Alþýðublaðið - 13.05.1986, Side 1
alþýóu
IH hT'jT'
Þriöjudagur 13. maí 1986
89. tbl. 67. árg.
„Líka ykkur að kenna“
— fjölmennur kapprœðufundur á Akureyri á
sunnudagskvöldið
Á sunnudagskvöldið var haldinn
sameiginlegur kappræðufundur
allra flokka í Alþýðuhúsinu á Ak-
ureyri. Húsfyllir var á fundinum og
urðu þar líflegar umræður um mál-
efni bæjarins. Góður rómur var
gerður að málflutningi Alþýðu-
flokksmanna á fundinum og að
sögn Jökuls Guðmundssonar á Ak-
ureyri virtist einkum málflutningur
Gisla Braga Hjartarsonar, sem
skipar annað sætið á lista Alþýðu-
flokksins, hljóta góðar undirtektir
Framh. á bls. 2
Morgunblaðið
fékk einkarétt
— til að birta niðurstöður úr skoðanakönnun
Félagsvísindadeildar Háskólans.
Morgunblaðið fékk svokallaðan
„frumbirtingarrétt" á hluta af nið-
urstöðum úr fyrstu skoðanakönnun
Félagsvísindadeildar Háskóla ís-
lands. Frumbirtingarréttur felur í
sér að aðrir fjölmiðlar fá ekki að-
gang að niðurstöðunum fyrr en
Morgunblaðið hefur birt þær.
Þetta er sami háttur og hefur verið
hafður á varðandi niðurstöður úr
skoðanakönnunum Hagvangs, og
hefur m.a. orðið þess valdandi að
skoðanakannanir þess fyrirtækis
hafa fengið á sig „hægri stimpil“.
Sá hluti niðurstaðnanna sem hér
um ræðir, birtist í Morgunblaðinu á
laugardaginn og greiddi Morgun-
blaðið ákveðna fjárupphæð fyrir
réttinn til að birta þessa frétt fyrst
fjölmiðla.
Einn af forsvarsmönnum könn-
unarinnar, Ólafur Harðarson, hjá
Félagsvísindadeild Háskólans,
staðfesti þetta í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær, en lagði jafnframt
áherslu á að áður en farið var af
stað með skoðanakannanir á veg-
um deildarinnar, hefði fjölmiðlum
verið sent bréf, þar sem vakin var
athygli á þessu og þeim sem áhuga
hefðu, boðið að kaupa hluta af nið-
urstöðunum.
Ólafur sagði ennfremur að auk
Morgunblaðsins hefði sjónvarpið
sýnt þessu máli áhuga og keypt
frumbirtingarrétt á öðrum hluta
niðurstaðnanna. Ólafur tók einnig
fram að samningurinn við Morgun-
blaðið gilti einungis um þessa
fyrstu könnun og ef fleiri óskuðu
eftir frumbirtingarrétti á sömu nið-
urstöðum yrði að leysa það mál.
Niðurstöður skoðanakönnunar-
innar um afstöðu fólks til borgar-
stjórnarkosninganna, hafa vakið
talsverða athygli, enda ólíkt betur
til könnunarinnar vandað en áður
hefur sést hérlendis, þegar um sam-
bærilegar kannanir hefur verið að
ræða. Með markvissum viðbótar-
spurningum tókst að fækka mjög
óákveðnum svörum, en fjöldi
þeirra hefur einn út af fyrir sig verið
stór óvissuþáttur í niðurstöðum
kannana sem gerðar hafa verið
hingað til.
Þessa mynd tók Ijósmyndari blaðsins í vorblíðunni. Hún þarfnast víst ekki nánari skýringa.
Landhelgisgœslan:
Látin sæta opin-
berri rannsókn
Dómsmálaráóherra hcfur falið
ríkissaksóknara að láta fara fram
opinbera rannsókn vegna ásakana
Jóns Sveinssonar á hendur Land-
helgisgæslunni. Jón hefur sem
kunnugt er haldið því fram að aga-
leysi hafi ríkt um borð í varðskipinu
Tý, þegar hann var þar um borð, og
áfengisneysla hafi verið algeng.
