Alþýðublaðið - 25.02.1987, Síða 4

Alþýðublaðið - 25.02.1987, Síða 4
alþýðu- Miðvikudagur 25. febrúar 1987 Alþýöublaðið, Ármúla 38, 108 Reykjavík Sími: (91) 681866, 681976 Útgefandi: Blað hf. Ritstjóri: Árni Gunnarsson (ábm.) Blaðamenn: Örn Bjarnason, Ása Björnsdóttir, Kristján Þor- valdsson og Jón Daníelsson Framkvæmdastjóri: Valdimar Jóhannesson Skrifstofa: Halldóra Jónsdóttir og Eva Guðmundsdóttir Setning og umbrot Alprent hf., Armúla 38 Prentun: Blaöaprent hf., Síðumúla 12 Áskriftarsíminn er 681866 íslensk getspd: Eignaraðilum Lottós greitt tuttugufalt stofnframlag íslensk Getspá, sem rekur talna- leikinn Lottó 5/32 úthlutaöi á þriðjudaginn var eignaraðilum sín- um, íþróttasambandi íslands, Ör- yrkjabandalagi íslands og Ung- mennafélagi Islands, ágóðahlut í fyrsta sinn frá því talnagetraunin hófst, hinn 29. nóvember. 24 milljónum króna var úthlutað í hlutfalli við eignaraðild. í hlut íþróttasambands íslands komu tæpar 11.3 milljónir, í hlut öryrkja- bandalagsins komu 9.6 milljónir og tæplega 3.2 milljónir komu í hlut Ungmennafélags íslands. Þetta er tuttugufalt stofnframlag þessara aðila til Islenskrar Getspár. 137 milljónir á 12 vikum. í máli Þórðar Þorkelssonar, stjórnarformanns íslenskrar Get- spár kom fram, að nú hefur verið dregið 12 sinnum í Lottóinu. Sölu- kassar í síðustu viku voru 126 og Þessi mynd var tekin þegar eignaraðilum að Lottói 5/32 var afhentur ágóðahluti í fyrsta skipti. Frá vinstrU fiSyður Þorkelsson, stjórnarformaður íslenskrar Getspár, Arnþór Helgason, formaður Öryrkjabandalags íslands, Gíslason, formaður Ungmennafélags Islands og Sveinn Björnsson, forseti Iþróttasambands íslands. Kúrdar andmæla of- sóknum af hendi sænskra yfirvalda TVeir Kúrdar leituðu til stöðva Flóttamannastofnunar Samein- uðuþjóöanna í Stokkhólmi á mánudaginn og óskuðu eftir að- stoð gegn aðgerðum sænskra yfir- valda. Samtímis söfnuðust 30—40 , Kúrdar saman í sænska sendiráð- inu í Bonn til að mótmæla því að margir Kúrdar hafa veriö hafðir undir eftirliti vegna morðsins á Olof Palme. Fulltrúi flóttamannahjálpar S.Þ. á Norðurlöndum, Soren Jessen Pedersen, sagðist myndu athuga mál Kúrdanna tveggja sem kvört- uðu undan sænsku yfirvöldunum. Þeir eiga á hættu tveggja mánaða fangelsi fyrir að hafa yfirgefið heimabæ sinn í Svíþjóð, þar sem þeir voru í e.k. sveitarfangelsi, þ.e.a.s. þeir máttu ekki fara þaðan án leyfis Iögreglunnar. Kúrdarnir tveir eru grunaðir um að vera I tengslum við PKK-sam- tökin sem eru ein af frelsishreyfing- um Kúrda og talin vera hryðju- verkasamtök, sem hafi staðið að baki morðinu á Olof Palme. Þeir krefjast þess að fá að vita hvað sænska lögreglan sakar þá um og annar þeirra vill flytjast frá Sví- þjóð. Mörg morð hafa verið framin í hverfum útlægra Kúrda í Svíþjóð á undanförnum árum. Þjóðfrelsissamtök Kúrdistan og samtök Kúrda í Vestur-Þýskalandi hafa sakað sænsku ríkisstjórnina um misrétti og kerfisbundnar of- sóknir gagnvart Kúrdum í sam- bandi við rannsóknina á morði' Olofs Palme. PKK og önnur frelsissamtök Kúrda berjast fyrir stofnun sjálf- stæðs ríkis Kúrda á landamærum írans, íraks og TVrklands. eiga því um 94% þjóðarinnar að- gang að leiknum. Heildarsala fyrstu tólf vikurnar nemur um 137 milljónum króna. Þórður Þorkelsson sagði, að miðað við svipaða þátttöku í Lottó- inu á þessu ári og verið hefði fram til þessa, mætti ætla að talnaleikur- inn skilaði íþróttasambandinu um 90 milljónum króna á árinu, ör- yrkjabandalagsinu