Alþýðublaðið - 08.08.1986, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 08.08.1986, Blaðsíða 2
2 Föstudagur 8. ágúst 1986 RITSTJÓRNARGREIN—" ■ ' ■» "«■ ' Hlustað á róginn Það erekki nýtt að öll umræða um landbúnað- armál sé af ákveðnum aðilum afgreidd sem árásir á bændastéttina. Þetta er þeirra leið til þess að telja bændum trú um að þeir séu of- sóttirog að annarraáliti afæturá þjóðfélaginu. Það eru þéir sem stjórnað hafa milliliðakerfi Sambandsins og með því mjólkað bændastétt- ina um óhemju upphæðir á undanförnum ára- tugum, sem stýra umræðunni ( þennan farveg. Til aðstoðar hafa þeir að sjálfsögðu notið for- ystumanna Framsóknarflokksins. Eitt af þeim meðölum sem þessir menn hafa notað óspart er að halda þvl fram við bændur, að Alþýðuflokkurinn berjist stöðugt fyrir þv(, að landbúnaður verði lagður niður á íslandi. Þessi rógur hefur heyrst stanslaust I 3 áratugi eða allt frá þvi að Gylfi Þ. Gíslason varaði við of mikilli landbúnaðarframleiðslu á sjöunda ára- tugnum. Það sést oft bæði I ræðu og riti, að bændur hafa verið mjög móttækilegir fyrir þennan boðskap. Einn þeirra, mætur bóndi á Ströndum, skrifar einmitt heilsíðugrein um þessi mál ( Tímann í gær. Þar spyrðir hann saman Alþýðuflokkinn, eins og hann leggur sig, og ritstjóra DV. Ef Strandabóndinn hefði lesið allt það sem um landbúnaðarmál hefurverið ritað i Alþýðublað- ið á undanförnum mánuðum, þá væri hann að fara með vísvitandi ósannindi ( Tímagrein sinni. Hann hefur hins vegar ekkert lesið held- ur aðeins heyrt. Og það virðist vera grannt hlustað eftir þeim, sem róginum hvísla. Þetta virðist því miður ekkert einsdæmi. Það er því ástæðulaust að væna þessa menn um ósann- indi því að þeir vita ekki betur. Þeir eru bestu liðsmenn bændahallarbændanna og forstjór- anna hjá Sambandinu. Standabóndinn kynnti sér ekki sjálfur það sem Alþýðublaðið hefur um landbúnaðarmál skrifað áðuren hann rudd- ist fram á ritvöllinn. Þess vegna má frekar saka hann um óvönduð vinnubrögð og trúgirni. Alþýðublaðið getur þó tekið undireitt ( skrif- um Strandabóndans. Alþýðuflokkurinn er kannskeekki þegar allt kemurtil alls aðalsöku- dólgurinn. Bóndi segir: „Það er viðurkennd staðreynd að markaðsmál eigi stóran þátt ( þeim erfiðleikum, sem bændur og forráða- menn þeirra eiga við að glíma og það ræður miklu um, hvernig úr rætist, og svo hitt hvernig þeir menn, sem með stjórn þessara mála fara, hugsa og haga störfum s(num.“ Það er vonandi að frækorn efans hafi sáð sér ( hugskot fleiri bænda. Allir vita hverjir farið hafa með markaðsmál landbúnaðarframleiðsl- unnar. Meðal annars hefur búvörudeild SÍS brugðist. Samt sem áður ákváðu allir slátur- leyfishafar innan kaupfélaganna að fela þeirri deild alræðis- og einokunarvald í sölu afurða sinna. Það má þvf benda Strandabóndanum á það, að ekkert mun breytast á meðan það er mesti hagur Sambandsins að geyma kjöt en ekki selja. Það mun þv( ekkert breytast á með- an Sambandið fær sölulaun af útflutningsbót- um. Það mun því ekkert breytast á meðan slát- urhús þurfa að greiða ( sölu- og bókhalds- kostnað nánast sömu upphæð og fer til greiðslu allra vinnulauna og launatengdra gjalda ( sláturhúsunum. Það mun því ekkert breytast ef vöruþróun verður ekki stóraukin samkvæmt kröfum