Alþýðublaðið - 17.04.1986, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 17.04.1986, Qupperneq 3
Fimmtudagur 17. apríl 1986 3 Slysavarnaskóli á sjó fær gjöf Stjórn Farmanna- og fiskimannasambands Islands ákvað nýverið á fundi sínum að afhenda_slysavarnafélagi íslands kr. 250 þúsund til Slysavarnaskóla sjómanna, sem verið er að koma á fót í v/s Þór. Þar um borð er unnið að ýmsum breytingum til að skapa sem besta aðstöðu bœði til bóklegrar kennslu og verk- legrar þjálfunar er lýtur að öryggismálum sjómanna. íbyrjun maí n. k. er ráð fyrir gert að nauðsynlegum breytingum verði lokið um borð í skipinu þannig, að nám- skeið um öryggismál sjómanna geti farið þar fram. Fulltrúar FFSÍafhenda gjöfina. T. v. Helgi Laxdal, Guðjón A. Kristjánsson forseti FFSÍ, Haraldur Henrysson forseti SVFÍog Haraldur S. Holsvík. Listamenn: Starfslaunum úthlutað Fjörutíu listamenn hlutu starfs- laun listamanna í ár, en alls sóttu 120 manns um þessi iaun. Starfs- launin miðast við byrjunarlaun menntaskólakennara og slarfstim- ann þrjá til tólf mánuði, en að þessu sinni voru ríflega fjórar og ítölsku vínin: Að gefnu tilefni vill Hollustu- vernd ríkisins taka fram eftirfar- andi vegna sölu ítalskra vína hér á landi: Stofnunin er í stöðugu sambandi við heilbrigðiseftirlit á Norður- löndum umniðurstöður afathugun- um sem þar hafa verið gerðar á ítölskum vínum með tilliti til þess hvort í þeim geti leynst metanol. Samkvæmt þeim gögnum sem hafa borist er ekki ástæða til að ætla að hér á markaði séu gallaðar víntegundir. Á Norðurlöndum hefur metanol fundist í víni í Danmörku sem var flutt þangað í geymum frá Ítalíu. Sú vitneskja lá fyrir áður en tappa átti víninu á flöskur þar. Dreifing á ítölskum vínum var stöðvuð í Danmörku nema fyrir lægju rannsóknarniðurstöður sem sýndu að vínið væri ógallað. Ein af megin ástæðum þessarar ákvörð- unar er sú að dreifing og sölufyrir- komulag á vínum er með allt öðrum hætti í Danmörku en á hinum Norðurlöndunum, þar sem ríkis- fyrirtæki hafa einkasölu. Hollustuvernd ríkisins og heil- brigðiseftirlit Reykjavíkursvæðis, sem er eftirlitsaðili með áfengi, sem og annarri neysluvöru á svæðinu, hafa verið í sambandi við Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins um mál þetta. Upplýst er að ekki er flutt inn vín frá Italíu til íslands, nema átappað á flöskum. Ennfremur að búið er að setja í rannsókn allar tegundir ítalskra vína, sem hér eru á mark- hálf milljón króna til úthlutunar. Starfslaun hlutu: 12 mánaða laun: Haukur J. Gunnarsson, leik- stjóri. Jóhanna Kristín Yngvadótt- ir, myndlistarmaður. 6 mánaða laun: Nína Gautadóttir, myndlist- armaður. Sigurlaug Jóhannesdótt- aði. Munu niðurstöður af þeim rannsóknum liggja fyrir eftir helgi. Þá hefur verið framkvæmt eftir- lit í birgðageymslu Á.T.V.R., af hálfu heilbrigðiseftirlits Reykjavík- ursvæðis og ekkert fundist þar at- hugavert. Með hliðsjón af ofanrituðu og þeim upplýsingum og gögnum sem fyrir liggja í málinu, hefur heil- brigðiseftirlitið ekki séð ástæðu til að stöðva sölu ítalskra vína hér á landi. Boðað er til dagskrár og sýningar um skólasöfn á vegum fræðslu- stjóra Reykjanesumdæmis vikuna 21.