Alþýðublaðið - 23.10.1986, Blaðsíða 1
alþýðu-
bladiö 1
Fimmtudagur 23. október 1986 204 tbl. 67. árg.
Alþýðu flokkurinn á Norðurlandi-vestra:
Prófkjör á Sauðárkróki
8. og 9. nóvember
Utankjörstaðaatkvæðagreiðsla
er hafin í prófkjöri Alþýðuflokks-
ins á Norðurlandi-vestra. Atkvæða-
greiðslan hófst mánudaginn 20.
október og stendur til 7. nóvember.
Prófkjörsdagar verða laugardaginn
8. og sunnudaginn 9. nóvember á
Sauðárkróki.
Tveir frambjóðendur eru í kjöri,
Birgir Dýrfjörð og Jón Sæmundur
Sigurjónsson. Væntanlega verður
talið í prófkjörinu á Norðurlandi-
vestra strax á sunnudagskvöld 9.
nóvember.
Formaður yfirkjörstjórnar er
Björn Sigurbjörnsson á Sauðár-
króki.
A Iþýðuflokkurinn — prófkjör:
Eyjólfur Sigurðsson
fram á Suðurlandi?
Eyjólfur Sigurðsson
„►að er rétt að ágætir meim hafa
mjög leitað eftir því að ég gefi kost
á mér í prófkjöri Alþýðuflokksins i
SuAatriandskjördæmi. Ég hef ekW
enn gefið ákveðið svar, en það ætti
að liggja fyrir alveg á næstu dög-
um“, sagði Eyjólfur Sigurðsson,
bókaútgefandi í samtali við Al-
þýðublaðið í gær.
Fari svo að Eyjólfur gefi kost á'
sér má búast við fjörugu prófkjöri
Alþýðuflokksins í Suðurlandskjör-
dæmi. Sem kunnugt er hefur
Magnús H. Magnússon, fyrrum
bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
ákveðið að taka þátt í prófkjörinu
og má því segja að Alþýðuflokkur-
inn verði síst af öllu málsvaralaus í
Suðurlandskjördæmi, ef svo fer
fram sem horfir.
Alþýöuflokkurinn í Reykjavík:
Jón Sigurðsson
í framboð?
„Er alvarlega að hugsa um að taka þessum
áskorunum,“ sagði Jón Sigurðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar í samtali við Alþýðublaðið.
„Margir Alþýðuflokksmenn —
menn sem ég met mikils og tek
mark á, hafa hvatt mig til að sækj-
Jón Sigurðsson
ast eftir sæti á framboðslista
flokksins í Reykjavík fyrir næstu
kosningar. — Þetta er reyndar ekki
alveg ný bóla, það hefur verið rætt
við mig áður, en nú finnst mér þetta
vera ennþá aimennara. Eins og nú
stendur í þjóðmálum er sérstaklega
mikiivægt að sjónarmið Alþýðu-
flokksins fái sem mest fylgi og að
flokkurinn komist til áhrifa. Ég hef
því áhuga á, að taka þátt í því starfi
á næstunni. Þetta tvennt veldur þvi,
að ég er í mikilli alvöru að hugsa um
hvort ég eigi að taka þessum áskor-
unum og sækjast eftir sæti á listan-
um“, sagði Jón Sigurðsson forstjóri
Þjóðhagsstofnunar i samtali við
Alþýðublaðið í gær aðspurður um
hvort hann stefndi að sæti á lista
Alþýðuflokksins í Reykjavík fyrir
næstu Alþingiskosningar.
„Þetta er ekki alveg ákveðið af
minni hálfu og eins og komið hefur
fram annars staðar þá langar mig
að vita meira um hvernig áformað
er að standa að því að velja menn á
listann“, sagði Jón. „En samkvæmt
reglum flokksins er ekkert slíkt
ákveðið fyrirfram, heldur ákveður
fulltrúaráðið hvernig það hagar
þessu vali“.
Blaðamaður spurði Jón, en á
honum mætti skilja, að hann tæki
ekki þátt í prófkjöri. „Ef ég ákveð
Framboðsfrestur í prófkjöri Al-
þýðuflokksins á Vestfjörðum rann
út á miðnætti sl. þriðjudag. Próf-
kjörið stendur um tvö efstu sæti
listans í komandi AljMagiskosning-
um. Frambjóöendur eru tveir þeir,
Karvel Pálmason alþingismaður og
Sighvatur Björgvinsson fram-
kvæmdastjóri Norræuafélagsins og
fyrrveranói þingmaður.
Stefnt er að því að prófkjörið fari
að gefa kost á mér til framboðs mun
ég, að sjálfsögðu, lúta þeirri reglum
sem Alþýðuflokkurinn setur um val
á framboðslista“, sagði Jón. „En ég
hef þá einföldu skoðun, að áður en
maður ákveður að taka þátt í leik
þurfi maður helst að þekkja leik-
reglurnar“.
fram, annaðhvort 22. næsta mán-
aðar eða 29. Nokkur breyting hefur
orðið á prófkjörsreglum frá því sem
áður var, síðast var öllum heimiluð
þátttaka en nú er stuðningsmönn-
um einum heimiluð þátttaka og gert
ráð fyrir því að þeir undirriti yfir-
lýsingu þess efnis að þeir séu ekki
stuðningsmenn í öðrum flokkum,
opinberir stuðningsmenn annarra
flokka né taki þátt í prófkjöri hjá
öðrum flokkum.
