Alþýðublaðið - 08.01.1987, Síða 2
2
Fimmtudagur 8. janúar 1987
RITSTJQRNARGREIN ..
íhaldið hefur svikið öll
loforð um skattalækkanir
Sjálfstæöismenn hétu því á árdögum núver-
andi ríkisstjórnar, að stórlækka alla almenna
skatta. Þetta hafa þeir svikið svo rækilega, að
þingfréttaritari Morgunblaðsins telur það eina
skýringuna á fylgistapi Sjálfstæðisflokksins,
að drjúgur hluti kjósenda flokksins telji sig
hafa farið illa út úr skattheimtu ri'kisins 1986.
Hann telur, að misvísun launaþróunarog skatt-
reglna á síðasta ári hafi komiö fram í aukinni
greiðsluþyngd millitekjufólks, ekki sistásíðari
helmingi næstliðins árs.
Gild rök hafa verið leidd að því, að í tekju-
tengda skatta fari nú röskar 40 krónur af hverj-
um 100 krónum, sem menn vinna sér inn um-
fram 42.200 krónur á mánuði, en rétt um 50
krónur af hverjum 100 krónum, sem menn fá í
útgreidd laun umfram 73.300 krónur á mánuði.
Samkvæmt upplýsingum um útgreidd laun, t.d.
opinberra starfsmanna, má ætla að stór hluti
af svonefndu millitekjufólki lendi í efstu skatt-
þrepum og greiði 40 til 50% af jaðartekjum sín-
um í tekjutengda skatta.
Það er ekkert undarlegt þótt Sjálfstæðis-
menn vilji reyna að beina athygli almennings
frá þessum staðreyndum. — Og af hverju
skyldi almenningur þurfa að greiða svo háa
tekjutengda skatta? Ástæðan er fyrst og
fremst sú, að nákvæmlega ekkert hefur verið
gert til að tryggja eðlileg skil á sköttum frá fjár-
magnseigendum, sem ævinlega komast und-
an því að greiða réttlátan hlut til samneyslunn-
ar. En ríkið þarf sitt og það er sótt í vasa hins
almenna launamanns, sem hefur ekki aðstöðu
til að skjóta neinu undan.
M ogginn telur sig hafa fundið aðferð til að
dreifa athyglinni frá þessum staðreyndum.
Blárog bólginn hróþarhann nú áhverjum degi,
að Alþýðuflokkurinn muni eftir kosningar
leggja stórfellda skatta á allar eignir lands-
manna, fái hann til þess aðstöðu. Blaðið held-
ur því fram, að tillögur Alþýðuflokksins um
stóreignaskatt, muni bitna á öllum íslending-
um, sem eru svo heppnirað eiga þak yfir höfuð-
ið og kannski bil iika.
Eins og stundum kemurfyrir fer Mogginn hér
með staðlausa stafi. Tillögur Alþýðuflokksins
um stóreignaskatt snúast um 400 milljón
króna skattheimtu, einkum af félögum og fyrir-
tækjum, sem eiga umtalsverðareignirog hafa
hagnast verulega á þeim. En Mogganum þykir
auðvitað fráleitt að leggja stóreignaskatt á fyr-
irtæki eins og íslenska aðalverktaka, sem ár
hvert valsa með gífurlega fjármuni og nota þá
að mestu leyti í eigin þágu, þótt tekjur þeirra
séu tryggðar I millirlkjasamningum og með
einokunáraðstöðu. Það skyldi þó ekki vera, að
Sjálfstæðismenn ættu þetta fyrirtæki að
meirihluta?
Stóreignaskatturaf því tagi, sem Alþýðuflokk-
urinn hefur lagt til, myndi ná til nokkurra stór-
eignafyrirtækja. Hann kæmist ekki einu sinni
í kallfæri við hinn almenna íbúða- eða húseig-
anda. En Mogginn með sinn mikla áróðurs-
slagkraft reynirað koma því inn hjáfólki, að Al-
þýðuflokkurinn vilji gera aðför að öllum, sem
einhverjar eignir eiga. — Þetta er rangt og að-
eins gert til að hylma yfir þá staðreynd, að það
er ekkert að marka Sjálfstæðisflokkinn og yfir-
lýsingar hans um skattamál.
