Alþýðublaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 4

Alþýðublaðið - 02.08.1986, Blaðsíða 4
alþýóu- Laugardagur 2. ágúst 1986 Alþýöublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 81976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Jón Daníelsson, Ása Björnsdóttir, Kristján Þorvaldsson, Margrét Haraldsdóttir. Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaöaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 Thailand Vandamál sem ekki sér fyrir endann á Ein af ástæðunum fyrir vaxandi efnahagsvanda Thailands er sú þunga byrði sem Thaiiendingar hafa nauðugir, viljugir tekið á sínar herðar; að taka við flóttamönnum frá nágrannalöndunum. Yfirvöld telja að alltof stórum hluta þessa vandamáls hafi verið velt yfir á herðar Thailendinga og að þeir geti ekki lengur risið undir kostnaðin- um við flóttamannahjálpina, nema frekari aðstoð berist frá vestrænum ríkjum. Þegar þjóðarframleiðsla á mann í Thailandi er skoðuð og borin sam- an við önnur ríki, austræn og vest- ræn verður það skiljanlegt að Thai- lendingar skuli bera sig upp undan þeim mikla kostnaði sem flótta- mannahjálpin veldur. Landsmenn eru nú um 50 millj- ónir og þjóðarframleiðsla á mann er nálægt 810 Bandaríkjadollurum, sem er mjög sviðað og í mörgum öðrum Austur—Asíuríkjum. Land- ið er svipað á stærð og Frakkland en efnahagurinn engan veginn sam- bærilegur. Á Vesturlöndum eru töl- ur um þjóðarframleiðslu á mann allt aðrar. í Bandaríkjunum $14,090, í Kanada $12,000, í Ástra- líu $10,780. Efnahagslega er Thailand því að- eins lítið, fátækt ríki, sem hefur lagt óeðlilega mikið af mörkum til að leysa flóttamannavandamálið — vandamál sem snertir ekki aðeins þá sem búa á þessum slóðum, held- ur alla þá sem hafa þar einhverra hagsmuna að gæta. Það virðist e. t. v. heldur langsótt að segja að flótta- mannavandamálið snerti Evrópu- búa og aðrar vestrænar þjóðir, ekki aðeins siðferðilega, heldur einnig efnahagslega. Samt er það svo. Ef efnahagur eins Asíuríkis brestur, veikir það efnahag annarra Asíu- ríkja og hefur óhjákvæmilega einn- ig áhrif á iðnríki Vesturlanda þegar fram í sækir. Hversu stórt er svo flóttamanna vandamálið í Thailandi? Opinberar tölur frá Gerald E. Walzer, fulltrúa hjá Flóttamannastofnun Samein- uðu þjóðanna segja að á síðustu 10 árum hafi u. þ. b. 1.500.000 manns í Indókína flúið heimkynni sín, að- allega frá Vietnam, Kampútseu og Laos, í von um að finna öryggi og staðfestu í nýju Iandi. Þar af er talið að um 1 milljón flóttamanna hafi lagt leið sína til Thailands í þeirri trú að alþjóða- stofnanir myndu veita þeim fjár- stuðning til að koma undir sig fót- unum einhvers staðar í veröldinni. Að sögn yfirvalda í Thailandi hafa þær bænir ekki verið heyrðar. Fáir hafa áhuga á að taka við flótta- mönnum og sá áhugi fer dvínandi. Aðrir telja óheppilegt, vegna félags- legra ástæðna að taka við mörgum innflytjendum og hafa fremur vilj- að veita fjárstuðning en að taka við fólki í stórum stíl. En sá fjárstuðn- ingur fer einnig minnkandi með hverju árinu sem líður og ekki er sjáanlegt að neinar breytingar séu í vændum. Þótt um 500.000 flóttamenn hafi farið frá Thailandi til búsetu annars staðar, (um 70% þeirra hafa fengið hæli í Bandaríkjunum) þá hefur stjórn Thailands sagt það, skýrt og skorinort, að ekki sé lengur unnt að ala önn fyrir þeim mannfjölda sem þar dvelur. í ráði er að senda fólk aftur til sinna fyrri heimkynna. Allar líkur benda til að þeim sé full alvara. Þeir telja sig ekki hafa efni á hjálparstarfinu, einir og ó- studdir og munu að líkindum grípa til neyðarráðstafana, ef þeir fá ekki aukna aðstoð. Mikill þrýstingur er á stjórnina um að loka landamærum Thai- lands fyrir