Alþýðublaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 1
alþýöu-
Skattstefna ríkisstjórnarinnar:
Gegn forsendum
Laugardagur 2. ágúst 1986 146 tbl. 67. árg.
Vestfjarða-
fundum lokið
Segir í samþykkt þingflokks Alþýðuflokksins
„Þetta hefur verið mjög árang-
ursrík ferð, og það er ljóst að stefna
Alþýðuflokksins á hér gífurlegan
hljómgrunn,“ sagði Karvel Pálma-
son alþingismaður í samtali við Al-
þýðublaðið í gær, en hann var þá
staddur á Isafirði þar sem fundar-
ferð Alþýðuflokksins um Vestfirði
lauk í gær, Karvel og Jón Baldvin
Hannibalsson hafa þessa vikuna
sótt fjölda vinnustaða heim og
haldið fundi með Alþýðutlokksfé-
lögunum á Vestfjörðum. Á ísafirði
var síðan opinn fundur á fimmtu-
dagskvöld. Um hundrað manns
mætti á fundinn.
Að sögn Karvels Pálmasonar var
fundurinn á ísafirði mjög góður, og
Um verslunarmannahelgina mun
Umferðarráð og lögreglan um allt
land veita þeim bömum er sitja í
bilbeltum eða barnabílstól viður-
kenningu.
Um er að ræða lítinn glaðning,
kort með ferðaleikjum og hollráð-
um, rissblokk og síðast en ekki síst
Tópaspakka frá Nóa hf. Fyrirtækið
gaf þrjú þúsund Tópaspakka í
þessu skyni, en á loki þeirra er ein-
mitt ábending til fólks í bílum:
„Spennum beltin — sjálfra okkar
vegna.“ Nói hf. er einn þeirra aðila
er ljáð hefur umferðarmálum lið
komu þar vel fram sjónarmið fólks
m.a. til launamála og hvað gera
skyldi i þeim efnum. Eins komu
fram þær miklu áhyggjur sem
landsbyggðarfólk hefur nú um
stöðu sína., „að framleiðslugrein-
arnar skuli skildar eftir meðan
þjónustugreinunum er hampað.
Eins kom skýrt fram, að þeir sem
ekki skila raunverulegum skatti sín-
um, geta ekki kallast neitt annað en
þjófarl' sagði Karvel.
Eins og sagt hefur verið frá í Al-
þýðublaðinu var ætlunin að ljúka
ferðinni í Strandasýslu og halda
fund í Hólmavík í gær. Því hefur
verið frestað um stund. En Stranda-
sýsla verður sótt heim mjög fljót-
lega.
með því að hafa þessi hvatningar-
orð á töflupökkum sínum endur-
gjaldslaust árum saman.
Umferðarráð væntir þess að sem
flestir foreldrar setji öryggisbúnað
fyrir börn í bíla sína, og sjái til þess
að þau noti hann. Ekki aðeins til
þess að þau fái viðurkenningu,
heldur miklu heldur til að auka ör-
yggi þeirra í bílnum. „Börn í bílum
þurfa vörní' Og vert er að minna á
að þörf fyrir notkun öryggisbúnað-
ar, fyrir börn og fullorðna í bílum,
er ætíð fyrir hendi — óháð árstím-
um.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
hefur sent frá sér eftirfarandi sam-
þykkt þar sem skattastefna rikis-
stjórnarinnar er harðlega for-
dæmd:
„Þingflokkur Alþýðuflokksins
vekur athygli á að með skattastefnu
sinni hefur ríkisstjórnin brotið gegn
samþykktum Alþingis og forsend-
um kjarasamninga.
í fyrsta lagi leggur ríkisstjórnin
nú á tekjuskatt, sem er 800 milljón-
um króna hærri en ákveðið er í fjár-
lögum yfirstandandi árs. Þetta er
ekki óvænt uppákoma eins og fjár-
málaráðherra hefur látið liggja að.
Ríkisstjórnin vissi hvert stefndi í
apríl sl. Þá var ráðrúm til að leið-
rétta skattvísitölu. Það var hinsveg-
ar ekki gert.
í öðru lagi hefur ríkisstjórnin
með þessari skattlagningu brotið
gegn samþykkt Alþingis frá 22. maí
1984 um afnám tekjuskatts af al-
mennum launatekjum í áföngum.
Stórhækkun tekjuskattsins nú
gengur þvert á þessa samþykkt svo
og margitrekuð loforð og yfirlýs-
ingar um lækkun tekjuskatts.
í þriðja lagi gengur þessi skatta-
hækkun í berhögg við samkomulag
aðila vinnumarkaðarins og ríkis-
stjórnarinnar frá 28. febrúar þar
sem samið var um hóflegar launa-
hækkanir gegn fyrirheitum um
skattalækkanir.
Þingflokkur Alþýðuflokksins
krefst þess, að skattvísitala verði
endurskoðuð þannig að skattbyrði
aukist ekki milli ára.
Þingflokkurinn lýsir furðu á við-
brögðum fjármálaráðherra, sem
fyrst lætur, sem þessi skattlagning
hafi kornið mjög á óvart, en segir
þjóðinni síðan að búið sé að verja
henni til Iaunahækkana nokkurra
starfsstétta og niðurgreiðslna á
lambakjöti.
Þingflokkurinn ítrekar þá skoð-
un Alþýðuflokksins, að núverandi
skattkerfi sé svo gloppótt og hrip-
lekt að það þurfi gagngerðrar end-
urskoðunar við. Vitað er og viður-
kennt að tekjuskattur er fyrst og
fremst launamannaskattur, sölu-
skattur skilar sér illa í ríkissjóð og
kerfið hefur alið af sér skattleys-
ingja, sem safna stóreignum meðan
almenningur er að kikna undan
vaxandi skattpíningu. í stað þess að
ráðast gegn skattsvikum eru sifellt
lagðar auknar byrðar á launafólk í
landinu.