um 80 milljón- um og Ungmennafélagi íslands um 26 milljónum króna. Gjörbreytir starfi íþróttahreyfingarinnar Sveinn Björnsson, forseti íþróttasambands íslands, sagði við þetta tækifæri, að hagnaðurinn af Lottóinu ætti eftir að gjörbreyta öllu starfi íþróttahreyfingarinnar á komandi árum. Á þessu ári kostaði rekstur íþróttastarfs í landinu um 500 milljónir króna. Það fjármagn sem fengist frá Lottóinu myndi efla til muna íþróttastarf hér á landi og létta mjög undir með þeim 6—7 þúsund mönnum, út um allt land, sem reyndu að ná endum saman í hinum ýmsu íþróttasamböndum og ■ félögum. íþróttasambandið hefur ákveðið að skipta hagnaði Lottós- ins jafnt milli sérsambanda sinna og héraðssambanda. Skipting þess fjár, sem sérböndin fá í sinn hlut verður þannig, að 10% verður skipt jafnt, 30% skiptast eftir iðkenda- fjölda, 55% skiptast eftir umfangi og 5% renna í afreksmannasjóð. Skipting þess fjár, sem héraðs- samböndin fá í sinn hlut, verður þannig, að 10% er skipt jafnt, 30% skiptast eftir iðkendafjölda og 60% skiptist eftir sölu lottómiða í hér- aði. Arnþór Helgason, formaður Or- yrkjabandalags Islands, sagði, að peningarnir frá Lottóinu sköpuðu ný viðhorf í starfsemi bandalagsins og yrðu því mikil lyftistöng. Banda- lagið sæi nú fram á að geta reist og rekið íbúðarhúsnæði fyrir öryrkja og rynnu 80% af peningunum beint til Hússjóðs öryrkjabandalags ís- lands, sem er sjálfseignastofnun. Arnþór sagði, að nú þegar væru 400—500 manns á biðlista eftir íbúðum. Þetta væri fólk sem hvorki gæti byggt sjálft, né vænst þess að geta keypt íbúðir á frjálsum mark- aði. Þegar er hafinn undirbúningur að íbúðabyggingum fyrir hagnað- inn af Lottóinu og er ætlunin að byggja víða um land. 20% af hagn- aðinum renna beint til Öryrkja- bandalagsins og sagði Arnþór, að þar biðu ótalmörg verkefni úr- lausnar og einna brýnast nú væri að nýta tölvutækni og aðra nýja tækni til þess að efla þátt öryrkja í at- vinnulífinu. Með því ynnist tvennt: Annars vegar lækkaði sá kostnaður sem þjóðfélagið bæri vegna örorku og hins vegar gæfi slíkt öryrkjum ný og aukin tækifæri til þess að taka þátt í atvinnulífinu. Pálmi Gíslason, formaður Ung- mennafélags íslands, sagði, að hagnaðurinn af Lottóinu væri afar kærkominn fyrir aðildarsambönd Ungmennafélagsins. Hann kvað fjármununum ekki verða skipt strax, heldur yrðu tillögur um skipt- ingu lagðar fyrir þing samtakanna í haust, þar sem endanlegar ákvarð- anir yrðu teknar. Pálmi kvað brýn- asta verkefnið nú að gera öllum hér- aðssamböndunum mögulegt að ráða til sín starfsmann til þess að hafa umsjón með starfinu. Samsteypa íslenskra fiskeldistrygginga Stofnuð hefur verið Samsteypa íslenskra fiskeldistrygginga. Stofnaðilar eru eftirtalin vá- tryggingafélög: Almennar Tkygg- ingar hf., Brunabótafélag íslands, Reykvísk Endurtrygging hf., Sjóvá- tryggingarfélag íslands hf., Trygg- ingamiðstöðin hf. og íslenzk end- urtrygging. I fréttatilkynningu segir, að til- gangurinn með stofnun samsteyp- unnar sé: 1. að vinna að því að samræma skilmála og ákvarðanir um þá, svo og iðgjöld, verði teknar hér á landi. 2. að vinna að því að aðildarfélögin hafi ávallt yfir að ráða sem fyllstum tölulegum upplýsing- um um þessar tryggingar. 