Alþýðublaðið - 01.08.1986, Blaðsíða 4
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
alþýðu- Áskriftarsíminn er 681866
í 1 ftHELIIiM Blaðamenn: Jón Daníelsson, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson, Margrét Haraldsdóttir. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Föstudagur 1. ágúst 1986 Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Orlofsár
einu sinni
á ævinni
Þrýstihópar
Allir eru sammála um að krefjast
styttingar vinnutímans og flestir
eru sammála um að sextíma-vinnu-
dagurinn sé besta lausnin. Anne
Hedborg telur að einungis þeir hóp-
ar sem hafa sterkasta aðstöðu muni
ná því fram, hinir verði skildir eftir.
Hún tekur hins vegar undir þá hug-
mynd að foreldrar smábarna fái
ívilanir, sem gætu t. d. verið sex
tíma vinnudagur á fullum launum
fyrir annað foreldranna þar til
barnið er sjö ára og fjölskyldubæt-
ur.
Frjálst val
Eftir það ætti takmarkið að vera
eitt orlofsár fyrir þá sem eru á aldr-
inum 40—55 ára og hafa verið á
vinnumarkaðnum a. m. k. 10 ár.
Ekki er nauðsynlegt að taka út
orlofsárið allt í einu, en þó ekki
minna en hálft ár í senn. Að öðru
leyti hafa menn frjálsar hendur.
Þeir sem vilja geta farið á endur-
menntunarnámskeið og bætt kunn-
áttu sína, menn geta hafið eigin at-
vinnurekstur, ferðast, eða gert ann-
að það sem hugurinn girnist. Meira
að segja geta menn farið i aðra
vinnu til reynslu, án þess að missa
Fram hefur komið athyglisverð til-
laga um styttingu vinnutímans og
aukna hagræðingu á vinnumark-
aðnum, sem gerir ráð fyrir að allt
vinnandi fólk fái eins árs orlof einu
sinni á ævinni, sem það getur varið
til hvers sem það óskar.
Það eru Rudolf Meidner prófes-
sor og Anna Hedborg hagfræðing-
ur hjá sænska Alþýðusambandinu
sem hafa unnið að gerð þessara
áætlana og gefið út bók til að
kynna þær.
Skiptar skoðanir
Þótt það séu hagfræðingar hjá
Alþýðusambandinu sem leggja
þessar hugmyndir fram, hafa þær
ekki stuðning allra innan raða þess
og Alþýðusambandið stendur ekki
að baki tillögunni.
Á þingi Alþýðusambandsins
voru lagðar fram a. m. k. 40 félaga-
samþykktir, sem allar krefjast stytt-
ingar vinnutímans í sex tíma á dag,
eða lengri leyfa. Landsnefndin upp-
lýsir að stytting hálfsdagsvinnu og
þar sem vinnutími er óreglulegur sé
í athugun og að unnið sé að því að
fá styttan vinnutíma hjá foreldrum
smábarna. Rudolf Meidner og
Anna Hedborg sjá ýmislegt athuga-
vert við þessar fyrirætlanir.
Hvað myndir þú gera á heilu orlofsári. Flatmaga á sólarströnd, stunda nám, skipta um vinnu.
sitt gamla starf. Og þeir sem ekki
kæra sig um neitt af þessu geta tekið
út orlofsárið þegar þeir eru um það
bil að komast á eftirlaun.
Aukið jafnrétti
Um fertugt er viss hætta á stöðn-
un hjá flestu fólki. Menn taka síður
áhættu af ótta við að missa eigur
sínar, ef teflt er á tvær hættur. Fái
menn orlof í heilt ár á launum, geta
menn gert tilraunir með ýmislegt,
sem annars yrði aldrei að veruleika.
Það skiptir líka miklu máli fyrir
einstaklinginn, segir Anna Hed-
borg, að geta látið eftir sér að prófa
eitthvað nýtt og þótt tilraunin mis-
takist, hefur örygginu ekki verið
stefnt í voða.
Orlofsárið stuðlar einnig að
Framh. á bls. 2
Hertoginn og
hertogafrúin
Andrew Albert Christian Edward
og Sara Ferguson gengu í hjóna-
band þann 23. júlí sl. Þremur tím-
um fyrir athöfnina sló Elísabet
Englandsdrottning son sinn til her-
toga af York og þar með er Sara
orðin hertogafrú. Þessi nafnbót var
fyrst veitt fyrir 601 ári af Ríkharði
konungi II. Sumir af fyrirrennurum
Andrews, sem hafa boriö þennan
tiltil, hafa mátt þola grimm örlög.
IVeir þeirra voru teknir af lífi í
„Tower of London“ á 16. öld, sem
sögufrægt er orðið. Öðrum hefur
gengið betur, t. d. síöasta hertoga af
York, föður drottningarinnar, sem
varð konungur þegar bróðir hans
afsalaði sér völdum árið 1936.
Athöfnin fór hið besta fram og
þeir 3.600 hermenn og lögreglu-
menn sem stóðu vörð höfðu það
náðugt. Brúðurinn var íklædd fíla-
beinslitum satínkjól með hand-
saumuðum skreytingum, táknræn-
um fyrir konungsfjölskylduna,
með demantsskraut í hári og fimm
metra langan silkislóða. Brúðgum-
inn í viðhafnarbúningi sjóhersins.
◄ ,
Sara og Andres innsigla
hjónabandssáttmálann
Þegar brúðhjónin höfðu tekið við
hamingjuóskum áhorfendaskar-
ans, að athöfn lokinni héldu þau í
brúðkaupsferð til Azoreyja.
Fjölmiðlar hafa sem vænta má
gert mikið veður út af brúðkaupinu
og sumir hafa haft í frammi lang:
tímaspár um líf hertogahjónanna. I
Vestur—Þýska blaðinu BILD hefur
stjörnufræðingur nokkur upplýst
að þeim fæðist sonur vorið 1988 og
dóttir í desember 1989. Þá vita
menn það.
Einnig hefur nokkuð verið skrif-
að um meinta misklíð drottningar-
innar og Thatcher forsætisráðherra
vegna stefnu Thatcher varðandi
málefni Suður—Afríku. Þegar hún
mætti til kirkjunnar heyrðust niðr-
andi köll og hróp frá ýmsum við-
staddra. Blað kommúnistaflokks-
ins, Morning Star, birti skopteikn-
ingu af Thatcher og P. W. Botha.
Þau voru sýnd sem brúðhjón á leið
til kirkju og leiðin stráð Iíkum
svartra manna. Brúðguminn bar
sverð sem á var letrað „apartheid".
En skensinu er ekki beint að
brúðhjónunum ungu. Bretar sýna
konungsfjölskyldunni mikla holl-
ustu og eru ánægðir með Söru. Hún
er sögð sterkari aðilinn í hjóna-
bandinu, ákveðin glaðvær og hefur
þegar öðlast vinsældir almennings.