í fréttatilkynningu sem dóms-
málaráðherra hefur sent frá sér um
málið er sérstaklega vakin athygli á
því að meðferð og neysla áfengis sé
óheimil um borð í varðskipum eins
og við önnur löggæslustörf.
í fréttinni segir ennfremur að
ráðuneytið telji að með tilmælum
til ríkissaksóknara sé tryggt að fram
fari sú rannsókn sem rætt hefur ver-
ið um að sjálfsögð væri í þessu sam-
bandi.
Nú er starfandi nefnd sem Al-
þingi kaus til að fjalla um eflingu
Landhelgisgæslunnar og hefur hún
þegar skilað tveimur áfangaskýrsl-
um. Af hálfu dómsmálaráðuneytis-
ins hefur því nú verið komið á fram-
færi við formann nefndarinnar, að
æskilegt væri að nefndin lyki störf-
um og skilaði lokaskýrslu sem fyrst.
I lokaskýrslunni skal sérstaklega
hugað að samvinnu við aðrar stofn-
anir um verkefni og þjónustu,
ásamtöðrum æskilegum skipulags-
breytingum.
I frétt dómsmálaráðuneytisins er
að endingu tekið fram að þótt þessi
nefnd hafi enn ekki skiíað loka-
skýrslu um athuganir sínar, hafi
engu að síður verið unnið að endur-
bótum á þessu sviði að undan-
förnu.
Heimdallur:
Leynileg skoðanakönnun
— Nöfn þátttakenda hugsanlega skráð og
tengd svörunum. Leiðandi spurningar. Er
Davíð skemmtilegur?
Heimdallur, félag ungra sjálf-
stæðismanna i Reykjavík, hefur
upp á eigin spýtur, gert skoðana-
könnun meðal reykvískra kjós-
enda á aldrinum 18—30 ára. Þótt
skoðanakannanir af ýmsu tagi
hafi verið gerðar og fjöldi þeirra
aukist mjög á síðustu árum, mun
þetta í fyrsta sinn sem stjórnmála-
flokkur eða hluti hans stendur
beint að gerð slíkrar könnunar.
Niðurstöðurnar hafa ekki verið
birtar.
Þótt heitið sé fullri nafnleynd
við gerð skoðanakönnunar, er sá
möguleiki fyrir hendi í flestum til-
vikum, svo sem kunnugt er, að
merkja svör hvers einstaklings
með nafni hans. I þessari könnun
hefur þessi möguleiki ótvírætt
verið fyrir hendi, því samkvæmt
bréfi Heimdallar sem fylgdi
spurningalistanum til svarenda, er
skýrt tekið fram að dregið hafi
verið af handahófi úr nöfnum
Reykvíkinga á aldrinum 18—30
ára. Heimdellingar sóttu síðan
svörin heim til hvers og eins.
Þegar hlutlausir aðilar standa
að gerð skoðanakannana, er al-
mennt talið að ekki sé fyrir hendi
áhugi fyrir því að skrá nöfn þátt-
takenda, en allt öðru máli gegnir
um stjórnmálaflokk sem gerir
könnun af þessu tagi.
Meðal þess sem spurt er um í
könnuninni, er hvaða flokk við-
komandi hyggist kjósa í Borgar-
stjórnarkosningunum í vor. Auk
þess er spurt um afstöðu þátttak-
andans til ýmissa borgarmálefna
og sérstakur flokkur spurninga
tileinkaður Davíð Oddssyni og af-
stöðu unga fólksins til hans. Með-
al annars er spurt hvort fólki þyki
hann „skemmtilegur" og hvort
það sé álit viðkomandi einstakl-
ings að hann sé lýðræðislegur for-
ystumaður og framsýnn sem
hugsi fyrst og fremst um heildar-
hagsmuoi.
Þá er spurt hvað fólki finnist
raunhæft verð fyrir strætómiða,
og til leiðbeiningar er sérstaklega
getið um núverandi gjald. Einnig
er spurt hvort viðkomandi þyki
nauðsynlegt að vita um borgar-
stjóraefni hvers stórnmálaflokks
áður en tekin sé ákvörðun um
stuðning við ákveðinn flokk.
