Alþýðublaðið - 26.04.1986, Side 2
2
Laugardagur 26. aprfl 1986
• RITSTJQRNARGREIN-
Byggðastofnun til Akureyrar
A undanfömum árum hefur mikiö veriö rætt
um nauðsyn þess aö dreifa opinberum stofn-
unum meira um landið en gert hefurveriö. Af
eðlilegum ástæðum amast landsbyggðin við
þeirri þróun að allt stjórnvald safnist á höfuð-
borgarsvæðið. Til Reykjavíkur þurfa utanbæj-
armenn að sækja alla opinbera fyrirgreiöslu,
oft með ærnum tilkostnaði.
Margir landshlutar eiga nú undir högg að
sækja í atvinnumálum. Á höfuðborgarsvæðinu
hefur hins vegar verið óeðlilega mikil þensla
og nauðsynlegt jafnvægi á milli höfuðborgar-
svæðisins og landsbyggðarinnar farið úr
skorðum. Ýmsar hugmyndir hafa komið upp
um staðsetningu opinberra valdastofnana ut-
an Reykjavíkur.
Að undanförnu hefursámöguleiki verið kann-
aður hvort ekki gæti verið heppilegt að flytja
Byggðastofnun til Akureyrar. í fljótu bragði
virðist ekkert mæla því í mót. Með nútíma sam-
göngum og samskiptakerfi getur Byggða-
stofnun sinnt hlutverki sínu jafnvel á Akureyri
og í Reykjavík.
Þegar þetta mál var rætt í stjórn Byggðastofn-
unar var tekin sú merkilega ákvörðun að óska
eftir því við Hagvang hf. að fyrirtækið gerði
könnun á hagkvæmni þessarar breytingar. Það
er undarleg árátta í þessu þjóðfélagi að geta
aldrei treyst á heilbrigða skynsemi, og taka
ákvarðanir samkvæmt henni. Mönnum þykir
nauðsynlegt að kosta til stórfé til að fá fram
niðurstöður, sem voru Ijósar fyrirfram.
Og auðvitað varð niðurstaða Hagvangs sú, að
engar verulegar hindranir væru í vegi fyrir því
að Byggðastofnun yrði flutt til Akureyrar. Nú er
að sjáhvort stjórn stofnunarinnartreystirfrem-
uráþessarniðurstöðuren eigin skoðanir. Það
væri merkilegt framtak og væntanlega upphaf
meiri valddreifingar í landinu að koma Byggða-
stofnun til Akureyrar.
Síðustu dagar á Alþingi
Alþingi hefur nú lokið störfum. Starfstími
þessa þings var skemmri en verið hefur um
margra ára skeið. Störf síðustu daga þingsins
voru með eindæmum. Mikilvæg frumvörp voru
afgreidd á mettíma, umræður voru í lágmarki
og sum málanna hvergi nærri nógu vel skoðuð.
Starfshættiraf þessu tagi eru ekki sómasam-
legir. Svipuð afgreiðsla þekkist frá fyrri þing-
um, sem nú keyrði um þverbak. Hraðinn var svo
mikill, að ekki var hirt um að leita umsagnar
hagsmunaaðila um hin veigamestu mál og þau
fengu hvergi nærri nóga umfjöllum.
Sem dæmi má nefna frumvarp ríkisstjórnar-
innar um Húsnæðisstofnun. Alþýðuflokks-
menn bentu á, að mikilvæga þætti vantaði í
frumvarpið. Á það var ekki hlustað, og þegar
hefur komið í Ijós, að allur frágangur laganna
eru ein allsherjar mistök. — í gegnum þingið
voru keyrð lög um skattaheimildir til handa
landbúnaðarráðherra til að leggja jöfnunar-
gjald á innfluttar kartöflur. Samþykkt þeirra
laga er hneyksli. Samþykktar voru breytingar á
lögum um Búnaðarmálasjóð, þar sem stór-
felldir skattar voru lagðir á bændur þegjandi
og hljóðalaust. Og þannig mætti lengi telja.
