Alþýðublaðið - 13.02.1987, Blaðsíða 2
2
Föstudagur 13. febrúar 1987
•RITSTJORNÁRGREIN'
Flokkafjölgun
og framboðsmál
Orrahrlð kosninganna er nú að hefjast. Þing-
menn stjórnarflokkanna og jafnvel ráðherrar
eru farnir að fleygja hnútum um sali, og hóta
jafnvel stjórnarslitum. Enn er allt á huldu um
kjördag; sumir viija flýta honum en aðrir bíða
fram í maí. Og þeim fjölgar nú stöðugt, sem
hyggja gott til góðarinnar um þingsetu. Ný og
ný framboð sjá dagsins Ijós, og I sumum kjör-
dæmum gætu framboðslistarorðið allt að átta
eða níu. Ástandið fer að minna ögn á stjórn-
málalífið á ítallu, eða jafnvel í Danmörku, þar
sem flokkum virðist geta fjölgað endalaust.
Til viðbótar fjórflokkunum kemur Kvennalist-
inn, Flokkur mannsins, Bandalag jafnaðar-
manna og hugsanlega nýtt stjórnmálaafl I
tengslum við Samtök um jafnrétti milli lands-
hluta. Þá er ótalið framboð Stefáns Valgeirs-
sonar I Norðurlandskjördæmi eystra, en I þvl
kjördæmi gætu framboðslistar orðið nlu tals-
ins, ef fram heldur sem horfir.
r
Astæðurnar fyrir þessari fjölgun framboðs-
lista eru margvlslegar; sumar persónulegar;
aðrar tengjast afmarkaðri hagsmunabaráttu
og óánægju með hina svokölluðu fjórflokka.
íslendingar hafa reynslu af ýmsum tilraunum,
sem gerðar hafa verið með nýja stjórnmála-
flokkaog einstök framboð. Fátt lifireftir, nema
minningin. Því er hins vegar ekki að leyna, að
áhrifin hafaorðið nokkurá íslenskt stjórnmála-
líf, en ekki alltaf til góðs. Það hefur Alþýðu-
flokkurinn t.d. mátt reyna I langri sögu sinni.
Það hefur löngum þótt lýsa nokkurri upp-
lausn í stjórnmálalífi, þarsem stjórnmálaflokk-
um og framboðum hefur fjölgað til muna.
Dreifing atkvæða hefur orðið mikil og hluti
þeirra orðið gagnslaus þar sem þau hafa ekki
nægt til að fleyta fulltrúum inn á þing eða I
sveitarstjórnir. Niðurstaöan hefuroft orðið sú,
að erfiðlega hefur gengið að mynda ríkisstjórn-
ir eða meirihluta í sveitarstjórnum eða öðrum
þeim einingum, þar sem kosið er um forystu.
Gott dæmi um þetta er stjórnmálaástandið á
ítallu slðustu áratugi.
A íslandi, eins og öðrum lýðræðisríkjum, eru
auðvitað engin takmörk fyrir því hve margar
stjórnmálahreyfingar er unnt að stofna. Því
meira sem þeim fjöigar þvl meiri hræringar má
ætla að séu I stjórnmálallfinu. En oftar en ekki
verða þær til vegna þess að einstakiingar eða
hópar manna telja sig ekki finna hljómgrunn í
þeim stjórnmálaflokkum, sem fyrir eru, eða
telja stofnun nýrra stjórnmálasamtaka fljót-
virkari aðferð til að koma áhugamálum sínum
(framkvæmd, þótt reynslan sýni oft hið þveröf-
uga.
/Etla má, að oftar en ekki myndi barátta fyrir
afmörkuðum hagsmunamálum ná meiri ár-
angri innan þeirrastjórnmálasamtaka, sem fyr-
ireru, en með stofnun nýrra. Þargildirauðvitað
aðferðin að beita samtakamættinum til að
knýjafram breytingarástefnu, sem óánægjaer
með. En nú um stundir hafa ýmsir valið aðrar
ieiðir.
Það er síðan kjósenda að meta og vega hvort
þessar nýju aðferðirséu til hagsbótafyrirþjóð-
ina ( heild eða ekki. Reynsla annarra þjóða um
áratuga skeið hefur sýnt og sannað að mikil
fjölgun stjórnmálaflokka hefur ekki bætt
stjórnmálaástandið. Sumir þeirra hafa að vísu
breytt áhersluatriðum I stjórnmáium og orðið
til þess að opna og breyta hinum rlkjandi
stjórnmálahreyfingum. En vænlegra hefur ver-
ið til árangurs, að slíkarbreytingar komi innan-
frá.
