Alþýðublaðið - 21.10.1986, Side 4
alþýðu-
■ nrrrnv
Þriöjudagur 21. október 1986
Alþýðublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík
' Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blaö hf.
Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Daníelsson, Ása Björnsdóttir, Kristján
Þorvaldsson,
Framkvæmuastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Armúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Askriftarsíminn
er 681866
LÍBANON
— sundurtœtt heimkynni
margra þjóðarbrota
Frá því að Frakkar stofnuðu ríkið
Libanon eftir heimsstyrjöldina
fyrri hefur staðið styrr um það
hvort landið skyldi lúta yfirráðum
kristinna rnanna. Spurningin um
skiptingu á íbúum þessa marg-
klofna lands, landfræðilega og
þjóðernislega, sem lægi til grund-
vallar réttum valdahlutföllum, hef-
ur verið svo viðkvæm að ekki hefur
verið hægt að gera neitt í þeim mál-
um síðan lýðveldið var stofnað og
tæplega þá heldur.
Ekki er til neitt nýrra manntal en
frá 1932. Samkvæmt þeirri talningu
höfðu kristnir menn nauman meiri-
hluta eða 51% og kristnir „maron-
ittar“ voru stærsti hópurinn með
28%.
Þjóðarsáttmálinn
Þetta manntal var raunar gert að
ósk Múhameðstrúarmanna. Á dög-
um frönsku embættismannastjórn-
arinnar var þess krafist að Líbanon
fengi stjórn í eigin málum árið
1926. Sá sem setti fram þá kröfu
áleit að hann næði kjöri sem for-
seti, ef meirihluti landsmanna
reyndist vera Múhameðstrúar. En
franski landsstjórinn leyfði engar
kosningar. Manntalið kom samt
sem áður að notum, þvi að niður-
stöðurnar voru notaðar þegar gerð-
ur var óformlegur þjóðarsáttmáli í
Líbanon árið 1943, árið áður en
landið fékk sjálfstæði.
Þjóðarsáttmálinn er aðeins
óformlegt samkomulag, en ekki
löggilt plagg. Eftir honum er helstu
embættum og ábyrgðarstöðum út-
hlutað eftir trúarhlutföllum. Þing-
sætum er t.d. úthlutað þannig að
kristnir hafa 54 þingsæti, sunni-
múslímar 20, shia-múslímar 19 og
drúsar 6; 99 þingmenn alls. Forseti
lýðveldisins á að vera úr flokki
kristinna manna, forsætisráðherr-
ann úr flokki sunni-múslíma og
þingforseti úr flokki shia.
Þótt þjóðarsáttmálinn sé þannig
lagður til grundvallar stjórnskipan
landsins, þá trúa því víst fæstir að
manntalið frá 1932 gefi rétta mynd
nú. En hann virkar ennþá sem
nokkurs konar skilvinda, sem
tryggir að einstakir trúarhópar
haldi styrk sínum og áhrifum á
kostnað hinnar opinberu réttvísi.
Margir erlendis
Þegar manntalið var gert, féllust
Frakkar á að einnig yrðu skráðir
Líbanir, sem búsettir voru erlendis.
Flestir þeirra voru kristnir og juku
því á tölu kristinna manna í land-
inu. Síðari tíma áhrifamenn hafa
einnig lagt áherslu á að skráðir yrðu
þeir 600.000 kristnir Líbanir sem
búsettir eru annars staðar. Áhrif
kristinna manna eru einnig aukin
með þeim innflytjendareglum sem í
gildi eru og heimila kristnum
mönnum frjálsan aðgang að land-
inu, á meðan aðrir trúarhópar
þurfa að sækja um sérstakt leyfi.
Árið 1980 voru fleiri Líbanir bú-
settir erlendis en í landinu sjálfu.
Talið er að árið 1970 hafi 25%
þeirra sem bjuggu í Líbanon verið
útlendir ríkisborgarar og að þá hafi
helmingur allra Líbana búið erlend-
is.
En jafnframt því sem fólk hefur
flykkst burt frá landinu, hafa inn-
flytjendur streymt þangað. Áætlað
hefur verið að árið 1980 hafi
armenar í landinu verið 250.000
talsins og 600.000 Palestínumenn.
Þar eru einnig meira en 130.000 Sýr-
lendingar, um 100.000 kúrdar og
um 40.000 útlendir verkamenn.