A næstunni munu Koma í Ijós margvíslegir
annmarkar éþeim lögum, sem þreyttir og syfj-
aðirþingmenn voru neyddirtil að afgreiðaáör-
fáum dögum. — Vinnubrögð af þessu tagi eru
ekki til þess fallin að auka virðingu þingsins.
Þau eru í raun til skammar.
Kartöflur 1
verður það að teljast alvarlegt
brot af hálfu þingmeirihlutans á
nýgerðu samkomulagi aðila
vinnumarkaðarins og ríkis-
stjórnarinnar um niðurfærslu
verðlags og skatta á almenning.
Þegar af þeirri ástæðu varar
minni hl. alþingismenn alvar-
lega við því að ganga svo hrotta-
lega í berhögg við hagsmuni al-
mennings sem samþykkt þessa
frumvarps vissulega væri.
2. Frumvarpið felur í sér allt að
200% gjald á tollverð á innflutt-
um kartöflum. Miðað við með-
alinnflutning síðustu fjögurra
ára getur falist í umræddri heim-
ild um 200—300 milljóna kr.
skattur á neytendur af innflutt-
um kartöflum. Við það bætast
síðan álögur á innfluttar vörur
unnar úr kartöflum. Um leið
gerir þessi skattheimta innlend-
um framleiðendum kleift að
hækka verð til neytenda. f heild
getur þessi skattheimta falið í sér
álögur á neytendur sem eru ekki
undir einum milljarði króna.
3. Sérstök ástæða er til að vekja
athygli þingheims á ruddalegum
vinnubrögðum þeirra sérhags-
munaseggja sem farið hafa
offari í þessu máli. Þó að hér sé
verið að leggja allt að 1000
milljóna kr. aukaskatt á neyt-
endur fylgja nákvæmlega engir
Bingó til
styrktar
starfinu
í Lyngási
Kiwanisklúbburinn Elliði heldur
Fjölskyldu-Bingó í Broadway
sunnudaginn 27. apríl kl. 15.00,
húsið opnar kl. 14.00.
Bingóið er haldið til að afla fjár
til styrktarverkefnis sem klúbbur-
inn hefur tekið að sér. Að þessu
sinni ætlar Elliði að styrkja Lyngás,
sem er heimili fyrir vangefin börn,
heimilið er rekið af Styrktarfélagi
vangefinna. Aðal fjáröflunarleið
styrktarsjóðs okkar hefur í gegnum
árin verið jólatréssala við Fáks-
heimilið. Ágóða af Bingóinu verður
varið til tækjakaupa fyrir Lyngás.
Aðalvinningar verða ferðavinning-
ar fyrir tvo til Biersdorf með Flug-
leiðum auk fjölmargra annarra
góðra vinninga. Verðmæti vinninga
er 250 þús. kr.
Við félagarnir í Kiwanisklúbbn-
um Elliða vonumst til að borgarbú-
ar fjölmenni á Bingóið, svo að
styrkur okkar við Lyngás verði sem
stærstur.
útreikningar til þess að réttlæta
þessa skattheimtu. Með því að
kalla skattinn jöfnunargjald er
gefið í skyn að verð á kartöflum
og vörum úr þeim sé niðurgreitt
erlendis. Það eru hrein ósann-
indi. Engar niðurgreiðslur eiga
sér stað, hvorki í löndum Efna-
hagsbandalagsins né í Norður-
Ameríku á þessum vörum.
Helsti rökstuðningurinn fyrir
málinu reynist þannig vera hrein
ósannindi.