Fjórðungssamband Norðlendinga:
Byggðastefna
í skólamálum
Brottrekstri Sturlu úr starfi fræðslustjóra mótmælt
Hafnarfjörður
Tómstundaheimilið
tekur til starfa
Eitt þeirra mála, sem koma til
kasta stjórnar Fjórðungssambands
Norðlendinga á síðasta fundi var
fyrirvaralaus brottrekstur Sturlu
Kristjánssonar fræðslustjóra úr
embætti. Máliö var tekið fyrir á
fundi fjórðungsstjómar 16. janúar
s.l. Fjórðungsstjórnarmenn að ein-
um undanskildum voru sammála
um afgreiðslu ályktunar. Adolf
Berndsen, taldi að endurkoma
Sturlu Kristjánssonar i embætti
mundi leiða til áframhaldandi
árekstra, sem geti bitnað á skóla-
máium í umdæminu. Hann lýsti
fullum stuðningi við þá baráttu að
standa á rétti landsbyggðar í
fræðslumálum. Á fundinn mætti
Guðmundur Ingi Leifsson fræðslu-
stjóri i Norðurlandi vestra, til að
uppiýsa málið að beiðni sambands-
ins. Meginatriði ályktunarinnar eru
þessi:
Flóamarkaður
Lionessuklúbbur Reykjavíkur
heldur sinn árlega flóamarkað
laugardaginn 14. febrúar kl. 14.00 í
Lionsheimilinu Sigtúni 9 Reykja-
vík.
Allur ágóði rennur til líknarmála.
Alþingi 1
rikisins að verðmæti íslenskra hús-
gagna er um 80% af heildarkostn-
aði, en erlendu húsgögnin vega þá
um 20%. Búið er að festa kaup á
húsgögnum í þingsali, Kringlu og
skála, skrifstofu forseta Sameinaðs
þings, skrifstofustjóra Alþingis og
kaffistofuna.
í skýrslu Húsameistara ríkisins
kemur fram, að i öllum tilfellum
hafi fyrst verið athugað hvort við-
eigandi húsgögn hafi verið fáanlega
frá íslenskum framleiðendum. Þar
sem útlit, form og virðuleiki hafi
haft mikið að segja, hafi hins vegar
verið afráðið að kaupa erlend hús-
gögn!
„Fjórðungsstjórn lýsir yfir full-
um stuðningi við aðgerðir fræðslu-
ráðs Norðurlandsumdæmis eystra,
varðandi brottvikningu Sturlu
Kristjánssonar, úr starfi fræðslu-
stjóra. Jafnframt vítir fjórðungs- ■
stjórn það gerræði, sem felst í fyrir-
varalausri brottvikningu Sturlu
Kristjánssonar og að til uppsagnar
hafi verið gripið án vitundar og
vilja fræðsluráðs, sem samstarfs-
aðila Menntamálaráðuneytisins um
grunnskólamál í umdæminu.
Fjórðungsstjórn skorar á forsæt-
isráðherra og alþingismenn Norð-
urlandskjördæmis eystra að knýja á
um endurskoðun á ákvörðun
menntamálaráðherra og koma á
viðræðum milli ráðherrans og
fræðsluráðs. Fjórðungsstjórn lýsir
fyllsta trausti á störf Sturlu Krist-
jánssonar í starfi fræðslustjóra og
mælir með áframhaldandi skipan
hans í starf fræðslustjóra umdæm-
isins og styður samstöðu starfsfólks
fræðsluskrifstofu, fræðsluráðs og
skólamanna á Norðurlandi eystra.
Fjórðungsstjórn lýsir stuðningi
við þá skólamálastefnu sem
fræðslustjóri hefur framkvæmt í
umboði fræðsluráðs, sem gætir
hagsmuna sveitarstjórna, sem sam-
starfsaðili við Menntamálaráðu-
neytið.
Fjórðungsstjórn telur að sú
stefna sem rekin hefur verið í um-
dæminu hafi þjónað markmiðum
byggðastefnu um valddreifingu og
eflingu skólaþjónustu, fullkomlega
í samræmi við fyrirmæli og mark-
mið grunnskólalaga. Þess vegna tel-
ur fjórðungsstjórn að með gerræði
menntamálaráðherra sé verið að
stöðva þessa þróuní*
í Fréttabréfi FN segir að í þessari
ályktun komi einnig fram afstaða
fjórðungsstjórnar til þeirrar
byggðastefnu í skólamálum, sem
einkennt hafi störf norðlensku
fræðsluráðanna og fræðslustjórar
hafa framkvæmt.
Áskell Einarsson, framkvæmda-
stjóri.
