Alþýðublaðið - 13.05.1986, Page 4

Alþýðublaðið - 13.05.1986, Page 4
Askriftarsíminn er 681866 alþýóu Þriðjudagur 13. maí 1986 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Framboðslistar Alþýðuflokksins í Grindavík, Njarðvík, ísafirði, Bolungarvík og Sauðárkróki Hér á eftir fara nokkrir fram- boðslistar Alþýðuflokksins. Þetta eru framboðslistarnir í Grindavík, Njarðvík, ísafirði, Bolungarvík og á Sauðárkróki. Grindavík: 1. Magnús Ólafsson, rafvirki. 2. Jón Gröndal, kennari. 3. Petrína Baldursdóttir, for- stöðukona. 4. Ásgeir Magnússon, skipstjóri. 5. Jóhann Sverrir Jóhannsson, umboðsmaður. 6. Kolbrún Tóbíasdóttir, hús- móðir. 7. Örn Traustason, eftirlitsmaður. 8. Kári Ölversson, vélstjóri. 9. Jón Thorberg Jensson, nemi. 10. Hörður Helgason, rafverktaki. 11. Hjalti Magnússon, afgreiðslu- maður. 12. Jón Hólmgeirsson, bæjarritari. 13. Svavar Árnason, umboðs- maður. 14. Einar Kr. Einarsson, fyrrver- andi skólastjóri. Njarðvík: 1. Ragnar H. Halldórsson, húsa- smiður. 2. Eðvarð Bóasson, húsasmiður. 3. Guðjón Sigurbjörnsson, kenn- ari. 4. Eyrún Jónsdóttir, húsmóðir. 5. Ólafur V. Thordarsen, fram- kvæmdastjóri. 6. Óskar Bjarnason, húsasmiður. 7. Hallfríður Matthíasdóttir, for- stöðukona. 8. Borgar L. Jónsson, skipasmið- ur. 9. Haukur Guðmundsson, bif- reiðastjóri. 10. Július V. Valgeirsson, málari. 11. Einar Guðmundsson, rafvirki. 12. Jón Friðrik Ólafsson, múrari. 13. ísleifur Guðleifsson, skip- stjóri. 14. Guðmundur Kristjánsson, múrari. ísafjörður: 1. Kristján K. Jónasson, fram- kvæmdastjóri. 2. Halldór S. Guðmundsson, for- stöðumaður. 3. Ingibjörg Ágústsdóttir, hús- móðir. 4. Snorri Hermannsson, skóla- stjóri. 5. Dýrfinna Torfadóttir, gull- smiður. 6. Sigurður R. Ólafsson, formað- ur Sjómannafélags ísafjarðar. 7. Urður Ólafsdóttir, matráðs- kona. 8. Halldór Antonsson, húsasmið- ur. 9. Gestur Benediktsson, pípu- ■ lagningamaður. 10. Sigríður M. Gunnarsdóttir, starfsmaður gæsluvalla. 11. Eiríkur Kristófersson, húsa- smiður. 12. Guðmundur Níelsson, málara- meistari. 13. Anna Rósa Bjarnadóttir, hár- greiðslukona. 14. Arnar Kristinsson, útgerðar- tæknir. 15. Karitas Pálsdóttir, verkakona. 16. Össur P. Össurarson, pípulagn- ingamaður. 17. Pétur Sigurðsson, formaður Alþýðusambands Vestfjarða. 18. Matthías Jónsson, húsasmiður. A—listi jafnaðarmanna, Bolungarvík: 1. Valdimar Lúðvík Gíslason, bif- reiðastjóri. 2. Guðmunda Ó. Jónasdóttir, verslunarmaður. 3. Daði Guðmundsson, varafor- maður Verkalýðs- og sjó- mannafélags Bolungarvíkur. 4. Gestur Pálmason, húsasmíða- meistari. 5. Hjörleifur Guðfinnson, verk- stjóri. 6. Guðmundur Sigurðsson, nemi. 7. Hlíðar Kjartansson, mat- sveinn. 8. Hörður Snorrason, sundlaug- arvörður. 9. Ingunn Hávarðsdóttir, hár- greiðslumeistari. 10. Sverrir Sigurðsson, bifreiða- stjóri. 11. Sveinbjörn Ragnarsson, skip- stjóri. 12. Helga Sigurðardóttir, hjúkrun- arfræðingur. 13. Jón V. Guðmundsson, gjald- keri. 14. Lína D. Gísladóttir, verkakona. Sauðárkrókur: 1. Björn Sigurbjörnsson, skóla- stjóri. 2. Jón Karlsson, formaður Verka- mannafélagsins Fram. 3. Pétur Valdimarsson, verslunar- maður. 4. Sigmundur Pálsson, húsvörð- ur. 5. Helga Hannesdóttir, verslunar- maður. 6. Dóra Þorsteinsdóttir, talsíma- vörður. 7. Brynjólfur D. Halldórsson, mælingamaður. 8. Eva Sigurðardóttir, húsmóðir. 9. Guðmundur Guðmundsson, framkvæmdastjóri. 10. María Gréta Ólafsdóttir, versl- unarmaður. 11. Bjarney Sigurðardóttir, versl- unarmaður. 12. Valgarður Jónsson, vélvirki. 13. Daníel Einarsson, verkamaður. 14. Guðmundur Steinsson, verka- maður. 15. Baldvin Kristjánsson, banka- maður. 16. Guðmundur Karlsson, verka- maður. 17. Jóhannes Hansen, bifreiða- stjóri. 