Tillögur Alþýðuflokksins um stóreignaskatt
eraðeins brot af tillögum hans um upþstokkun
ávesölu og gatslitnu skattakerfi, sem erórétt-
látt og eykur á efnalega misskiptingu í þjóðfé-
laginu. Árásir Moggans á Alþýðuflokkinn
þjóna tvennum tilgangi:
w
I fyrsta lagi, að breiða yfir svik Sjálfstæðis-
manna við kjósendur sína í skattamálum.
Skattbyrðin hefur aukist í tíð núverandi rikis-
stjórnar!
I öðru lagi, að beina athyglinni frá innri vanda-
málum Sjálfstæðisflokksins og málefnafá-
tækt, sem er nánast algjör eftir að flokkurinn
hætti að þora að halda á lofti málefnaskrá ný-
frjálshyggjumannanna, sem ekki ertalin væn-
leg til árangurs í kosningum.
__ r
Forseti Islands
staðfestir lög
Á fundi ríkisráðs á Bessastööum
31. desember 1986 staöfesti forseti
íslands eftirgreind lög:
Fjárlög fyrir árið 1987.
Lög um breytingu á lögum nr. 38
14. apríl 1954 um réttindi og skyld-
ur starfsmanna ríkisins.
Lög um Kjaradóm.
Lög um kjarasamninga opin-
berra starfsmanna.
Lög um framhald álagningar og
innheimtu ýmissa tímabundinna
skatta og gjalda á árinu 1987.
Lög um breytingu á lögum nr. 75
14. september 1981, um tekjuskatt
og eignarskatt með síðari breyting-
um.
Lög um breytingu á lögum nr. 9
30. mars 1984, um frádrátt frá
skattskyldum tekjum vegna fjár-
festingar manna í atvinnurekstri,
með síðari breytingum.
Lög um breytingu á lögum nr. 68
10. október 1967 um Iðnlánasjóð,
sbr. lög nr. 19 5. apríl 1968, lög nr.
42 16. apríl 1971, lög nr. 50 25. apríl
1973, lög nr. 68 21. maí 1974, lög nr.
44 16. maí 1977, lög nr. 59 31. maí
1979, lög nr. 44 11. maí 1982, lög nr.
55 30. maí 1984 og lög nr. 52 7. maí
1986 um breytingu á þeim lögum.
Lög um breytingu á lögum nr. 41
frá 18. maí 1978 um Iðntæknistofn-
un íslands.
Lög um breytingu á lögum nr. 73
26. nóvember 1980, um tekjustofna
sveitarfélaga, með síðari breyting-
um.
Lög um breytingu á lögum nr. 53
30. maí 1984, um Ríkismat sjávar-
afurða.
Lög urn Stofnfjársjóð fiskiskipa.
Lög um breytingu á lögum um
fangelsi og vinnuhæli nr. 38 24.
apríl 1973.
Lög um breytingu á lögum um
Landhelgisgæslu íslands nr. 25 22.
apríl 1967.
Lög um breytingu á lögum um
lögreglumenn, nr. 56 29. maí 1972.
Lög um stöðvun verkfalls flug-
virkja og flugvélastjóra í Flug-
virkjafélagi íslands sem starfa hjá
Arnarflugi h.f.
Lög um stöðvun verkfalls félags-
manna í Skipstjórafélagi fslands,
svo og félagsmanna í Sjómannafé-
lagi Reykjavíkur, .sem vinna á far-
skipum.
Lög um breytingu á lögum nr.
95/1975, um breytingu á lögum um
almannatryggingar, nr. 67/1971
með síðari breytingum.
Lög um breytingu á lögum nr.
91/1982 um málefni aldraðra, með
síðari breytingum.
Lög um breytingu á lögum nr.'
108/1985, urn breytingu á lögum nr.
59/1983, um heilbrigðisþjónustu.