Flestir þessara innflytjenda hafa
ekki ríkisborgararétt í landinu.
Múslímar í meirihluta
Það er ekki auðvelt að ímynda sér
hvernig áreiðanlegu manntali yrði
komið við í Líbanon nú. Þær til-
raunir sem hafa verið gerðar bera
þess merki að vera liður í baráttu
innbyrðis stríðandi hópa. Hvað sem
því líður er það augljóst að múslím-
um fer hlutfallslega fjölgandi. Það
má m.a. ráða af því að fæðingar-
talan er mjög há meðal þeirra og
ekki er fyrirsjáanlegt annað en að
sú þróun haldist. Sama þróun hefur
orðið í nágrannaríkinu, ísrael. Þar
eru barnsfæðingar mun tíðari með-
al múslíma en kristinna manna.
Það þykir varlega áætlað að hlut-
fall íbúanna sé 60/40 eins og er og
margir telja að ekki líði mörg ár þar
til múslímar hafi náð meirihluta
sem nemur 'A eða jafnvel !4.
Blandað ríki
Seinni tíma saga þessa landsvæð-
is er í stórum dráttum þannig:
Kristnir íbúar í fjallahéruðum
Líbanon höfðu fengið e.k. sjálfs-
stjórn undir yfirráðum Tyrkja eftir
að Evrópumenn, einkum Frakkar,
höfðu skorist í leikinn og hindrað
fjöldamorð drúsa á kristnum
mönnum. Meðal annars sendi
Napóleon III gæslusveitir á vett-
vang til að koma í veg fyrir borgara-
styrjöld.
Þegar ríki Ottómana leið undir
lok eftir heimsstyrjöldina fyrri
tóku Frakkar við yfirráðum á því
svæði Sýrlands, sem Tyrkir höfðu
ráðið yfir. Frakkar afmörkuðu
Líbanon frá Sýrlandi þannig að
r
Aður óþekktar lífverur
finnast við Noreg
Nokkrar tegundir sjávardýra,
sem vísindamenn hafa ekki vitað
um fram að þessu, hafa fundist úti
fyrir Noregsströndum. Um er að
ræða sérstök afbrigði af krabbadýr-
um og sjávarormum, sem lifa á
miklu dýpi. Einnig hefur fundist
mikið magn af rækju, krossfiski og
sjávarbjúga (botnfiskur) nærri
hafsbotni.
Það var rannsóknarskip sem
fann hinar nýju fisktegundir í rann-
sóknarleiðangri sem var farinn í
sumar. Þegar er hafin rannsókna á
sjávardýrunum og lifnaðarháttum
þeirra. Af sýnunum er hægt að fá
upplýsingar um það á hverju dýrin
nærast, hver æxlunartími þeirra er
og hve lengi þau lifa, segir Thorleif
Brattegard líffræðingur við sjávar-
líffræðistofnun háskólans í Björg-
vin.
Við veiðarnar var notuð ný teg-
und af sjávarbotnssköfu sem gerði
leiðangursmönnum kleift að safna
miklu af allskonar djúpsjávardýr-
um. Skafan var á 2.500 metra dýpi,
þar sem hitastigið er mínus 0,9
gráður Celsíus.
kristnir íbúar yrðu innan marka
þess, en á því sama svæði bjuggu
einnig ýmsir hópar Múhameðstrú-
armanna.
Stuðningur við flokk Shia
Ekki voru allir trúflokkar
ánægðir með þessa skipan mála.
Sunni-múslímski trúarhópurinn
hafði uppi mótmæli og krafðist
þess að vera sameinaður Sýrlandi,
sem þetta trúfélag leit á sem sitt föð-
urland.
Shia-múslímar í suðurhluta
landsins voru hins vegar undirok-
aður trúarhópur, sem óskaði frem-
ur að verða hluti af blönduðu ríki
en að lúta ofríki sunni-múslímanna
í Sýrlandi. Þeir tóku höndum sam-
an við kristna menn um stofnun
ríkisins og hlutu að launum trúar-
legt sjálfstæði og stofnuðu form-
lega sitt eigið trúfélag árið 1926.
Shiar í meirihluta
Dr. Moojan Momen, sérfræðing-
ur í málefnum Mið-Austurlanda
segir í nýútkominni bók um shia-
trúflokkinn að kristnir menn hafi
Iengi vitað að upptaka á svæðum
múslíma gæti leitt til þess að þeir
yrðu í meirihluta í landinu. Það
kom fyrst áþreifanlega i ljós 1932.
