Alþýðublaðið - 17.04.1986, Page 4

Alþýðublaðið - 17.04.1986, Page 4
Fimmtudagur 17. apríl 1986 Alþýöublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Danieisson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Ármóla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síöumúla 12 r Askriftarsíminn er 681866 FAÐIR, SON- UR OG HINIR ARÐRÆNDU Jean-Claude Decalier. Myndin er tekin við jarðarför föður hans árið 1971. Að undanförnu hefur Haiti verið talsvert í sviðsljósinu vegna eftir- minnilegs flótta lífstíðarforsetans „Baby Doc“, Jean-Claude Duvali- er. Haiti er land sem sjaldan heyrist nefnt í fréttum og síðasta árið hafa fréttir þaðan t. d. mestmegnis verið tengdar umræðunni um AIDS, en sjúkdómurinn er talinn hafa borist þaðan til Bandaríkjanna. Haiti er 'A hluti eyjarinnar Hispaniola, þar sem spönsku land- nemarnir stigu á land 1492. Hinir Vi hlutar eyjarinnar eru Dóminik- anska lýðveldið. Haiti er meðal fá- tækustu ríkja á vesturhveli jarðar. Nærri 80% af íbúunum sem eru 6 milljónir talsins, eru eignalausir verkamenn. Meðalaldur er undir 50 árum. Hér um bil 80% íbúanna eru án allrar menntunar (ólæsir og óskrifandi). Ungbarnadauði er mjögtíður. í fátækrahverfum borg- anna deyr þriðja hvert barn undir fimm ára aldri. Þessar tölur hljóma ótrúlega, en verða skiljanlegri þegar þess er gætt að einungis 0,9% þjóðartekna er varið til heilsugæslu og 1% til menntunar á sama tíma og 8,3% er varið til hermála, í landi sem ekki þarf að verjast ásókn neinna óvina. Og hver skyldi svo sem ásælast þetta land sem hefur verið þraut- pínt í marga mannsaldra og komið er að hruni? En hver er ástæðan fyrir því að svo er komið? Spánverjar Fram til þess tíma er Spánverjar lögðu undir sig eyjuna var hún byggð Indíánum. Ýmsum sögum fer af þvi hve margir þeir voru, en vitað er að á einum mannsaldri hurfu þeir að mestu. Þeir þoldu ekki með- ferð Spánverjanna og höfðu heldur ekki ónæmi gegn ýmsum sjúkdóm- um sem herraþjóðin flutti með sér frá gamla heiminum. En Spánverjar voru ekki einir um hituna mjög lengi. Brátt fengu þeir samkeppni, m. a. frá Frökkum. Spánverjar höfðu meiri áhuga á austurhluta eyjarinnar vegna gulls- ins sem var þar og héldu yfirráðum þar, en Frakkar náðu fótfestu á vestari hlutanum, sem nú er Haiti. Frakkar höfðu mestan áhuga á hernaðarlegu mikilvægi eyjarinnar. Frakkar fluttu til Haiti í stórum stíl, samt ekki til að setjast þar að heldur til að auðgast á stuttum tíma og snúa síðan heim aftur. Sykurekr- ur áttu að gefa hagnaðinn, en Frakkar kærðu sig ekki um að vinna sjálfir á plantekrunum svo þeir fluttu inn þræla frá Afríku til þess. Þrælahaldið leiddi til þess að íbú- ar landsins skiptust brátt í þrennt: í hvíta menn, kynblendinga og svert- ingja. Það er auðvelt að ímynda sér hver virðingarröðin var meðal þess- ara hópa. Valdatafl Þrátt fyrir ýmsa árekstra við Spánverja héldu Frakkar yfirráðum yfir Haiti og þróunin i heimaland- inu setti svip sinn á lífið þar. Sér- staklega varð það áberandi i kring- um frönsku byltinguna 1789. Valdaklíkurnar á Haiti vildu fá sjálfstæði, en kom ekki saman um hver skyldi fá völdin. Togstreitan stóð aðallega milli stöndugra jarð- eigenda innbyrðis, en einnig milli hvítra manna og kynblendinga. Kynblendingar áttu erfitt upp- dráttar. Hvítir menn litu niður á þá, en þeir litu aftur niður á svertingj- ana. Hvorir tveggja reyndu að fá svertingja til liðs við sig í valdabar- áttunni, en loks gerðu svertingjar uppreisn, brenndu plantekrur og margir flýðu land í þeirri ringulreið sem várð. Óeirðirnar enduðu með því að þrælahald var afnumið 1793 og helsti hvatamaður þess, Toussaint l’Ouverture, tók við völdum í land- inu. Það dróst þó