Alþýðublaðið - 26.07.1986, Side 1

Alþýðublaðið - 26.07.1986, Side 1
alþýöu- Laugardagur 26. júlí 1986 141 tbl. 67. árg. Fundir á Vestfjörðum Alþýðublaðið hafði í gær sam- bandi við Jón Baldur Lorange framkvæmdastjóra Alþýðuflokks- ins vegna fundarferða Alþýðu- flokksins um Vestfirði.sem lagt var upp í gær. Fyrsti fundurinn í ferðinni var reyndar í Stykkishólmi í gærkveldi og ferðinni lýkur á Hómavík 1. ágúst. Flestir fundirnir eru eingöngu ætlaðir flokksmönnum, því til- gangurinn er að vinna að eflingu innra starfs flokksins. í förinni eru Jón Baldvin Hannibalsson formað- ur, Karvel Pálmason þingmaður verður á Vestfjarðarfundunum og Ámundi Ámundasson mun einnig vera í ferðinni, að vinna að fjáröfl- unarstarfi. Eins og áður sagði var fyrsti fundurinn í Stykkishólmi í gær- kvöldi. í dag verða fundir á Patreksfirði og sumarfagnaður með alþýðuflokksmönnum í kvöld, Bíldudal og Tálknafirði á sunnu- dag, Þingeyri og Flateyri á mánu- dag, Súgundafirði og Suðureyri á þriðjudag, á Djúpsvæðinu og Bol- ungarvík á miðvikudag. Á ísafirði verður síðan opinn fundur á fimmtudag í Uppsölum. Ferðinni lýkur svo sem áður sagði á Hólma- vík föstudaginn 1. ágúst, þar verður líka opinn fundur. Að sögn Jóns Baidvins Hanni- balssonar verður rætt við forystu krata á stöðunum auk þess sem vinnustaðir verða heimsóttir og reynt að kynna sér atvinnuástand og sjónarmið vinnandi fólks. Á fundunum er reiknað með að mikið verði rætt um undirbúning þingkosninga, prófkjörsmál og fleira. Heilsuhælið í Hveragerði: r Agreiiiinguriim jafnaður í nefnd Heilbrigðis- og tryggingaráðu- neytið hefur skipað nefnd til að jafna ágreining þann sem að und- anförnu hefur staðiö um rekstur heilsuhælisins í Hveragerði. Nefnd- inni er falið að endurskoða reglu- gerð um starfsemi hælisins og gera tillögur um breytingar á henni. Við þessar breytingar er sérstaklega ætlast til að höfð verði hliðsjón af breyttum lögum um heilbrigðis- þjónustuna, sem sett voru fyrir þremur árum. Þá er það ennfremur hlutverk nefndarinnar að huga að afskiptum héraðslæknis af rekstri hælisins og gera tillögur í því efni. Sömuleiðis á nefndin að gera tillögur um tengsl endurskoðenda hælisins við ráðu- neytið auk annarra atriða. í nefndinni eiga sæti: Ólafur Ólafsson, landlæknir, sem jafnframt er formaður, Ingi- mar Sigurðsson, yfirlögfræðingur, Dr. Jónas Bjarnason, efnaverk- fræðingur, tilnefndur af rekstrar- stjórn Heilsuhælis N.L.F.Í., og Friðgeir Ingimundarson, forstjóri Heilsuhælis N.L.F.Í., tilnefndur af Náttúrulækningafélagi íslands. Kvennaathvarfið í Reykjavík hefur nokkuð verið í fréttum að undanförnu vegna fjárhagsörðugleika. Nokkuð rœttist þó úrþessu ígœr þegar Kvennaathvarjinu var afhentur styrkur að upphœð 100.000 krónur úr Menningar- sjóði Sambands íslenskra samvinnufélaga. Arni Bjarna tók þessa myndþegar Þorleifur V. Stefánsson, starfsmað- ur verslunardeildar Sambandsins afhenti Eddu Scheving, starfsmanni Kvennaathvarfsins, styrkinn. Niðurgreiðslur: „Kjúklingar eru ennþá ódýrari Segir framkvœmdastjóri Isfugls „Ég hafði samband við nokkra stórmarkaði og fékk hjá þeim verð- samanburð, nú þegar verðlækkun á kindakjöti er komin til fram- kvæmda, og sé ekki betur en að við þolum vel samanburð, og