Alþýðublaðið - 15.11.1986, Blaðsíða 15
Laugardagur 15. nóvember 1986
15
Staðarvalsnefnd um álver:
LÆKKUN - RETT FYRIR JOL!
Vegna aukinnar sölu á
BRAUN klukkum höfum við
fengið verulega lækkun á
jólasendingunni. Dæmi um
lækkanir: Klukka sem kost-
aði 1400 kostar nú 118(),
klukka sem kostaði 1680
kostar nú 1280 og klukka
sem kostaði 1980 kostar nú
1580.
BRAUN klukka er tilvalin
jólagjöf.
Verslunin
PFAFF
Borgartúni 20, s. 26788
HLJOMBÆRI
Jón Baldvin
Framhald af bls. 7
Stefnan á að vera sú að boða ráð-
deild í ríkisrekstri. Stefnan á að vera
sú að koma með tillögur sem svara
spurningum eins og þessum: Hvað
á ríkið að vera að reka og hvað
ekki?
Nú bregður svo við að formaður
flokksins og hinn ungi fjármálaráð-
herra leggur hér fram fjárlagafrum-
varp, að vísu á kosningaári, hefði
,átt að gera það í fyrra, sem er af því
tagi að ginnungagapið milli hinnar
yfirlýstu stefnu og veruleikans er
orðið óþægilega breitt. Vonbrigðin
eru alveg tvímælalaust sár, en þau
eru auðvitað fyrst og fremst sár í
röðum flokksmanna, í röðum
ungra sjálfstæðismanna. í röðum
þeirra sjálfstæðismanna er það dá-
lítið alvörumál að sjálfstæðisstefn-
an sé ekki höfð að háði og spotti, að
menn snúi ekki baki við henni um
leið og þeir koma inn í þingsalinn.
Og síst af öllu er það við hæfi, þó að
það sé skiljanlegt, mannlegt en ekki
stórmannlegt, að hæstvirtur fjár-
málaráðherra bregðist við alltaf
eins og stunginn grís þegar honum
er boðið upp á málefnalega um-
ræðu, þegar lagðar eru fram vand-
aðar tillögur, sem við gerum enn.
Við boðum það. Við munum enn á
ný leggja fram vandaðar tillögur,
ekki bara um markmið, heldur um
það hvernig eigi að ná þeim mark-
miðum: Að gera fjárlögin rnark-
tækari, að draga úr síþenslu ríkisút-
gjalda, að fækka þeim ríkisstofn-
unum, sem við mundum flokka
undir velferðarkerfi fyrirtækja eða
gæluverkefni framsóknarkerfisins.
Af því að þetta er forsenda fyrir
þeim tillögum okkar, að boða og
helst að reyna að ná samstöðu, m.a.
með sjálfstæðismönnum, um nýtt
skattakerfi, sem væri einfalt, auð-
skilið og réttlátt.
Það er leiðinlegt, herra forseti, að
þegar hæstvirtum fjármálaráð-
herra er boðið upp á slíka umræðu
þá skuli hann bregðast við eins og
hann væri enn í stuttbuxnadeild
Heimdallar.
Kostnaður minnstur
yið Vatnsleysuvík
Staðarvalsnefnd hefur lokið
skýrslu fyrir iðnaðarráðherra um
staðarval fyrir álver. Meginniður-
stöður nefndarinnar eru að stofn-
kostnaður vegna áibræðslu yrði
minnstur við Vatnsleysuvík, en
kostnaður mestur við Dysnes.
Munar þar 7—8% af áætluðum
stofnkostnaði.
Staðir þeir sem til athugunar
komu voru, Helguvík, á Vogastapa,
við Vatnsleysuvík, á Geldinganesi
og við Dysnes í Arnarneshreppi. Að
mati nefndarinnar koma allir þessir
Karvel
Framhald af bls. 11
síðan útdeilt af náð og miskunn að
þeirra geðþótta.
Hverju skilar sjálfstæði
og hreinskiptni
okkur Vestfirðingum?
1. Orlofið er komið heim, 130
milljónir sl. orlofsár.
2. Greiðslurnar í Atvinnuleysis-
tryggingasjóð líka í ávöxtun
heima. Þar eru líka tugir mill-
jóna.
3. Sparimerkjapeningana líka
heim í ávöxtun. Þar er líka um
að ræða tugi milljóna.
4. Verði stofnaður einn lífeyris-
réttindasjóður, sem auðvitað
þarf, tryggjum þá að hann
verður deildarskiptur og fjár-
magnið ávaxtað þar sem það
fellur til.
Fylgjum þessu eftir, sýnum
kjark, festu og framsýni. Snúum
vörn í sókn.
Hristum af okkur lognmolluna,
sýnum hvað í okkur býr og berj-
umst fyrir bættum hag Vestfirð-
inga.
Okkar er framtíðin ef við viljum
og þorum að segja okkar meiningu
og krefjast að tillit sé til okkar tek-
ið.
staðir til greina fyrir álbræðslu sem
framleiði 130.000 tonn af áli á ári,
nema Helguvík, vegna nálægðar
við þéttbýli. ítarlegustu athugan-
irnar fóru fram í Eyjafirði og beind-
ust þær einkum að áhrifum loft-
mengunar frá áliðju á landbúnað.
Bent er á að slíkar athuganir þyrfti
helst að gera líka á hinum stöðun-
um með tilliti til veðurs og dreifingu
loftmengunar.
Staðarvalsnefnd bendir á að áður
en endanleg ákvörðun verði tekin
þurfi stjórnvöld að meta þá efna-
hagslegu og félagslegu þætti sem
takast á. Nefndin lítur svo á, að það
sé ekki sérfræðinga að leggja end-
anlegt mat á staðarvalið.
Skýrsla þessi er lokaverkefni
nefndarinnar, þar sem Albert Guð-
mundsson tók þá ákvörðun að
leggja hana niður að henni lokinni.
Hjörleifur Guttormsson skipaði
staðarvalsnefndina á sínum tíma. í
fréttatilkynningu segir að verk
nefndarinnar sé þó engan veginn
unnin fyrir gýg, þar sem upplýsing-
ar sem fram komi í skýrslunni geti
nýst við ákvörðunartöku síðar, ef af
verður.
TILLITSSEMI
-ALLRA HAGUR
LY
A
Rauður þríhymingur
varar okkur við
mÉUMFERÐAR
lÍRÁÐ
STGR.
BYÐUR EINHVER BETUR?
Umboðsmenn:
HVERFISGÖTU 103 SÍMI 25999
Bókaskemman Akranesi,
Kaupfélag Borgfiröinga,
Sería ísafirði,
Kaupfélag Skagfiröinga Sauöórkróki,
KEA Akureyri,
Radíóröst Hafnarfiröi,
J.L. húsiö Reykjavík,
Radióver Húsavík,
Skógar Egilsstööum,
Kaupfélag Héraösbúa Egilsstööum,
Myndbandaleiga Reyöarfjaröar,
Djúpiö Djúpavogi,
Búland Neskaupstaö,
Hornabœr Hornafiröi,
Kaupfélag Rangœinga Hvolsvelli,
M.M.búöin Selfossi,
Rás Þorlókshöfn,
Rafeindaþjönusta Ómars Vestmannaeyjum,
Fataval Keflavík,