Prófkjör á Vestfjörðum:
Karvel og Sig-
hvatur í framboð
Öngþveiti í málefnum aldraöra í Reykjavík:
„Úrbóta er þörf
U
— segir Þórir Guðbergsson, deildarstjóri hjá
Félagsmálastofnun Reykjavíkur
„Það er mjög erfitt að fá fólk til
starfa við heimilishjalpina og
ástæðan er meðal annars alltof
lág laun, en einnig hitt að fram-
boð af annarri vinnu, sem er betur
launuð, virðist vera nokkurt. Það
er oft erfitt starf og vandasamt að
vera að vinna inn á heimilum hjá
öldruðu fólki og er alls ekki metið
sem skyldi.“ sagði Þórir Guð-
bergsson, deildarstjóri hjá Félags-
málastofnun Reykjavíkurborgar í
samtali við blaðið.
„Það virðist ekkert tillit tekið
til þess, að þessi störf eru þau sem
aldraðir geta ekki annast sjálfir
og eru þess vegna í erfiðari kant-
inum, þvottar, skúringar o. þ. h.
Það hefur vissulega verið reynt að
fá þetta leiðrétt og sums staðar
hefur það náð fram að ganga, eins
og til dæmis í Kópavogi. Þar
breyttu þeir samningunum við sitt
fólk og settu á lágmarksdag-
vinnulaun. En að hækka launin
og gera eitthvað aukalega fyrir
starfsfólkið er mjög aðkallandi.
Það þarf að hafa kynningarfundi
og fræðsluerindi á . vinnutíma
þannig að fólkið menntist betur í
þessum störfum.
„Ég held að það komi að því
fyrr eða síðar að önnur bæjarfé-
Iög taki sömu afstöðu og Kópa-
vogsbúar hafa gert, við erum
orðnir á eftir í þessu. í sambandi
við það hvort við höfum fengið
hljómgrunn, þá hefur það verið
margsinnis rætt í félagsmálaráði,
en þar virðist hræðslan vera mikil
gagnvart fordæminu. Menn segja
sem svo, að ef þessi armur Sókn-
arkvenna fær hærri laun þá verða
hinir að koma á eftir og þá er
þetta svo gífurlegur fjöldi sem um
er að ræða að þetta yrði miklu
víðtækara að mörgu leyti, heldur
en í minni bæjarfélögunum. En
það er ckki nokkur efi á því, að
það er þörf á endurskipulagningu
og endurmati á öllu þessu starfi.
Og ég held að meirihluti félags-
málaráðs sé mjög hlynntur úrbót-
um“ sagði Þórir Guðbergsson,
deildarstjóri hjá Félagsmála-
stofnun Reykjavíkurborgar.
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, formaður Sóknar:
„Eins og að tala
við grjót“
þegar
launalagfœringu
ber á góma
„Þetta er allt of lágt kaup, það
er satt. Og það sem við rekum
okkur alltaf á er þessi hugsunar-
háttur, að ekki sé hægt að lyfta
laununum hjá þessum konum þar
sem aðrir kæmu þá á eftir. Við
megum heldur ekki gleyma því að
hér er um erfið störf að ræða og
konurnar sem vinna þau eiga vel
skilið að fá verulega launahækk-
un. Ég er búin að margþrasa i
þessu, en mér finnst stundum að
ég sé að tala við grágrýtishnull-
unga frekar en fólk, þegar launa-
lagfæringu ber á góma“, sagði
Aðalheiður Bjarnfreðsdóttir, for-
maður Starfsmannafélagsins
Sóknar í samtali við Alþýöublaö-
ið.
„Það er talað um tímakaup í
sambandi við þessa vinnu, en það
er okkur hjá Sókn afar illa við,
þar sem þær konur sem eru á
tímakaupi hafa alls ekki þau rétt-
indi sem konur á mánaðarlaunum
hafa. Er þó ekki gustuk að klípa
af því sem lítið eða ekkert er. Kon-
ur sem eru á tímakaupi fá heldur
ekki desemberuppbótina svo-
nefndu, því að þó hún sé ekki
mikil þá borgar hún ef til vill jóla-
matinn“.
Ég mun nú á næstunni reyna
aftur og enn að taka á þessu máli.
Ég trúi ekki öðru en að menn séu
tilbúnir að laga þetta eitthvað.
Ástandið eins og það er í dag er
ekki hægt að kalla annað en öm-
urð, sagði Aðalheiður Bjarnfreðs-
dóttir, formaður Starfsmannafé-
lagsins Sóknar að síðustu.