Alþýðublaðið - 15.11.1986, Page 14
14
Laugardagur 15. nóvember 1986
Engin útborgun
SANYO
Húsgögn.
ORION
XENON
HITACHI
Heimilistæki.
Sjónvarps, video-
og ferðatæki.
EURC
KRIEDIT
Engin útborgun
og eftirstöðvar á
1 —11 mánuðum
til handhafa
E
EUROCARO
GAGGEMAU
bára
Norsku ajnngilak.
Club8
Rowenta IGISHS
Electrolux
sængumar og koddarnir
Opið mánud.-fimmtud. 9.00-19.00.
Föstudaga 9.00-20.00.
Laugardaga 10.00-16.00.
Vörumarkaðurinnht.
Eiöistorgi 11 -sími 622200
Dei Horen:
r
Islenskar nú-
tímabókmenntir
143. tölublað þessa virta þýska
bókmenntatímarits kom út nýverið
og er helgað íslenskum nútímabók-
menntum. Heftið er 224 biaðsíður.
Um útgáfuna sáu Franz Gísla-
son, Sigurður A. Magnússon og
Wolfgang Schiffer. í bókinni má
finna smásögur, ljóð og úrdrætti úr
leikritum eftir íslenska nútímarit-
höfunda og auk þess greinar um ís-
lenskar bókmenntir. Bókin er
prýdd fjölmörgum Ijósmyndum.
Einnig er stutt grein um íslenska nú-
tímagrafík og sýnishorn af verkum
grafíklistamanna. Er hér á ferðinni
mjög itarleg og vönduð kynning á
íslenskri menningu fyrir þýsku-
mælandi lesendur.
Einn af ritstjórum tímaritsins,
Jóhann P. Tammen, er væntanlegur
til landsins í næstu viku, til að
kynna bókina, ásamt nokkrum
stjórnarmönnum í þýsk-íslenska fé-
laginu í Bremerhaven, sem ásamt
öðrum styrkti útgáfuna.
Minningarsjóður
Helgu Jónsdóttur og
Sigurliða Kristjánssonar:
10 hlutu styrk
Samkvæmt erfðaskrá hjónanna
Helgu Jónsdóttur og Sigurliða
Kristjánssonar, kaupmanns, var
stofnaður sjóður til styrktar efni-
legum nemendum í verkfræði- og
raunvísindanámi.
Stofnfé sjóðsins var ákveðinn
hluti af eignum þeim er þau létu eft-
ir sig, en heimilt er skv. skipulags-
skrá að veita styrki af þeim vöxtum
sem sjóðurinn ber.
Nú hefur verið úthiutað styrkj-
um úr sjóðnum í þriðja sinn. Út-
hlutað var 10 styrkjum hverjum að
upphæð kr. 80.000.00.
Eftirfarandi hlutu styrkina:
Eiríkur Álmar Grétarsson, flug-
vélaverkfræði, Hilmar Skarphéð-
insson, tölvunarfræði, Jóhanna
Vigdís Gísladóttir, rafmagnsverk-
fræði, Jón Gunnar Jónsson, véla-
verkfræði, Kristján Björn Garðars-
son, iðnaðarverkfræði, Reynir B.
Eiríksson, iðnaðarverkfræði,
Stefán Guðlaugsson, byggingaverk-
fræði, Einar Steingrímsson, stærð-
fræði, Eiríkur Steingrímsson, líf-
fræði, Unnur Styrkársdóttir, líf-
fræði.
Fyrirhugað er að veita nokkra
styrki úr minningarsjóðnum á
næsta ári og verður auglýst eftir
umsóknum í júnímánuði n.k.
^Hefur það bjargað N^þér /r
Opið laugardag í
öllum deildum frá kl. 9—16
Verslið þar sem
úrvalið er mest
og kjörin best.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut
'A A A A A A %
nauiTiJ
_j iJuatjijU
uMfiuuuyutti niih
121 Sími 10600