Alþýðublaðið - 17.10.1986, Qupperneq 4
alþýðir
Föstudagur 17. október 1986
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Daníelsson, Ása Björnsdóttir, Kristján
Þorvaldsson,
Framkvæmuastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er681866
Guðlaugur Tryggvi Karlsson um leiðtogafundinn
BYRJUNARTAFL
Persónutöfrar Gorbatsjef slá ekki rykií augu
manna. Orð og athafnir verða að fara saman.
Leiðtogafundirslaka áspennu. Geimvarnaáætl-
un Bandaríkjanna dýr. Veruleiki alþjóðastjórn-
málanna og afvopnun fari saman. Ágreinings-
efnin hafa óumdeilanlega skýrst.
Allir gerðu sitt besta. Þjóðin,
fjölmiðlarnir og sjálfsagt leiðtogar
stórveldanna líka. Samt varð út-
koman vonbrigði. í rauninni voru
þessi vonbrigði bundin við sunnu-
daginn. Framlenging þriðja fund-
arins og aukafundurinn sem dróst á
langinn kveiktu vonir í brjóstum
manna að nú væri að draga saman
með stórveldunum. Síðan birtist
Schultz utanríkisráðherra á skján-
um og vonir manna urðu að engu.
Rússarnir áttu líka sinn þátt í
vonbrigðunum, því fréttaleki þeirra
um mögulegt samkomulag um
langdræg flugskeyti ýtti undir
bjartsýni. Talsmaður Hvíta hússins
Larry Speaks, brást ókvæða við og
taldi Rússana hafa brugðist sam-
komulaginu um fréttaleynd. Þetta
var í rauninni fyrsta vísbending um
að snurða væri hlaupin á þráðinn.
Guðlaugur 'fí'yggvi
Tilgangur Rússanna var auðsær
með þessum fréttaleka. Kveikja
vonir í brjóstum manna, sem þeir
gætu síðan kennt Bandaríkja-
mönnunum um að eyðileggja.
Kattarþvottur
Að öðru leyti var þessi fundur
ekki ástæða til, að binda gífurlegar
vonir við. Hann átti upphaflega
aldrei að vera annað en vinnufund-
ur, með fréttaleynd og haldinn á af-
viknum stað. „Hugsið ykkur ef
þetta hefði skeð í Washingtoný
sagði Gorbatsjef á blaðamanna-
fundinum í Háskólabíó um kvöld-
ið. Þau orð benda til þess að þessi
svokallaði vinnufundur hafi verið
einhverskonar kattarþvottur á þeim
stórveldafundi sem var ákveðinn í
framhaldi af fundinum í Genf, þar
sem leiðtogarnir hittust fyrst. Eng-
inn dagsetning liggur fyrir um fund
í Washington og líklega þarf ekki
að búast við honum í bráð.
Stórveldafundir leiðtoganna,
sem þessi hér í Reykjavík, hefur al-
mennt mikil áhrif á Vesturlanda-
búa. Almenningur slakar á, leiðtog-
arnir eru að hittast og allt er í lagi.
Við búumst við einhverju góðu.
Á margan hátt getur þó svona
hugsanagangur verið hættulegur
fyrir Vesturveldin. T.d. á síðasta
áratug, þegar Vesturveldin voru
komin langt aftur úr Rússum í
vopnabúnaði og þó sérstaklega eld-
flaugum. Almenningsálitið gat
þannig unnið gegn öryggi hins vest-
ræna heims. Núna, þegar jafnvægi
hefur verið náð, er hægt að slaka á
klónni. Hættan er þó auðvitað sú,
að viss vinstri öfl nái það miklum
tökum á stórþjóðum Evrópu, að
þessi ávinningur í öryggi verði að
engu gerður.
Leiðtogafundurinn kann þó að
hjálpa til. Stríðshrjáðir Evrópubú-
ar eru nefnilega fyrst og fremst á
móti eldflaugum og geymvarnará-
ætlun Reagans vegna hræðslu við
það, sem Rússarnir kynnu að taka
til bragðs sem mótleik. Þegar leið-
togarnir eru að hittast, slakar fólkið
á og stendur ekki að mótmælum,
gegn framkvæmdum, sem raun-
verulega tryggðu öryggi þess.
