Alþýðublaðið - 25.01.1986, Page 2
2
Laugardagur 25. janúar 1986
'RITSTJQRNARGREIN'
Við hefðum kannski átt
að fagna í hljóði?
Lítið dregur úr vanda þeirra húsbyggjenda, sem
skulda stóru skammtímalánin ( bönkunum. Lánin
bara hækka og hækka þótt greitt sé reglulega á
gjalddögum, og skuldin verður æ stærra htutfall af
verðmæti eignarinnar, sem keypt var fyrir lániö.
Skuldarar ferðast um ( svartnætti, þeir sjá hvergi
vonarglætu.
Stjórnmálamennirnir hafa svikiö þá. Það gagnar lít-
ið þótt þingmenn Alþýðuflokksins leggi fram tillög-
uráþingi. Þæreru ekki teknartil greina. Alvarlegust
eru svik fjármálaráðherra og forsætisráðherra, sem
hafa lofaö umbótum. Mark var tekið á orðum þeirra.
Þeir töluðu I krafti embættis og valda. Loforðum
þeirra var fagnað. Alþýðublaðið notaði forsiðuleið-
ara til að gleðjast fyrir hönd húsbyggjenda, þegar
fjármálaráðherra sagði styrkri röddu, að hann myndi
beita sér fyrir lengingu bankalána og jafnvel niður-
fellingu verðtryggingar á skammttmalánum.
Kannski hefði Alþýðublaöiö og húsbyggjendur átt
að fagna i hljóði. En reynslan sýnir, að jafnvel ráð-
herrar gangaá bak orða sinna. Fráfjármálaráðherra
hefur hvorki heyrst hósti né stuna frá því að „yfirlýs-
ing ársins“ var gefin. Húsbyggjendur hafa gengið á
hans fund og spurt um efndir. Svörin: Málið er I
vinnslu.
Hverjumáþettafólkaðtreystaog til hverraað leita.
Þaö er ekki að undra þótt þessi þrautpíndi þjóðfé-
lagshópur, sem nú heldur uppi vaxtagreiðslum
bankakerfisins til fjármagnseigenda, verði stóryrt-
ur, þegar hann er spurður um gang mála.
■ ■
Ogmundur Jónasson, einn af forystumönnum Sig-
túnshópsins, segir i viðtali við Alþýöublaöið I gær:
„Þetta er nú svo ótrúlegur mannskapur, að ég veit
ekki lengur hvað maður á að halda. Ef stjórnmála-
menn ætlast til að þeir séu teknir alvarlega, þá er
frumskilyrði að þeir taki sig alvarlega sjálfir — og ég
er satt að segja farinn að efast um að þeir geri það.“
Er nema von að maðurinn taki svo til orða.
Ogmundursegir, að þæraðgerðir, sem þegarhefur
verið gripið til, hafi ekki skilað húsbyggjendum eða
ibúöakaupendum neinu i raun. Hækkanir, sem
hefðu valdið hækkunum á lánskjaravfsitölu, hefur
gert þær að engu. Sfðan segir hann orðrétt: „Ég geri
ráð fyrir að við förum að gera meiri greinarmun á
stjórnmálamönnum en við höfum gert hingað til.
Við höfum fram að þessu ekki gert upp á miili stjórn-
málamanna. En ég held að við þurfum að fara að
gera greinarmun á þvf að hvaða stjórnmálamenn eru
meðokkurog hverjirámóti — og bendafólki á það.“
Hér kemur Ögmundur að veigamiklu grundvallar-
atriði f isiensku þjóðlifi. Hverjir eru með okkur og
hverjir á móti? íslenskir kjósendur hafa mikið vald.
Alltof stór hópur kýs af gömlum vana, og kýs þá
stundum fulltrúa flokka, sem ganga beinllnis gegn
hagsmunum þeirra. Þetta gildir til dæmis um þá
launþega, sem áreftirár IjáSjálfstæðisflokknum at-
kvæði sitt. Ef fjármálaráðherra stendur ekki við
stóru orðin sin um aðstoö við húsbyggjendur, verður
hann sannanlega ber að svikum. En lengi skal
manninn reynaog vonandi komaeinhverjarúrbætur.