Þess vegna leggja þeir svo ríka
áherslu á að skrá alla þá sem búsett-
ir eru erlendis. Ef nákvæm talning
færi fram á öllum þegnum landsins,
heima og erlendis, gæti ýmislegt
óvænt komið í ljós og svo virðist
sem enginn vilji taka þá áhættu.
í manntalinu 1932 reiknuðust
íbúar landsins vera 785.000. Nú er
áætlað að nærri fjórar milljónir
manna búi í þessu stríðshrjáða og
sundurtætta landi, þar sem inn-
byrðis stríðandi öfl lama allan varn-
armátt landsins gegn utanaðkom-
andi átökum og hryðjuverkum.
Molar
Strax
Verið að ljúka klippingu kvik-
myndar Stuðmanna sem tekin var
í Kína á dögunum. Búist er við að
myndin verði sýnd í sjónvarps-
stöðvum víða um lönd og raunar
þegar búið að ganga frá sölu til
nokkurra stöðva.
Myndbandið þeirra sem fram-
leitt var vegna leiðtogafundarins
við lagið sem dubbað var sérstak-
Iega upp í tilefni hans hefur þegar
verið sýnt í nokkrum sjónvarps-
stöðvum. — Að sögn Jakobs Frí-
manns, hljómborðsleikara og er-
indreka hljómsveitarinnar, gera
þeir sér ekki miklar vonir um að
slá í gegn með laginu. Hins vegar
hugsi þeir það sem ágætis kynn-
ingu á Kínamyndinni.
Þegar Stuðmenn, eða Strax eins
og þeir kjósa að kalla sig í útlönd-
um, ákváðu að skella sér út í fram-
leiðslu á myndbandi og lagi vegna
fundarins voru þeir að vinna að
mynd fyrir þýska sjónvarpsstöð,
og verður haldið áfram með það
verkefni.
Nú er að bíða og sjá hvort Stuð-
manna-menningin á upp á pall-
borðin hjá útlenskum neytendum
popptónlistar eða hvort Stuð-
mannahúmorinn er bara sérís-
lensk vara . . .
Lín
Þorbjörn Guðjónsson hefur verið
ráðinn framkvæmdastjóri Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna.
Þorbjörn lauk viðskiptafræði-
prófi frá Háskóla íslands árið
1967 og stundaði framhaldsnám í
hagfræði við Minnesótaháskóla á
árunum 1967—1971.
Á árunum 1971 til 1975 var Þor-
björn við framkvæmdastjórn og
sérfræðistörf hér á landi. Frá ár-
inu 1975 hefur Þorbjörn Guð-
jónsson starfað við sérfræðistörf í
Afríku fyrst hjá DANIDA og síð-
an hjá SIDA. Frá árinu 1983 veitti
hann forstöðu verðlags- og tekju-
þróunardeild í einni stofnun
stjórnarráðsins í Zambíu.
Þorbjörn er kvæntur Margréti
Svavarsdóttur, lyfjafræðingi og
eiga þau tvo syni.
Skák og mát
Sparisjóður Hafnarfjarðar og
Skákfélag Hafnarfjarðar efna til
fjölteflis fimmtudaginn 30. októ-
ber 1986 og hefst taflið kl. 20.00
og teflt verður í íþróttahúsinu við
Strandgötu, þar mun Margeir
Pétursson nýbakaður íslands-
meistari tefla á 40 borðum.
Sparisjóður Hafnarfjarðar og
Skákfélag Hafnarfjarðar standa
einnig sameiginlega að helgar-
skákmóti sunnudaginn 2. nóvem-
ber nk. Tefldar verða 11 umferðir,
15 mínútna skákir. 7 vegleg pen-
ingaverðlaun verða, þau hæstu kr.
35.000.00. Bestu skákmenn lands-
ins eru þegar búnir að tilkynna
þátttöku. Teflt verður í íþrótta-
húsinu v/Strandgötu og hefst tafl-
ið kl. 10.00 f.h. Mótið er helgað
minningu Guðmundar Guð-
mundssonar, sparisjóðsstjóra.
Skákdómari verður Sigurberg
Elentínusson. Mótið verður sett
af Matthíasi Á. Mathiesen for-
manni stjórnar Sparisjóðs Hafn-
arfjarðar.