allri umferð, af þeirri einföldu ástæðu að landsmenn hafa orðið að flýja heimili sín og gerast sjálfir flóttamenn;, vegna stöðugra bardaga og skæruhernaðar, sem er þeim alls óviðkomandi. Eins og er dvelja u. þ. b. 130.000 manns í flóttamannabúðum, sem kostaðar eru af Sameinuðu þjóðun- um. Margir af þeim sem hafa verið þar lengi hafa fengið fasta búsetu í Thailandi. Á ári hverju bætist svo við fjöldi fólks, sem Thailendingar þurfa að sjá fyrir hjálparlaust. Tal- ið er að Thailand hafi veitt rúmlega 500.000 manns hæli í lengri eða skemmri tíma og þar við bætast allt að 100.000 Thailendingar sem hafa hrakist á vergang frá landamæra- héruðunum. Á ráðstefnu sem haldin var í Bankok í júlí gaf talsmaður stjórar- innar þær upplýsingar að flótta- mannastraumurinn til Thailands hefði aukist um 31,6% á fyrri hluta ársins 1985, en fjöldi þeirra sem var útvegað hæli annars staðar hefði minnkað um 23,6% á sama tíma. Hann ásakaði sérstaklega ríki Vest- ur—Evrópu fyrir að velta byrðinni einhliða yfir á þau lönd sem tækju við fólkinu til bráðabirgða og það á sérstaklega við um Thailand. Almennt er talið að hann hafi lög að mæla. Það viðurkennir alþjóða- nefnd Rauða krossins og einnig fulltrúi Flóttamannahjálpar Sam- einuðu þjóðanna, Gerald Walzer. Hann telur að hægt væri að gera meira til að aðstoða a. m. k. þá sem verst eru staddir, þá sem hafa misst af fjölskyldum sínum og vinum og þá sem eiga erfitt með að bjarga sér á eigin spýtur. í þessu sambandi hefur einnig verið talað um „compassion fatigue“, þ. e. að áhuginn á neyð þessa fólks hefur dvínað. Það er ekki í tísku lengur að vorkenna því; aðrir hópar hafa tekið við því hlut- verki, s. s. Suður—Afríkubúar, íbú- ar Mið—Ameríku og íbúar land- anna fyrir botni Miðjarðarhafs. Þessi skoðun kemur vel heim við Framh. á bls. 2 Flóttamannabúöir í Thailandi. Fólkið sœkir sér vatn í tankbílinn. Hver vatnsdropi er dýrmætur. Molar Skattahækkunin séð fyrir Þjóðhagsstofnun hefur sent frá sér stutta yfirlýsingu um tekju- skattsmálið, þar sem annars vegar er mótmælt ummælum Gunnars G. Schram í viðtali við DV fyrir nokkrum dögum og einnig færð rök að því að ráðamönnum hefði verið auðvelt að sjá fyrir þá þróun mála, sem nú er komin í ljós, þ.e. að tekjuskattur myndi hækka verulega milli ára. Athugasemd Þjóðhagsstofn- unar fer hér á eftir: í frétt á baksíðu DV 30. júlí 1986, er haft eftir Gunnari G. Schram, alþingismanni, að ástæðan fyrir hækkun tekju- skatts einstaklinga, umfram það, sem ráð var fyrir gert í fjárlögum, sé sú, að Þjóðhagsstofnun hafi áætlað hækkun á tekjum manna milli ára um 8% minni en raun varð á. Þá er það haft eftir þing- manninum, að enginn virðist hafa séð þessa hækkun tekjuskatts fyr- ir. Við þessa frásögn er ýmislegt að athuga. í fyrsta lagi er þess að geta, að í fjárlögum, sem samþykkt voru í desember 1985, var áætluð tekju- skattsálagning miðuð við 36% hækkun tekna á mann milli ár- anna 1984 og 1985, og var þessi áætlun m.a. byggð á áliti Þjóð- hagsstofnunar. Nú liggur fyrir, að hækkun tekna til skatts hafi í reynd orðið 42Zi% á mann, eða 4 ‘/2% meiri en reiknað var með í fjárlögum, ekki 8% meiri eins og segir í frétt DV. í öðru lagi verður því naumast haldið fram, að enginn hafi séð þessa þróun mála fyrir, þegar þess er gætt, að 21. apríl sl. sendi Þjóð- hagsstofnun formönnum stjórn- málaflokka og þingflokka prent- handrit að Ágripi úr þjóðarbú- skapnum (Nr. 1, apríl 1986), sem síðan var sent öllum þingmönn- um og fjölmiðlum daginn eftir, en þar segir á forsíðu: „Tekjur heimilanna virðast samkvæmt fyrstu vísbendingum úr skattframtölum hafa hækkað mun meira í fyrra en áður var gert ráð fyrir, eða um og yfir 40% á mann í stað 36%. Á