markaðarins. Hessi grein Strandabóndans sýnir það eitt hversu nauðsynlegt það er að boðskapur jafn- aðarmanna komist beint og milliliðalaust til landsmanna, bænda jafnt sem annarra. Það má ekki treysta því að hann komist óbrenglað- ur til skila um tungur andstæðinga þeirra. B.P. Lýsi_______________________£ „Þetta er ekki svona einfalt", sagði Jón Reynir, „þó þetta sé stór og fullkomin verksmiðja þá er ákaflega óhagkvæmt fyrir hana að vinna bara einn og einn farm. Verk- smiðjan á Raufarhöfn liggur mun betur við miðunum. — Ég veit líka ekki betur en það sé bara eitt skip á miðunum þessa dagana og hlýtur að vera hæpið að stóla á afla úr einu skipi“. Jón Reynir sagði að fundað yrði í stjórn S. R. í gær og líklegast ákvörðun tekin um framhaldið, og hvort tekið yrði á móti einhverjum afla fyrir 1. september. Alþýðu- blaðið frétti ekki nánar af fundin- um í gærkvöldi áður en blaðið fór í prentun. Þjóðernisk. 1 Fjöldann allan af dæmum um hörð viðbrögð landsmanna mætti nefna. Það er hins vegar ekki laust við að það veki nokkra kátínu sumra, þegar þekktir hægri og aðdáendur Bandaríkjanna, stinga niður penna í sárindum sínum og taka þá í nokkurn veginn sama streng og andstæðingar her- setunnar hafa jafnan gert, þótt á býsna ólíkum forsendum sé. Það hafa sjálfsagt ekki margir átt von á því að lesa þetta í kjall- aragrein eftir Harald Blöndal: „Bandaríkjamenn virðast ein- faldlega ekki skilja hvað felst í sjálfstæði þjóða. Þeir trúa því að þeir eigi að vera samviska heims- ins og allsherjar lögreglulið, þó með þeim takmörkunum sem dyntir þeirra leyfa. Það er hægt að benda á mörg dæmi þess að Bandaríkjamenn hafi haft af- skipti af innanríkismálum annarra þjóða. Og oftar en ekki helgast þessi afskipti þeirra af stórveldahagsmunum þeirra. Það er út af fyrir sig skiljanlegt. Bandarikjamenn hafa sett fram þá reglu að þeir skipti sér af stjórnarháttum í einræðisríkjum — ef einræðisríkin eru að flytja út stjórnarstefnu sína. Þess vegna berjast þeir gegn Nicaragua — sandinistar vilja breiða byltingu sína út. Þess vegna láta þeir Suð- ur-Afríku í friði — Suður-Afríku- menn eru ekki að predika apartheit sem allsherjarstefnu í heiminum, heldur aðeins sem nauðsynlega stjórnarstefnu heima fyrir. Nú vitna Bandaríkjamenn í eig- in lög um baráttu gegn þjóðum sem hunsa alþjóðasamþykktir um friðun dýra. Gegn slíkum þjóðum eigi að beita viðskiptahömlum. Þessi lög hafa verið í gildi um nokkurt skeið. Ekki er vitað til þess að Bandaríkjamenn hafi beitt þeim hingað til gegn nokk- urri þjóð og allra síst gagnvart þeim þjóðum þar sem verið er að útrýma dýrum, eins og t.d. hjá ýmsum þjóðum Afríku". Og síðar í sömu grein segir Haraldur: „Menn óttast viðskiptahömlur Bandaríkjamanna. Ég segi hins vegar: Það eitt, að Bandaríkja- mönnum dettur í hug að beita Is- lendinga viðskiptahömlum, er slík ógnun við efnahagslíf íslend- inga að bregðast verður hart við. Bandaríkin eru ekki lengur sá markaður sem Islendingar geta treyst. Við verðum því að leita nýrra markaða — við verðum að efla sókn okkar á fiskmarkaði Evrópu enda eðlilegra að selja fisk okkar þangað. Og við eigum að beina atorku okkar meira að fiskmörkuðunum í Japan. Japan- ir hafa greitt íslendingum gott verð fyrir afurðirnar. Og