Alþýðublaðið - 21.06.1986, Qupperneq 2
2
Laugardagur 21. júní 1986
fllTSTJORNARGREINH
Hin hámenntaða láglaunastétt
löntæknistofnun býður þessa dagana upp á
námskeið í stofnun og rekstri fyrirtækja sér-
staklega fyrir konur. Aðsókn að þessum nám-
skeiðum hefur orðið miklum mun meiri en gert
var ráð fyrir, þegar ákvörðun var tekin um þau á
sínum tíma. Upphaflega var einungis gert ráð
fyrir einu námskeiði, en svo margar konur
skráðu sig til námskeiðshaldsins, þegar fyrstu
dagana eftir að það var auglýst að þá strax var
fyrirsjáanlegt að fjölga þyrfti námskeiðunum
og nú mun Ijóst að talsvert framhald verður á
þessari starfsemi.
Það er eflaust margt sem veldur því að svo
margarkonurviljanú kynnasérhvernig standa
beri að því að stofna fyrirtæki og reka það. Þó
má trúlega að stærstum hluta rekja þennan
áhuga til þeirrar gífurlegu jafnréttisbaráttu
sem konur hafa háð á undanförnum árum og
hefur reyndar borið talsverðan árangur og í
mörgum tilvikum annan en gert var ráð fyrir.
A síðustu tíu til fimmtán árum hefur þeim
konum fjölgað stórlega sem valið hafa þann
kost að mennta sig og jafnvel lagt út í langskól-
anám, kannski fyrst og fremst með það fyrir
augum að standa jafnfætis karlmönnum á hin-
um almenna vinnumarkaði. Þannig hefur það
gerst á þessum tiltölulega fáu árum að meiri-
hluti menntaskólanema er orðinn kvenkyns og
í Háskóla ísiands eru konur (meirihluta í fjölda
námsgreina. í Kennaraháskólanum hafa konur
líka verið i meirihluta um langt skeið.
Þessi aukna ásókn kvenna í menntun þá sem
þjóðfélagið býður þegnum sínum upp á hefur
hins vegarekki haft þau áhrif í jafnrétisátt sem
margir áttu ugglaust von á. Þannig hafa konur
eftir sem áður valið sér ákveðnar námsbrautir,
sem leiða til láglaunastarfa. Það má líka finna
dæmi þess að þegar konum fjölgar í ákveðnum
stéttum, hafi laun þessara stétta tilhneigingu
til að dragast aftur úr í samanburði við laun
annarra sambærilegra stétta.
Samhliða þessari þróun hefur það gerst að
menntunarkröfur eru stórlega auknar í ýmsum
kvennastarfsgreinum. Þannig hefur hjúkrunar-
menntun verið færð upp á háskólastig, og
munar því kannski ekki lengur svo ýkja miklu í
námslengd á menntun lækna og hjúkrunar-
fræðinga, þótt verulegur munur sjáist á launa-
kjörum þessarastétta. Nefnamáeinnig að þótt
ekki sé krafist stúdentsprófs til inngöngu í
Fósturskóla íslands, munu konur í fæstum til-
vikum fá inngöngu í þann skóla með öllu minni
menntun. Mörg fleiri dæmi mætti nefna í
þessu sambandi.
Þannig hefur hin stóra flóðbylgja kvenna inn
í íslenska menntakerfið á síðastliðnum áratug,
ekki borið þann árangur að launamunur milli
kynjanna hafi minnkað að neinu ráði. Konur
gegna í mögum tilvikum sömu störfum og áð-
ur, en þurfanú til þess mun meiri menntun. Það
mun ekkert ofmælt þótt þær séu kallaðar „hin
hámenntaða láglaunastétt".
Þessa staðreynd eiga margar konur auðvitað
erfitt með að sætta sig við og það þarf sannar-
lega enginn að verða hissa á því þótt hámennt-
aðar konur, sem vinna fyrir lágu kaupi í þjón-
ustu hins opinbera, fari að velta því fyrir sér í al-
vöru hvort þær geti ekki nýtt sér menntun sína
á einhvern annan hátt, t.d. með því að stofna
eigið fyrirtæki.
Þótt jafnréttisbarátta kvennaáratugarins hafi
kannski ekki skilað jafn stórum áföngum í
áþreifanlegu jafnrétti og margar konur áttu von
á, hefur hún þó orðið til þess að fjölmargar
menntaðarkonur neitaifyllstu alvöru að sætta
sig við láglaunahlutverkið. Þeim konum fer
fjölgandi sem tilbúnar eru að sýna klærnar —
og það er allavega skref í rétta átt, því jafnrétti
fæstekki ásilfurfati, heldurverða konurnar að
vinna það sjálfar.
JD
Fósíurskólinn:
Víðtæk endurmenntun
Fósturskóla íslands var slitið 29.
maí 1986 í Bústaðakirkju að við-
stöddum mörgum gestum og af-
mælisárgöngum.