18. Guðbrandur Frímannsson, raf- virki. LAUSUM TÖNNUM BJARGAÐ Á Tannlæknaháskólanum í Árhus hafa verið gerðar tilraunir með nýja aðferð við lækningu á sjúku tannholdi, sem virðist ætla að gefa góða raun. Húðað er með sérstöku efni kringum tönnina þar sem hið sjúka hold hefur losnað frá og það hefur komið í Ijós að tann- holdið vex á tönnina að nýju, sem hindrar að tönnin losni og detti úr. í mörg ár hafa verið gerðar til- raunir með þessa aðferð á dýrum og niðui stöðurnar gefa tilefni til bjart- sýni um að sömu aðferð megi beita á fólk sem þjáist af tannholdssjúk- dómum. Nú þegar hafa nokkrir sjúklingar fengið þessa meðferð í tilraunaskyni og eftir nokkur ár ættu allar tannlæknastofur að geta veitt sams konar þjónustu, að sögn próf. dr. odont. Thorkild Karring hjá danska tannlæknasambandinu. Húðin sem komið er fyrir um- hverfis tönnina eyðist smátt og smátt fyrir tilverknað vefjanna um- hverfis, en áður hefur hún stuðlað að uppbyggingu og nýmyndun vefj- anna. Ef tilraunir þessar heppnast vel veitir það nýja von þeim mörgu sem haldnir eru þessum sjúkdómi. Meiri líkur eru á fullum bata og einnig verða skurðaðgerðir óþarfar, en fram að þessu hefur skurðaðgerð verið eina úrræðið þegar sjúkdóm- urinn er kominn á hátt stig. Svíar hafa einnig unnið að svip- uðum tilraunum og einnig þeirra tilraunir gefa góða von um árangur. Þeir nota einnig húðunarefni sem MM ^mmmm mmrnm _ _ ..................................................i Iliplll m-í: " : 'v iillllli - - Tannlos: Tennurnar líta ekki illa út, en tannholdið hefur eyðst og losnað frá tönninni um ca 5 mm. Ef ekkert er að gert losnar tönnin og dettur úr. eru vörn gegn sýklum og stuðla að endurnýjun tannholdsins á sýktum svæðum. En best af öilu er að sjálfsögðu að beita fyrirbyggjandi aðgerðum og það verður best gert með því að bursta tennurnar vel og vandlega og láta ekki tannstein safnast fyrir. Sé það vanrækt veldur það bólgu í tannholdinu og eyðingu tannholds- ins sem leiðir til þess að tennurnar losna. Besta vörnin er því og verður góð tannhirða, enda er kjörorð tannlækna um þessar mundir: „hreinar tennur losna ekki“. Molar Keðjubréf af nýrri tegund Keðjubréf það sem hér fer á eftir, barst hingað inn fyrir nokkru. Aldrei þessu vant snýst málið ekki um peninga, heldur allt annað. En bréfið er sem sagt svona: Kæra vinkona! Upphaf þessara keðju er hug- sjón um það að færa þreyttum eiginkonum ævarandi sáluhjálp og hamingju. Ólíkt flestum öðrum keðjum kostar þessi ekkert eða enga pen- inga. Þú sendir einfaldlega eintak af þessu bréfi til vinkvenna þinna (giftra) sem sitja í sömu súpunni og þú. Síðan pakkarðu manninum þínum inn og sendir hann til þeirrar konu sem efst er á Iistan- um og bætir þínu nafni neðst. Þegar nafn þitt er komið efst á listann, þá munt þú fá 500 karl- menn senda heim til þín og sumir verða algjört ÆÐI. Þú verðúr að hafa trú á keðj- unni. Ein kona rauf keðjuna og fékk manninn sinn sendan til baka. Láttu það ekki henda þig!! Með vinkonu-kveðju, Es. Þegar þetta bréf er ritað, hafði ein vinkvenna minna fengið 377 karlmenn, hún varð jarðsett í gær og það tók 7 líksnyrtimenn 36 klst. að ná brosinu af andliti hennar. (Athugaðu það). Ég ítreka . . . þú verður að hafa trú á keðjunni. Gangi þér vel!!! • Pósturinn á fiskiríi Tíðindin um póstbátinn á Mjóa- firði, sem tekur eitt til tvö höl á leiðinni, eru hins vegar úr Fiski- fréttum. Nokkur hundruð kíló af pósti og 60 tonn af þorski. Þetta eru flutningar póstbátsins Anny SU 71 frá Mjóafirði frá áramótum. Þetta þætti ekki í frásögur fær- andi ef áhöfn bátsins hefði ekki sjálf aflað þessara 60 tonna, en bréfin hafa hins vegar Mjófirð- ingar og aðrir séð um að skrifa. Að sögn kunnugra er póstbát- urinn í Mjóafirði eini báturinn á Austfjörðum sem hefur fiskað að ráði. Egill Stefánsson, eigandi bátsins, staðfesti það að fiskiríið hefði gengið framar öllum vonum en Anny hefur verið á snurvoð. Báturinn er 13 tonna plastbátur og hefur aflinn mestur orðið 8,5 tonn eftir tvo daga. — Þeir hafa aðallega fengið aflann yst í Seyðisfirði undir svo- nefndu Bjargi, segir Egill en sam- kvæmt upplýsingum hans hafa póstflutningar tafið bátinn tals- vert frá veiðum. Farið er með póst til Neskaupstaðar tvisvar í viku en oftar en ekki hefur Jóhann sonur Egils sem er með bátinn, náð einu til tveimur hölum á leiðinni. Ef svo heldur sem horfir verður Jóhann fljótur að fylla kvótann sem er um 120 tonn. Má því búast við að fiskilyktin á bréfum Mjó- firðinga dvíni þegar líða tekur á árið.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.