það sem kannski er mest um vert: Stjórn- völd þar viðurkenna rétt annarra þjóða til þess að skipa sjálfar mál- um sínum“ Haraldur klykkir svo út með þessum orðum: „Því mið- ur hef ég enga trú á því að Banda- ríkjamenn öðlist skilning á því hvernig lífsbaráttan fer fram hér á íslandi. Til þess er þjóðin um of sokkin í fen Dallas, Dynastys og Löðurs. Ég held þess vegna að best sé fyrir íslendinga að vera þessari þjóð sem minnst háðir — leita nýrra markaða eins og ég skrifaði fyrr. Kaupa sem minnst af þeim. Og því miður held ég að nauðsynlegt verði innan tíðar að huga að öðrum leiðum til þess að tryggja öryggi og varnir landsins. Bandaríkjamönnum gæti sem best dottið það í hug að óheimilt væri að gera varnarsamninga við þjóðir sem drepa hvali sér til við- urværis. Hvalurinn 1 Steingríms Hermannssonar, for- sætisráðherra, um að ekki beri að tefla íslenskum markaðshagsmun- um í Bandaríkjunum í tvísýnu vegna hvalamálsins. Þótt það sé ljóst eftir blaða- mannafundinn í gær, að hvalveiðar íslendinga verða teknar upp aftur að loknum sumarleyfum starfs- manna Hvals hf., virðast enn vera lausir endar á hvalamálinu. Það koma að vísu fram á fundinum að sjávarútvegsráðherra hefur borist trygging fyrir því að bandaríska viðskiptaráðuneytið muni ekki gefa út yfirlýsingu um það að hvalveiðar íslendinga brjóti í bága við sam- þykkt Aiþjóðahvalveiðiráðsins. Hvort það dugar til þess að Japanir treysti sér til að kaupa af okkur hvalafurðir, er hins vegar ekki alveg þar með sagt. Það kom ennfremur fram á blaðamannafundinum í gær, að. takmörkun útflutningsins umfram það sem ráðgert var, mun hafa í för með sér eitthvert fjárhagslegt tap. Hins vegar liggur ekkert fyrir um það hvort þetta tap verður svo mik- ið að hvalveiðarnar standi ekki lengur undir sér. Það var þó á ráð- herranum að skilja að hann teldi ekkert athugavert við það, þótt þessar hvalarannsóknir kostuðu ríkissjóð einhverja peninga, eins og aðrar hafrannsóknir. Ríkisstjórnarsamþykkt um hvalveiðar í vísindaskyni í framhaldi af ákvörðun Al- þjóðahvalveiðiráðsins um hlé á hvalveiðum í atvinnuskyni á árun- um 1986—1990 ákváðu Alþingi og ríkisstjórn íslands að framfylgja þeirri samþykkt. Jafnframt var ákveðið að stórauka rannsóknir, þannig að sem bestar vísindalegar upplýsingar lægju fyrir, þegar tekin yrði ákvörðun um það, hvort hval- veiðar í atvinnuskyni hæfust að nýju eftir 1990. í samræmi við þessa stefnu gerði Hafrannsóknastofnun ítarlega áætlun um hvalrannsóknir á þessu tímabili og hefur áætlun- inni þegar verið hrundið í fram- kvæmd. Ríkisstjórn íslands telur lífsnauðsyn að ávallt séu fyrir hendi sem bestar upplýsingar um lífríkið innan fiskveiðilögsögu Iandsins. Rannsóknaráætlunin er mjög þýð- ingarmikill þáttur í þeirri viðleitni íslendinga að nýta auðlindir hafs- ins með sem skynsamlegustum hætti. Ríkisstjórnin vill því ítreka að áfram verður unnið í samræmi við rannsóknaráætlunina sem gerð er á grundvelli stofnsamnings Al- þjóðahvalveiðiráðsins og að teknu tilliti til ályktunar ráðsins um hval- veiðar í vísindaskyni frá júní s.l. Vísindaáætlunin hefur að mati ríkisstjórnarinnar verið fram- kvæmd í einu og öllu í samræmi við samþykktir Alþjóðahvalveiðiráðs- ins og framangreinda ályktun. Þar kemur m.a. fram