Þingflokkurinn minnir á róttæk-
ar tillögur Alþýðuflokksins um
uppstokkun skattakerfisins, sem
brýnt er að nái fram að ganga“
Það má veí vera að það sé bannað að pissa á almannafœri úti í guðsgrœnni
náttúrunni. En hver tekur mark á því um verslunarmannahelgi?
Verslunarmannahelgin:
Börn í beltum
fá verðlaun
Afmæli Reykjavíkur
Hápunktur hátiðarhalda
vegna 200 ára afmælis Reykjavík-
urborgar verður 18. ágúst n.k.
Formaður afmælisnefndar er
Davíð Oddsson. borgarstjóri.
Ýmislegt verður gert til skemmt-
unar m.a. er borgarbúum boðið
til veislu, sem sumir hafa nefnt
„veislu aldarinnar“. í tengslum
við hátíðina eru sýningar, hátíð-
arguðsþjónustur, rokkhátíð,
djasstónleikar svo að eitthvað sé
nefnt. En lítum nánar á það sem
boðið er upp á þessa dagana.
Reykjavík í 200 ár — svipmynd
mannlífs og byggðar.
Þessari sýningu er einkum ætlað
að sýna Reykjavík hið ytra, vöxt
og breytingar frá kaupstað til
borgar, og byggir sýningin að
verulegu leyti á gömlum ljós-
myndum aftur til þess tíma er
ljósmyndatæknin hélt innreið
sína hérlendis.
Elsti tími Reykjavíkur sem
kaupstaðar var fyrir daga ljós-
myndarinnar, og er sá tími skil-
greindur með uppdráttum, teikn-
ingum, myndum ýmissa erlendra
ferðalanga, skjölum o.fl. Reynt er
einnig að gefa svipmyndir mann-
lífs og bæjarbrags. Auk ofan-
greindra hluta verða á sýningunni
ýmis líkön húsa og skipa, má þar
nefna líkan af Grjótaþorpi eins og
það var á árunum kringum 1886,
einnig líkön er sýna byggðina 1786
og 1886 ásamt líkönum og upp-
dráttum af skipulagi síðustu ára.
Á sýningunni verða einnig kynnt
frumdrög að nýju Aðalskipulagi
Reykjavíkur fyrir tímabilið 1984
—2003 og ýmis skipulagsvinna
sem unnin er á vegum Borgar-
skipulags.
Þá má nefna eftirlíkingu af
krambúð í fullri stærð, gamla
slökkvibíla og ýmis önnur tæki.
Tjaldað hefur verið yfir húsa-
garð Kjarvalsstaða vegna þessa. I
tjaldinu verður einnig leiksvið,
þar sem ýmiss konar skemmtidag-
skrá verður.
í sölunum verður fólk við
gæslustörf og leiðsögu í ýmsum
búningum liðins tíma, og tengist
það leikþætti eða dagskrá, er
Brynja Benediktsdóttir hefur veg
og vanda af, ásamt nokkrum
þjóðkunnum leikurum og verður
sá leikþáttur á boðstólum nokkr-
um sinnum í viku.
Eins og áður segir, verða ýmiss
konar atriði til skemmtunar og
fróðleiks og má þar einnig nefna
fyrirlestra og frásagnir ýmissa
kunnra borgara. Magnús Tómas-
son listamaður er framkvæmda-
stjóri sýningarinnar, en formaður
sýningarnefndar er Þorvaldur S.
Þorvaldsson forst.m. Borgar-
skipulags.
Sýningin mun standa frá 16.
ágúst til 28. september.
Tæknisýning
Tæknisýning verður opnuð al-
menningi í Borgarleikhúsinu
þann 17. ágúst kl 17.00. Unnið er
af kappi að ljúka þeim hluta
Borgarleikhússins sem hýsir sýn-
inguna.
Á sýningunni gefur að líta með
myndrænum hætti yfirlit um
starfsemi veitustofnana borgar-
innar, gatnamálastjóra, þ.m.t.
gatna- og holræsadeildar, um-
ferðardeildar og gagnavinnslu- og
þróunardeildar, vélamiðstöðvar
og malbikunarstöðvar, grjótnáms
og pípugerðar og Reykjavíkur-
hafnar. Landsvirkjun, SKÝRR og
Skógræktarfélag Reykjavíkur
taka einnig þátt í sýningunni með
myndarlegum hætti.
Sýningin verður opin til 31.
ágúst og verður opin frá 10.00—
22.00 dag hvern. Á sýningunni
verður veitingasala og ókeypis
barnagæsla. Vandað upplýsinga-
rit fylgir aðgöngumiðanum og er
hann jafnframt getraunaseðill.
Afhending Viðeyjarstofu
Sunnudaginn 17. ágúst mun
menntamálaráðherra afhenda
Reykjavíkurborg mannvirki ríkis-
ins í Viðey ásamt landspildu
kringum þau.
Heimsókn forseta íslands
Forseti íslands Vigdís Finn-
bogadóttir kemur í opinbera
heimsókn á sjálfum afmælisdeg-
inum 18. ágúst. Borgarstjóri mun
taka á móti henni á borgarmörk-
um og munu hestamenn úr Fáki
ríða á undan forsetanum fyrsta
spölinn inn í borgina. Síðan situr
forsetinn hátíðarfund borgar-
stjórnar, sem hefst um kl. 10.20.
Að honum loknum fylgja borgar-
fulltrúar og borgarstjóri forsetan-
um í heimsókn í tvær borgar-
stofnanir, vistheimili aldraðra í
Seljahlíð og Árbæjarsafn. Að
Framh. á bls. 3