Alþýðublaðið - 19.08.1986, Qupperneq 1
alþýdu-
blaóiö I
Þriðjudagur 19. ágúst 1986 156. tbi. 67. árg
Bankaafgreiðsla
á 200 stöðum
— á landinu. Fjöldi afgreiöslustaöa óbreyttur
frá fyrra ári.
Svo virðist nú sem afgreiðslu-
stöðum banka og sparisjóða sé
hætt að fjölga, a.m.k. í bili. Af-
greiðslustaðirnir eru nú alls 201 á
landinu, þegar allt er talið og er sú
tala óbreytt frá síðasta ári. Þessar
upplýsingar er að finna í nýrri
skýrslu bankaeftirlitsins, sem út
kom i síðustu viku.
Af einstökum bankastofnunum,
hefur Landsbankinn yfir að ráða
flestum afgreiðslustöðum, eða alls
42, en afgreiðslustaðir sparisjóða
eru þó fleiri, eða 44. Búnaðarbank-
inn ræður nú 31 afgreiðslustað, en
aðrir bankar mun færri. Af-
greiðslustaðir Samvinnubankans
eru nú 20, Útvegsbankans 14, Iðn-
aðarbankans 10, Verslunarbankans
8 og síðastur í röðinni kemur svo
Alþýðubankinn með 3 afgreiðslu-
staði. Þess má þó geta að Alþýðu-
bankinn mun á næstunni opna nýja
afgreiðslu á Akranesi.
Auk þess sem að framan hefur
verið talið eru svo innlánsdeildir
samvinnufélaga, en þær eru nú alls
27 og þegar Póstgíróstofnunni og
Söfnunarsjóði íslands hefur verið
bætt við, verða þessir afgreiðslu-
staðir alls 201, eins og áður segir.
Á síðasta ári fjölgaði að vísu af-
greiðslustöðum Landsbankans um
einn, enþarámótikemuraðein af
innlánsdeildum kaupfélaganna var
iögð niður.
Listaverk,
blóm og tré
— meðal afmcelisgjafa sem borginni hafa borist
að undanförnu
Afmælisgjafir hafa að undan-
förnu streymt til höfuðborgarinnar
frá ýmsum aðilum. Hæst ber að
sjálfsögðu afmælisgjöf ríkisins,
landareign og mannvirki þess í Við-
ey, sem Sverrir Hermannsson,
menntamálaráðherra afhenti Davíð
Oddssyni, borgarstjóra Reykjavík-
ur á laugardaginn.
Meðal annarra gjafa sem borg-
inni hafa borist, má nefna Þing-
vallamálverk eftir Kristján
Magnússon, sem starfsmannafélag
borgarinnar færði henni, málverk
af Ingólfi Arnarsyni með öndvegis-
súlur sínar, sem málað var árið 1850
af danska málaranum Johan Peter
Raadsig, gefið af Eimskipafélagi ís-
lands og ágrafinn skjöld, unninn af
Friðrik Friðleifssyni.
Þá hafa 58 fyrirtæki og stofnanir
í borginni tilkynnt að þau muni
sameinast um að gefa borginni eir-
afsteypu af höggmyndinni „Úr
álögum“, eftir Einar Jónsson. Þessi
mynd hefur verið talin eitt af höf-
uðverkum listamannsins og er
vinna við eirafsteypuna þegar haf-
in, en hún verður formlega afhent
næsta vor.
Einnig hafa íbúasamtök Vestur-
bæjar afhent borginni verðlaunatil-
lögu ásamt líkani að listaverki eftir
Jón Gunnar Árnason, en listaverk
þetta verður síðan stækkað og reist
úr stáli í Vesturbænum. Blómamið-
stöðin gaf borginni 200 rósir, auk
þess sem blómabændur skreyttu
Austurstræti með blómum í gær.
Þá má ennfremur nefna úti-
klukku sem Þýsk-íslenska hf. hefur
gefið og reist verður við Sundlauga-
veg í nágrenni sundlaugarinnar í
Laugardal og trjálund í nágrenni
Þjóðarbókhlöðunnar frá Skóg-
ræktarfélagi Reykjavíkur. Og að
lokum má nefna fjölmörg tré sem
gróðursett voru í borgarlandinu í
vor á vegum samtakanna „Lif og
land“ og fleiri aðila.
Þetta bandaríska strandgœsluskip var hér í heimsókn á dögunum. Ljósmyndari Alþýðublaðsins tók þessa mynd
af skipinu þar sem það lá í Sundahöfn.
Vilhjálmur Ketilsson, bœjarstjóri í Keflavík:
Menn verða að sníða
sér stakk eftir vexti
Ekki fer á milli mála að kostn-
ingasigrar Alþýðuflokksins i bæj-
arstjórnarkosningunum í vor
hafa farið fyrir brjóstið á mörg-
um ef marka má þau skrif sem
birst hafa að undanförnu í hinum
ýmsu blöðum landsmanna. í
Keflavík skipar Aiþýðuflokkur-
inn hreinan meirihluta í bæjar-
stjórn. Alþýðublaðið hafði sam-
band við Vilhjálm Ketilsson ný-
kjörinn bæjarstjóra í Keflavík og
innti hann eftir því hvað hann
segði um linnulausar árásir
Ámunda Einarssonar á þá í blað-
inu Reykjanes.
