Alþýðublaðið - 25.07.1986, Qupperneq 3
Föstudagur 25. júlí 1986
3
Verslunarmannahelgin:
Bindindismótinu í Galtalœkjarskógi 1985. Ljósm. Heimir Oskarsson.
Fj ölskylduhátið
í Galtalækj arskógi
Um verslunarmannahelgina
verður að venju haldið bindindis-
mót í Galtarlækjarskógi á vegum
íslenskra ungtemplara og Umdæm-
isstúku Suðurlands. Þar situr fjöl-
breytnin í fyrirrúmi og sem fyrr
verða skemmtiatriði fyrir alla ald-
urshópa.
Föstudagskvöldið 1. ágúst hefur
hin vinsæla hljómsveit Upplyfting
leik fyrir dansi — sem linnir ekki
fyrr en aðfaranótt mánudags — að
sönnu með hléum. í tjaldi leikur
hljómsveitin Þema.
Á laugardeginum verður barna-
dansleikur, reiðhljólakeppni —
hæfileikakeppni söngvara í umsjá
hljómsveitarinnar Upplyftingar.
Um kvöldið verður skemmtidag-
skrá sem leikararnir Sugurður Sig-
urjónsson, Karl Ágúst Úlfsson og
Örn Árnason stýra. Þar koma einn-
ig fram Jóhannes Kristjánsson eft-
irherma, sönghópurinn Túnfiskar
og Ingólfur Ragnarsson töframað-
ur. Hljómsveitin Upplyfting verður
þeim til aðstoðar og leikur síðan
fyrir dansleik á palli en í tjaldi leika
sigurvegarar Músíktilrauna 1986:
Greifarnir.
Á sunnudag hefst dagskráin með
helgistund í umsjá Þorvaldar Hall-
dórssonar. Að henni lokinni sjá Sig-
urður, Karl Ágúst og Örn um
barnaskemmtun — síðan verður
barnadansleikur og loks ■skemmtir
Brúðubíllinn. Þessi barnadagskrá
^tendur frá kl. 15 til 18.30 — en þess
er skylt að geta að foreldrar eru vel-
komnir! Raunar hafa þeir notið
þessara atriða ekki síður en börn-
in . . .
Um kvöldið flytur sr. Heimir
Steinsson hátíðarræðu og um
kvöldvöku sjá áðurnefndir lands-
þekktir leikarar — með aðstoð
margra annarra. Auk Upplyftingar
leika Lögmenn frá Vík (áður
Rocket) fyrir dansi.
Undanfarin ár hefur sérstök á-
hersla verið lögð á að koma upp
góðri hreinlætisaðstöðu í Galta-
lækjarskógi og nú eru á svæðinu
þrjú hús með fimmtán vatnssalern-
um. Aðsókn hefur sýnt að það
framtak er vel metið!
Þá hefur verið komið fyrir fjölda
leiktækja í Ævintýralandi barn-
anna, m. a. lokaðri rennibraut,
þrautabraut og fjaðurdýnu (tramp-
ólín). Það er að sjálfsögðu afar vin-
sælt af börnunum — og raunar
foreldrum einnig fyrir margra hluta
sakir.
Nýja húsnœðislánakerfið:
„Gera þarf vissar
hliðarráðstafanir44
Segir í fréttabréfi Fasteignamats ríkisins
í nýjum „Fréttum" frá Fasteigna-
mati ríkisins er nokkuð fjallað um
áhrif nýrra útlánareglna í húsnæð-
iskerfinu. Þar segir m. a.:
„Undanfarnar vikur hafa menn
velt því fyrir sér hvaða áhrif hinar
nýju útlánareglur Húsnæðisstofn-
unar muni hafa á fasteignaverð.
Samkvæmt þeim hækka hin opin-
beru húsnæðislán mikið og útreikn-
ingar á lánsréttindum breytast. Til
þess að gera sér grein fyrir áhrifum
þessara breyttu forsendna verður að
hafa í huga að fasteignaverð er nú
með því lægsta, sem mælst hefur í
fimmtán ár. Auk þess virðist bið-
staða hafa verið á markaðinum
undanfarna mánuði. í upphafi
þessa árs seldust til dæmis tiltölu-
lega fáar eignir og verð hefur lítið
breyst í þrjá mánuði. Þetta leiðir til
þess að vænta má einhverrar hækk-
unar á fasteignaverði i kjölfar hinna
nýju ákvæða.
Ekki er auðvelt að sjá fyrir hvaða
áhrif hinar breyttu reglur muni hafa
þegar til lengri tíma er litið. Hin háa
útborgun, sem tíðkast hér á landi,
gerir það að verkum að lánsfjár-
aukningin nýtist ekki eins vel og
ástæða væri til. Auk þess mun hin
þunga greiðslubyrði ekki lagast
nema hjá takmörkuðum hópi
kaupenda. Greiðslubyrðin stafar
einkum af bankalánum og eftir-
stöðvarlánum en þeir lánaflokkar
breytast ekki við þessar aðgerðir.
Menn virðast einnig hafa ofmetið
þá nettóaukningu á lánsfé, sem tal-
að er um að verði á markaðinum.
Hinar nýju reglur koma einstök-
um þjóðfélagshópum misjafnlega
til góða. Kaupgeta fólks, sem er að
kaupa sína fyrstu eign og hefur full
lánsréttindi, mun sennilega aukast
verulega frá því sem verið hefur. Á
hinn bóginn er óljóst hvernig þær
reynast kaupendum, sem hafa á
undanförnum árum keypt sér íbúð-
ir en þurfa nú að stækka við sig.
