Alþýðublaðið - 15.11.1986, Síða 2
2
Laugardagur 15. nóvember 1986
alþýðu-
41þýðublaðiö, Ármúla 38, 108 Reykjavík
Sími: (91) 681866, 681976
Útgefandi: Blað hf.
Ritstjórí: Árni Gunnarsson (ábm.)
Blaðamenn: Jón Daníelsson, Ása Björnsdóttir, Kristján
Þorvaldsson.
Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson
Skrífstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir
Setning og umbrot: Alprent hf., Ármúla 38
Prentun: Blaðaprent hf., Síðumúla 12
Áskriftarsíminn
er 681866
'RITSTJÓRNARGREIN'
JJ
A ég að gæta bróður míns?“
„Við jarðarbúar erum allir á sama báti, um
borð í sama geimfarinu. Spurningin, hvort við
eigum að gæta bróður okkar á ekki við, hún er
nánast fjarstæða. Við höfum skyldu til þess að
gæta bróður okkar um leið og við erum sann-
anlega með því að gæta eigin hagsmuna. Við
eigum að sinnajafnt neyðarhjálp sem þróunar-
samvinnu og við verðum að leggja til þessara
verkefna mun meira fé af auðlegð okkar í þágu
þeirraþjóðaáplánetunni, sem viðörbirgð búa.“
Þetta eru lokaorð erindis, sem Björn Frið-
finnsson, stjórnarmaður í Þróunarsamvinnu-
stofnun íslands, flutti á fundi, sem Brú, félag
áhugamanna um þróunarlönd, þróunarsam-
vinnu og neyðarhjálp, hélt fyrr í þessari viku.
A þessum fundi ræddi Steingrímur Her-
mannsson, forsætisráðherra hugmyndir sínar
um ýmsar leiðir hvernig auka mætti aðstoð ís-
lendinga við þróunarlöndin. Hann kvaðst gera
sér Ijóst, að framlag íslendinga væri fremur
bágborið og úr því þyrfti að bæta. Undir þessi
orð tóku flestir fundarmanna.
fara langt aftur í sögu íslensku þjóðarinnar til
að finna hliðstæður við það, sem nú er að ger-
ast í mörgum vanþróuðum ríkjum. Hann benti
á, að átjánda öldin hefði verið íslendingum
mjög þung í skauti. Þávoru hérmiklirkuldarog
fiskleysi, þúsundirmannalétust úrbólusótt og
öðrum farsóttum og síðast en ekki síst minnt-
ust menn móðuharðindanna. Þjóðinni fækkaði
og voru sumir málsmetandi menn farnir að ör-
vænta um framtíð hennar. En íslendingum
barst hjálp, sem var rausnarleg miðað við að-
stæður þess tíma. Þar var bæði um neyðar-
hjálp að ræða og síðar þróunaraðstoð.
I framhaldi af þessum ábendingum spurði
Björn: „En kemur okkur þetta eitthvað við?
Ekki eigum við við offjölgun fólks að etjaog við
tökum ekki á okkur ábyrgð á ástandi mála í ný-
frjálsum ríkjum Afríku eða á styrjaldarhrjáðum
landssvæðum Asíu. Getum við ekki einangrað
okkurfrávandamálum annarra íbúa plánetunn-
arog búið einir að okkar? Ég hygg að margir ís-
lendingar telji, að við eigum ekki að skiptaokk-
uraf þessum vandamálum. Þarer um vanþekk-
ingu og skilningsskort að ræða.“
Björn Friðfinnsson benti á, að ekki þyrfti að Björn Friðfinnsson sagði jafnframt: „Ég ætla
hér ekki að flytja langt mál um samhengi okkar
velferðar við lífskjör annarra jarðarbúa, en
staðreyndin er sú, að við erum öll farþegar á
sama geimfari, geimfarinu Jörð, og enginn far-
þegi getur leitt hjá sér örbirgð annarra. Þar
gildir einu hvort framangreindum spurningum
er svarað út frá hagfræðilegum, stjórnmálaleg-
um, trúfræðilegum eða siðfræðilegum grund-
velli.“
Þarna kemur Björn Friðfinnsson að kjarna
málsins. Rétt eins og íslendingum var rétt
hjálparhönd á erfiðleikatímum, og þarf raunar
ekki að fara lengra aftur en til Vestmannaeyja-
gossins, þá berum við ábyrgð hvorir á öðrum
og íslendingum er skylt að veita þá aðstoð,
sem þeir geta látið af hendi rakna af auði sín-
um.