3. að vinna að því að fullnýta möguleika þá sem fyrir hendi eru innanlands á þessu sviði með því að aðildarfélögin endur- tryggi hvert hjá öðru, svo sem sérstakir endurtryggingarsamn- ingar og samþykktir samsteyp- unnar segja til um. Fiskeldi er ung atvinnugrein hér á landi sem miklar vonir eru bundnar við í framtíðinni. Reynslan bæði hér og erlendis hefur hins vegar leitt í ljós, að um mjög áhættusaman at- vinnurekstur er að ræða. Það er því mjög mikilvægt að þegar í upphafi sé tekið mið af íslenskum aðstæð- um og sú reynsla sem skapast, verði notuð til að uppfylla þarfir þessarar atvinnugreinar hvað vátryggingar varðar. Vegna slæmrar tjónareynslu er- lendis eru endurtryggingamarkaðir mjög takmarkaðir og hefur það komið niður á íslensku fiskeldis- stöðvunum í formi þröngra skil- mála og hárra iðgjalda. Með því að dreifa áhættum innanlands eins og kostur er, minnkar ekki einungis þörfin fyrir erlendu endurtrygg- ingaverndina, heldur er vonast til að unnt verði að hafa áhrif til þess að ná betri skilmálum og hagstæð- ari iðgjöldum. Það virðist blasa við, að ef ekki er faglega að málum staðið gæti það leitt til þess, að mjög erfitt eða jafn- vel útilokað verði að fá fullnægj- andi endurtryggingavernd og yrði það öllum aðilum til tjóns. Á vegum samsteypunnar hefur verið skipuð sérstök tækninefnd Efnahagserfiðleikar Greiðslujöfnuður hefur verið af- ar óhagstæður hjá Dönum síðustu árin og á síðasta ári jókst hallinn meira en nokkru sinni. f rauninni má segja að Danmörk sé gjald- þrota, segir Jesper Jespersen, lektor við Verslunarbáskóla Kaupmanna- hafnar. Hann segir að Danir eigi fullt i fangi með vaxtaaukninguna eina saman, vegna síminnkandi tekna af útflutningi. Greiðslujöfnuður varð óhag- stæðari á árinu 1986, en nokkru sinni fyrr í sögu Danmerkur. Hall- inn varð 34,5 milljarðar Dkr., sem er 5,4 milljörðum kr. hærri upphæð en árið 1985. Ríkisstjórnin hefur sagt að nú hafi þessari óheillaþróun verið snúið við og að hallinn í ár verði langtum minni, eða 18—19 milljarðar Dkr. Hagfræðingar í „Privatbanken“ leggja ekki trúnað á þær tölur og Jespersen er einnig á annarri skoðun. Hann telur að hall- inn í ár verði u.þ.b. 25 milljarðar kr. Jespersen telur áætlanir ríkis- stjórnarinnar óraunhæfar, einkum m.t.t. þess að á þessu ári muni Dan- mörk að líkindum slá Evrópumet í lántökum, sem út af fyrir sig sé áhyggjuefni. Skoðun hans byggir einkum á því að útflutningur hefur dregist saman undanfarið. Síðasta ár dróst iðnaðarútflutningur saman um 2% að magni til, miðað við árið 1985 og það lítur ekki út fyrir neina aukningu á þessu ári. Hann lítur þvi ekki björtum augum til framtíðar- innar. Methafi í skuldum Vegna hins mikla hallareksturs í Danmörku neyðast Danir til að auka enn er- lendar skuldir sínar, sem hafa farið sívaxandi hin síðari ár. Árið 1980 skulduðu Danir 100 milljarða Dkr. erlendis. Árið 1982 voru skuldirnar komnar í 154 milljarða kr. og nú eru þær komnar í 262 milljarða kr. Skuldirnar væru enn meiri, ef ekki væri vegna breytinga á gengi og verðbréfum, m.a. vegna verðfalls dollarans sem hefur haft jákvæð áhrif á skulastöðuna. Erlendar skuldir samsvara nú því að hver Dani skuldi 52.400 Dkr. er- lendis. Vöruskiptajöfnuður var óhag- stæður um 9 milljarða kr. á síðasta ári. Ferðamannaþjónustan hefur verið sú atvinnugrein sem einna mestar vonir voru bundnar við, en einnig þar varð hallarekstur. Danir eyddu 2,9 milljörðum meira í út- löndum en sem nam tekjum af ferðamönnum til Danmerkur. Mik- ill hluti þessarar eyðslu er talinn vera vegna innkaupaferða fólks yfir landamærin til Norður-Þýska- lands.

x

Alþýðublaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.