Alþýðublaðið - 13.12.1985, Blaðsíða 3
Föstudagur 13. desember 1985
3
Alfoert Guömundsson:
„Þessi skattur skal
falla niður eins og
lofað hefur verið
I lok júni kom Albert Guð-
mundsson, þá fjármálaráð-
herra, á fund hjá fulltrúaráði
Kaupmannasamtaka islands.
i ræðu sinni gerði hann grein
fyrir horfum i þjóðarbúskapn-
um. Lýsti hann þvi hvernig búi
núverandi rikisstjórn tók við
og var það ófögur lýsing.
Lagði Albert áherslu á aö
hemja yrði verðbólguna og
lagði höfuðáherslu á að þjóð-
artekjur þyrftu að aukast auk
þess sem sparnaður yrði gætt
áöllum sviðum.
Albert gat þess að almennir
skattar hefðu lækkað, eins og
lofað hefði veriö. Þá ræddi
hann um þann miklafrumskóg
sem söluskattskerfið er orðið,
og þær þreytingar sem rætt er
um yfir i virðisaukaskatt.
I máli Alberts kom fram að
söluskatturinn er nú um
35—40% af heildarskatt-
heimtu rikisins. Þá ræddi ráð-
herrann um ný tollalög og
tollskrá og nýgerða kjara-
samninga. Samkvæmt ný-
gerðri tollskrá, sem enn er
ekki komin til framkvæmda er
fyrirhugað að hæstu tollar fari
Úr80—90% niðuri 40%.
Margar fyrirspurnir bárust
ráðherranum og var þeim
svaraö jafnóðum. Sigurður E.
Haraldsson spurðist fyrir um
virðisaukaskattinn og þá
miklu vinnu sem honum yrði
samfara fyrir kaupmenn. i þvi
sambandi spurði hann hvort
mögulegt væri að fá breytingu
á skilum söluskatts með
hliðsjón af skilum kortafyrir-
tækja. Einnig spurðist Sigurð-
urfyrir um horfur á samkomu-
lagi um kaup og kjarasamn-
ingaviðBSRB.
Albert sagði að hann væri
vohgóöur um samkomulag við
BSRB, sem yrði nokkuð i takt
við ASÍ-samningana. Virðis-
aukaskatturinn sagði Albert
aö ætti ekki að verða dýrari
fyrir innheimtuaðilana. Um
söluskattsskil með tilliti til
skila kreditkortafyrirtækjanna
sagði ráðherrann að það þyrfti
til lagabreytingu. Álbert sagði
að hann hefði viljað umræður i
Alþingi um virðisaukaskattinn
til að fá samþykki eða synjun.
Nauðsynlegt væri að islend-
ingar væru samstiga öðrum
þjóðum og samlöguðust pen-
ingakerfi heimsins.
Gunnar Snorrason þakkaði
ráðherranum fyrir að standa
vörð um að hækka ekki skatt-
ana. Spurði hann hvort ekki
18
væri vænlegra að lækka sölu-
skattinn en leggja hann á allar
vörur, fremur en að taka upp
virðisaukaskatt. Ennfremur
spurði hann Albert hvort hann
teldi ekki að kreditkortahafar
greiddu kostnaðinn af við-
skiptum sinum. Magnús E.
Finnsson spurði um skatt af
verslunarhúsnæði og hvenær
sá skattur yrði lagður niður.
Einnig spurði hann um álagn-
ingu tókbaks, en lofað var á
sinum tima að hún yrðí 15%,
en er nú ákveðin 13%.
Albert Guðmundsson sagði
að skattar af skrifstofu og
verslunarhúsnæði hafi ekki
verið hækkaðir, en áður búið
að lækka þá um 0,25%. Varð-
andi söluskattinn sagði ráð-
herra að tillögur um uppstokk-
un hans væru ekki tilbúnar. Þó
hefði það komið fram að yrðu
allar vörur settar undir sölu-
skattinn, yrði söluskattsstigið
þó að vera ca. 20—21 % til að
ná núverandi tekjum i rikis-
kassann. Kreditkortaspurn-
ingunni svaraði ráðherra á
þann veg að þar væri um að
ræða samkomulag kortafyrir-
tækja og þeirra sem kortin
taka. Albert sagði að rétt væri
hjá Magnúsi E. Finnssyni að
bráðabirgðaskattar yrðu oft
langlifir. „En það skal standa
að bessi skattur fellur niður
eins og lofað hefur verið'1.
sagði Albert Guðmundsson
og átti þar við skatt af versl-
unarhúsnæði.