bls. 8 í þessu riti segir enn- fremur: „ . . . beinir skattar og útsvör munu að óbreyttu hækka heldur meira en tekjur á þessu ári, fyrst og fremst vegna þess að tekjurnar í fyrra, sem álagning byggist á, verða líklega nokkru hærri en ætl- að var, þegar ákvarðanir um álagningu voru teknar um mán- aðamótin febrúar/mars síðastlið- inní' Að minnsta kosti frá því í apríl hefur því verið ljóst — og öllum kunnugt — að álagning tekju- skatts 1986 færi verulega fram úr áætlun fjárlaga, að öllu óbreyttu. Hér með er þess farið á leit, að þér birtið þetta bréf í blaði yðar við fyrsta tækifæri. • Unesko og Esperanto Esperantistar hafa löngum vonast til þess að Sameinuðu þjóðirnar tæku esperanto upp sem alþjóða- tungumál og farið yrði að nota það innan stofnana samtakanna. Af þessu hefur sem kunnugt er ekki orðið, en Uneskó, menning- arstofnun san.takanna, sem mikill styrr hefur staðið um á undanförnum árum, samþykkti hins vegar ályktun um þetta tungumál á aðalráðstefnu sinni nýlega. Ályktunin var samþykkt í tilefni af hundrað ára afmæli esperanto á næsta ári og er svona: • Aðalráðstefnan hefur í huga að með ályktun hennar IV.1.4.422—4224 á fundi í Montevideo 1954 var bent á þann árangur sem náðst hefur með al- þjóðamálinu esperanto í alþjóð- legum menningarsamskiptum og gagnkvæmum skilningi meðal þjóða heims, og viðurkennt að hann væri í samræmi við tilgang og hugsjónir Uneskó, minnir á að síðan hefur esperanto náð umtalsverðum árangri sem tæki til skilnings milli þjóða og menningar í mismundandi lönd- um, með því að ná til flestra hluta heims og flestrar starfsemi manna, viðurkennir þá miklu möguleika sem esperanto býður til alþjóðlegs skilnings og tjáningar milli manna af mismundandi þjóðerni, veitir athygli mjög mikilvægu framlagi esperantohreyfingarinn- ar, og þá einkum alþjóða esper- antosambandsins.til kynningar á starfsemi Unesko og til þátttöku í því starfi. Ráðstefnan árnar esperantohreyf- ingunni heilla á aldarafmælinu, biður aðalritarann fylgjast áfram með athygli þróun esperantos sem tækis til að bæta skilning milli mismundandi þjóða og menning- arheilda, beinir því til aðildarríkjanna að halda upp á aldarafmælið með samkomum, yfirlýsingum, útgáfu sérstakra frímerkja og slíku, og með því að hvetja til þess að taka bæði tungumálavandann og esperantokennslu á námskrá í al- mennum skólum og æðri mennta- stofnunum, mælir með því að alþjóðleg sam- tök sem ríkisstjórnir eiga ekki aðild að, að taka þátt í aldaraf- mæli esperantos og kanna mögu- leika á því að nota esperanto sem tæki til að koma á framfæri við félaga sína hvers kyns upplýsing- um, meðal annars um starfsemi Unesko. • Öryggi ríkisins Á fundi sínum á þriðjudaginn samþykkti ríkisstjórnin að fela ráðuneytisstjórum dómsmála- ráðuneytis og utanríkisráðuneyt- is, skrifstofustjóra varnarmála- skrifstofu og lögreglustjóranum í Reykjavík, undir forystu Baldurs Möllers fyrrv. ráðuneytisstjóra, sem er fulltrúi forsætisráðherra, að fjalla um leiðir til þess að auka samstarf þeirra ráðuneyta og stofnana er starfa með einhverj- um hætti að öryggismálum ríkis- ins. Er til þess ætlast að starfshóp- urinn geri tillögur um úrræði er stuðli að markvissu starfi til að vinna gegn og uppræta ólögmæta starfsemi er skaðað gæti íslenska ríkið og öryggi þess. Þá er þess óskað, að starfshópurinn geri til- lögur um samræmingu ráðstafana til eflingar innra öryggi í stjórn- kerfinu. Rétt er að athugað verði með hvaða hætti nágrannaþjóðir okkar, einkum Danir og Norð- menn, haga meðferð á öryggis- málum sínum. Starfshópnum ber að skila niðurstöðum sínum til ríkisstjórnarinnar innan sex mán- aða.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.