Vilhjálmur sagði að þessar
árásir kæmu til vegna þess að ein-
staka menn sættu sig einfaldlega
ekki við kosningaúrslitin. Þessi
umrædda gagnrýni væri ekki
byggð á málefnalegum grundvelli
heldur hreinar svivirðingar og
óhróður. Sem dæmi nefndi hann
að í blaðinu Reykjanesi væri þeim
líkt við fasista eins og þeir hefðu
verið á tímum Hitlers. Umræða i
þessum stíl væri í raun ekki svara-
verð.
— Kom þessi mikli sigur ykkur
á óvart?
„Já, við bjuggumst við að fá
3—4 menn en ekki hreinan meiri-
hluta. Fyrir bragðið eru nú í bæj-
arstjórn fjórir af fimm sem ekki
hafa setið í bæjarstjórn áður.
Þessir tveir mánuðir hafa því farið
í að kynna sér starfsemina og
komast inn í málinþ
— Hverju þakkar þú þennan
sigur?
„Það má segja að þar hafl kom-
ið þrennt til. í fyrsta lagi urðu
breytingar á listum allra flokk-
anna og varð því fólk að gera upp
hug sinn á ný. í öðru lagi vorum
við lang duglegastir í kosninga-
baráttunni og í þriðja lagi er mikil
fylgisaukning hjá Alþýðuflokkn-
um á landsvísu. Þar kemur til að
vegna versnandi kjara lítur fólk til
Alþýðuflokksins í von um meiri
skilningþ
— Hver eru stærstu verkefnin
hjá ykkur í Keflavík?
„Fjárfrekustu framkvæmdirn-
ar eru gatnagerðin, sundmiðstöð-
in, lagning gangstétta og vatns-
veitan."
— Er búið að gera nýja fjár-
hagsáætlun?
„Nei, við erum nú að endur-
skoða núverandi fjárhagsáætlun.
I Ijós hefur komið að hún mun
ekki standast og verður því að
draga úr framkvæmdum. Aætlað
var að leggja 12 milljónir í sund-
miðstöðina á þessu ári, en það
verður líklega eitthvað dregið úr
því“
— Þið eruð aðilar að Sambandi
sveitarfélaga á Suðurnesjum.
Hvaða verkefni eru það helst sem
tengja sveitarfélögin saman?
„Það er Dvalarheimili aldr-
aðra, Sorphreinsunarstöðin og
Heilsugæslustöðin“
— Það urðu mikil blaðaskrif í
vor vegna þess að miklir erfiðleik-
ar eru hjá ykkur í sjávarútvcgin-
um. Voruð þið í einhverjum póli-
tiskum leik?
„Á fyrsta fundi í bæjarráði
skrifuðum við bréf til forsætis-
ráðherra og báðum um fund til að
ræða þessa sérstöðu okkar í sjáv-
arútvegi. Sérstaða okkar er í því
fólgin að allmörg skip hafa verið
seld út úr byggðarlaginu og með
þeim mikill kvóti. Þegar við erum
að fara fram á að fá meiri kvóta þá
erum við að fara fram á að eitt-
hvað af þeim kvóta sem fór með
þessum skipum verði skilað til
okkar aftur. Halldór Ásgrímsson
veit alveg hvernig í málinu liggur.
Eitt af þeim fyrirtækjum sem
hafa farið fram á aðstoð er Hrað-
frystihúsið í Keflavík sem er í eigu
kaupfélagsins og S.Í.S. Þannig að
málið er honum í raun það ná-
kontið að hann hlýtur að vita um
hvað það snýst.
Við þökkum Vilhjálmi fyrir
spjallið og óskum honum velfarn-
aðar í starfi.
v_r/_
HOTEL
KRISTINA
NJARÐVÍK
NÝTT HÓTEL - við bæjardyrnar!
Alþjóðaflugvöllurinn á Keflavíkurflugvelli er í landi Njarðvíkur.
HÓTEL KRISTÍNA er staðsett að Holtsgötu 47, Njarðvík.og er því í aðeins 5 mín. akstursleið frá flugstöðinni.
í fyrsta skipti gefst landsmönnum nú kostur á að njóta 1. flokks hótelþjónustu „við bæjardyrnar"
á ferðum sínum að heiman - og heim og þykir víst mörgum æði tímabært.
OKKAR ÞJÖNUSTA: ■Ókeypis flutningur til og frá hóteli og flugstöð í nýjum
hópferðabílum. HTveggja manna herbergi á kr. 2.100.- pr. nótt. ■ Eins manns herbergi
á kr. 1.650.- pr. nótt. (Öll herbergi með fullkominni snyrtiaðstöðu, og hægt er að fá
sjónvarp og síma inn á herbergin án endurgjalds.) BMorgunverður á kr. 200.-. BHóp-
ferðaþjónusta. ■Bílaleiga. ■ Öll almenn hótelþjónusta.
Ferðaþjónusta, sem enginn ætti að láta fram hjá sér fara.
HOTEL
KRISTINA
SIMAR:
924444
92-3550