Skólastjóri, Gyða Jóhannsdóttir,
las yfirlit yfir starfsemi skólans á sl.
skólaári og ræddi ýmis framtíðar-
verkefni.
í upphafi skólaárs voru 174
nemendur við nám í skólanum.
Skiptust nemendur í 8 bekkjar-
deildir. Tvær bekkjardeildir voru á
fyrsta námsári, þrjár á öðru náms-
ári og þrjár á þriðja námsári. Víð-
tæk endurmenntun fór fram sl. vet-
ur fyrir starfandi fóstrur. Þessi end-
urmenntun var fólgin í 15 stuttum
námskeiðum 20—30 stunda löng-
um.
Skólastjóri ræddi um nauðsyn
þess að slík endurmenntunarnám-
skeið yrðu eðlilegur þáttur í starf-
semi skólans.
Einnig taldi hann nauðsynlegt að
Lima 1
borgar í þriðja heiminum í fyrsta
sinn. Andstæðurnar í þjóðfélaginu
væru ólýsanlegar, t.d. færi ráð-
stefnan sjálf fram í lúxushóteli í
skýjakljúfi í Lima en ekki þurfi
nema líta út um glugga til að sjá
eymdarleg fátækrahverfi. Borgin
hafi vaxið svo mikið með innflutn-
ingi sveitamanna að hvergi hafi tek-
ist að fylgja eftir i skipulagi eða
uppbyggingu, þarna ætti ýmislegt
eftir að gera.
Þingið hófst með störfum hinna
ýmsu nefnda 15. júní, og lýkur
þann 22. Fastanefndir munu starfa
til 25. júní.
„Ég kom á þriðja degi og það
kom mér strax á óvart hve þingið
starfar opið og ómiðstýrt. Það
starfar virkilega fyrir opnum tjöld-
um“, sagði Jón Baldvin Hannibals-
son að lokum. Hann mun koma
heim strax að þingi loknu.
GOTT BILMILU BÍLA.
gefa starfandi fóstrum kost á eins
árs framhaldsnámi.
Mjög brýnt er að skólinn eignist
íþróttasal. Skortur á slíkri aðstöðu
er tilfinnanlegur, þar sem ekki er
unnt að veita nemendum nægilega
þjálfun í sambandi við hreyfiupp-
eldi barna, sem er mikilvægur þátt-
ur í uppeldisstarfi.
í lok ræðu sinnar minnti skóla-
stjóri á nauðsyn þess að starfrækja
æfinga- og tilraunastofnun við
Fósturskóla íslands, en um það er
kveðið á um í lögum skólans.
Burtfararprófi luku 62 nemend-
ur.
Skólastjóri afhenti þeim skírteini
og ávarpaði þær sérstaklega.
Marta Gunnarsdóttir hlaut
bókaverðlaun frá skólanum fyrir
hæstu einkunn í lokaritgerð en hún
fékk 10.
Bjarni 1
sem varamann minn“, sagði Bjarni,
en borgarstjóri mótmælti því og
taldi að einungis mættu aðalfull-
trúar sitja í borgarráði, eftir að álit
lögfræðinga lá fyrir var ákveðið að
Ingibjörg Sólrún yrði varafulltrúi
minní'
Á síðasta kjörtímabili urðu Al-
þýðuflokksmenn að sæta því að
eiga aldrei fulltrúa í borgarráði, en
árangurinn í kosningunum gerði
það að verkum að þeir skutust upp
fyrir bæði Framsókn og Kvenna-
lista og komast þannig inn vegna
stærðar sinnar.
Að öðrum nefndum er það að
segja að Alþýðuflokkur fékk full-
trúa í hafnarstjórn sem verður
Bryndís Schram, varamaður er
Skjöldur Þorgrímsson, Gissur
Símonarson í byggingarnefnd,
varamaður hefur ekki verið kosinn,
Ragnheiður Guðmundsdóttir í
menningarmálanefnd, varamaður
er Bryndís Schram, Bryndís Krist-
jánsdóttir í umhverfismálanefnd,
varamaður er Gylfi Þ. Gíslason,
Björk Jónsdóttir er í Barnaverndar-
nefnd, varamaður Ásgerður
Bjarnadóttir og í stjórn Sjúkrasam-
lags Reykjavíkur er Halldór Jóns-
son varamaður hans er Jón Baldur
Lorange.
Skrifstofa Alþýðuflokksins
Hverfisgötu 8—10 er opin alla virka daga frá kl.
9—16. — Símar: 29282 og 29244.
Bjarni P. Magnússon sagðist
mundu strax á fyrsta fundi í byrjun
júlí Ieggja fram nokkur af þeim
baráttumálum sem flokkurinn var
með í kosningabaráttunni.
Ráðstefna 4
með heilbrigði allra árið 2000,
samanber yfirlýsingu Alman-
Akt ráðstefnunnar frá 1978.