—25. apríl næstkomandi. Er sýningin opin þessa viku að Lyngási 11, Garðabæ, og ætluð öll- um sem áhuga hafa á góðum skóla. Með dagskránni er höfðað til skóla- stjórnenda/kennara skólasafn- varða svo og skólanefndarmanna, sveitarstjórnarmanna og foreldra. Verkstæðisvinna fer fram á föstudegi, 25. apríl. Skólasöfn eru opin á þriðjudag og miðvikudag. Fyrirlestrar — erindi og pallborðs- umræður hefjast kl. 15.00, 21., 22. og 23. apríl. Með nútíma kennslu er leitast við ir, myndlistarmaður. Sóley Eiriks- dóttir, myndlistarmaður. Stein- grímur E. Kristmundsson, mynd- listarmaður. Jóhannes Helgi, rit- höfundur. Stefanía Þorgrímsdóttir, rithöfundur. Sigrún Hjálmtýsdótt- ir, söngkona. 3 mánaða laun: Ásdís Sigurþórsdóttir, myndlistarmaður. Ásgerður Búadóttir, myndlistar- maður. Guðmundur Thoroddsen, myndlistarmaður. Guðrún Svava Svavarsdóttir, myndlistarmaður. Halldór Ásgeirsson, myndlistar- maður. Hallgrímur Helgason, myndlistarmaður. Haraldur Ingi Haraldsson, myndlistarmaður. Haukur Dór, myndlistarmaður. Helgi Þorgils Friðjónsson, mynd- listarmaður. Jónína Guðnadóttir, myndlistarmaður. Kristján Guð- mundsson, myndlistarmaður. Kristján Steingrímur Jónsson, myndlistarmaður. Lísbet Sveins- dóttir, myndlistarmaður. Sigrún Eldjárn, myndlistarmaður. Sigurð- ur Þórir Sigurðsson, myndlistar- maður. Svala Sigurleifsdóttir, myndlistarmaður. Sverrir Ólafs- son, myndlistarmaður. Þór Vigfús- son, myndlistarmaður. Þórður Hall, myndlistarmaður. Þuríður Fannberg (Rúrí), myndlistarmaður. Örn Þorsteinsson, myndlistarmað- ur. Glúmur Gylfason, tónlistar- maður. Gunnar R. Sveinsson, tón- listarmaður. Hörður Torfason, tón- listarmaður. Mist Þorkelsdóttir, tónlistarmaður. Páll Eyjólfsson, tónlistarmaður. Þórir Baldursson, tónlistarmaður. Elísabet Þorgeirs- dóttir, rithöfundur. Valdís Óskars- dóttir, ljósmyndari. Viðar Eggerts- son, leikari. Viðar Gunnarsson, söngvari. Úthlutunarnefnd skipuðu: Birgir Sigurðsson. sr. Bolli Gústavsson og Knútur Hallsson, formaður. að koma til móts við þarfir hvers einstaklings. Til þess er skólasafnið grundvallaratriði i starfi hvers grunnskóla. Það þjónar nemend- um og kennurum, stuðlar að fjöl- breyttara námi og sjálfstæðum vinnubrögðum einstaklingsins. Skólasafnið örvar hópvinnu nem- enda og eykur möguleika þeirra til að miðla öðrum af sinni þekkingu. í grunnskólalögum segir að skóla- safnið eigi að vera eitt af megin- hjálpartækjum í skólastarfinu. Allir skólamenn og aðrir þeir sem áhuga hafa á „góðum skóla“ eru hvattir til að taka þátt í þessari dagskrá í þeim tilgangi að byggja upp gott skólastarf í Reykjanesum- dæmi. Ekki ástæða til sölustöðvunar „Þar sem hjarta skólans slær“ Samdráttur í jarnblendisölu Aðalfundur járnblenditelagsins fyrir árið 1985 var haldinn að Grundartanga 9. apríl. Fundinn sátu fulltrúar allra eigenda fyrir- tækisins, íslenska ríkisins, Elkem a/s í Oslo og Sumitomo Corpora- tion í Tokyo. Þá sátu fundinn stjórnarmenn, varastjórn, þrír full- trúar starfsmanna og forstöðu- menn deilda. Á fundinum var lögð fram árs- skýrsla stjórnar og reikningar fyrir árið 1985. Framleiðsla á kísiljárni var rúm 60 þúsund tonn á árinu sem er svip- að magn og árið 1984, þrátt fyrir umtalsverðar stöðvanir á ofnum af markaðsástæðum. Salan var hins vegar um 54 þúsund tonn, sem er nær 9 þúsund tonnum minna en ár- ið áður. Verðlagi á kísiljárni hrakaði mik- ið á árinu. Þessi samdráttur i sölu og lækkun á söluverðum hefur haft mikil áhrif á afkomuna. Niðurstaða rekstrarreiknings