að kjúkl- ingakjöt sé ennþá ódýrara," sagði Alfreð Jóhannsson framkvæmda- stjóri hjá ísfugli í samtali við Al- þýðublaðið í gær þegar hann var spurður hvort niðurgreiðslur á kindakjöti hefðu ekki afdrifaríkar afleiðingar í för með sér fyrir kjúkl- ingabændur. Alfreð sagði að þessi lækkun ætti ekki að hafa afgerandi áhrif á sölu kjúklingakjöts í framtíðinni. Menn myndu safna eitthvað kindakjöti í frystikisturnar fyrst um sinn, en dæmin sönnuðu, að síðan dytti sala niður á eftir. Eins sagði hann að neysluvenjur manna hefðu mjög svo breyst að undanförnu. Menn neyttu meira fisks og grænmetis. Eins hefði brauðneysla stórlega aukist og neysla á hvítu kjöti, þá bæði kjúklingakjöti og fitulitlu svínakjöti. Um hvort framleiðendur mundu reyna að svara þessari lækkun á kindakjöti með verðlækkunum sagðist hann efast um. Eins og hann hefði bent á þá væru kjúklingar ennþá ódýrari og því ekki tímabært að fara út í slíkt. — Hann sagði að þessi lækkun kæmi líka til á ágæt- um tíma, fjöldi fólks væri vítt og breytt í sumar í fríum, þannig að síður væri hætta á að „útsölu- stemmning“ myndaðist. Alfreð sagði t. a. m. hvað sitt fyrirtæki snerti þá hefði verið búið að ganga frá auglýsingaplönum nokkuð fram í tímann og gerði hann ekki ráð fyrir að þeim yrði nokkuð breytt né að þetta hefði aukinn auglýsingakostnað í för með sér. Blaðamaður bar það undir hann hvort ekki væri hætta á ferð- Framh. á bls. 2 Bílbeltin gætu sparað ótrúlegar fjárhæðir Hvers konar slys eru tíð á ís- landi og hafa löngum verið. Or- sakirnar fyrir hinní háu slysatíðni hérlendis eru ugglaust margar og misjafnar en að öllu samanlögðu virðist þó augum leikmannsins, sem ein sé þeirra mest og stærst. Þar er um að ræða þá óvarkárni sem virðist mörgum íslendingum í blóð borin. En þótt hér sé ef til vill ekki uin meðfæddan erfða- galla að ræða, virðist nokkurn veginn Ijóst að ráðandi „mórall“ í samfélagi okkar geri • fremur lítið úr öryggisráðstöfunum og al- mennri varkárnir. í gær var sagt frá því hér í Al- þýðublaðinu, og raunar fleiri miðlum, að samkvæmt niður- stöðum úr könnun umferðarráðs hefði notkun bílbelta sáralítið aukist frá því sams konar könnun var framkvæmd í fyrra. Sam- kvæmt niðurstöðunum notar að- eins um eða innan við þriðjungur ökumanna bílbeltin, þrátt fyrir það að notkun þeirra hafi nú verið lögboðin um allnokkur ár. Niðurstöður könnunarinnar ættu að vera býsna marktækar ef miðað er við stærð úrtaksins, þvi alls voru stöðvaðir nærri 2.500 bílar, eða 2% af heildarbílaflota landsmanna. Þess má geta til samanburðar að úrtak í venjuleg- um skoðanakönnunum sem fram- kvæmdar eru hérlendis, er í flest- um tilvikum langt innan við 1%. Margrét Sæmundsdóttir, starfsmaður Umferðaráðs, Iét þess getið í viðtali við Alþýðu- blaðið í gær að þar á bæ væri það ríkjandi skoðun að þessar niður- stöður sýndu að setja þyrfti viður- lög við brotum á lögunum um notkun bílbelta. Það er vandalítið að taka undir þessa skoðun og í raun og veru virðist það fremur ankannalegt að skylda fólk til ákveðinna hluta með lögum en láta vera að kveða á um nokkur viðurlög, séu lögin brotin. Slík lög geta aldrei orðið neitt annað en einhvers konar óljós og loðin viljayfirlýsing af hálfu