Ennfremur má nefna að spurt
er um hverjar líkur séu taldar á
„góðu samkomulagi og virkri
stjórn“ núverandi minnihluta-
hópa næstu fjögur ár.
Þegar á heildina er litið, virðast
margar spurningar eyðublaðsins
einkum ætlaðar til þess að lokka
fram ákveðin svör, hver sem til-
gangurinn kann að vera með slíku
atferli.
Engin lög eru nú til á íslandi
um gerð skoðanakannana og
virðist því sem hverjum og einum
sé heimilt að framkvæma kann-
anir af þessu tagi. Eins og áður
segir er hins vegar sá möguleiki
óhjákvæmilega fyrir hendi að
Nskrá nöfn þeirra einstaklinga sem
taka þátt í könnuninni og tengja
þau við svörin. Þannig gæti
Heimdallur nú sem best haft und-
ir höndum skrá um afstöðu hátt í
500 ungmenna til borgarstjórnar-
kosninganna.
Þegar stjórnmálaflokkar eru
farnir að gera skoðanakannanir
milliliðalaust, hlýtur sú spurning
að vakna hvort ekki sé orðið tíma-
bært að setja lög um framkvæmd
skoðanakannana.
Agæti Reykvikingur,
Heimdallur, félag ungra sjálfstæóismanna i Reykjavik, hefur ákveóið aó
efna til skoóanakönnunar um borgarmál fyrir Reykvikinga á aldrinum 18 -
30 ára.
Tilefni þessarar könnunar er að fræóast um hvað valdi ákvöróun ungs fólks
um stuðning við ákveðinn framboðslista i borgarstjómarkosningunum san
munu fara fram 31. mai nk. Qkkur leikur hugur á fá nánari upplýsingar
um fjölbreytileg viÓhorf ungs fólks til einstakra málefnaflokka, viðhorf
til forystuhlutverks borgarstjóra og afstöóu gagnvart stjómmálaflokkum
og frambjóóendum þeirra.
500 manna úrtak var valió af handahófi úr hópi Reykvikinga á aldrinum
18 - 30 ára. Nafn þitt kan upp.
Við værum þér mjög þakklát ef þú vildir taka þátt i þessari könnun. Góó
þátttaka nun stuðla að þv.í að viö getum betur bent frambjóóendum sjálf-
stæðismanna á hverjar óskir Reykvikinga eru varðandi hin ýmsu borgar-
málefni. Vonandi geta aðrir einnig lært sitthvað af niðurstöðum. Við
teljum þessar upplýsingar sjálfsagðan og nauðsynlegan lið í nánara upp-
lýsingastreymi fulltrúa i borgarstjóm og borgarbúa.
Það tekur þig taplega tiu minútur að svara þessari könnun. Könnunarblað
er ekki merkt þér og biðjum við að þú skráir ekki nafn þitt á það. Svar
þitt verður þannig aðeins liður i heildamiðurstöðum.
Til þess að spara okkur póstburðargjöld og hraða 'vinnu við þéssa köftnun
höfum við brugðið á það ráö að láta félagsmenn afhenda ykkur þátttakendum
könnunarblöðin beint. Þeir .munu svo sækja blöóin til ykkar innan viku,
eða eftir nánara samkcmulagi viö ykkur, Sendill mun þá taka á móti gögnum
i lokuðu umslagi og kcma áleiöis til vinnslustaðar. Við heitum þér að Treöferð
upplýsinga þinna verði á engan hátt tengd nafni þinu. Teljir þú óæskilegt
að afhenda gögnin beint en ekki gegnum póstþjónustuna, þá er þér boðið að
senda könnunarblaðið til skrifstofu okkar, Munum við að sjálfsögóu greióa
póstburðargj öld.
Við vonum að þú takir vel i þessa ósk okkar.
Með kveðjUj
Þór Si<
formaður
Þetta bréf fylgdi spurningaeyðublaðinu.