Alþýðublaðið - 24.10.1986, Side 2
2
Föstudagur 24. október 1986
-RITSTJQRNARGREIN-
Þeir menn bjóða áfram
steina fyrir brauð
I umræðum á Alþingi næstliðið fimmtudags-
kvöld um stefnuræðu forsætisráðherra, Stein-
gríms Hermannssonar, sagði formaður Al-
þýðuflokksins, Jón Baldvin Hannibalsson
meðai annars:
„Svo leyfir hann sér að saka stjórnarand-
stöðuna um yfirboð og skrum. Þeir taki til sín
sem eiga. Það á ekki við um Alþýðuflokkinn,
eins og staðreyndirnar sanna:
Við studdum adráttarlaust nýjar leiðir í kjara-
samningunum af þvl að við vissum að með
þeim hætti sköpuðu launþegar sér inneign,
sem ávfsa mætti á raunhæfar kjarabætur, I
batnandi efnahagsástandi og minni verð-
bólgu.
Við lögðum til að rlkissjóður velti ekki sínum
kostnaðarhlut yfir á launþega og skattgreið-
endur — og næstu ríkisstjórn. í staðinn gerði
hann ráðstafanir til að draga úr ríkisútgjöldum
og uppræta skattsvik.
Ef gengið væri hreint til verks við upprætingu
skattsvika væri enginn hallarekstur á ríkis-
sjóði nú.
Við seinustu fjárlagaafgreiðslu lögðum við
fram „ný fjárlög“. Þau voru um
— lækkun ríkisútgjalda
— kerfisbreytingu í ríkisrekstri
— tekjuöflun gegnum húsnæðis-, lána- og
tryggingakerfið
— stærri hlut ríkisútgjalda til verklegra
framkvæmda.
Þessar tillögur okkar voru felldar af þeim
sama stjórnarmeirihluta, sem hér birtist meö
allt niður um sig í ríkisfjármálum.
Þið, sem hafið verið að velta því fyrir ykkur að
kjósa Sjálfstæðisflokkinn, I trausti þess að
hann sé boðberi nútfmalegra hugmynda,
staldrið við: Það erum viö jafnaðarmenn, sem
leggjum fram tillögur gegn embættis- og rfkis-
bákni, fyrir aukinni samkeppni og valddreif-
ingu f fjármálalffinu. Ekki þeir. Og við erum
ekki bundnir á klafa neinna sérhagsmuna, sem
knýja okkur til að ganga gegn eigin tillögum,
eins og t.d. 1. þingmaðurSuðurlands, hæstvirt-
ur fjármálaráðherra. Tryggingin fyrir þvf, að við
stöndum við orð okkarer einföld: Það eru engir
framsóknarmenn í okkar flokki — og verða
heldur ekki eftir kosningar!"
Svo mörg voru þau orð, — og nú vildu allir þá
Lilju kveðið hafa.
Og fólkið í landinu fylgdist með stefnuræðu
forsætisráðherra:
Húsbyggjendur og íbúðakaupendur hlust-
uðu. Gamalt fólk og fatlað hlustaði. Einstæðar
mæður og einstæðir feður hlustuðu. Sjómenn
og bændur hlustuðu. Það hlustuðu yfirleitt all-
irsem eiga um sárt að bindaeftirsverðalög for-
sætisráðherra á undanförnum árum. Fólkið
ætlaðist til að forsætisráðherra hefði hug á að
endurgreiða það sem að láni var tekið við
stjórnarskiptin, til að halda verðbólgu í skefj-
um, — eins og það var orðað þá. Menn hlust-
uðu á ræðu forsætisráðherra til enda í þeirri
von að eitthvað gerðist, — en því miður, það
gerðist ekki neitt. Aldrei voru sögð þau orð
sem sönn voru: Að i einu mesta góðæri síð-
ustu ára ætti fólkið í landinu að fá það í sinn
hlut sem það á skýlausan rétt á og beðið hefur
verið eftir lengi. Þau orð voru aldrei sögð.
Kjarkinn brast og forsætisráðherra fiúinn úr
sínu gamla kjördæmi út á Reykjanes. Stefnu-
ræðan var einskis virði, þvl miður. Við sitjum
áfram uppi með ráðalausa menn.
Eða eins og Jón Baldvin Hannibalsson, for-
maður Alþýðuflokksins oröaði það svo snilld-
arlega, „Þarerfátt að finnaannað en steinafyr-
ir brauð ...“ Ö.B.
Líbýa greiðir Norð-
mönnum skaðabætur
Sendifulltrúi Líbana í Kaup-
mannahöfn afhenti utanrikisráð-
herra Noregs, Knut Frydenland,
ávísun að upphæð 500.000 Banda-
ríkjadollara í síðustu viku, sem
bætur vegna áhafnar norska skips-
ins „Germa Lionel“. Skipinu var
haldið í höfn í Líbýu í 67 daga árið
1984 vegna falskrar ákæru. Ahöfn-
in sætti illri meðferð, m.a. kerfis-
bundnum andlegum misþyrming-
um. Einn af áhöfninni var pyntaður
til bana.
