Alþýðublaðið - 25.07.1986, Side 1
Föstudagur 25. júlí 1986 140 tbl. 67. árg.
Yfirvofandi efnahagsþvingarnir:
„Svara þessu
af festu“
SegirEiður Guðnason formaður þingflokks Al-
þýðuflokksins
Þeim er vorkunn. , erlendu ferðamönnunum, sem að undanförnu hafa þurft að búa í tjaldi í Laugardalnum
í Reykjavík í rigningunni. Það er heldur ekki hægt að segja að hann sé neitt tiltakanlega sællegur á svipinn, þessi
Þjóðverji, sem Árni Bjarna, Ijósmyndari Alþýðublaðsins smellti mynd af um daginn.
Umferðarkönnun:
Notkun bílbelta
lítið aukist
„Reganstjórnin telur greinilega
að hún geti komið fram við okkur
sem hvert annað bananalýðveldi.
Það er kominn tími til að hún geri
sér grein fyrir því að það gengur
ekki. — Við verðum að standa sam-
an og svara þessu með festu. Með
þessari hegðan sinni hafa þeir
stofnað vinsamlegum samskiptum
okkar í verulega hættu,“ sagði Eið-
ur Guðnason formaður þingflokks
Alþýðuflokksins í samtali við Al-
þýðublaðið í gær aðspurður um
yfirvofandi efnahagsþvinganir
gagnvart íslendingum af hálfu
Bandaríkjamanna, vegna hvalveiða
íslendinga í vísindaskyni.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
sendi í gær forsætisráðherra Stein-
grími Hermannssyni bréf þar sem
var farið á leit að flokkurinn fái að
fylgjast með þessu máli. Eiður
sagði að forsætisráðherra hefði
Alþýðublaðið hefur undir hönd-
um bréf sem Alexander Stefánsson,
félagsmálaráðherra skrifaði til
stjórnar Húsnæðisstofnunar ríkis-
ins 2. september 1983, þegar núver-
andi ríkisstjórn hafði setið að völd-
um í fáeina mánuði. í bréfinu skip-
i gœr
Albert Guðmundsson, iðnaðar-
ráðherra lagði fram frumvarp um
breytingar á iðnaðarlögum, á ríkis-
stjórnarfundi í gær. I frumvarpi
þessu er gert ráð fyrir veigamiklum
breytingum að því er varðar réttindi
erlendra fyrirtækja eða einstakl-
inga, þar sem afnuminn er réttur
Alþingis til að taka ákvörðun um
meirihlutaeign útlendra aðila í iðn-
fyrirtækjum hérlendis, en það vald
fært til iðnaðarráðherra.
í tillögum þeim sem iðnaðarráð-
herra lagði fram á ríkisstjórnar-
fundinum í gær, er gert ráð fyrir að
iðnaðarráðhera geti við útgáfu
iðnaðarleyfis til hlutafélags veitt
undanþágu frá því skilyrði að
meirihluti hlutafjár skuli vera í eigu
manna sem búsettir eru hér á landi.
Þá er ennfremur gert ráð fyrir að
erlendu hlutafélagi sem veittur hef-
ur verið réttur til að starfa hér á
þegar tekið vel undir það. En bréfið
hljóðaði svo:
„Vegna frétta fjölmiðla í gær-
kveldi og morgun af hótunum
bandarískra stjórnvalda um að
beita íslendinga efnahagsþvingun-
um, fer ég þess hér með á leit við
yður hr. forsætisráðherra, að þing-
flokkur Alþýðuflokksins fái að
fylgjast gjörla með framvindu og
þróun þessa máls.
Við teljum, að hér sé um svo
alvarlegt mál að ræða, að ríkis-
stjórninni beri skylda til að gera
stjórnarandstöðunni ítarlega grein
fyrir stöðu þess, svo og hvernig rík-
isstjórnin hyggist bregðast við þess-
um einstæðu hótunum Bandaríkja-
stjórnar."