Sú umræða, sem átti sér stað á fundi Brúar,
þarf að halda áfram. Hér á landi hefur sáralítil
umræðafarið fram um þróunaraðstoð og neyð-
arhjálp. Þaðertímabært að þessi umræðahefj-
ist nú fyrir alvöru og að íslendingar geri sér
grein fyrir hlutverki sínu í þessu mikilvæga
samhjálparmáli mannkyns.
Laus staða
Staöa bókbindara á bókbandsstofu
Landsbókasafns íslands er laus til um-
sóknar.
Umsóknir ásamt upplýsingum um
menntun og starfsferil sendist Mennta-
málaráðuneytinu fyrir 12. desember
næstkomandi.
Menntamálaráðuneytið
12. nóvember 1986.
Auglýsing
frá Launasjóði rithöfunda
Hér með eru auglýst til umsóknar starfslaun fyrir árið
1987 úr Launasjóði rithöfunda samkvæmt lögum nr.
29/1975 og reglugerð gefinni út af menntamálaráðu-
neytinu 19. október 1979.
Rétt til greiðslu úr sjóðnum hafa íslenskir rithöfundar
og höfundar fræðirita. Heimilt er og að greiða laun úr
sjóðnum fyrir þýðingar á íslensku. Starfslaun eru veitt
f samræmi við byrjunarlaun menntaskólakennara
skemmst til tveggja og lengst til níu mánaða ( senn.
Höfundur sem sækir um og hlýtur starfslaun í þrjá
mánuði eða lengur skuldbindur sig til að gegna ekki
fastlaunuðu starfi meðan hann nýtur starfslauna. Slík
kvöð fylgir ekki tveggja mánaða starfslaunum, enda
skulu jjau einvörðungu veitt vegna verka sem birst hafa
næsta almanaksár á undan.
Skrá um birt ritverk höfundar og verk sem hann vinnur
nú að skal fylgja umsókninni.
Umsóknum ber að skila á sérstökum eyðublöðum sem
fást í menntamálaráðuneytinu. Mikilvægt erað spurn-
ingum á eyðublaðinu sé svarað og verður farið með
svörin sem trúnaðarmál.
Umsóknir skulu sendar fyrir 31. desember 1986 til
menntamálaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavík.
Reykjavik, 12. nóvember 1986.
Stjórn Launasjóös rithöfunda.
Starfsmannafélag ríkisstofnana:
Stjórnvöld ræði við stéttar-
félög um kaup og kjör
Á fjölmennum fundi stjórnar og
trúnaðarmannaráðs Starfsmanna-
félags ríkisstofnana, mánudaginn
10. nóv. s.l. var meðfylgjandi álykt-
un samþykkt með öllum greiddum
atkvæðum.
Fundur trúnaðarmannaráðs
Starfsmannafélags ríkisstofnana,
haldinn mánudaginn 10. nóvember
1986, lýsir yfir stuðningi við baráttu
fóstra og sjúkraliða fyrir bættum
kjörum.
Fundurinn hvetur stjórnvöld til
að taka nú þegar upp viðræðu við
stéttarfélögin um kaup og kjör
þessara hópa og leiti þeirra Ieiða
annarra, sem gerði afkomu þeirra
bærilegri.
Mikil óánægja ríkir hjá sjúkra-
liðum og fóstrum með launakjör
sín. Laun þeirra hafa á síðustu ár-
um verulega dregist aftur úr laun-
um fyrir sömu störf sem greidd eru
úr sameiginlegum sjóðum. Krafa
þeirra er sömu laun fyrir sömu
störf. Trúnaðarmenn SFR taka
heilshugar undir þessa kröfu félaga
sinna.