að kjötið ásamt öðrum afurðum ætti fyrst og fremst að nota innanlands. Orðalag þetta hefur verið túlkað af íslendingum á þann hátt, að með því sé hvatt til innanlandsneyslu en á engan hátt sé útflutningur útilokaður eða tak- markaður verulega, sérstaklega þar sem í ályktuninni er einnig vitnað til stofnsamnings Alþjóðahvalveiði- ráðsins, þar sem aðildarríkin taka á ’sig þær skyldur að nýta afurðirnar eftir því sem aðstæður leyfa. Orða- lag ályktunarinnar var m.a. ákveðið til að koma í veg fyrir mikinn ágreining innan Alþjóðahvalveiði- ráðsins og því ljóst að ágreiningur gæti orðið um túlkun. Bandarísk stjórnvöld túlka orða- Iagið þannig, að ekki megi flytja út nema innan við helming af því kjöti, sem til fellur við rannsókna- veiðarnar annars vegar og hins veg- ar ekki nema innan við helming af öðru sem til nýtingar kemur. Ljóst er að þjóðirnar geta ekki komið sér saman um túlkun á orðalagi þessu. í samræmi við túlkun sína telur við- skiptaráðuneyti Bandaríkjanna sér skylt að gefa út tilkynningu til for- seta um að íslendingar hafi ekki farið í einu og öllu eftir ályktun- inni. Til þess að tryggja að því verði ekki haldið fram að ályktun Al- þjóðahvalveiðiráðsins sé ekki full- nægt og til að koma í veg fyrir frek- ari árekstra í máli þessu hefur verið ákveðið að aðeins verði fluttur út tæpur helmingur af kjötinu og einnig tæpur helmingur annarra hluta hvalanna og það sem eftir er nýtt innanlands, enda mun það tryggja framgang nauðsynlegra rannsókna og veiði á 80 langreyðum og 40 sandreyðum í því skyni. Reykjavík, 6. ágúst 1986. Happdrætti Hj artaver ndar Árlegt happdrætti hefur um greinum. Kemur þetta að gagni fyr- langt skeið verið einn af styrkustu tekjustofnum Hjartaverndar. Að- eins eitt happdrætti á ári er á vegum samtakanna og dregið í því að haustinu, í þetta sinn 10. október. Aðalverkefni Hjartaverndar er tvennskonar: Fræðslustarfsemi og rekstur rannsóknarstöðvar. Sam- tökin efna árlega til fræðslufunda þar sem þekktir sérfræðingar fjalla um hjarta- og æðasjúkdóma, þró- un þeirra og varnir gegn þeim. Skýrslur, bæklingar og tímarit koma út á vegum samtakanna til að fræða almenning um helstu áhættuþætti þessara mannskæð- ustu sjúkdóma hér á landi og hvaða fyrirbyggjandi aðgerðir komi helst að gagni. Hjartavernd hefur rekið rann- sóknarstöð í 19 ár. Árangurinn af rannsóknum Rannsóknarstöðvar Hjartaverndar er sífellt að koma í Ijós eins og lesa má í skýrslum og ír heilbrigðisþjónustuna í landinu í bráð og lengd. Forvarnir eru hald- kvæmasta heilsugæslan eins oe Hjartavernd hefur bent á frá upp- hafi. Happdrættið hefur árlega lagt drjúgan skerf til Rannsóknarstöðv- ar Hjartaverndar. í þetta sinn eru vinningar óvenju glæsilegir, alls 20 talsins að verðmæti tæpar 4 mill- jónir króna. Hæsti vinningur er 1 milljón krónur til íbúðarkaupa og annar vinningur er Audi bifreið ár- gerð 1987 að verðmæti kr. 850.000= Aðrir vinningar eru 2 greiðslur til íbúðakaupa, 11 ferðavinningar og 5 tölvur. Verð miða er það sama og siðastliðið ár, kr. 150= Happdrætti Hjartaverndar hefur jafnan átt góða hauka í horni sem keypt hafa miða og hvatt aðra til að gera það. Þannig hefur almenning- ur lagt hönd á plóginn.

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.