Norska sjómannasambandið
hefur gefið þá yfirlýsingu að bætur
þessar séu alls ófullnægjandi og
ekki í neinu samræmi við þann
skaða sem skipverjar urðu fyrir, né
heldur þá ábyrgð sem líbönsk yfir-
völd bera. Að mati sjómannasam-
bandsins hafa þessar bætur visst
táknrænt gildi, en heldur ekki meir.
Knut Frydenlund hefur lýst
ánægju með þetta framlag svo langt
sem það nær, en segir jafnframt að
máli þessu sé engan veginn lokið af
hálfu ráðuneytisins. Hann segir að
því verði ekki lokið fyrr en fullnað-
arrannsókn liggi fyrir á því hvernig
dauða skipverjans á Germa Lionel
bar að höndum.
Fréttamaimafimdur í boði
Umsjónarfélags einhverfra barna
Dr. Demetrious Haracopus sem
staddur er hér á landi í boði Um-
sjónarfélags einhverfra barna held-
ur fréttamannafund í sal Öryrkja-
bandalagsins Hátúni 10 (tengibygg-
ing, til hægri frá aðaldyrum) föstu-
daginn 24. október kl. 13.00.
Dr. Haracopos er meðal þekktustu
sérfræðinga um barnaeinhverfu
sem nú eru uppi. Hann hefur haldið
fyrirlestra víða um Evrópu og Ame-
ríku og kynnt sér málefni ein-
hverfra og veitir nú forstöðu þeirri
stofnun (Sofieskolen í Danmörku)
sem leitað er til sem fyrirmyndar
um uppbyggingu stofnana fyrir ein-
hverfa víða að.
Á föstudaginn mun dr. Haracopos
segja frá Sofieskolen og þjónustu
við einhverfa í Danmörku. Hann
mun einnig fjalla um ástandið á ís-
landi í þessum málum eins og hon-
um kemur það fyrir sjónir eftir viku
kynningu og segja skoðun sína um
úrbætur.
Skólar 1
í Keflavík, á ísafirði, Hólmavík,
Sauðárkróki og á Dalvík. Menntun
sjómanna og vélstjóra hér á landi
þykir nú mjög sambærileg slíkri
menntun á hinum Norðurlöndun-
um. Guðjón sagði hins vegar að
alltaf mætti gera betur og teldi
hann mikilvægt að settur yrði á
laggirnar Stýrimannaskóli, fyrir 1.
stig, í hverjum landsfjórðungi.
„Ég tel þó að Stýrimannaskólinn
í dag sé mjög öflugur og sem deild
í annarri stofnun gæti hann ekki
barist fyrir því að slík starfsemi sé
rekin vítt og breitt um landið, svo
sem nú er gert. Það væri síður en
svo spor fram á við í menntunar-
málum sjómanna“, sagði Guðjón
Ármann Eyjólfsson skólastjóri
Stýrimannaskólans.
Ol .
LJOSIIM
ökuljósin
kosta lítið og því
er um að gera aö
spara þau ekki í ryki og
dimmviðri eða þegar
skyggja tekur. Best af '
öllu er að aka ávallt
með ökuljósum.
||U^1FERÐAR
KRATI” SKRIFAR:
Mogginn hirtir
Dagblaðið
í Staksteinum Morgunblaðsins á
fimmtudaginn var, segir meðal
annars um hlutleysi DV vegna
prófkjörshugleiðinga Moggans,
þegar úrslit Iágu fyrir hjá sjálf-
stæðismönnum í Reykjavík:
„Hinu ættu hinir frjálsu og
óháðu DV-menn ekki að vera á
móti, að úrslit prófkjörsins séu
vegin og metin af raunsæi, eins og
gert var í forystugrein Morgun-
blaðsins í fyrradag. Þar er allt
byggt á staðreyndum og töluleg-
um upplýsingum“.
En hverjar eru þá þessar „stað-
reyndir og tölulegar upplýsing-
ar?“
Lítum í leiðarann sem vitnað er í.
Um sigur Alberts Guðmundsson-
ar segir Moggi:
„í ljósi þeirrar erfiðu pólitísku
stöðu, sem Albert Guðmundsson
hefur verið í undanfarna mánuði,
fer ekki á milli mála að hann vinn-
ur umtalsverðan varnarsigur með
því að ná kosningu í efsta sæti list-
ans. Hitt er jafnljóst, að það at-
kvæðamagn, sem hann fær í
heild, er pólitískt áfall fyrir hann.
Það mun óhjákvæmilega valda
honum erfiðleikum við að leiða
Sjálfstæðisflokkinn í kosninga-
baráttunni í Reykjavík næsta vor.
Erfið vígstaða Sjálfstæðisflokks-
ins í höfuðborginni af þessum
sökum blasir við.
Varaformaður flokksins má
sitja uppi með þetta:
Friðrik Sophusson, varafor-
maður Sjálfstæðisflokksins, nær
hvorki þeim árangri í þessu próf-
kjöri að skipa efsta sæti listans né
að verða hæstur að atkvæða-
magni. Það sýnir veikleika hjá
öðrum helzta forystumanni Sjálf-
stæðisflokksins, sem er umhugs-
unarefni fyrir hann og forystuna.
