Alþýðublaðið - 08.08.1986, Side 3
Föstudagur 8. ágúst 1986
3
r
I
loftbelg
yfir
Dan
mörku
Loftbelgsflugmaðurinn Kai
Paamand hefur í hyggju að setja
lengdarmet og fljúga stœrsta loft-
belg Danmerkur 300 km vegalengd,
frá Suður-Jótlandi til austurhluta
Sjálands. Núverandi met er 100 km,
á milli Ribe og Árhus. Loftbelgur-
inn er fylltur heitu lofti og flugmað-
urinn situr nú og bíður eftir hvöss-
um vestanvindi, sem á að skila hon-
um á áfangastað á u.þ. b. sex tímum.
Loftbelgurinn er í eigu BP gas-
stöðvarinnar og er á stœrð við tíu
hœða hús þegar hann er uppblás-
inn, 28mhárog 2550 rúmmetrar að
stœrð. Ácetlað er að fljúga í 3000
feta hœð, með 30—40 km hraða á
klst. Lendingin kann að verða ein-
hverjum erfiðleikum bundin. Flug-
maðurinn þarf að sleppa hœfilega
miklu lofti úr loftbelgnum á réttum
stað og réttum tíma og er eins og
vœnta má mjög háður veðri og
vindum á þessu ferðalagi.
Þingvallaferð SUJ —
ÆFAB
Laugardaginn 16. ágúst n. k.
Samband ungra jafnaðarmanna og Æskulýðs-
fylking Alþýðubandalagsins efna til sameigin-
legrar sumarferðar á Þingvöll laugardaginn 16.
ágúst n. k.
Lagt verður af stað frá B.S.Í. ki. 13.30 stundvlslega.
Farinn verður Þingvallahringur með viðkomu á
Kotströnd, Ljósafossvirkjun og Þingvöllum undir
leiðsögn Sverris Tómassonar miðaldarfræðings.
Þar verður snæddur kvöldverður þar sem forystu-
menn flokkanna munu halda uþþi glensi með öðr-
um ferðalöngum.
Áætluö ferð I bæinn er kl. 23.00. Verðið fyrir allt
þetta er aðeins 1.300 krónur. Vegna glfurlegrar
athygli og áhuga borgar sig að tilkynna þátttöku
sem fyrst. Skráning er I slma 17500 á daginn og
41394 á kvöldin.
SUJ-ÆFAB
i FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
ísa
|A’ ÁKUREYRÍ
Fóstrur og starfsfóik óskast að dagheimilinu
Stekk við Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Um er að ræða heilsdags og hálfsdags stöður.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Stekkjar I slma
96—22100 frá kl. 10.00—11.00 árdegis og 13.30—
14.30 síðdegis.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
W2| Deiliskipulag
W Kópavogi
Freeportklúbburinn:
Afmælishóf á
Hótel Sögu
Um þessar mundir eru tíu ár liðin
frá stofnun Freeportklúbbsins.
Þann 12. ágúst 1976 kom saman til
félagsstofnunar í Reykjavík hópur
fólks, er átti það sameiginlegt að
hafa á undangengnum mánuðum
leitað vestur til Bandaríkjanna, til
að ná einhverjum tökum á sjúk-
dómi sínum — alkóhólisma. Nánar
tiltekið á Freeport Hospital í smá-
bænum Freeport, sem er á Long
Island í New York ríki.
Þessir einstaklingar, þá 33, höfðu
þar vestra kynnst nýjum viðhorfum
til sjúkdóms síns; nýjum aðferðum
við meðferð alkóhólista — og nú
þurfti afl til að kynna þetta hér
heima, félag til að hrista upp í ríkj-
andi skipulagi, annast fræðslu um
þessi mál; og, á meðan aðstaða í
þessum anda var ekki fyrir hendi
hér heima, að annast á skipulegan
hátt aðstoð við ferðir alkóhólista
vestur um haf, til meðferðar vegna
sjúkdóms síns.
Því var Freeportklúbburinn
stofnaður og urðu útskrifaðir sjúkl-
ingar af Freeport Hospital sjálf-
krafa meðlimir, svo félaginu óx
fljótt fiskur um hrygg. Fræðslu-
starfsemi varð strax mikil og hafði
klúbburinn forgöngu um að fá
hingað til lands, vestan um haf,
þekkta fyrirlesara um áfengismál,
sem vöktu athygli og umræður
manna á meðal — og félagar komu
fram í fjölmiðlum og ræddu sjúk-
dóm sinn umbúðalaust, en það var
nýlunda.
Með stofnun Freeportklúbbsins
og þeirri almennu umræðu er fé-
lagsmenn ollu, voru mörkuð afger-
andi tímamót í afstöðu alls almenn-
ings til áfengismála á íslandi. Þetta
skref varð áhrifavaldur að því
Grettistaki, sem þjóðin hefur orðið
vitni að á vettvangi áfengismála
sinna síðar, er nokkrir Freeportfé-
lagar undir forustu Hilmars heitins
Helgasonar höfðu forgöngu um
stofnun SÁÁ, sem unnið hefur
þjóðinni þrekvirki síðan; þrekvirki
sem flestir telja sjálfsagt mál í dag.