sýnir 8,2 milljóna króna tap eftir að gjaldfærðar hafa verið um 270 mill- jónir króna í afskriftum og fjár- magnskostnaði. Tapið er 0.7% af brúttóveltu, en árið 1984 var hagn- aður nær 11% af veltu. Fram kom, að fjárhagur fyrirtækisins er traust- ur. Á fundinum kom fram, að í verk- smiðjunni hefur skipulega verið unnið að rannsóknum og þróun, sem í reynd auka afkastagetu verk- smiðjunnar. Starfsemi þessi er að mestu kostuð af járnblendideild Elkem. Árangurinn felst í því að af- köst, sem áður voru talin svara til 55 þúsund tonna ársframleiðslu svara nú til a.m.k. 66 þúsund tonna árs- framleiðslu, með betri nýtingu orku og hráefna. Á fundinum og í ársskýrslunni kom fram, að samhliða þessari við- ‘ leitni til að bæta samkeppnishæfni verksmiðjunnar, býr framkvæmda- stjórn fyrirtækisins sig undir fjar- lægari framtíð þess með því að kanna ýmsar hugsanlegar leiðir til að fyrirtækið megi þróast og vaxa, þegar þess tími kemur, innan eða utan við þau verk- og tæknisvið, sem það nú stundar. Á aðalfundi voru íslenskir stjórnarmenn endurkjörnir. Einn hinna norsku stjórnarmanna, Gunnar Viken, sem verið hefur í stjórn frá 1977, baðst undan endur- kjöri. í stjórninni eiga sæti Barði Friðriksson hæstaréttarlögmaður formaður, Páll Bergþórsson vara- formaður, Guðmundur Guð- mundsson og Helgi G. Þórðarson af hálfu iðnaðarráðherra vegna ís- lenska ríkisins. Frank Myhre og Per K. Björgum af hálfu Elkem a/s og Kiyotomo Sakuma af hálfu Sumitomo Corporation. Nokkrar breytingar urðu á skipan vara- manna. Hjá járnblendifélaginu starfa nú rúmlega 190 manns. Framkvæmda- stjóri félagsins er Jón Sigurðsson. Tilkynning um lóðahreinsun í Reykjavík vorið 1986 Samkvæmt ákvæðum heilbrigðisreglugerðar er lóðareigendum skylt að halda lóðum sinum hrein- um og þrifalegum. Umráðamenn lóðaeru hérmeð minntir á að flytja nú þegar brott af lóðum allt, sem veldur óþrifnaði og óprýði og hafa lokið því eigi síðar en 14. maí nk. Að þessum fresti liðnum verða lóðirnar skoðaðar og þar sem hreinsun er ábótavant verður hún framkvæmd á kostnað og ábyrgð húseigenda, án frekari viðvörunar. Þeir, sem óska eftir sorptunnum, hreinsun eða brottflutningi á rusli á sinn kostnað, tilkynni það í síma 18000. Til að auðvelda fólki að losna við rusl af lóðum hafa verið settir gámar á eftirtalda staði: Viö Meistaravelli, Vatnsmýrarveg (gamla Laufásveg- inn), Grensásveg, Kleppsveg, við Súðarvog, Stekkjarbakka, Rofabæ og Breiðholtsbraut. Eig- endur og umráðamenn óskráðra, umhirðulausra bílgarma, sem eru til óþrifnaðar á götum, bíla- stæðum, lóðum og opnum svæðum í borginni, eru minntir á að fjarlægja þá hið fyrsta. Búast má við, að slíkir bílgarmar verði teknir til geymslu um takmarkaðan tíma, en síðan fluttir á sorphauga. Úrgang og rusl skal flytja á sorphauga við Gufu- nes á þeim tíma sem hér segir: mánudaga—föstudaga kl. 08—21 laugardaga kl. 08—20 sunnudaga kl. 10—18 Rusl, sem flutt er á sorphauga, skal vera í umbúð- um eða bundið. Ekki má kveikja í rusli á sorphaugunum og hafa ber samráð við starfsmennina um losun. Sérstök athygli skal vakin á því, að óheimilt er að flytja úrgang á aðra staði í borgarlandinu. Verða þeir látnir sæta ábyrgð, sem gerast brotlegir i þeim efnum. Gatnamálastjórinn í Reykjavík. Hreinsunardeild.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.