til 1825 að landið fengi sjálfstæði og Frakkland krafðist hárra fjárhæða í skaða- bætur, sem ekki voru að fullu greiddar fyrr en 1922. Allt frá því landið hlaut sjálf- stæði hafa tveir hópar barist um völdin, kynblendingarnir og svert- ingjar sem komust til metorða. Á 18. öld skiptist landið meira að segja í tvö áhrifasvæði sem var stjórnað sínu af hvorum hópi. Landið var sameinað á nýjan leik árið 1820, en togstreitan hélt áfram. En nú stóð hún aðallega á milli einstaklinga sem hugsuðu fyrst og fremst um eigin hag. Hlutverk hers- ins varð nú helst það að styðja við bakið á þeim manni sem var við völd í það og það skiptið. Hernám Bandaríkja- manna Hver stjórnin kom eftir aðra, en allar urðu þær skammlífar, og allar rökuðu að sér fé á kostnað lands og lvðs. Árið 1915 var svo komið að æstur mannfjöldi tók forseta landsins af lífi. Af því tilefni hertóku Banda- ríkin landið og héldu því til ársins 1934. Vegna áhrifa Bandaríkjamanna urðu ýmsar breytingar á tilhögun efnahagsmála. Bandaríks fjöl- þjóðafyrirtæki settust að á Haiti og viðskipti við Bandaríkin jukust stórlega. Nú eru Bandaríkin helsta viðskiptaland Haiti og kaupá 60% af útflutningsafurðum landsins og helmingur allrar innfluttrar vöru kemur þaðan. Fyrir þá snauðu skiptir það engu máli hver fer með völd. Hagur þeirra hefur ekki batnað, þvert á móti. Jarðeignir sem áður voru nytjaðar af smábændum hafa verið lagðar undir stórfyrirtæki, án þess að nokkuð hafi komið í staðinn. Sumir hafa reynt að flytjast til Dóminikanska lýðveldisins, en þar eru kjörin síst betri. Fyrstu kosningar Árið 1957 var Francois Duvalier kjörinn forseti í almennum kosn- ingum. Hann náði kjöri mcð stuðn- ingi hersins, svartra millistéttar- manna og fátæklinganna á lands- byggðinni. Honum heppnaðist að skapa sér ímynd sem geðþekkur strjálbýlislæknir, sem vildi koma á réttlátri samfélagsskipan. „Papa Doc“, eins og hann var oftast kallaður launaði mönnum stuðninginn á ólíka vegu. Svörtum miðstéttarmönnum, vinum sínum, útvegaði hann embætti innan stjórnsýslunnar, en fyrir þá fátæk- ustu gerði hann alls ekkert. En hann varð þeim mun ríkari sjálfur. Hann hafði ótakmarkað vald yfir fjár- munum ríkisins og mikið rann í hans eigin vasa. Sagt er að eignir fjölskyldunnar séu nú um 400 milljónir Bandaríkjadollara. „Papa Doc“ notaði öll meðui til Framh. á bis. 2 Molar Það er ekki oft að heilar tíma- ritsgreinar séu skrifaðar fyrir einn lesanda. Eina slíka rak þó á fjörur okkar nú nýverið. í nýjasta hefti Tölvumála er sem sé að finna grein sem ber yfirskriftina „Grein fyrir Sverri Hermannsson" og segir höfundurinn i upphafi að greinin sé rituð í þeirri von að menntamálaráðherra muni lesa hana. Greinin er reyndar gagn- merk og vel þess virði að fleiri lesi hana en Sverrir Hermannsson, þótt ekki skuli mikilvægi þess dregið í efa að hann kynni sér þetta efni. Grein þessi er eftir Stefán Ingólfsson og við leyfum okkur að birta hér veigamestu hluta hennar: Grein fyrir Sverri Hermannsson Þessi stutta grein er rituð í þeirri von að menntamálaráðherra, Sverrir Hermannsson, lesi hana. í henni felst áskorun til hans um að menntamálaráðuneytið beiti sér fyrir því að tölvutæknin verði ís- lenskuð fyrir skólakerfi landsins. Ráðuneytið sjái til þess að við tölvukennslu í grunnskólum og framhaldsskólum verði notuð ís- lensk stjórnkerfi á tölvunum. Einnig íslensk forritunarmál. Ef innflytjendur hugbúnaðar láta ekki þýða kerfi sín á íslensku fái ráðuneytið sérfræðinga til að út- búa innlend kerfi ög geri kröfur um að einungis verði keyptar tölv- ur, sem geta notað þau. • Ráðherra tækni- og menntamála Sverrir Hermannsson mennta- málaráðherra hefur góðar for- sendur til