4. Reynt er að réttlæta þessa hrika-
legu skattheimtu með því að
tvær kartöfluverksmiðjur hér á
landi séu ekki samkeppnisfærar
miðað við það hráefnisverð sem
eigendur þeirra, kartöflubænd-
ur, hafa látið verksmiðjurnar
borga. Verðkönnun Verðlags-
stofnunar á frönskum kartöfl-
um sýnir að eigendur fyrirtækj-
anna hafa selt sjálfum sér
kartöflur á verði sem er langt yf-
ir heimsmarkaðsverði. Síðan er
ætlast til þess að Alþingi jafni
tvö- til þrefaldan mun á útsölu-
verði með gífurlegum álögum á
innflutta samkeppnisvöru.
5. Hér er verið að takast á um
grundvallarsjónarmið: Er það
hlutverk Alþingis að leysa- fjár-
festingarmistök einkaaðila á
kostnað skattgreiðenda?
Aukabúnaður fyrir
einmenningstölvur
23. apríl 1986.
í framhaldi af útboði á einmenningstölvum, sem
fram fór 1984, óskar einmenningstölvunefnd rík-
isins eftir upplýsingum um búnað sem á boðstól-
um er og getur aukið fjölhæfni og vinnslugetu
IBM einmenningstölva og samlíkra tölva.
Þar á meðal: Diskar, segulbandastöðvar, minnis-
stækkanir, hliðargjörvar, fjölnotaspjöld með
tengibúnaði s.s. einrása (serial port), fjölrása
hliðum (parallel port), og klukku.
Ennfremur er óskað eftir upplýsingum um prent-
ara: nálaprentara, leturhjólsprentara og hljóðláta
hágæðaprentara.
Nánari upplýsingar veita Bjarni Júliusson, Fjár-
laga- og hagsýslustofnun og Jón Þór Þórhalls-
son, SKÝRR.
Upplýsingarnar óskast sendar til: Einmennings-
tölvunefndarríkisins, Fjárlaga-og hagsýslustofn-
un, Arnarhvoli.
Utboð
Vegagerö ríkisins óskar eftir tilboöum I Efnisvinnslu á
Suöurlandi 1986. (Magn 54.500 m3).
Verki skal lokiö fyrir 1. október 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Sel-
fossi og I Reykjavlk (aöalgjaldkera) f rá og meö 28. þ.m.
Skila skal tilboðum á sömu stööum fyrir kl. 14:00 þann
12. mal 1986.
Vegamálastjóri.
VEGAGERÐIN
Útboð — prentun
Námsgagnastofnun óskar eftir tilboöi I prentun og
heftingu æfingabóka I skrift.
Um erað ræða6 hefti, 32 bls. hvert 110.000 eintakaupp-
lagi og 1 hefti I 5.000 eintaka upplagi, samtals 65.000
eintök.
Tilboðum skal skila fyrir kl. 11 fyrir hádegi fimmtudag-
inn 15. mal n.k. á skrifstofu vora I Tjarnargötu 10,
Reykjavík, þar sem þau verða þá opnuð.
Útboðsgögn og nánari upplýsingar veitir Bogi Indriða-
son, deildarstjóri útgáfudeildar.
NÁMSGAGNASTOFNUN
Tjarnargötu 10, Reykjavík, sími 28088.
^SRARIK
■k. ^ RAFMAGNSVEITUR RlKISINS
Rafmagnsveitur rlkisins auglýsa laust til umsóknar
starf tæknifulltrúa á svæðisskrifstofu Rafmagnsveitn-
anna á Hvolsvelli. Óskað er eftir rafmagnstæknifræð-
ingi eða manni með sambærilega menntun. Starfið
felst m.a. I hönnun, áætlanagerð, eftirliti, uppbyggingu
og rekstri rafveitukerfis.
Nánari upplýsingar um starfið gefur rafveitustjóri Raf-
magnsveitnanna á Hvolsvelli.
Umsóknirergreini menntun aldurog fyrri störf sendist
starfsmannadeild fyrir 15. maí 1986.
Rafmagnsveitur ríkisins
Laugavegi 118,
105 Reykjavlk