Steinar S. Waage spurði
hvort ráðuneytið mundi sam-
þykkja að kaupmenn fengju
leyfi til að samþykkja erlenda
vixla. KolPeinn Kristinsson
ræddi um ýmisiegt sem snýr
að verslun á landsþyggðinni,
m.a. hringamyndunini og þeirri
sérstöðu sem fyrirtæki úti á
landi búa við. Björn Guð-
mundsson spurðist fyrir um
erlenda víxla. Ingvi Ingvason
9 9
ræddi um vörugjaldiö, sem
hækkað hefur úr 3% i 30% og
hvort hægt væri að fá skyn-
samlegri og þægilegri með-
ferð á aukasporslum.
Albert Guðmundsson sagði
að rikið mætti ekki tapa toll-
tekjum. Hinsvegar hefði hann
viljað lækka álagningargrunn-
inn til að það mætti verka á
hækkun kaupmáttar. Það
hefði getað þýtt 30—35%
aukningu á veltu, en þetta mál
hefði ekki komist i gegn. i
sambandi við erlenda vixla
sagði ráðherrann að hann
vildi láta stimpilskyldu banka
falla niður og að þeir sem nytu
trausts i viðskiptum mættu
njóta þess með þvi að sam-
þykkja erlenda vixla. Varðandi
hringamyndanir sagði ráð-
herrann að lög um hringa-
myndun hefði verið mótmælt.
Fundurinn var allur hinn
fjörlegasti og gagnlegur fyrir
þá sem hannsátu.
VERSLUNARTÍÐINDI
Skatt al ækkunar—1 o forð
Frá Borgarskipulagi:
SkrifstofurBorgarskipulags Reykjavíkureru flutt-
ar úr Þverholti 15 í Borgartún 3, 3. hæð, gegnt
Skúlatúni 2.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
Frá menntamálaráðuneytinu:
Staða kennara í tölvufræðum við Menntaskólann við
Hamrahllð er laus frá næstu áramótum. Til greina kem-
ur hlutastarf eða stundakennsla. Ennfremur vantar
kennara í efnafræði frá sama tíma.
Upplýsingar veitir rektor Menntaskólans við Hamra-
hlíð.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf sendist menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
101 Reykjavík fyrir 20. desember.
Menntamálaráðuneytið.
Auglýsing
frá Sjónminjasafnsnefnd
Sjónminjasafnsnefnd vill ráða mann til að setja upp
Sjónminjasafn (slands ( húsakynnum þess í Hafnar-
firði. Verkið verður unnið undir umsjá þjóðminjavarðar
og í samráði við arkitekt safnsins. Umsækjendur skulu
tilgreina menntun og fyrri störf. Umsóknir eiga að ber-
ast formanni Sjónminjasafnsnefndar, Gils Guðmunds-
syni, Laufásvegi 64 í Reykjavík, fyrir 15. janúar 1986.
10. desember 1985.
Sjónminjasafnsnefnd.
Útboð
Lóð og hús til sölu
Kauptilboð óskast f eftirfarandi eignir.
Skútuvogur 7, Reykjavík, grunnbygging að iðnaðarhús-
næði, þ.e. sökklarog steypt plataað hluta, 43002. Stærð
lóðar er 11.155 m2.
Kópavogsbraut 9, Kópavogi, einlyft steinhús með risi
og bílskúr. Brunabótamat kr. 3.407.000,- Stærð húss
285 m3 til sýnis.föstudaginn 13. des. og laugardaginn
14. des. kl. 13—15:00.