Þetta þýðir, að hver þjóð verður
að veita öllum þegnum sínum
eins alhliða og fullkomna heil-
brigðisþjónustu sem völ er á og
hægt er að veita hverju sinni.
Álgengustu orsakir veikinda,
fötlunar, óvinnufærni, þjáninga
og dauða í Evrópu eru af völd-
um langvinnra sjúkdóma eins
og hjarta- og æðasjúkdóma,
krabbameina, slysa, sykursýki
og geðlægra vandamála. Rann-
sóknir Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar og annarra aðila
hafa sýnt, að hægt er að koma í
veg fyrir þessa sjúkdóma að
miklu leyti.
Fram að þessu hafa fjölmörg
verkefni verið þróuð til að fást
við hvern þessara sjúkdóma fyr-
ir sig. En þar sem ljóst er, að or-
sakir þessara sjúkdóma eru
margar og að margar þeirra eru
sameiginlegar fleiri sjúkdóm-
um, þarf samstarf margra sér-
greina og aðgerðir á mörgum
sviðum þjóðlífsins að koma til,
ef hanna á virk eftirlitsverkefni
gegn þessum sjúkdómum.
Árangur slíkra verkefna verð-
ur áhrifameiri og áhættuvarnir
virkari og ódýrari ef sameigin-
legir áhættuþættir eru skil-
greindir og samhæfðum íhlut-
unaraðgerðum beitt sem ná til
alls þorra manna. Önnur aðild-
arríki Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar munu hagnýta
sér þá reynslu sem fæst af verk-
efninu þar sem saman fer notk-
un samreyndra eftirlitsaðferða
og samþætting varnaraðgerða“
Þátttakendur á ráðstefnunni eru
allt háttsettir starfsmenn heilbrigð-
isyfirvald viðkomandi ríkja og
skrifstofa Alþjóðaheilbrigðismála-
stofnunarinnar í Genf og Kaup-
mannahöfn.
Meðan á ráðstefnunni stendur,
heimsækja fulltrúarnir Hjarta-
vernd, heilsugæslustöðina á Sel-
fossi, Heilsuverndarstöð Rekjavík-
ur og Krabbameinsfélag íslands.
Á ráðstefnunni situr Hrafn Frið-
riksson, yfirlæknir Heilbrigðis- og
tryggingamálaráðuneytisins í for-
sæti, en hann hefur tekið virkan
þátt í verkefninu fyrir hönd íslands
frá 1984.
Styrkur til háskólanáms í Japan
Japönskstjórnvöld bjóöafram styrk handa íslendingi til
háskólanáms í Japan háskólaárið 1987—88 en til
greina kemur að styrktfmabil verði framlengt til 1989.
Ætlast er til að styrkþegi hafi lokið háskólaprófi eða sé
kominn nokkuð áleiðis í háskólanámi. Þar sem kennsla
viðjapanskaháskólaferfram ájapönsku ertil þessætl-
ast að styrkþegi leggi stund á japanska tungu um a. m.
k. sex mánaða skeið.
Umsóknir um styrkinn, ásamt staðfestum afritum próf-
sklrteina, meðmælum og heilbrigðisvottorði, skulu
sendar menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, 150
Reykjavlk, fyrir 1. ágúst n. k. Sérstök umsóknareyðu-
blöð fást í ráðuneytinu.
Menntamálaráðuneytið
18. júní 1986
Útboð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í EYRAR-
BAKKAVEG MILLI EYRARBAKKA OG
ÖLFUSÁRÓSS.
Helstu magntölur:
Lengd......................... 3,5 km
Fylling, fláafleygar og burðarlag .. . 30.000 m3
Verkinu skal að fullu lokið 20. ágúst 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins,
Borgartúni 5, 105 Reykjavík og Breiðumýri 2, 800
Selfossi frá og með þriðjudeginum 24. júní 1986.
Skila skal tilboðum fyrir kl. 14:00 hinn 7. júlí 1986.
Vegamálastjóri.
Sumarferð
Alþýðuflokkurinn efnir til sumarferðar á ítölsku
Rivíeruna — Pietra Liqure — dagana 7. til 28. júlí.
Flogið verður í beinu leiguflugi til Genova.
Skoðunarferðiraðvild til Monacoog MonteCarlo,
Nice og Cannes, Pisa, Genova, Portefino og
ítalskt útileikhús skoðað.
Heimsókn til Bettino Craxi, forsætisráðherra íta-
líu og formanns ítalska Alþýðuflokksins ásamt
skoðunarferð til Rómar með Jóni Baldvin og
Bryndísi.
Verð frá kr. 23.900,-
Fararstjóri: Guðlaugur Tryggvi Karlsson.
Allar frekari upplýsingar á flokksskrifstofunni,
hjá fararstjóra og Ferðaskrifstofunni Terru,
Laugavegi 28.
Alþýðuflokkurinn.