En eina mikilvæga ályktun má draga af þessu máli,
eins og svo mörgum örðum: Af verkunum skuluð þið
meta þá! íslensk alþýðaverður senn að átta sig á þvi
hverjir standa með henni og hverjir á móti.
Evrópuráðsstyrkir
Evrópuráð veitir styrki til kynnisdvalar erlendis á
árinu 1987 fyrir fólk sem starfar á ýmsum sviðum
félagsmála.
Upplýsingar og umsóknareyðublöð fást I félags-
málaráðuneytinu.
Umsóknarfrestur er ti! 15. febrúar n.k.
Félagsmálaráðuneytið,
8. janúar 1985.
fniAUSARStSÖURHJÁ
J REYKJAVIKURBORG
Reykjavikurborg vill ráða starfsmenn til eftirtalins
starfs. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Mælaálesara fyrir Hitaveitu Reykjavikur. Verksvið
þeirra yrði álestur af mælum Hitaveitunnar vegna
eftirlits með ástandi mælanna, og vegna athug-
anaáinnheimtukerfi Hitaveitu Reykjavlkur.Starfs-
menn þurfaað leggjatil bifreið. Upplýsingar gefur
Eysteinn Jónsson I sfma 82400.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublööum sem þar fást, fyrir kl. 16:00 mánu-
daginn 3. febrúar 1986.
flAUSAR STÖÐUR HJÁ
J REYKJAVÍKURBORG
Reykjavlkurborg vill ráða starfsfólk til eftirtalinna
starfa. Starfskjör samkvæmt kjarasamningum.
• Bókasafnsfræðingar — Bókaverðir við Borgar-
bókasafn Reykjavikur (m.a. stöður i hinu nýja úti-
búi f Gerðubergi). Upplýsingar veittar á skristofu
Borgarbókasafns I sima 27155.
Umsóknum ber að skila til Starfsmannahalds Reykja-
víkurborgar, Pósthússtræti 9, 6. hæð á sérstökum um-
sóknareyðublöðum sem þar fást fyrir kl. 16:00 mánu-
daginn 3. febrúar 1986.
FÉLAGSSTARF
Alþýðuflokksfélag
Akraness
Félagsfundur verður i Röst þriðjudaginn 28. jan.
kl. 20.30.
Fundarefni:
1. Undirbúningur bæjarstjórnarkosninga 1986.
2. Bæjarmál, framsaga Guömundur Vésteinsson.
Stjórnin.
Ólafur A.
Kristjánsson
Fæddur 25.júlí 1904
Dáinn 16.janúar 1986
Ólafur A. Kristjánsson fyrrum
bæjargjaldkeri í Hafnarfirði var
jarðsettur í gær. Með Ólafi er geng-
inn traustur jafnaðarmaður. Það er
skarð fyrir skildi.
Allt frá því að Ólafur Kristjáns-
son flutti til Hafnarfjarðar og gerð-
ist starfsmaður hjá fiskvinnslu- og
útgerðarfyrirtæki Jóns Gíslasonar
og síðar sem bæjargjaldkeri í Hafn-
arfirði tók hann virkan þátt i starfi
Alþýðuflokksins í Hafnarfirði.
Ólafur gegndi trúnaðarstörfum
fyrir Alþýðuflokkinn og skilaði
þeim með mikilli prýði.
í hinum mikilvægu störfum sín-
um fyrir Hafnarfjarðarbæ naut
Ólafur virðingar og vinsælda, enda
þótt bæjargjaldkerastarf í bæjar-
félagi sé oft erilsamt og verkefnin
ekki öll á þann veg að vinsældir
hljótist af. Hann var hægur maður
og prúður, en jafnframt hlýr og
brosmildur. Það leið engum illa í
návist Ólafs bæjargjaldkera, eins
og hann var gjarnan nefndur í tali
manna á milli, enda hann hverjum
manni góðviljaður og vildi götu
ailra greiða.
Það var engin tilviljun að Al-
þýðuflokkurinn í Hafnarfirði hafði
þar forystu um bæjarmál um ára-
tuga skeið. Það stafaði m.a. af því
að flokkurinn hafði á dugmiklum
og drífandi forystumönnum skipa
og ekki síður góðum og gegnum
bakhjörlum, sem voru kjölfestan í
starfi flokksins. Ólafur A.