að átta sig á mikilvægi þessa máls. Hann var iðnaðarráð- herra í rúmlega tvö ár, áður en hann tók við núverandi embætti. Mál á mörkum tækni og menn- ingar eru honum því væntanlega hugleikin. Þá er áhugi Sverris á ís- lensku máli vel þekktur. Afstaða hans til ritmálsins fór ekki Ieynt í umræðum á Alþingi um stafsetn- ingu íslenskunnar. Enda var eitt fyrsta verk hans sem mennta- málaráðherra að efna til ráð- stefnu um varðveislu tungunnar. Tölvumál á erlendri tungu Nám í tölvunotkun hefur breiðst mjög út í skólakerfinu á undan- förnum árum. Sífellt yngri nem- endur læra að nota tölvur. Þó að skoðanir manna séu skiptar um hversu ung börn muni hefja nám á tölvur er Ijóst að tölvukennsla verður grunnskólafag innan tíðar. Nemendur, sem ekki hafa náð tökum á undirstöðuatriðum í er- lendum málum, munu þá sitja við tölvuskjái, lesa af þeim skilaboð og rita skipanir til tölvanna á lykilborð þeirra. Undanfarin ár hefur verið lögð mikil áhersla á að þýða erlend tækniorð tölvumanna á íslensku. Mikið hefur áunnist í þeim efn- um. Engu að síður vita þeir, sem starfa við tölvur, að tæknimenn tala margir sín á milli hrognamál, sem er oft torskilið venjulegu fólki. Ástæðan er vafalaust sú að samskipti þeirra og tölvanna fara ekki fram á okkar móðurmáli. Fyrirskipanir til tölvanna eru oft- ast á ensku. Sama máli gegnir um skilaboð frá tölvunni til þess er notar hana. Einnig fer öll forritun fram á erlendu tungumáli. Tölvan skilur setninguna „GO TO X“ en setningin „FAR TIL X“ finnst ekki í hugskoti hennar. Til þess að fella tölvutæknina að íslensku máli og gera hana eðli- legan þátt úr menningu okkar er nauðsynlegt að börn, sem eru að kynnast tölvum í fyrsta sinn geti skipt við þær á móðurmáli okkar. Þau eiga að geta ritað fyrirskipan- ir til tölvunnar á íslensku og einn- ig lesið skilaboð hennar af skjá eða blaði. • íslensk stjórnkerfi — ekkiannað Lausn þessa máls er einföld. Þeg- ar keyptar eru tölvur skólakerfis- ins á menntamálaráðuneytið að gera þær kröfur að allar skipanir í stjórnkerfum tölvanna séu á ís- lensku og að forrita megi þær með íslenskum útgáfum af viður- kenndum forritunarmálum. Tölv- ur sem ekki uppfylla þessar kröf- ur komi ekki til greina að kaupa. Tölvuinnflytjendur munu leysa þessi mál. Mörgum öðrum hindr- unum, sem hafa sett skorður við notkun íslensku á tölvum, hefur þegar verið rutt úr vegi þótt stund- um hafi gætt tregðu. Innlend eða „þýdd“ kerfi, sem kæmu fram vegna þessara skil- yrða mundu auk þess hafa ýmsa kosti aðra en að henta til kennslu í grunnskóla. Þau gætu til dæmis opnað mikla möguleika fyrir fólk, sem hefur áhuga á að til- einka sér tölvutæknina, en skortir enskukunnáttu. • Tækniþekking er tii Engin hætta er á öðru en að þau vandamál, sem fylgja gerð ís- lensks stjórnkerfis fyrir tölvur verði leyst. íslenskt fyrirtæki hef- ur til dæmis nú þegar hannað þýð- ara fyrir svonefnt ADA-forritun- armál. Hann er reyndar á ensku enda ætlaður fyrir erlendan markað. Fyrirtækið hefur hins vegar sýnt fram á að það ræður yfir þekkingu til að búa til kerfi sem þessi. Því væri tæplega skota- skuld úr því að útbúa þýðara fyrir annað forritunarmál á íslensku. Fleiri fyrirtæki hér á landi búa yf- ir hliðstæðri þekkingu. • Eftirmáli Þegar tækni og menningarmál fara saman með þeim hætti sem hér hefur verið lýst, má vænta þess að ráðherra, sem hefur bæði fjallað um iðnaðarmál og menntamál, hafi á þessu vanda- máli betri skilning en flestir aðrir stjórnmálamenn. Þegar hann 'er að auki kunnur áhugamaður um varðveislu og viðgang íslenskrar tungu er engin goðgá að vona að hann sýni málinu áhuga og jafn- vel skilning.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.