Tilboðseyðublöð liggja frammi í ofangreindri húseign
og á skrifstofu vorri i Borgartúni 7, Reykjavík. Tilboð
verða opnuð kl. 11:00, föstudaginn 20. desember 1985,
í Borgartúni 7, Reykjavík.
INNKAUPASTOFNUN RIKÍSINS
Borgartuni 7, simi 25844
Sj álf stæðisflokksins!
Fyrir síðustu kosningar lofuðu þeir til valda myndu þeir lækka
Sjálfstæðismenn því, að kæmust skatta af öllu tagi. Minnisstæðar
Auglýsing frá Borgarskipulagi
Kvosin ’85.
Teikningarog líkan af skipulagstillögunni eru til
sýnis ( Byggingarþjónustunni, Hallveigarstíg 1,
frá kl. 10.00—18.00, alla virka daga.
Fulltrúar Borgarskipulags og hönnuða verða til
staðar á miðvikudögum kl. 16.00—18.00.
Borgarskipulag Reykjavíkur.
FÉLAGSSTARF
ALÞÝOUFLOKKSINS
Fulltrúaráð Alþýðuflokksfélaganna
í Reykjavík
Fundur
Verður haldinn þriðjudaginn 17. desember nk. kl. 20.30
( Félagsmiðstöð Jafnaðarmanna, Alþýðuhúsinu v/
Hverfisnötu. Á dagskrá er tillaga um prófkjör vegna
næstu borgarstjórnarkosninga.
Stjórnin.
eru yfirlýsingar Gunnars G.
Schram um tekjuskatt og niðurfell-
ingu hans og heitstrengingar
flokksins í heild um það mál. Fyrir-
hugaðar tekjuskattslækkanir á
næsta ári eru að engu orðnar.
í viðtali við Verslunartíðindi fyrir
nokkrum mánuðum sagði Albert
Guðmundsson orðrétt, þegar hann
var spurður um skatta af verslunar-
og skrifstofuhúsnæði: „En það
skal standa að þessi skattur fellur
niður, eins og lofað hefur verið“, j
sagði Albert Guðmundsson, og átti
þar við skatt af verslunarhúsnæði".
Nú liggur fyrir stjórnarfrumvarp
um framlengingu á þessum skatti.
Hann verður því ekki felldur niður.
Án efa hefur Albert reynt að standa
við þetta loforð, en ekki fengið
áheyrn eða undirtektir hjá flokks-
bræðrum.
Þannig hefur Sjálfstæðisflokk-
urinn svikið hvert lækkunar og nið-
urfellingarloforðið á fætur öðru.
FÓLKÁFERÐ!
Þegar fjölskyldan ferðast
er mikilvægt
að hver sé á sínum stað
— með beltið spennt.
J
||UMFERÐAR
Prað
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavlkurborgar óskar eftir tilboö-
um I eftirfarandi fyrir Rafmagnsveitu Reykjavikur:
1. Vöru- og fólkslyftu ásamt uppsetningu ( viöbygg-
ingu Rafmagnsveitunnar aö Ármúla31 Reykjavlk.
Tilboðin verða opnuð þriðjudaginn 21. janúar 1986
kl. 11.
2. Lyftukrana, 1,6 tonn.
Tilboðin verðaopnuð miðvikudaginn 22. janúar 1986 kl.
-11.
3. Lokubúnað og uppsetningu hans í Árbæjarstiflu i
Elliðaám.
Tilboðin verða opnuö þriðjudaginn 28. janúar 1986
kl. 11.
Skilatrygging kr. 10.000,-
Útboðsgögn eru afhent áskrifstofu vorri, Fríkirkjuvegi
3, Reykjavik og verða þau opnuð þar að ofangreindum
tíma.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvogi 3 — Simi 25800 .
t
Elskuleg móðirokkar, tengdamóðir, amma
og langamma
Sigríöur Guömundsdóttir
frá Bolungarvík
verður jarðsungin frá Akraness kirkju
laugardaginn 14. des. kl. 11.30. Þeirsem
vilja minnast hennar er bent á iiknarstofnanir.
Börn, tengdabörn, ömmu og langömmubörn.