Almenna Bókafélagið:
Haustregn
— Ijóðabók eftir séra
Heimi Steinsson
Út er komin hjá LJóðabóka-
klúbbi Almenna bókafélagsins
ljóðabók eftir séra Heimi Steins-
son. Nefnist hún Haustregn, 98 bls.
að stærð og hefur að geyma 41 ljóð
og tvo ljóðaflokka, sem heita Merl-
in í Hliðskjáifinni, 6 ljóð, og Mund-
ang, 8 ljóð.
Höfundurinn segir í forspjalli
fyrir útgáfunni:
„Kver það, sem hér er til orðið,
hefur að geyma samtíning frá tæp-
um þremur áratugum. Lengi hef ég
efazt um rétt minn til að láta þessa
dreif frá mér fara. Nú verður að
skeika að sköpuðu.
í bókinni er dálítið af sundur-
lausum svipmyndum, sem birtar
eru hiklaust og ekki er vert að hafa
orð á. Jafnframt verða á vegi all-
mörg þyngri stef, er kveður við á ný
og á ný. Eg bið góðfúsan lesara að
reyna að líta hið síðar nefnda efnið
í samhengi og hafa það í huga, að
trúarbarátta hefst þráfaldlega í
myrkri, en leitar sér að jafnaði stað-
ar í Ijósi. Rangt er að hampa ann-
arri hlið máls á kostnað hinnar,
þegar til er vitnað eða á lofti haft!’
Séra Heimir Steinsson hefur ekki
sent frá sér ljóðabók áður. Bókin er
prentuð og bundin í prentsmiðju
Hafnarfjarðar.
f Hafnarfirði er að fara af stað
rekstur tómstundaheimilis fyrir
börn á aldrinum 7—11 ára. Að
stofnun þessa heimilis stendur
Æskulýðs- og tómstundaráð Hafn-
arfjarðar. Miðað er við að starf-
semin hefjist 16. febrúar n.k. Tóm-
stundaheimilið verður til húsa i
Æskulýðsheimilinu við Flatar-
hraun.
Ætlunin er að heimilið verði opið
frá kl. 9—17 alla virka daga, en ein-
ungis verður um að ræða Vi dags
vistun, annað hvort fyrir eða eftir
hádegi fyrir hvert barn. Með þessari
tilhögun er verið að reyna að koma
til móts við skólatíma barnanna,
þannig að þau sem eru í skólanum
fyrir hádegi geti verið eftir hádegi í
Tómstundaheimilinu og svo öfugt.
Eins og nafnið gefur til kynna
verður þetta staður þar sem börnin
geta sinnt tómstundum sínum og
áhugamálum. Áhersla verður lögð
á að skapa heimilislegt andrúmsloft
þannig að öllum komi til með að
líða sem best. í starfinu verður m.a.
ýtt undir og lögð áhersla á þrosk-
andi leiki og spil við hæfi barn-
anna, að þau læri að umgangast
aðra og vinna með þeim. Reynt
verður að auka sjálfstæði þeirra
með ýmiss konar verkefnum, boðið
verður upp á gönguferðir, heim-
sóknir á vinnustaði, söfn og stofn-
anir verða skoðaðar o.fl. eftir því
sem aðstæður leyfa. Börnunum
verður gert kleift að stunda heima-
nám í Tómstundaheimilinu og mun
starfsfólk aðstoða þau við það.
Starfsmenn verða tveir. Starf
þeirra verður fyrst og fremst það að
reyna að auka getu og þroska þeirra
barna sem á heimilinu munu dvelja.
Til þess að börn úr öllum hverf-
um bæjarins hafi jafna möguleika
til veru í Tómstundaheimilinu er
ætlunin að semja við Landleiðir um
að skólabíll hafi viðkomu við heim-
ilið.
Til að byrja með verður ekki
hægt að bjóða upp á mat fyrir
börnin, þannig að þau verða að
koma með nesti að heiman.
Gjald fyrir hvert barn verður kr.
2.500 á mánuði.
Með stofnun þessa Tómstunda-
heimilis vill Æskulýðs- og tóm-
stundaráð koma til móts við kröfur
nútímans. Það verður stöðugt al-
gengara að báðir foreldrar vinni ut-
an heimilis og þörf fyrir heimili af
þessu tagi fer vaxandi, segir í frétta-
bréfi.
Brjótum múrinn! Almennir stjórnmálafundir
Vesturland
Alþýðuflokkurinn boðar til almennra stjórnmálafunda á Vesturlandi
þar sem frambjóðendur flokksins og forystumenn mæta.
Föstudaginn 13. febrúar klukkan 20:30 í Stykkishólmi
Laugardaginn 14. febrúar klukkan 15:00 í Búðardal
Sunnudaginn 15. febrúar klukkan 16:00 í Ólafsvík
Sunnudaginn 15. febrúar klukkan 20:30 á Hellissandi