Útboð
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar fyrir hönd Raf-
magnsveitu Reykjavíkur óskar eftir tilboðum i götu-
Ijósaperur.
Utboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frfkirkjuvegi
3, Reykjavík.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn 5.
mars n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Utboð
Innkaupastofnun Reykjavikurborgar fyrir hönd Hita-
veitu Reykjavlkur, óskareftirtilboðum í byggingu dælu-
stöðvar við Réttarháls.
Full stærð húss um 700 m3.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi
3, Reykjavfk, gegn kr. 15.000.- skilatryggingu.
Tilboðin verðaopnuð ásamastað fimmtudaginn 6. feb.
n.k. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800
Verkamannafélagið
Hlíf, Hafnarfirði
Tillögur uppstillingarnefndar og trúnaöarráðs Verkamanna-
félagsins Hllfar, um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins
fyrirárið 1986, liggjaframmi áskrifstofu félagsinsfráog með
mánudeginum 27. jan.
Öðrum tillögum ber að skila á skrifstofu Hllfar Reykjavlkur-
vegi 64, fyrir kl, 17 fimmtudaginn 30. jan. 1986 og er þá fram-
boðsfrestur útrunninn.
Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlífar.
Kristjánsson var slík kjölfesta.
Hann var mikilvægur hlekkur í
sterkri keðju hugsjónamanna, sem
áttuðu sig á nauðsyn þess að hug-
sjónir jafnaðarstefnunnar væru
ráðandi í samfélagi okkar. Og hug-
heil barátta þessarar kynslóðar fyr-
ir framgangi lífsstefnunnar, fyrir
frelsi, jafnrétti og bræðralagi, er
yngri kynslóðum hvati til að láta
aldrei deigan síga í baráttunni.
Menn eins og Ólafur A. Kristjáns-
son störfuðu af þeim eldmóði sem
einkennir hugsjónamenn. Þeirra
laun voru að sjá drauma og stefnu-
mið rætast. Óg mörgum málum
miðaði áfram, þótt baráttunni verði
aldrei lokið.
Á kveðjustund þakka Alþýðu-
flokksmenn í Hafnarfirði Ólafi A.
Kristjánssyni fyrir samstarfið og
samfylgdina.
Jafnaðarmenn í Hafnarfirði
senda eiginkonu Ólafs, Sigurborgu
Oddsdóttur og fjölskyldu, hugheil-
ar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Ólafs A.
Kristjánssonar fyrrum bæjargjald-
kera í Hafnarfirði.
Guðmundur Árni Stefánsson.
Sígaunar 4
"i"
Mustafa Mehmedovic, er frá bæn-
um Maribor, sem er fjallaþorp í
norðurhluta Júgóslavíu, rétt við
landamæri Austurríkis. Sennilegt
er að fólksflutningarnir hafi að
mestu leyti átt sér stað um Austur-
ríki, að sögn ítölsku lögreglunnar.
Landamærin eru í fjalllendi og
margir dalir og dalskorur gera það
auðvelt að komast framhjá landa-
mæravörðum. Eftir það er leiðin
greið. Mikill straumur ferðafólks
liggur á milli Austurríkis og Ítalíu
og þar er sjaldan nákvæmt eftirlit.
Mjög mikið er um júgóslavneska
sígauna í Napólí og nágrenni. Fyrir
skemmstu urðu vegfarendur varir
við hóp ungra sígauna í byrgi í út-
jaðri bæjarins og gerðu lögreglunni
viðvart. En þegar lögreglan kom á
staðinn voru þeir á bak og burt. Oft
kemur það fyrir að lögreglan finnur
yfirgefin sígaunabörn frá Júgó-
slavíu á þessum sömu slóðum, en
erfiðlega hefur reynst að koma
þeim til skila, sem vonlegt er ef
þeim hefur verið rænt og þau flutt
burt um langan veg frá heimkynn-
um sínum.
Prófkjör
Prófkjör Alþýðuflokksins
vegna Borgarstjórnarkosn-
inga 1986 fer fram 1. og 2.
febrúar nk.
Kjörstaðir verða auglýstir
siðar.
Stjórn fulltrúaráðs Alþýðu-
fiokksfélaganna i Reykjavík.