarp gæti þá skipst þannig:
Króði hf. 33% 990,000r
Aðildarfclög 52% l,560,000r
Aðrir 15% 450,000,
Samtals: 100% 3,000,000,
Sé þessi kostur valinn yrði hlut-
verk Fróða hf. að beita sér fyrir
samstarfi um að koma á fót grennd-
Fimmtán unglingar frá íslandi,
Danmörku, Færeyjum, Grænlandi,
Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og
Álandseyjum hittust í Lundi dag-
ana 8. til 10. desember. Tilgangur
fundarins, sem Norðurlandaráð
bauð til, var að unglingarnir kynnt-
ust norrænu samstarfi og hverjir
öðrum. Einnig tóku þátt í fundin-
um fulltrúar norrænna æskulýðs-
samtaka og skólafólk búsett í
Lundi. Með fundi unglinganna
lauk kynningarherferð Norður-
landaráðs á norrænu samstarfi,
sem staðið hefur í tvö ár.
í tengslum við kynningarherferð-
ina efndi Norðurlandaráð m.a. til
ritgerðarsamkeppni meðal ungs
fólks um norrænt samstarf. Þeim
arstöðvum. Félagið veitti ákveðna
þjónustu og gerðist meðeigandi að
þeim stöðvum þar sem slíkt reyndist
nauðsynlegt. Yrði hagnaður af fjár-
festingum félagsins mætti nota
hann til frekari fjárfestingar á sviði
fjölmiðlunar.
Hvaða leið sem valin verður er
eðlilegt að reikna með að eignar-
hlutur Alþýðusambandsins skiptist
á milli ASÍ og MFA. Er í því sam-
bandi vert að vekja athygli á að nú
þegar er búið að vinna verulegt
undirbúningsstarf sem eðlilegt er
að verðleggja inn í nýtt hlutafélag.
Hafa báðar stofnanirnar staðið
straum af þeim kostnaði.
unglingum, sem hlutskarpastir
voru í ritgerðarsamkeppninni, var
boðið til fundarins í Lundi. ís-
lensku unglingarnir, sem þangað
fóru, eru Valgerður María Gunn-
arsdóttir, nemandi í Menntaskóla
Akureyrar og Höskuldur Ari
Hauksson, nemandi í Menntaskól-
anum í Reykjavík, en ritgerðir
þeirra höfðu verið valdar úr þeim
ritgerðum, sem bárust frá íslandi,
til birtingar.
Þau eru bæði 16 ára
Ritgerðirnar fimmtán birtast í
fjórða hefti tímarits Norrænu fél-
aganna, „Vi i Norden“, sem kemur
út í byrjun desember. íslensku rit-
gerðirnar tvær birtast auk þess í
jólablaði Norræna félagsins,
„Norræn Jól“.
^egar komið er af vegum með^
bundnu slitlagi tekur tíma
að venjast breyttum aðstæðum
( { l FÖRUM VARLEGA!
Fulltrúar fiskvinnslunnar leggja fram tillögur:
Gengið er rangt skráð
og í raun þegar falliðu
15 unglingar frá Norður-
löndum til fundar í Lundi