„Politburo“
Rússarnir bundu svipaðar vonir
við leiðtogafundinn. Að vísu skipti
almenningur ekki máli, heldur her-
foringjarnir. Gorbatsjef vill nefni-
lega hrista upp í rússneska hagkerf-
inu, sem er eins mölétið og hann
sagði tillögur Bandaríkjamann-
anna hafi verið á fundinum í
Reykjavík, ef ekki verri. Herfor-
ingjarnir hlusta ekki á neitt efna-
hagshjal, þeir heimta fé til þess að
ná bættri hernaðaraðstöðu gegn
Atlantshafsbandalagsríkjunum.
Með engri niðurstöðu á Reykjavík-
urfundinum er Gorbatsjef kominn
í vörn í Politburo eða fram-
kvæmdastjórn æðsta ráðsins og
pólitískri framtíð hans er stefnt í
voða.
Á íslandi vann Gorbatsjef þó
mikinn áróðurssigur, hann þótti
opinn og greinilega reyndi að ná
áfanga í einhverskonar afvopnun.
Sjálfsagt yrði það slæmt fyrir ver-
öldina ef hann hrökklaðist frá völd-
um og herforingjarnir yrðu einráðir
í Politburo. En maðurinn er ekki
fæddur í gær, nema síður væri og
margs er að gæta áður en slakað er
á fyrir Rússunum til þess að halda
Gorbatsjef við völd.
Gorbatsjef er skilgetið afkvæmi
kommúnistaflokks Ráðstjórnar-
ríkjanna, sem hefur ráðið þessu
víðlendasta ríki veraldar einn og
ekki liðið nokkrum öðrum flokki
að koma þar nærri, í nærfellt 70 ár.
Gorbatsjef var skjólstæðingur Yuri
Andropov, þegar sá síðarnefndi
stjórnaði KGB — alríkislögregl-
unni og var náinn vinur Mikaels
Suslov, hins fræga hugmyndafræð-
ings kommúnistaflokksins. Hvor-
ugur þessara höfðingja var nokkurt
lamb að leika við, enda komst
Andropov á toppinn, varð aðalrit-
ari kommúnistaflokks Ráðstjórn-
arríkjanna og æðsti herforingi.
Herir Sovétríkjanna
Gorbatsjef er frábær áróðurs-
maður, eins og staðfest er hér í
Reykjavík og við hlið sér hefur
hann gáfaða og frambærilega
konu, sem fær að njóta sín út á við.
Það er reyndar alveg nýtt í Sovét-
ríkjunum.
Hann reynir af miklum sannfær-
ingarkrafti að fá það staðfest, að
hann sé ný gerð af sovétleiðtoga og
verður býsna mikið ágengt í því
efni. Á hinn bóginn er það ekkert
nýtt að því sé haldið fram að nýir
leiðtogar Sovétríkjanna séu „öðru-
vísi“ menn. Reyndar hefur því verið
haldið fram um alla Sovétleiðtoga
og af öllum forsetum Banda-
ríkjanna á þessari öld, nema
Richard karlinum Nixon. Hann átti
aldrei von á því að Sovét leiðtogar
breyttust neitt, hann þekkti vel hinn
pólitíska heim — kannski pínu lítið
af sjálfum sér líka.
Gorbatsjef forðast greinilega
sem heitan eldinn að minnast á það,
að herir hans eru í Afganistan og i
Vietnam og hann styður leynt og
Ijóst hermenn Kúbu í Angóla,
Eþíópíu og Nícaragua, ásamt
skæruhernaði vítt og breitt um ver-
öldina og hryðjuverkamenn.