Starfsemi Freeportklúbbsins
breyttist eðlilega mikið við stofnun
SÁÁ — og var reyndar viljandi
dregin nokkuð í skuggann, er þeim
merka áfanga var náð. Forgöngu
um hingaðkomu erlendra fyrirles-
ara hefur þó verið haldið við, þá
tækifæri hafa gefist — og innan
klúbbsins er haldið uppi líflegu fé-
lagsstarfi, þar sem áhersla er lögð á
að viðhalda þeim vinaböndum sem
skapast hafa í félagsstarfinu í gegn-
um árin, auk þess sem klúbburinn
hefur staðið fyrir borgarafundum
um ýmis þau mál, er hæst hefur
borið í áfengismálum þjóðarinnar á
hverjum tíma. Þá hefur klúbburinn
veitt nokkrum aðilum námsstyrki,
til að kynna sér meðferðarmál
alkóhólista í Bandaríkjunum.
Freeportfélagar hyggjast minnast
tíu ára afmælisins á ýmsan hátt, er
kemur fram á haustið — en að
kvöldi afmælisdagsins, þriðjudags-
ins 12. ágúst nk. verður áfanganum
fagnað í kvöldverðarhófi, er verður
að Hótel Sögu í Reykjavík og hefst
kl. 20. — Tilgangi sínum trúr, hefur
klúbburinn boðið hingað til lands í
þessu tilefni dr. Frank Herzlin,
stofnanda og aðalforstöðumanni
Freeport Hospital, og mun hann
flytja aðalræðu kvöldsins.
Fimmtudaginn 14. ágúst mun svo
dr. Herzlin flytja fyrirlestur á al-
mennum fundi um áfengismál, sem
klúbburinn gengst fyrir í Átthaga-
sal Hótel Sögu og nánar verður aug-
lýstur síðar.
Þess er vænst að sem flestir
Freeportfélagar — og velunnarar
klúbbsins — sjái sér fært að sitja af-
mælishófið að Hótel Sögu á þriðju-
dagskvöld. Aðgöngumiðar að hóf-
inu eru seldir í versluninni Bona-
parte, Austurstræti 22, og í Bíla-
leigu Akureyrar, Skeifunni 9, — og
verði er mjög stillt í hóf.
Happdrœtti Alþýðu-
flokksins í Kópavogi:
Viimingsitúmerm
Dregið hefur verið i happdrætti
Alþýðuflokksins í Kópavogi:
Dregnir voru út 10 ferðavinningar
að upphæð krónur 30.000 hver.
Vinningar komu á miða númer:
1034, 2742, 4423, 4642, 5872,6187,
6288, 7154, 7522, og 8577.
fSjúkrahúsið
í Húsavík
Starf hjúkrunarforstjóra
viö sjúkrahúsið Húsavlk er laust til umsóknar.
Upplýsingargefurframkvæmdastjóri I síma96—41333.
Samkvæmt skipulagsreglugerð auglýsist deili-
skipulag á lóð Rlkisspltalanna I Kópavogi, nánar
tiltekið á reit, sem afmarkast af Hafnarfjarðarvegi
að austan, Kópavogsbraut að norðan, Urðarbraut
að vestan og strandlengju Kópavogarins að sunn-
an.
Breyting er frá áður samþykktu skipulagi vegna
væntanlegrar byggingar verndaðra Ibúða fyrir
aldraða á lóð hjúkrunarheimilisins Sunnuhlfðar.
Skipulagsuppdráttur ásamt tillöguuppdráttum
að II. áfanga Sunnuhllðar liggur frammi á tækni-
deild Kópavogs I Félagsheimilinu Fannborg 2, 3.
hæð frá 8. ágúst til 8. september 1986.
Athugasemdir, ef einhverjareru, skulu hafa borist
bæjarverkfræðingi Kópavogs skriflega fyrir há-
degi mánudaginn 15. september n.k.
Bæjarverkfræðingur.
Dagvist barna
á einkaheimilum
Athygli er hér með vakin á að tilfinnanleg vöntun
er á dagmæðrum til starfa.
Þeir sem vildu taka börn I daggæslu á heimili sín
eru vinsamlega beðnir um að hafa sem fyrst sam-
band við umsjónarfóstrur I síma 22360 — 21596
eða 27277.
Dagvist barna.
Kennarar
Grunnskólann I Grindavlk vantar kennara fyrir yngstu
nemendurna næsta vetur. Einnig vantar I 7—9 bekki
kennara ( Islensku, eðlisfræói og stæröfræði. Áhuga-
samir fá nánari upplýsingar hjá skólastjóra I slmum
92—8504 og 92—8555 og skólanefnd sfmi 92—8304.
Skólanefnd.