löggjaf- ans. Það verður að teljast marg- sannað mál að notkun bílbelta fylgi svo stóraukið öryggi að það á ekki lengur að vera neitt vafamál hvort nota eigi þessi belti í um- ferðinni eða ekki. Því hefur verið haldið fram og færð fyrir því gild rök að mjög stór hluti banaslysa í umferðinni stafi fyrst og fremst af því að þess sjálfsagða öryggis hafi ekki verið gætt að nota bílbelti. Sömuleiðis er því haldið fram með gildum rökum að margir þeir sem á undanförnum árum hafa hlotið varanleg örkuml og ævi- langa fötlun af völdum umferða- slysa, myndu hafa sloppið með smávægileg meiðsli, eða jafnvel skrámulausir, ef þeir hefðu ein- ungis haft vit á að gera þá sjálf- sögðu varúðarráðstöfun að sperina á sig bílbeltið í upphafi ferðarinnar. Ef saman væri reiknaður sá óheyrilegi kostnaður sem samfé- lagið verður að reiða fram vegna þessarar útbreiddu óvarkárni Is- lendinga í umferðinni, yrðu nið- urstöðurtölur þess útreiknings háar og hærri en flesta grunar. Sjúkrahúskostnaður er hár á ís- landi og bæði starfsfólk og tækja- búnaður við aðgerðir, langlegu og endurhæfingu er það líka. Mannslíf verða heldur ekki metin til peninga og sú sálarþjáning að þurfa að búa við örkuml til ævi- loka, er heldur ekki auðmetin til fjár. En þótt einungis sé reiknað með þeim beinhörðu útgjöldum samfélagsins, sem árlega eru talin fram úr þeirri buddu sem við eig- um öll í félagi, er auðvelt að kom- ast að þeirri niðurstöðu að með því einu að koma öllum til að nota bílbelti í umferðinni, mætti spara ótrúlegar upphæðir. Það vill svo til að ekki ætti að vera tiltakanlega erfitt að koma þessu í kring. Grundvallarfor- sendan er auðvitað sú að lög verði sett um sektir eða önnur viðurlög gagnvart þeim sem skirrast við að nota beltin. Með tilliti til þess óheyrilega kostnaðar sem hlýst af vannotkun bílbeltanna, myndi sjálfsagt margborga sig út frá þjóðhagslegu sjónarhorni, að hafa mann í vinnu á hverju götu- horni, við að útdeila sektarmiðum til þeirra sem ekki nota bílbeltin. Bílbeltaátak sem framkvæmt yrði í kjölfar setningar viðurlaga, myndi sennilega ekki þurfa að standa lengi yfir, því það mun samdóma álit þeirra sem á annað borð hafa vanið sig á þann sjálf- sagða sið að nota beltin, að því fylgi sterk öryggisleysistilfinning að sitja í bílsæti þar sem öryggis- belti er af einhverjum ástæðum ekki fyrir hendi. Út af fyrir sig má kannski kalla það furðulegt að allur sá áróður sem rekinn hefur verið undanfar- in ár fyrir aukinni notkun bíl- belta, skuli ekki hafa borið meiri árangur en raun ber vitni. Ætla mætti nefnilega að rökin fyrir notkun beltanna væru svo augljós að ekki þyrfti svo mikið sem meðalgreind til að spenna beltin eftir að hafa heyrt þau einu sinni. Hvaða ályktanir sem nú kann að mega draga af þessu um greindar- far íslendinga, er hitt engu að síð- ur staðreynd að ítrekaðar áróð- ursherferðir hafa borið takmark- aðan árangur og alls ekki nægan. Alþingi ætti af þessum sökunt að taka af skarið og setja viðurlög sem geri það að verkum að notk- un bílbelta verði almenn. Slík við- urlög myndu líka hjálpa til þess að minnka fjárlagagatið og þá ætti — í augum þingmanna — að vera til nokkurs barist.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.