Trúnaðarmenn SFR taka undir
kröfugerð samninganefndar BSRB
um að nú þegar verði hafinn undir-
búningur að gerð nýs kjarasamn-
ings er taki gildi frá næstu áramót-
um.
Samið verði um:
1. Verðtryggingu launa.
2. Hlutdeild launþega í vaxandi
þjóðartekjum.
Prófkjörið 1
ismaður, gefur kost á sér í 2. sæti
listans, og Jón Baldvin Hannibals-
son, formaður Alþýðuflokksins i 3.
sæti.
Ennfremur staðfesti Björgvin
Guðmundsson, viðskiptafræðing-
ur, að hann hefði ákveðið, að gefa
kost á sér í 4. sæti listans, og hefði
hann gert það vegna fjölda áskor-
ana Alþýðuflokksmanna.
3. Skattkerfið verði endurskoðað
og almennir launaskattar felldir
niður.
4. Lágtekjufólki verði tryggð lág-
markslaun, annaðhvort með sér-
stökum reglum í skatta- eða
tryggingarlögum eða sérstökum
launabótum.
5. Lög um lífeyrissjóð ríkisstarfs-
manna verði endurskoðuð með
það í huga:
— að tryggja eftirlaunaþegum
eftirlaun í samræmi við fyrri
rauntekjur þeirra
— að allar greiðslur til sjóðsins
verði verðtryggðar og felld
niður ákvæði um 3ja ára bið-
tíma
— að teknar verði upp breyttar
reglur um framreikning ör-
orku- og makabóta til sam-
ræmis við almenna reglu líf-
eyrissjóða.
— að reglur um breytingar á
launum ellilífeyrisþega verði
einfölduð og tryggt að þeir
njóti almennrar hækkunar
er verði á launum sambæri-
legra starfa og þeir gegndu
hjá ríkinu.
Fundurinn leggur áherslu á að
vinna við endurskoðun á samnings-
rétti opinberra starfsmanna verði
hraðað eftir föngum. Við breytingu
laganna verði tryggður sem víð-
tækastur réttur til vinnustöðvunar
ef þörf krefur og launþegar innan
BSRB ráði sjálfir verkfalli sínu og
undanþágum frá því.
Fundurinn fagnar samstarfi op-
inberra starfsmanna innan BSRB,
BHMR og BK og væntir þess að
hlúð verði að þeim starfsvettvangi
og samstarfið aukið, eftir því sem
verkefnin falla til.
Kvenréttindafélag
íslands:
„Eru prófkjör
leið kvenna
á þing?“
Laugardaginn 15. nóvember n.k.
efnir Kvenréttindafélag íslands til
félagsfundar um spurninguna „Eru
prófkjör leið kvenna inn á þing?“
Framsöguerindi flytja konur á vett-
vangi stjórnmála.
í þetta sinn verður fundurinn
með nýju sniði á nýjum stað. Verður
þetta svokallaður morgun-hádegis-
fundur, þ.e. fundur yfir léttum veit-
ingum af morgunverðar- og hádeg-
isborði. Fundurinn verður haldinn í
hinum vistlega, nýinnréttaða sal í
kjallara Hallveigarstaða, (gengið
inn frá Túngötu). Hann hefst kl. 11
f.h. (ath. breyttan tíma) og stendur
fram til kl. 2. Verði veitinga mun
stillt í hóf eins og kostur er.
Fundurinn er öllum opinn.
Auglýsing
frá landbúnaðarráðuneytinu
Athygli skal vakin á því, að samkvæmt 1. mgr. 42. gr.
laga nr. 46/1985 er innflutningur á kartöflum, nýju
grænmeti, sveppum og blómum óheimill, nema að
fengnu leyfi landbúnaðarráðherra.
Við tollafgreiðslu á framangreindum vörum skulu inn-
flutningsaðilar framvísa tollskýrslu, áritaðri af Iand-
búnaðarráðuneytinu.
12. nóvember 1986.