Alþýðublaðið - 19.07.1986, Qupperneq 4

Alþýðublaðið - 19.07.1986, Qupperneq 4
alþýðu- Laugardagur 19. júll 1986 Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson og Ása Björnsdóttir Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12 Askriftarsíminn er681866 K j amorkulaus orkubúskapur í Svíþjóð Danir krefjast þess að Svíar loki kjarnorkuverinu í Barsebáck þegar í stað. Eftir kjarnorkuslysið í Cjernobyl var gerð skoðanakönnun í Svíþjóð sem sýndi að 60% þjóðarinnar eru andvíg kjarnorku og háværar raddir kröfðust þess að kjarnorku- stöðvum yrði lokað. Eftir margra ára þref var það bor- ið undir þjóðaratkvæði árið 1980, hvort kjarnorka væri fýsilegur kostur og komist að niðurstöðu sem Birgitta Dahl orkumálaráð- herra orðaði þannig: , .Kjarnorkan er ótrygg orkulind." Þjóðarat- Bandarískur hjartaskurð- læknir, dr. Robert White hefur undanfarið fengist við tilraun- ir á dýrum, sem mörgum þykja á mörkum siðferðilegs velsæm- is. Hann hefur tekið höfuðið af 25 simpönsum og sett þau á likama 25 annarra simpansa. Að aðgerðinni lokinni sagði hann stoltur frá því að 12 af öp- unum hefðu sjón, gætu étíð og fyndu fyrir sársauka. Hinir dóu á meðan á aðgerðinni stóð. Aparnir sem lifðu aðgerðina af voru aflífaðir skömmu seinna. Öðrum kosti hefðu þeir orðið lamaðir það sem eftir var, því ekki var hægt að tengja saman þær 100 milljónir taugaþráða, sem tengja mænu og heila. Mótmælt hjá Sameinuðu þjóðunum Tilgangur tilraunanna er að sögn dr. White að geta fram- kvæmt sams konar aðgerð á mönnum þegar fram llða stund- ir. Ætlunin er sem sé að útvega heilasköðuðu fólki nýtt höfuð. Margir dýravinir telja að sitt- hvað kunni að vera athugavert við heilann í dr. White. —Þessar tilraunir eru tilgangs- lausar og grimmdarlegar—, segir Edel Sondregaard, formaður Landssambands dýraverndurn- arfélaga í Danmörku. —Vitað er að dr. White hefur í mörg ár unn- ið að tilraunum með flutninga af þessu tagi. Kvörfunum hefur ver- ið komið á framfæri við hann sjálfan, en hann skeytír ekkert um það,— Heilbrigðisyfirvöld í Banda- ríkjunum hafa nú skorist í leikinn og mælst tíl þess við dr. White að hann láti af þessum tilraunum. kvæðagreiðslan þaggaði niður pólitísk deilumál, sem höfðu leitt til afsagnar Thorbjörns Fálldin for- sætisráðherra tveimur árum áður. Akveðið var að öllum kjarnorku- stöðvum yrði lokað fyrir 2010. Samkvæmt tölum frá 1984 missa Svíar við það 12% af orkufram- leiðslu sinni, sem er að mestum hluta raforka og nemur 41% af allri raforku landsins. Og Svfar gengu enn lengra. Stjórnin ákvað 1981 að draga úr Danska dýraverndunarsam- bandið hefur í hyggju að leggja fram formleg mótmæli hjá Sam- einuðu þjóðunum vegna þessa máls og fá til liðs við sig samtök og stofnanir annarra landa. innflutningi á olíu. Það ár sá olían Svíum fyrir 50% af allri orku, en nú er ráðgert olíuorka nemi um 40% af orkuþörf Svía árið 1990. Ætlunin er að brúa bilið með orkusparnaði og nýjum orkugjöf- um, s. s. ráðgert að byggja fleiri vatnsaflstöðvar, en þær áætlanir rekast að vísu á við hagsmuni um- hverfisverndarsinna, sem vilja halda náttúrunni óspilltri, einkum við ár og vötn. Spurningin er hvort Svíum tekst að framkvæmda áætlanir sínar á aðeins 24 árum, þegar þær byggja á svo mörgum óvissuþáttum, þ. m. t. óvissa um olíuframboð og olíu- verð. Gasframleiðsla úr kolum og mó er það sem gefur mestar vonir um árangursríka orkuframleiðslu I stað kjarnorku og olíu. Þá eru einn- ig bundnar vonir við raforku úr vetni og súrefni, en þá tækni nota Bandaríkjamenn við geimferjur sínar,og ennfremur við sólarorku og orku frá bylgjuhreyfingum. Gagnrýni á þessar áætlanir hefur komið fram frá Konunglegu sænsku verkfræðistofnuninni, sem hefur með höndum vísindarann- sóknir I verkfræði og gerir áætlanir um iðnað og verslun. Það er varað við efnahagslegum áföllum, ef Svíar leggja kjarnorku- verin á hilluna og einnig er lögð áhersla á að öryggisbúnaður sé mun tryggari I sænskum kjarn- orkuverum en I Sovétríkjunum. Forstöðumaður stofnunarinnar, Hans G. Forsberg, segir að það sé , ,hrein heimska" að ætla að treysta á vatnsaflstöðvar og aðrar orku- lindir, sem verði mun dýrari en kjarnorkan og muni það lama sænskan iðnað. Einnig bendir hann á að raforkuþörf fari sívax- andi og verði meiri árið 1990 en ráð er fyrir gert I áætlunum stjórnar- innar. Stjórnin gerir hins vegar ráð fyrir allsherjar orkusparnaði, bæði á heimilum og I iðnaði og Peter Steen, forstöðumaður Rannsókna- stofnunar varnarmála, telur að sá sparnaður geri meira en að vega upp á móti þeirri orku sem tapast þegar kjarnorkuverin verða lögð niður. Ennfremur er gert ráð fyrir að nýta útblástursgufu frá iðnaðin- um til raforkuframleiðslu, auk hinna nýju orkugjafa, sólar- og vindorku og gasframleiðslu. Framh. á bls. 3, LAN DSBAN KASYNING 00ÁRA AFMÆLI LANDSBANKA ÍSLANDS OG ÍSLENSKRAR SEÐLAÚTGÁFU 28.JUNI-20. JUU I SEÐLABANKAHÚSINU tilefni 100 ára afmælis Landsbankans og íslenskrar seðlaútgáfu hefur veriö sett upp vegleg sýning I nýja Seðtabankahúsinu við Kalkofnsveg. Par er m.a. rakin saga gjaldmiðils á íslandi allt frá landnámsöld, fyrsta afgreiðsia bankans endurbyggð, skyggnst inn I framtíðarbankann, sýndar gamlar gullfallegar vélar og fylgst með hvernlg peningaseðill verður tll. sýningunni verða seldir sérstakir minnispeningar og frímerki, þarervegleg verðlaunagetraun og léttur útibúaleikur og daglega eru sýndar kvikmyndir um Landsbankann og sögu íslenskrar seðla- og myntútgáfu. Þá eru einnig sýnd saman opinberlega í fyrsta sinn málverk I eigu bankans eftir marga bestu listmálara þjóðarinnar. Veitingasala er á sýningunni og leiksvæði fyrirbörn. ýningin er opin virka daga frá kl. 16.00-22.00 ogfrá 14.00-22.00 um helgar. Við hvetjum alla til þess að sjá þessa stórskemmtilegu sýningu. Aðgangur er ókeypis. Landsbanki íslands Banki allra landsmanna 1100 ár Skipt um höf~ uð á 25 öpum

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.