Á ríkisstjórnarfundi í gær var
rætt um yfirvofandi efnahags-
Framh. á bls. 2
aði ráðherrann svo fyrir að hækkun
lánskjaravísitölunnar í þeim mán-
uði skyldi aðeins reiknast S.lVo í
stað 8,1%. Þessi aðgerð ráðherrans
var hugsuð til að leiðrétta hluta af
misgengi kaupgjalds og verðlags,
Framh. á bls. 2
landi, samkvæmt reglum hlutafé-
lagalaga um útibú, geti fengið leyfi
til að reka iðnað hér á landi og að
erlendur aðili sem fengið hefur leyfi
til iðnrekstrar fái sjálfkrafa rétt til
að eiga eða nota fasteign hérlendis
í þágu rekstrarins.
Þá er einnig að finna ákvæði þess
efnis í frumvarpinu, að það verði
iðnaðarráðherra sem framvegis
veiti iðnaðarleyfi, en ekki lögreglu-
stjóri svo sem nú er.
í fréttatilkynningur frá iðnaðar-
ráðuneytinu um þetta mál, segir að
í eldri iðnaðarlögum hafi iðnaðar-
ráðherra haft heimild til að veita
undanþágu frá því skilyrði að
meirihluti hlutafjár í hlutafélagi
skuli vera eign manna búsettra hér á
landi. Hafi ákvæði þar um verið í
lögum allt frá árinu 1927 fram til
þess að núverandi iðnarlög öðluð-
ust gildi, en þau eru frá árinu 1978.
„Það er okkar skoöun hjá Um-
ferðaráði að þetta ítreki gildi viður-
laga ef menn noti ekki bílbelti,"
sagði Margrét Sæmundsdóttir hjá
Umferðaráði í samtali við Alþýðu-
blaðið í gær, en nú er lokið úr-
vinnslu úr viðamikilli umferðar-
könnun sem fór fram í júní. Kom
m. a. annars í Ijós að einungis
32,l°/o ökumanna notar bílbelti.
Miðað við niðurstöður úr sams
konar könnun í fyrra hefur notkun-
in aðeins aukist um 1%.
Alls voru 2451 bílar stöðvaðir í
þessari könnun, eða um tæp 2% af
bílum landsmanna, vítt um landið.
Ástand ökutækjanna var yfirleitt
gott og kom að mörgu leyti á óvart
t. a. m. voru slæmir hjólbarðar að-
eins um 3.4%. Hins vegar var ýmis-
legt áfátt varðandi fylgibúnað, t. d.
voru slökkvitæki í aðeins um 8,9%
bílanna og sjúkrakassar í 17,2%.
Af ánægjulegum niðurstöðum
má nefna að notkun barnabílstóla
hefur aukist mjög. 381 barn sat í
aftursæti þar af voru 28,1% barn-
anna í barnabílstólum. í könnun-
inni í fyrra voru 15,2% í slíkum stól-
um.
Margrét Sæmundsdóttir sagði að
þennan árangur með notkun barna-
bílstóla mætti þakka ágætu sam-
starfi sem náðist í fyrra við starfs-
fólk heilsugæslustöðva og ekki síst
við innflytjendur sem lánuðu stóla
til að sýna á heilsugæslustöðvum
víða um landið. Eins tóku læknar
Ákveðiö hefur verið að flokks-
þing Alþýðuflokksins verði haldið í
Hótel Ork í Hveragerði, dagana
3—5 október n. k.
Guðmundur Oddson formaður
framkvæmdanefndar Alþýðu-
flokksins sagði í samtali við Al-
þýðublaðið í gær að flokksþingið
hefði allt hótelið'til umráða þá daga
sem það færi fram, ásamt þeirri
þjónustu sem boðið væri upp á, á
staðnum. Sagði hann sér fyndist
upplagt að fulltrúar á þinginu
tækju þarna með sér fjölskyldur
sínar, því öll aðstaða væri fyrir
hendi til þess. Þarna væri glæsileg
þátt í því að hvetja foreldra sem
komu með börn sín í skoðun að
huga að öryggi barna sinna í bílun-
um.