Loksins í 7. og 8. sæti birtast
„veröugir fulltrúar“:
Þau Geir H. Haarde og Sólveig
Pétursdóttir, sem náðu 7. og 8.
sæti í prófkjörinu, eru verðugir
fulltrúar nýrrar kynslóðar í Sjálf-
stæðisflokknum og eiga veruleg-
an þátt í að veita væntanlegum
framboðslista Sjálfstæðisflokks-
ins þann ferska svip, sem mörgum
hefur þótt skorta á seinni árin.
Þá „unnu“ fulltrúar flokkseig-
enda sannfærandi:
Tveir gamalreyndir forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins unnu
sannfærandi sigra i þessu próf-
kjöri. Eyjólfur Konráð Jónsson,
sem verið hefur þingmaður Sjálf-
stæðisflokksins fyrir Norður-
landskjördæmi vestra frá 1974,
tók ákvörðun um að leita eftir
framboði í Reykjavík. Árangur
hans sýnir að Eyjólfur Konráð
hefur áunnið sér mikið traust með
störfum sínum á Alþingi og á vett-
vangi stjórnmálanna. Guðmund-
ur H. Garðarsson verður að kosn-
ingum loknum óumdeildur tals-
maður launþega í þingflokki
sjálfstæðismanna og arftaki Pét-
urs Sigurðssonar.
. . . en frjálshyggjan reyndist
ekki vera í tisku:
Vilhjálmur Egilsson, hagfræð-
ingur, hefur verið skeleggur mál-
svari ungs fólks í Sjálfstæðis-
flokknum síðustu misseri. Þess
vegna kemur það á óvart að hann
nær ekki betri árangri í þessu
prófkjöri en raun ber vitni. Hann
hefur jafnframt verið einn helzti
talsmaður harðrar frjálshyggju-
stefnu á vettvangi Sjálfstæðis-
flokksins. En skv. skoðanakönn-
unum í landinu á slík stefna undir
högg að sækja og mikill meiri-
hluti er á bak við þá velferðar-
stefnu, sem fylgt hefur verið, ekki
sízt í sjálfstæðisflokknum. Hitt er
svo annað mál, að sú stefna mætti
í sumum tilfellum hafa meira að-
hald, eins og Vilhjálmur Egilsson
og félagar hans hafa lagt áherzlu
á.
Og raunir flokksins eru nokkr-
ar:
Þrátt fyrir góða málefnastöðu í
landsmálum og verulegan árang-
ur af störfum ríkisstjórnarinnar
er hætta á að Sjálfstæðisflokkur-
inn nái ekki þeirri sóknarstöðu í
kosningabaráttunni í Reykjavík
sem vænta mætti vegna pólitískra
sviptibylja, sem búast má við á
tindinum, eftir það, sem á undan
er gengið.
Albert Guðmundsson hefur
sýnt að hann hefur mikið pólitískt
þanþol. Hitt er annað mál, hvort
það dugar Sjálfstæðisflokknum í
næstu kostningum.
Sem sagt: Staðreyndir og tölu-
legar upplýsingar!
Iðnaðarbankinn
stofnar
verðbréfamarkað
Iðnaöarbanki íslands hf. mun í
næsta mánuði stofna nýtt fyrir-
tæki, Verðbréfamarkaö Iðnaðar-
banka íslands hf.
Eins og nafnið bendir til mun
fyrirtækið starfrækja verðbréfa-
markað og með honum leitast við
að efla viðskipti með skuldabréf og
hlutabréf, stuðla að aukinni fjöl-
breytni á sviði sparnaðar og taka
þannig aukinn þátt í þeirri öru þró-
un sem hefur verið í viðskiptum
með verðbréf á síðustu misserum.
Fyrirtækið mun bjóða upp á fjár-
málaráðgjöf og verðbéfavörslu og
einnig veita alla alhliða þjónustu
sem tengist viðskiptum með verð-
bréf.
Iðnaðarbankinn hóf verðbréfa-
miðlun fyrir rúmu ári og hefur sú
starfsemi vaxið ört. Veðdeild bank-
ans hefur gefið út 4 skuldabréfa-
flokka, samtals að verðmæti 375
milljónir. Einnig hefur bankinn séð
um útgáfu og sölu á skuldabréfum
fyrir Glitni hf. og verið með ýmis
önnur skuldabréf í umboðssölu. í
september sl. hóf bankinn sölu á
óverðtryggðum skammtímaskulda-
bréfum, Bankabréfum, sem hafa
verið til sölu í öllum útibúum bank-
ans. Bankabréfin hafa fengið góðar
viðtökur. Iðnaðarbankinn er aðili
að Verðbréfaþingi íslands.
Fyrirtækið mun flytja í nýtt hús-
næði að Ármúla 7 og mun hefja
starfsemi þegar húsnæðið verðurtil-
búið um miðjan næsta mánuð.
Framkvæmdastjóri verður dr. Sig-
urður B. Stefánsson hagfræðingur.