Þeirra lánsréttur er skertur í hinu
opinbera lánakerfi, litil lán verður
framvegis að hafa frá lífeyrissjóð-
unum og hlutur bankastofnana er
óljós.
Það er nokkuð ljóst að ef menn
ætla að ná því markmiði, sem stefnt
var að með breytingum á húsnæðis-
lögunum síðastliðinn vetur, verður
að gera vissar hliðarráðstafanir.
Þær snerta skammtímalánin á
markaðinum og greiðslukjörin. Að
þessum ráðstöfunum verður von-
andi hugað áður en vankantar á
reglunum fara að koma í ljós!‘
A Iþýðubandalagið:
Úrslitaáhrif
„Með framkvæmd tillögu iðnað-
arráðherra væri stigið enn eitt skref
á þeirri braut að afhenda útlending-
um úrslitaáhrif í íslensku efnahags-
og atvinnulífi," segir m. a. í ályktun
sem framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins sendi frá sér i gær, en
þar koma fram mjög hörð mótmæli
við hugmyndum Alberts Guð-
mundssonar iðnaðarráðherra um
að leyfa meirihlutaaðild erlendra
fyrirtækja í iðnrekstri á íslandi, án
þess að samþykki Alþingis þurfi að
koma til í hvert sinn, eins og nú er.
Ályktunin sem samþykkt var ein-
róma á fundi framkvæmdastjórn-
arinnar, fer hér á eftir.
í blöðum hafa að undanförnu
birst fréttir um að Albert Guð-
mundsson iðnaðarráðherra hafi
gert þá tillögu í ríkisstjórn að fram-
vegis geti erlend fyrirtæki tekið þátt
í rekstri iðnfyrirtækja sem meiri-
hlutaaðilar hér á landi án atbeina
alþingis. Með þessari tilhögun væri
úrslitavald um hlutdeild erlendra
fyrirtækja í íslensku atvinnulífi
fært úr höndum alþingis til eins
ráðherra. Þá gerir tillagan ráð fyrir
því að sögn að erlend fyrirtæki geti
einnig átt og rekið fasteignir hér á
landi með einföldu leyfi ráðherra án
þess að alþingi eða ríkisstjórnin í
heild fjalli um málið.
Framkvæmdastjórn Alþýðu-
bandalagsins mótmælir þessari til-
lögu harðlega og skorar að ríkis-
stjórnina að gera tafarlaust grein
fyrir því hvort hér er um að ræða til-
lögur ráðherrans eins eða ríkis-
stjórnarinnar í heild. Þá verður að
fást úr því skorið hvort stjórnar-
flokkarnir hafa fjallað um þessa til-
lögu og hver er afstaða þeirra.
Með framkvæmd tillögu iðnað-
arráðherra væri stigið enn eitt skref
á þeirri braut að afhenda útlending-
um úrslitaáhrif í íslensku efnahags-
og atvinnulifi. Reynslan af sam-
skiptum við Alusuisse ætti að verða
víti til varnaðar í þeim efnum.
Auk þess sem iðnaðarráðherra
beitir sér fyrir meirihlutaeign út-
lendinga í íslenskum iðnfyrirtækj-
um er ljóst að innan stjórnarflokk-
anna er áhugi á því að útlendingar
seilist enn lengra inn í íslenskt fjár-
málalíf. Forystumenn Framsóknar-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins
hafa nú stofnað tvö ný fjármögn-
unarfyrirtæki með þátttöku er-
lendra fjármálafyrirtækja án þess
að fyrir liggi neinar lagareglur eða
stjórnvaldsákvarðanir um starfs-
hætti slíkra fyrirtækja. Fram-
kvæmdastjórn Alþýðubandalags-
ins varar við þessum vinnubrögð-
um, sem einnig eru skref á þeirri
braut sem viðreisnarstjórn Alþýðu-
flokksins og Sjálfstæðisflokksins
mótaði andspænis útlendingum og
hlutdeild þeirra í íslensku efnahags-
og atvinnulífi.
Framkvæmdastjórnin skorar á
landsmenn alla að vera vel á verði
andspænis þessum tillögum og á-
formum stjórnarflo*kkanna.
Tilboð óskast
Tilboð óskast í skemmur á Keflavíkurflugvelli,
sem verðatil sýnis mánudaginn 28. júlfkl. 11—15.
Nánari upplýsingar sama dag á skrifstofu Sölu
Varnarliðseigna á Keflavikurflugvelli sfmi 925 +
5146.
Tilboð verða opnuð á skrifstofu Sölu Varnarliðs-
eigna að Grensásvegur 9, þriðjudaginn 29. júlí kl.
11. f. hád.
Sala Varnariiðseigna
Frá menntamálaráðuneytinu:
Lausar stöður við
framhaldsskóla
Við Fjölbrautaskólann í Breiðholti eru lausar til um-
sóknar kennarastöður í handavinnu tré- og málm-
greina, tölvufræðum, viðskiptafræðum og Vi staða
tónmenntakennara.
Umsóknir skulu sendar til menntamálaráðuneytisins,
Hverfisgötu 6, 105 Reykjavlk fyrir 10. ágúst.
Umsóknarfrestur um áöur auglýstar kennarastöður i
stærðfræði og þýsku við Menntaskólann á Akureyri -
framlengist til 10. ágúst.
Menntamáiaráðuneytið