Margrét sagði einnig að mikið
Á mánudag lagði minnihlutinn i
borgarstjórn fram tillögu þess efnis
að Kvennaathvarfið fengi strax þá
peninga sem úthluta átti því í
september og desember. Málið
verður tekið upp í borgarráði í
næstu viku. — En eins og koma
fram hjá Guðrúnu Jóhannsdóttur
starfsmanni athvarfisns í samtali
við Alþýðublaðið í gær telja Sam-
tök um Kvennaathvarf nú vanta um
1 milljón svo rekstur heimilisins
geti gengið áfallalaust fyrir sig á
næstunni. Auk þess er talið að vanti
um 1 milljón svo hægt sé að gera
aðstaða til ýmissa leikja og afslöpp-
unar, sundlaug, sauna, tennisvellir
og svo lengi mætti telja.
Guðmundur sagði að fljótlega
yrði sent út bréf til félaga og nánar
sagt frá dagskránni. Einnig verður
sagt nánar frá flokksþinginu í AI-
þýðublaðinu. En ákveðið er að
þingið hefjist í Hótel Örk föstudag-
inn 3. október og ljúki sunnudags-
kvöldið 5. október.
Guðmundur Oddsson sagði að
það væru í raun einstaklega góðir
samningar sem hefðu náðst við eig-
enda hótelsins og vonaðist hann til
að þetta mæltist vel meðal félags-
manna.
væri hringt í Umferðarráð til að fá
upplýsingar um hvar mætti fá sem
bestan búnað.
Um verslunarmannahelgina
verður gert sérstakt átak, varðandi
öryggi barna í aftursæti. Þá munu
lögreglumenn veita börnum í bíl-
beltum sérstaka viðurkenningu, lít-
inn pakka með óvæntum glaðning.
nauðsynlegar endurbætur á hús-
næðinu.
Undirtektir meirihlutans í borg-
arstjórn voru dræmar og verður
ekki fjallað um málið í borgarráði
fyrr en á þriðjudag. — Við síðustu
fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir
625 þúsundum sem þegar er búið að
greiða helminginn af. Hinum helm-
ingnum átti síðan að skipta í tvennt
og kæmi hann til greiðslu í septem-
ber og desember. Samtökin þurfa
nú hins vegar að greiða afborgun af
húsi sínu í ágúst og sjá ekki fram úr
því frekar en öðrum reksturskostn-
aði á næstunni. Afborgunin í ágúst
er hátt í 300 þúsund krónur.
Þess má geta að Kvennaathvarfið
fór fram á 1 milljón króna frá borg-
inni þetta árið en fékk aðeins sem
áður sagði 650 þúsund sem er sama
upphæð í krónum talið og fengust í
fyrra. Guðrún Jóhannsdóttir sagði
að þessi tala hefði ekki verið sett
fram af neinu handahófi heldur
hefði þetta verið reiknað út eftir
bestu samvisku, áður en farið var
fram á fjárveitingu, auk þess benti
hún á að ekki ætti að vera neitt
sjálfgefið að þurfa að fara fram á
aukafjárveitingu.
í blaðinu í gær var farið rangt
með að framlög til athvarfsins á síð-
asta ári hefðu komið frá 18 sveitar-
félögum. Það er því miður ekki rétt
því þarna átti að standa að þeir sem
gistu athvarfið hefðu komið frá
þetta mörgum sveitarfélögum.
Ráðherrabréf:
Kom aldrei til
framkvæmda
— Fyrirskipun Alexanders Stefánssonar haust-
ið 1983 um lækkun lánskjaravísitölu á húsnœð-
islán var hundsuð og kom aldrei til fram-
kvæmda
Erlent fjármagn:
Iðnaðarráðherra
veitir undanþágur
— er inntakið í nýju frumvarpi Alberts Guð-
mundssonar, sem kynnt var á ríkisstjórnarfundi
Flokksþing Alþýðuflokksins:
Haldið í Hótel Örk
Dræmar
undirtektir
meirihlutans
Mál Kvennaathvarfsins rœdd í borgarstjórn á
þriðjudaginn