Ekkert þessara mála fæst rætt af
hálfu Sovétstjórnarinnar, en þeir
gera kröfu á að umræðan snúist
eingöngu um afvopnun. Þegar ár-
angri væri náð í því efni, væri svo
hægt að reyna að ná einhliða samn-'
ingum við nágrannalöndin Kína,
Japan og Pakistan og færa þau fjær
Bandaríkjunum. Meðan Sovét-
stjórnin fer öllu þessu fram er þó
varla að búast við miklum árangri í
afvopnunarviðræðum. Innrásin í
Afganistan varð t.d. til þess að Salt
II sáttmálinn náði aldrei fram að
ganga.
Kínverjar fara ekkert dult með
það að þeir telja afvopnun án póli-
tísks veruleika einskis virði. Skil-
yrði þeirra fyrir bættum samskipt-
um við Moskvu eru einfaldlega þau
að Rússar fari frá Afganistan,
ásamt Mongólíu og hjálpi til við að
koma Víetnömum frá Kambódíu.
„Friður á okkar tímum“
Gorbatsjef hefur alltaf lagt
mikla áherslu á mikilvægi leiðtoga-
funda. Þar nýtir hann persónutöfra
sína og mælsku til hlítar og fær um-
ræðunni snúið um menn meira en
málefni. Friður, afvopnun og frið-
samleg samskipti leika honum á
tungu, en utanríkisstefna Sovétríkj-
anna býður því miður uppá annað.
Kannski ráða herforingjarnir of
miklu um ferðina en lærisveinn
Yuri Andropov kann líka sitt fag.
Sérstaklega nær áróðurinn um
afvopnun eyrum allskonar friðar-
hópa, sem forðast allan skilning á
því, að þrátt fyrir allt hefur tilvera
mannkynsins byggst á valdajafn-
vægi. Hversu ömurleg sem sú stað-
reynd er. „Peace in our time“ —
friður á okkar tímum —, kallaði
Chamberlain garmurinn fyrir tæp
um fimmtíu árum og ári seinna réð-
ust Þjóðverjar á Pólverja og heims-
styrjöldin síðari byrjaði. Kostaði 40
milljónir mannslífa og vantaði þó
ekki bjartsýnina eftir Múnchen.
Bandaríkjamenn hafa lagt 1500
milljarða dollara í varnir á síðustu
árum og valdajafnvægið er nokkuð
tryggt núna. Evrópa og Bandaríkin
hafa notið friðar, en hann hefur
sannarlega verið dýr. Geimvarnar-
áætlun Reagans er þó mörgum
sinnum dýrari. Margir telja að reyni
Rússar að nokkru gagni að svara
Framh. á bls. 3
Molar
______. J
. . . byr undir báða . . .
Þátttakendur í prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Norðurlands-
kjördæmi eystra hafa gefið sig
fram. Þar á meðal er auðvitað
þungavigtarmaðurinn Halldór
Blöndal og þarf það ekki að koma
neinum á óvart. Halldór er til
dæmis þekktur fyrir að kunna að
yrkja sonnettur, en þar fyllir hann
flokk manna á borð við Vilhjálm
Skakspjót.
Það sem vekur hins vegar
nokkra athygli í prófkjörslistan-
um fyrir norðan, er að í hringinn
er mættur Tryggvi Helgason flug-
maður, en hann hefur verið bú-
settur í Kanada um nokkurra ára
skeið samkvæmt heimildum
Mola, en það eru engin tíðindi þar
sem maðurinn er flugmaður!
Hitt þykja fréttir að Tryggvi
skuli vera kominn upp í pólitíska
orustuflugvél á nýjan leik. Hann
hefur áður þreifað fyrir sér í próf-
kjörum, bæði hjá framsóknar- og
sjálfstæðismönnum. Og nú er
bara að vita hvort Tryggva tekst
það sem svo margir hafa gefist
TYyggvi Helgason, flugmaður,
Þingvallastrœti 4 . Akureyri,
54 ára.
upp við, sem sagt það að komast
í gegnum hinn pólitíska eyrna-
hljóðmúr kjósenda Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandi eystra.
Halldór Blöndal, alþingismaður,
Tjarnarlundi 13h Akureyri,
48 ára. Maki: KristrúEymunds-
dóttir.