Lög um breytingu á lögum nr.
57/1971, um almannatryggingar,
með síðari breytingum.
Lög um breytingu á lögum um at-
vinnuleysistryggingar, nr. 64/1981
sbr. lög nr. 10/1985.
Lög um breytingu á lögum um
listamannalaun nr. 29 29. apríl
1967.
Pétur G. Thorsteinsson var skip-
aður sendiráðunautur í utanríkis-
þjónustu íslands.
Höllu Bergs var veitt lausn frá
embætti sendifulltrúa í utanríkis-
þjónustu íslands.
Sigurður Skúli Bergsson var
skipaður deildarstjóri í samgöngu-
ráðuneytinu.
Stella Magnúsdóttir var skipuð
deildarstjóri í heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu.
Hermann Jóhannesson og
Runólfur Birgir Leifsson voru skip-
aðir deildarstjórar í menntamála-
ráðuneytinu.
Ennfremur voru staðfestar ýmsar
afgreiðslur, sem farið höfðu fram
utan ríkisráðsfundar.
Okurmálið 1
breytingum á okurlögunum eða
gera þær nauðsynlegu ráðstafanir
sem tryggðu að refsiheimild þeirra
stæðist. Um væri að ræða þvílíka
grundvallarreglu refsiréttar að hver
lögfræðingur hefði átt að sjá, sem
um málið fjallaði hvort sem var í
ráðuneyti eða Seðlabanka.
Mönnum verður ekki refsað
nema fyrir háttsemi sem er gerð
refsiverð með settum lögúm frá Al-
þingi. Það segir hins vegar að fram-
selja megi ýmsa efnisþætti til
stjórnvalda, en þeir verða þá að vera
sæmilega kunngerðir í opinberum
fyrirmælum. Það liggi því ljóst fyr-
ir að lögfræðingar hafi látið undir
höfuð leggjast að benda á að ef há-
marksvextir væru ekki nægilega
auglýstir væru refsiheimildir okur-
laganna óvirkar. Einn lögfræðing-
ur orðaði það sem svo að þennan
skilning ættu menn að hafa fengið
strax á fyrsta ári í lögfræði.
Byggingarhappdrætti
Sjálfsbjargar 1986
Vinningaskrá
Bifreið Audi 100 CC kr. 1.050.000
75162
Bifreið hver á kr. 500.000
3296 25145 61785 94893
Sólarlandaferð hver á 35.000
9600 22528 64147 89997 104338
15161 33250 76994 91380 115441
17584 51554 88430 103820 118166
Vöruúttekt hver á kr. 30.000
2143 18558 44202 69929 102132
2961 20773 44997 70981 104794
5644 22493 48852 79127 105915
5851 24551 50288 80217 108170
7059 27596 53156 81979 108408
7648 28335 54953 89520 108574
7895 36550 59047 98007 109369
9086 38506 61416 99306 113085
11039 38907 64646 100811 117604
11344 42658 68607 101219 119787
Alþýðuflokkurinn
opnar kosningamiðstöð
Alþýðuflokkurinn hefur nú opnað kosningamiðstöð
vegna væntanlegra Alþingiskosninga. Kosningamiðstöðin er
í Síðumúla 12 (Blaðaprentshúsinu) 2. hæð og verður hún op-
in alla daga frá klukkan 13:00 til 19:00. Síminn er 689370.
Stjórnandi kosningamiðstöðvarinnar vcrður Ámundi
Ámupdason.
Ilf Útboð
Leiga og losun ruslagáma
Innkaupastofnun Reykjavíkurborgar fyrir hönd gatna-
málastjórans I Reykjavík óskareftirtilboöum í aö leigja
og losa ruslagáma staðsetta á fjórum stööum í borg-
inni.
Útboðsgögn eru afhent á skrifstofu vorri Fríkirkjuvegi
3, Reykjavík, gegn krónur 5.000,- skilatryggingu.
Tilboöin veröa opnuð á sama staö miðvikudaginn 28.
janúar n.k. kl. 11. "
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800 — Postholf 878 — 101 Reykjavík